Morgunblaðið - 16.03.2008, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 16.03.2008, Qupperneq 24
neyðaraðstoð 24 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Texti Guðrún Guðlaugsdóttir Myndir Ómar Óskarsson gudrung@mbl.is | omar@mbl.is G uð gefi að enginn slasist eða veikist í dag – en ef það gerist þá má það gerast á meðan ég er á vakt.“ Svo mælir ungur sjúkraflutninga- og slökkvi- liðsmaður, mitt á milli gríns og al- vöru, þegar ég sit í kaffistofu í húsa- kynnum Björgunarmiðstöðvarinnar í Skógarhlíð, þar sem auk Slökkvi- liðs og Neyðarlínu hafa aðsetur, Landhelgisgæslan, Fjarskipta- miðstöð lögreglu, Tetra og Lands- björg. Ég er komin í galla sjúkraflutn- ingamanna, merktan starfsþjálfun og bíð þess ásamt áhöfn sjúkrabíls 701 að næsta útkall komi. Sá bíll var áður mannaður lækni en nú eru í áhöfn hans jafnan bráðatæknir og þrautþjálfaður sjúkraflutn- ingamaður. Þeir sem ég fer með í fyrsta út- kallið heita Ólafur Sigurþórsson og Gunnar Leó Þórsteinsson. Sá fyrr- nefndi hóf störf 1996 og er bráða- tæknir en Gunnar, sem er neyð- arflutningamaður, hóf störf á þessum vettvangi árið 2000. Ég er spennt og svolítið kvíðin. Hef þegar hitt mann nr. 70, sem heldur utan um heildardæmið, hann er stoðdeildarmaður sem sér um að samræma aðstoð og búnað og for- gangsraða. Einnig er ég búin að fara um húsið í fylgd með Brynjari Friðrikssyni. Það er mikið að sjá á þessum stað, merkileg tól og tæki sem eru til staðar fyrir íbúa höf- uðborgarsvæðis og landsbyggðar þegar mest á ríður. Ég hafði mætt í Slökkvistöð höf- uðborgarsvæðisins síðla dags. Það fyrsta sem fyrir augu bar voru tveir sjúkraflutningamenn að bera á milli sín kassa með g-mjólk og banönum. „Er þetta fæði sjúkraflutninga- manna?“ segi ég. „Þetta er alltaf til á fjórum stöðv- um sjúkra- og slökkviliðs, við erum staðsettir á Tunguhálsi og erum að sækja „fóður“,“ svarar annar glað- beittur. Hvað ertu há? Ég fer inn og gef mig fram. „Hvað ertu há?“ spyr dökk- hærður maður, Árni Odsson, eftir að hafa kynnt sig og spjallað svolitla stund um tilgang veru minnar þarna. „Ég er 164 sentimetrar,“ svara ég. Hann virðir mig fyrir sér fag- mannssjónum og kemur svo með galla sem smellpassar mér og hjálp- ar mér að festa á hann beltið. Og nú er bara að bíða. Ég er komin með síma í brjóstvasann sem pípir um leið og kallið kemur. Og ekki líður á löngu þar til Ólafur, Gunnar og ég erum lögð af stað. Eitthvað er um að vera – viðbún- aðarstig á Reykjavíkurflugvelli. En bílnum er fljótlega snúið á heima- slóðir. Hans var ekki þörf. Brjóstverkur og sjálfsvígstilraun Næst kemur útkall vegna sjúk- lings með brjóstverki. Bíllinn brun- ar af stað með sírenur og blá ljós og mig innanborðs á stól við hliðina á sjúkrabörunum. Á eftir okkur kem- ur Ómar ljósmyndari á bíl sínum. Hann ætlar að fylgja okkur dyggi- lega eftir. Ég heyri í talstöðinni að næsti sjúkrabíll er að fara út vegna sjálfsvígstilraunar og prísa mig sæla að vera heldur á leið til sjúk- lings með brjóstverki. Bíllinn brunar með látum vestur í bæ. Þar bíður sjúklingur í rúmi sínu og ber sig furðanlega vel þrátt fyrir mikil óþægindi fyrir hjarta. Þeir Ólafur og Gunnar hlynna að sjúk- lingnum fimum höndum og athuga hann og skrá upplýsingar. Mæla blóðþrýsting og súrefnismettun, taka hjartalínurit, spurt er um of- næmi og hvaða lyf sjúklingur taki. Ákveðið er eftir samtal við sérfræð- ing að fara með sjúklinginn á bráða- vakt Landspítala við Hringbraut. Í bílnum er sett upp nál hjá sjúk- lingnum og rætt við hann um heilsufarið. Ég virði fyrir mér öll tækin og fæ að vita síðar að í bílnum er hjartastuðtæki og súrefni auk margra annarra sjúkragagna sem neyðarþjónusta þarfnast. Lyf eru geymd í viðeigandi hirslu sem fylgir sjúkraflutningamönnum. Rólegir og fumlausir menn Þeir Ólafur og Gunnar hafa marga fjöruna sopið í þessu starfi. Í sjúkrabíl 701 Á bráða- og slysadeild Landspítala í Fossvogi liggur stöðugur straumur fólks, daga og nætur. Margt af því er alvarlega veikt eða slasað. Líf- línan þangað er sjúkraflutningar. Farið var í þrjú útköll með sjúkrabíl 701, það síðasta með sjúkling á slysadeild LHS í Fossvogi. Hér er meðferð hans fylgt eftir í máli og myndum. Rætt var við menn úr áhöfn umrædds sjúkrabíls og starfsfólk deildarinnar sem sinnti Ýri Geirsdóttur í veik- indum hennar. Batnandi Þarna eru þær mæðgur Ýrr Geirsdóttir, sem lögð var inn á slysa- og bráðadeild í Fossvogi vegna afleið- inga flensu og lyfjaofnæmis, og Hlíf Guðmundsdóttir. Hlíf kom strax og dóttir hennar hringdi til að segja henni frá líðan sinni og var fljót að kalla á sjúkrabíl. Línurit Ólafur skoðar hér hjartalínurit, hægt er að taka nokkuð nákvæm rit í sjúkrabílnum og senda þau svo til sérfræðinga á spítalanum svo þeir geti undirbúið komu sjúklings vandlega. Fyrri áhöfn Þetta eru f.v. Ólafur Sigurþórsson bráðatæknir og Gunnar Leó Þórsteinsson neyð- arflutningamaður. Með þeim fór blaðamaður í tvö útköll á sjúkrabíl 701 sem er neyðarbíll.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.