Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 44
44 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
EKRUSMÁRI - KÓPAVOGI
Glæsilegt og vel skipulagt 182 fm einbýlishús á einni hæð með 33 fm
innb. bílskúr. Eign sem hefur verið mikið endurnýjuð. Glæsilegt opið
eldhús með vönduðum innréttingum. 4 svefnherbergi og baðherbergi
með hornbaðkari og glersturtuklefa. Aukin lofthæð er í stofum og eld-
húsi. Stór verönd með skjólveggjum og heitum potti. Hiti í innkeyrslu
og stéttum. Verð 78,0 millj.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
SKÚLARGATA
ELDRI
BORGARAR
Vel innréttuð 3ja herb. 73,2 fm
íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi
fyrir eldri borgara auk sér
geymslu í kj. Stofa, sjónvarps-
stofa, rúmgott svefnherbergi og
baðherbergi með sturtuklefa og
þvottaaðstöðu. Tvennar flísa-
lagðar yfirbyggðar svalir. Fallegt
útsýni til Esjunnar og víðar. Sér
stæði í bílageymslu.
Húsvörður.Laus strax.
FLÓKAGATA
Glæsileg 168 fm efri hæð auk 29
fm bílskúrs á þessum eftirsótta
stað. Hæðin er innréttuð á vand-
aðan og smekklegan hátt og
skiptist m.a. í stórt hol lagt
náttúrugrjóti, afar rúmgott eldhús
með vönduðum innréttingum og
nýlegum tækjum, glæsilegar
stofur, 2 herb. auk bóka- og
sjónvarpsherb.og baðherb. lagt
marmara og flísum. Aukin lofthæð í íbúðinni og tvennar flísalagðar
svalir til suðurs og austurs. Hús að utan og þak nýlega málað. Hiti í
gangstétt framan við húsið. Hús teiknað af Halldóri H. Jónssyni.
HLÉSKÓGAR
Glæsilegt og vel staðsett 284 fm
tvílyft einbýlishús með um 30 fm
innb. bílskúr. Stórar samliggjandi
stofur, rúmgott eldhús, sex her-
bergi, sjónvarpshol/setustofa og
rúmgott baðherbergi auk gesta
snyrtingar. Tvennar svalir. Stór
verönd til suðausturs. Eignin er
vel staðsett á útsýnisstað, stór ræktuð lóð með fjölda trjáa og
plantna. Verð 75,0 millj.
GUÐRÚNARGATA - SÉRHÆÐ
Glæsileg sérhæð á tveimur hæð-
um (2 íbúðir áður, auðvelt að
breyta aftur.) ásamt bílskúr, sam-
tals 245,6 fm að stærð. Hæðin er
mikið endurnýjuð. Á efri hæð eru
rúmgóðar skiptanlegar stofur,
eldhús og borðkrókur með útsýni
yfir Miklatún, 2 herbergi og
glæsilegt baðherbergi. Á neðri
hæð er glæsilegt hjónaherbergi,
2 svefnherbergi, eldhús, baðher-
bergi. Sér geymslur í kjallara. Möguleiki er að kaupa sitt í hvoru lagi.
Verðtilboð.
NÝLENDUGATA
Fallegt 174 fm einbýlishús í vest-
urbænum. Húsið er tvær hæðir
auk riss. Á neðri hæð eru for-
stofa (byggð árið 2000), þrjú her-
bergi, þvottaherbergi og flísalagt
baðherbergi. Á efri hæð eru hol,
gesta snyrting, rúmgóð og björt
stofa með útgangi á suðursvalir,
borðstofa og endurnýjað eldhús
með eyju og AEG tækjum. Í risi
eru rúmgott hol og eitt herbergi auk geymslna.Fallegur suðurgarður
með nýrri hellulögn og 9,1 fm geymsluskúr á lóð. Góð staðsetn-
ing. Einstefnugata. Verð 59,5 millj.
FASTEIGNASALA SÓLVALLAGÖTU 84
101 REYKJAVÍK S: 535 0200 FAX: 535 0201
GLÆSIEIGN Í DANSKRI SVEITASÆLU
Sveitabýli, um 200 ára gamalt, nýlega uppgert, á Fjóni (Fyn) í Danmörku, vel
búið glæsilegum húsgögnum og innbúi sem fylgja með í kaupunum. Stærð
hússins er um 275fm á 1.819fm gróðursælli lóð. Rúmgóður bílskúr með
sérstöku "villibráðareldhúsi" og íveruherbergi á loftinu. Flísalagt útihús ca
20fm með býlögðum bogaglugga, tilvalið sem gestaherbergi. Eignin er
veðbanda og skuldlaus.Verð 29M. Útvegum aðstoð við fjármögnun í
Danmörku.
Gunnar Valdimarsson
lögg. fasteignasali og viðsk.fræðingur
gsm: 895 7838 • gunnar@neseignir.is
Nánari upplýsingar og fleiri myndir á www.neseignir.is
Uppl: Sigurbjörn, s; 53-50-207 & GSM; 862-2107
EINS og vænta mátti og fram
kemur í grein Hjálmtýs þá getur
hann ekki sannað dylgjur sínar
um að opinber stjórnvöld gyðinga
hafi fyrir stofnun
Ísraels haft þjóðern-
ishreinsun Araba á
stefnuskrá sinni.
Hann segir nú að
ásakanir hans séu
„einföld úttekt á því
sem hinir svokölluðu
nýju sagnfræðingar í
Ísrael hafi sannað
gegnum yfirgrips-
miklar rannsóknir á
tilurð Ísraelsríkis“ og
setur síðan upp
nafnalista þessara
fræðimanna og segir
að ég geti dundað
mér við að lesa verk þeirra! Eins
og í fyrri greininni nefnir hann
engar nákvæmar heimildir sem
sannað geta ásakanir hans, enda
eru þær ekki til.
Þeir fræðimenn eru ennþá
miklu fleiri sem taka undir þá
ályktun Bennys Morris, sem ég
lýsti í grein minni, Hatursaugu
Hjálmtýs Heiðdals. Það var engin
áætlun í gangi hjá Síonistum að
reka Araba burt eða hræða þá til
flótta.
Ljóst er þó að eftir að Sjálf-
stæðisstríðið var hafið 1948 og
stórfelld fjöldamorð arabískra
hryðjuverkamanna stuttu áður og
á meðan á stríðinu stóð, t.d. í
Kfar Etzion og Hadassah sjúkra-
húsinu (70 drepnir), á Gyðingum
voru hafin, þá tóku sumir ísr-
aelskir herforingjar það upp hjá
sjálfum sér að hreinsa sín svæði
af Aröbum. Það sem meðal ann-
ars mælir á móti því að um fyr-
irskipaða þjóðern-
ishreinsun af hálfu
stjórnvalda Gyðinga
hafi verið að ræða er
t.d. sú staðreynd að
ekki var hróflað við
um það bil helmingi
(400.000) þeirra
Araba, sem á svæði
Ísraels bjuggu á þeim
tíma. Augljóst er að
með hervaldi hefði
Gyðingaríkið getað
losað sig við alla
Araba í stríðinu 1948
eða fljótlega eftir
það, ef pólitískur vilji
hefði staðið til þess, en svo var
alls ekki. Þess í stað voru þeir
Arabar, sem eftir urðu, boðnir
velkomnir sem fullgildir borgarar
í hinu nýja ríki og njóta nú einna
mestra lýðréttinda allra Araba í
heiminum.
Auk þess voru skæruliðahreyf-
ingar eins og Irgun og Stern, sem
grunaðar voru um að hafa þjóð-
ernishreinsun Araba á stefnuskrá
sinni, leystar upp og bannað að
starfa í hinu nýja ríki Gyðinga
eftir Sjálfstæðisstríðið.
Flótti Araba frá Ísrael var að
miklu leyti og kannski mestu til
kominn vegna hvatningar leiðtoga
Araba og Arabaríkja.
Ég held að Hjálmtýr hafi fallið
í þá gildru, sem öfgamenn, eins
og ég tel hann vera, falla gjarnan
í, að oflesa í alls konar spek-
úlasjónir og vangaveltur sem
fræðimönnum með gott ímynd-
unarafl dettur í hug að setja
fram. Ef ævintýri þeirra hæfa
hans öfgafulla og fjandsamlega
hugsunarhætti þá telur hann þau
vera sannanir, sem þau alls ekki
eru.
Oftúlkunarárátta
Hjálmtýs og rangfærslur
Þessi oftúlkunarárátta hans
virðist einnig koma fram í nýjum
fullyrðingum hans um að 20. nóv-
ember síðastliðinn hafi verið birt
skjöl sem sanna að 40% lands
sem tekin hafa verið undir land-
nemabyggðir Gyðinga á Vest-
urbakkanum séu í einkaeigu Pal-
estínu-Araba. Heimildir hans? Jú,
þær eru ásakanir öfgavinstr-
isamtakanna Peace Now um
þetta, ekki sannanir heldur ásak-
anir! Í huga Hjálmtýs Heiðdals
virðist það vera sami hluturinn,
það er að segja ef ásökunin bein-
ist gegn Ísraelsríki! Í stórum
gagnagrunni sem ég get notað til
að skoða fréttir frá Ísrael frá
mörgum fréttaveitum, meðal ann-
ars arabískum, mörg ár aftur í
tímann, kemur ekkert fram um
þessa frétt dagana í kringum 20.
nóv. síðastliðinn. Fréttaveitur
virða þessa stórfrétt Hjálmtýs
ekki viðlits, enda áreiðanleika-
stuðull sálufélaga hans í Peace
Now kannski ekki meiri en hans
sjálfs!
Frásögn hans um landrán Gyð-
inga í Elon Moreh er undarleg
steypa. Eins og menn geta skoðað
á Wikipediu á netinu, þá kom
Hæstiréttur Gyðingaríkisins ein-
mitt í veg fyrir að landrán ætti
sér stað gagnvart palestínskum
eigendum landskikans. Þetta hef-
ur margoft komið fyrir og er allt-
af að gerast í Ísrael, að Palestínu-
Arabar ná fram rétti sínum, ef
þeir eiga hann.
Elliglöp Mandela og dóm-
greind Hjálmtýs
Athyglisverð er tilvitnun
Hjálmtýs í orð Nelsons Mandela
um Ísrael, þar sem hann segir
meðal annars: Hernaður þeirra
(Ísraela) hefur fyrst og fremst
beinst gegn almennum borgurum
og þá sérstaklega gegn börnum
(!). Er dómgreind Hjálmtýs virki-
lega svo úti á túni að hann telji að
þetta hatursraus gamalmennis sé
heilagur sannleikur? Að hernaður
lýðræðisríkis með allar sínar eft-
irlitsstofnanir og stjórnmála-
flokka fari fram með þessum
hætti? Að skýringin á falli palest-
ínskra barna og unglinga í vopn-
uðum átökum við Ísraelsher geti
alls ekki meðal annars falist í
þeirri áráttu Arabanna að etja
börnum sínum fram í fremstu víg-
línu og kenna þeim vopnaburð frá
blautu barnsbeini? Eru byssur
fimmtán eða sautján ára gamals
drengs eitthvað meinlausari, þó
hann sé skilgreindur sem barn?
Að lokum vil ég endurtaka
ákall mitt til stjórnvalda að þau
hugi að lagasetningu er skyldi
fjölmiðla til að greina ýtarlega frá
öllum sjónarmiðum í meiriháttar
pólitískum deilum. Ég er auðvitað
alls ekki að kalla eftir að sjón-
armið Palestínuvina heyrist ekki,
heldur að jafnvægis sé gætt.
Móðursýkislegt hatursraus að
hætti Hjálmtýs og félaga hefur
allt of lengi ráðið ferðinni í allri
umfjöllun fjölmiðla um málefni
Ísraels og Palestínu.
Lygamafía
Palestínuvina, ójá
Hreiðar Þór Sæmundsson
svarar grein Hjálmtýs
Heiðdal frá 3. mars sl.
»Ég held að Hjálmtýr
hafi fallið í þá gildru,
sem öfgamenn, eins og
ég tel hann vera, falla
gjarnan í, að oflesa í alls
konar spekúlasjónir og
vangaveltur …
Hreiðar Þór
Sæmundsson
Höfundur er verslunarmaður.