Morgunblaðið - 16.03.2008, Síða 31

Morgunblaðið - 16.03.2008, Síða 31
þeir hugsa til þegar þeim býr eitt- hvað í brjósti, sem ástæða væri til að tjá sig um. Ef aldrei heyrist neitt frá stéttinni nema það sé pantað, fer að vakna grunur um að eitthvað vanti upp á í náminu. Mér sýnist að efni blaðsins sé að langmestu leyti reist á því sem starfsfólk tímaritsins skipuleggur en að það komi ekki frá arkitekt- um sem aðsendar greinar. En þegar blaðinu er flett og það lesið, þá getur maður ekki annað en dást að því hvað við eigum þrátt fyrir allt mörg mannvirki sem eru glæsileg og listræn.. Sum þeirra eru enn á hugmyndastigi eins og byggingar Háskólans í Reykjavík sem virðast geta orðið mikið augnayndi og ekki vantar and- stæðurnar þegar lesandinn virðir fyrir sér annars vegar frístunda- hús Valdemars Harðarsonar arki- tekts í Götu í Hrunamannahreppi, sem að mestu leyti er byggt inn í fjallshlíð, og íbúðarhús hjónanna Baltasars leikstjóra og Lilju Pálmadóttur myndlistarkonu norður í Skagafirði. Góður nýfunkis Þegar litið er á ýmis ný hús sem tímaritið kynnir, er ljóst að nú upp á síðkastið hafa risið mörg gullfalleg hús í þeim stíl sem stundum er kallaður nýfunkis. Þar kemur fram virkilega góð tilfinn- ing fyrir formi. Það er á hinn bóg- inn spurning hve örsjaldan boglín- ur fá tækifæri til að koma til móts við allar þessar beinu línur. Sumir telja að það séu leifar frá hinum áhrifamikla módernisma á liðinni öld, þegar boglínur voru nánast bannaðar. Sá sem leitar að fyrir- myndum að boglínum í þessu ann- ars ágæta tímariti finnur þar næsta fá dæmi. Vert er þó að nefna sem dæmi um undantekn- ingu teikningu á forsíðu tímarits- ins 1. maí 2007, sem sýnir ein- hvers konar miðsvæði í hinum fyrirhugaða Háskóla Reykjavíkur við Öskjuhíð. Einnig teikningar af aðaltorgi og nærliggjandi húsum uppi á Urriðaholti í hinu nýja Urriðaholtshverfi sem verður harla nýstárlegt. Glæsilegast af flestu í tímarit- inu árið 2006 er líklega íslenzki sendiherrabústaðurinn í Berlín, sem er verk arkitektanna Hjördís- ar Sigurgísladóttur og Dennis Davíðs Jóhannessonar. Myndir sem sýna bæði opinber rými og bústað sendiherrans eru afar fal- legar. Í burðarvirki hússins er steinsteypa aðalbyggingarefni og með því er húsið látið tengjast Ís- landi. Bárusink, blásvartur steinn og eik eru notuð í klæðningar bæði utanhúss og innan. Þarna sést hvað hægt er að gera þegar ekkert þarf til að spara, en jafnframt hafa sumir kallað þetta flottræfilshátt þegar fjármunum ríkisins er ausið svona út. Mennningarrit AT – Tímarit arkitekta er menningarrit á sínu sviði og ég er þess fullviss að það hlýtur að hafa áhrif til góðs. Á nýliðnu ári var meira byggt á Íslandi en nokkru sinni áður í sögu landsins. Án efa hefur margt tekizt vel, en það var líka oft talað um „verktakastíl“ í niðrandi tóni og þá átt við það að einstakir verktakar byggðu jafn- vel heilu hverfin og það sæist langar leiðir. Þá verður freistandi að spara og það kann að verða mjög á kostnað listræns útlits. Ég ætla verktökum þó ekki svo lítinn metnað að þeim sé sama um útlit- ið. En áreiðanlega hefðu þeir gagn af að blaða í þessu tímariti og helzt að lesa það gaumgæfi- lega. byggt Höfundur er myndlistarmaður og blaðamaður. hjálparstarf MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 31 A ð vetrinum og raunar líka á sumrin kemur oft til kasta björg- unarsveita að hjálpa fólki sem hefur lent í vandræðum af ýmsu tagi, ekki síst ef veður er vont eða fólk villist. Linda Björk Markúsdóttir heitir ung stúlka, 21 árs gömul, sem starf- ar með Hjálparsveit skáta í Kópa- vogi og einnig starfar hún hjá neyð- arlínunni 112. Hvers vegnar fór hún að starfa á þessum vettvangi? „Ég kynntist þessu í gegnum fjöl- skylduna, bróðir minn Atli Már er í þessu og þannig kviknaði áhuginn,“ segir Linda. „Þá varð bara ekki aftur snúið,“ bætir hún við. En hver eru helstu verkefni Hjálparsveitar skáta í Kópavogi? „Aðstoð við fólk, ekki síst að leita að týndu fólki. Það sem kemur fyrst upp í hugann eru þessi óveðursútköll sem verið hafa í vetur, þau hafa ver- ið talsvert mörg. Þá höfum við verið að reyna að festa niður hluti sem farnir voru að fjúka og aðstoða fólk sem var í vandræðum heima hjá sér vegna foksins.“ Ertu sérstaklega þjálfuð til þessa? „Ég er sérstaklega þjálfuð í fyrstu hjálp. Það þýðir að ég er búin að taka níu daga námskeið í fyrstu hjálp í óbyggðum. Þar lærir maður að hjálpa fólki í þó nokkurri fjarlægð frá sjúkrahúsi. Við lærum endur- lífgun, hjartahnoð, blástur og að nota stuðtæki til að koma hjartslætti af stað. Við lærum líka meðhöndlun bráðaofnæmis og einnig rétt hand- tök ef aðskotahlutur stendur í fólki.“ Hjálpaði til við endurlífgun Hefur þú þurft að nota þetta? „Já, ég hef þurft þess í mínu per- sónulega lífi en ekki uppi á fjöllum. Þegar ég var í sjúkraflutningaskól- anum var ég í útkalli og lenti í að hjálpa til við endurlífgun. Hún tókst og það var rosalega gott – sýndi að eitthvað hafði tekist að kenna mér.“ Þú vinnur á neyðarlínu – hvað gerir þú þar? „Ég er nýbyrjuð, það er verið að þjálfa mig upp í að svara í símann. Það er mikilvægt að kunna að spyrja réttu spurninganna og svara þeim sem hringja þannig að þeir geri strax það sem þarf að gera.“ Hefur þú gaman af fjallaferðum? „Já, ég hef rosalega gaman af slík- um ferðum og að fara á skíði. Ég fer mikið inn í Þórsmörk og á það svæði, geng þar um kring. Svona ferðir krefjast góð útbúnaðar og ég hef komið mér slíku upp. Það kostar af- skaplega mikið, að eignast góðan slíkan útbúnað gerist ekki á einni nóttu. Ég fæ gjarnan eitthvað tengt fjallaferðum í jólagjafir, jafnvel ennþá, þótt ég sé búin að vera í þessu útivistardæmi í sjö ár. Síðustu árin hef ég verið heima að selja flugelda fyrir Hjálparsveit skáta í Kópavogi um áramót og þannig var það líka núna þann stutta tíma sem ég átti frí frá starfi mínu hjá neyðarlínu. Í sjúkraflutningaskóla Ég sótti um þetta starf eftir aug- lýsingu og var svo heppin að fá það. Ég hafði áður aðeins stundað nám á sjúkraliðabraut og svo fór ég og lauk grunnnámskeiði í sjúkraflutninga- skólanum. Þetta er vettvangur sem ég hef áhuga á að starfa við, að minnsta kosti á næstunni.“ Í þjálfun hjá Neyðarlínu Björgunarsveitir eru jafnan til taks fyrir samborgarana. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við Lindu Björk Markúsdóttur sem starfar með Hjálparsveit skáta í Kópavogi og hefur nýlega hafið störf hjá Neyðarlínu. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Verkefni Linda Björk Markúsdóttir fór í allmörg óveðursútköll í vetur. Útivist Vel búin á skíðum. gudrung@mbl.is Afmælisfagnaður Þróunarfélags Austurlands “öflugt í 25 ár” Um þessar mundir fagnar Þróunarfélag Austurlands 25 ára afmæli sínu, en það var stofnað sem Iðnþróunarfélag Austurlands í Herðubreið á Seyðisfirði árið 1983. Þróunarfélag Austurlands er því eitt elsta atvinnuþróunarfélag landsins. Á þessum tímamótum viljum við bjóða þér að taka þátt í afmælisdagskrá með okkur sem haldin verður á Seyðisfirði þann 28. mars nk. Aðalfundur félagsins verður haldinn sama dag frá kl. 13:30-14:30 í Herðubreið á Seyðisfirði. Venjuleg aðalfundarstörf. Í kjölfarið verður boðið uppá veglega hátíðardagskrá. Dagskrá afmælisfagnaðar: 15:00 Össur Skarphéðinsson, ráðherra iðnaðar- og byggðamála Svanfríður Inga Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkurbyggð Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar Axel Beck, forstöðumaður Þróunarfélags Kaupmannahafnarsvæðis (Væksthus) Stefán Stefánsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands Fundarstjóri Þorvaldur Jóhannsson 16:15 Skemmtiatriði 17:00 Léttar veitingar 25 ára 2008 ÞRÓUNARFÉLAG AUSTURLANDS Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Þróunarfélags Austurlands í síma 471 2545 eða á netfangið halla@austur.is - fyrir 26. mars. H ér að sp re nt Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Barcelona Helgarferð 28. mars í 3 nætur frá kr. 29.990 Allir elska vorið í Barcelona! Heimsferðir bjóða einstök tilboð á allra síðustu sætunum til Barcelona í mars. Í boði er frábært tilboð á þriggja nátta helgarferð 28.-31. mars. Barcelona er einstök perla sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Borgin býður frábært mannlíf og óendanlega fjölbreytni í menningu, afþreyingu og úrvali fjölbreyttra veitingastaða og verslana. Gríptu þetta frábæra tækifæri - takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði! Verð kr. 29.990 Netverð á mann, flugsæti báðar leiðir með sköttum, 28. mars-31. mars. Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel City Park Nicaragua 4**** í 3 nætur með morgunverði. M bl 9 84 31 6

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.