Morgunblaðið - 16.03.2008, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 16.03.2008, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG GÍSLADÓTTIR, Árskógum 6, lést 12. mars. Jarðað verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 18. mars kl. 13.00. Hrefna E. Leifsdóttir, Þorsteinn Árnason, Heiða K. Leifsdóttir, Auður Leifsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson, börn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Bogi Leifs Sig-urðsson fæddist í Melgerði í Glæsi- bæjarhreppi við Akureyri 6. júlí 1927. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 13. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Katrín Björns- dóttir og Sigurður Gísli Vigfússon. Bogi var yngstur 11 systkina sem öll eru nú látin. Sex þeirra létust í bernsku og fimm náðu fullorðinsaldri, þau hétu Björn Ólsen, f. 1916, Viglín, f. 1917, Jón, f. 1922, Marsilía, f. 1923, og Bogi sem hér er kvaddur. Fóst- ursystir Boga er Margrét Hall- dórsdóttir, f. 1934, lifir bróður sinn. Bogi kvæntist 6. febrúar 1965 Friðbjörgu Joensen, f. 6. sept- ember 1940. For- eldrar hennar voru Jens Joensen og Hanna Joensen. Synir Boga og Frið- bjargar eru: l) Jens Jóhann, f. l. októ- ber 1965, kvæntur Viktoríu Gísladótt- ur, f. 5. maí 1965. Þau eiga tvö börn. 2) Sigurður Kar- sten, f. 31. október 1972, kvæntur Guð- nýju Elvu Ólafs- dóttur, f. 3. júní 1974. Þau eiga þrjú börn. 3) Friðmar Leifs, f. 29. mars 1977, kvæntur Ingibjörgu Ingibergs- dóttur, f. 23. júlí 1975. Þau eiga þrjú börn. 4) Fóstursonur Boga og Friðbjargar er Birgir Þór Jó- hannesson, f. 15. desember 1983. Útför Boga var gerð frá Graf- arvogskirkju 22. febrúar og fór fram í kyrrþey. Elsku pabbi, nú hefur þú kvatt okkur í síðasta sinn. Það skarð sem þú skildir eftir verður erfitt að fylla í. En þú fórst í friði og það hvíldi mikil ró yfir þér. Ég á ótal góðar minningar um þig. Fyrsta og eftirminnilegasta minning mín um þig er frá því þegar við bjuggum í Hveragerði, þá vannst þú í löggunni í Vestmannaeyjum og mér fannst þú svo flottur í löggubúningi. Síðan man ég eftir þér sem bílstjóra í Þorlákshöfn. Þegar þú áttir frí þá gafst þú þér alltaf tíma til að gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyld- unni. Þegar við fórum til Reykjavík- ur, þá var fastur liður að koma við í Glæsibæ að borða. Þú gafst þér alltaf tíma til að leika við okkur bræðurna, alveg sama hversu mikið þú hafðir unnið, það var alltaf næg orka eftir handa okkur. Við fluttum í Þorláks- höfn þegar ég var 9 ára og þá keyrðir þú vörubíl. Mér þótti gaman að vera með þér í bílnum að landa úr bát- unum og keyra til Reykjavíkur með fisk. Eitt er það sem stendur upp úr í minningunni, þú skammaðir okkur bræður aldrei og við heyrðum ykkur mömmu aldrei rífast. Þú varst sá pabbi sem alla dreym- ir um að eiga, góður, sanngjarn, gef- andi, ánægður og leystir alltaf öll mál með því að tala við okkur. Þegar ég var táningur þá var það nánast fastur liður á sumrin að fara í sunnu- dagsbíltúr á svonefndan Gamlaveg, þar leyfðir þú mér að keyra og æfa sitthvað sem við kemur akstri. Fráfall þitt hefur haft mikil áhrif á börnin okkar sem sakna þín mikið. Pabbi, þú varst besti afi í heiminum. Börnunum okkar þótti alltaf gaman að fara til afa og ömmu og fá að gista, þar fengu þau allt sem þau langaði í. Þeim er ógleymanlegt bjúgnapartíið þegar afi fór í búðina kl. 10 um kvöld til að kaupa bjúgu sem voru elduð með kartöflum og allir borðuðu þeg- ar klukkan var að verða 12 á mið- nætti. Svona varst þú sem pabbi og afi, gerðir allt fyrir okkur og börnin okkar. Þú sýndir húsinu okkar Guð- nýjar sem við keyptum í vetur mik- inn áhuga. Við þurftum nánast að breyta því öllu, þú sagðir við mig: „Sigurður, heldur þú að þú flytjir þarna inn?“ Þá voru malar- og sand- haugar á eldhús- og stofugólfinu. Þegar þú varðst áttræður í fyrra þá héldum við veislu heima hjá okkur, þá talaðir þú mikið um breytingarn- ar á húsinu og varst afar ánægður með þær. Núna er komið í bílskúrinn stórt mótorhjól (hippi), á þeim hafðir þú mikið dálæti. Síðastliðnar vikur hafa verið erf- iðar hjá mömmu. Hún verður senni- lega lengi að komast yfir fráfall þitt, þið voruð svo samrýnd og þið vilduð vera saman eins lengi og mögulegt var. Við reynum að styðja mömmu og hjálpa henni eftir bestu getu þó að við getum ekki komið í staðinn fyrir þig. Pabbi, það er svo erfitt að hugsa til þess að fá ekki að hitta þig aftur í lif- anda lífi. Núna er enginn afi að syngja gömul og góð barnalög. Eng- inn pabbi til að hringja í og fá góð ráð hjá. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku pabbi, takk fyrir allt sem þú gafst mér og minni fjölskyldu, þú munt alltaf eiga stað í hjörtum okk- ar, þú gleymist aldrei. Þinn sonur, Sigurður Karsten Bogason. Elsku pabbi minn. Þó fimmtíu ár væru á milli okkar þá fannst mér þú ekki gamall. Fjörið byrjaði þegar litli drengurinn þinn fór loksins að ganga. Þegar ég rifja upp æsku mína með þér þá var ekki hægt að eiga betri pabba. Þú leiddir mig alltaf rétta veginn. Ég fór stund- um út af brautinni en þú togaðir mig inn á rétta veginn aftur. Þú varst alltaf til staðar til að hjálpa mér. Ég var ellefu ára þegar þú leyfðir mér að prófa að keyra bílinn. Mér er ógleymanlegt þegar við feðgar fór- um á Keflavíkurflugvöll að næturlagi með systur hennar mömmu. Á heim- leiðinni stoppaðir þú við Rauðavatn og leyfðir mér að keyra heim. Þá var ég þrettán ára. Pabbi, þú varst mikið fyrir spil og þau voru ófá kvöldin sem við sátum við eldhúsborðið og spiluðum asna og manna. Á laugardögum spilaðir þú matador við mig og Sigga og hafð- ir þú alltaf vinninginn þar. Þegar ég var fimmtán ára veiktist þú alvarlega og fórst í eina af stærstu hjartaaðgerðum sem höfðu verið gerðar hér á landi á þeim tíma. Það var óvíst um framhaldið. En þar voru frábærir læknar að verki sem kunnu sitt fag og björguðu lífi þínu. Þetta var í desember og ég hef alltaf sagt að það hafi verið jólin sem komu ekki. Þú komst heim síðdegis á að- fangadag og varst svo þreklaus að þú gast ekki lyft hálfu vatnsglasi. En baráttuvilji þinn var svo mikill, að þú fórst fram úr björtustu vonum. Síðan komu unglingsárin mín. Þau fóru misjafnlega í þig. Þá fyrst skynjaði ég hvað það var mikill ald- ursmunur á okkur og hvað þú varst mikið veikur. 29. mars 1997 héldum við upp á 90 ára afmælið okkar á Grillinu á Hótel Sögu. Það var okkar veitingastaður. Þarna sáum við yfir borgina og alveg út á Akranes. Við ákváðum þetta kvöld að halda upp á 100 ára afmælið á sama stað. Því miður varð ekkert úr því vegna þinna veikinda. Ég á aðeins góðar minningar um þig, pabbi minn, það var alltaf bjart yfir þér. Þú varst nákvæmur og skyldurækinn og þú varst ótrúlega yfirvegaður og æðrulaus í þínum erf- iðu veikindum. Eftir að ég varð rafvirki vildir þú fá góða þjónustu. Þú sagðir óbeint við mig að ég ætti að koma strax sama hvað hinir kúnnarnir mínir segðu. Þú værir búinn að stjana við mig öll þessi ár og nú vildir þú fá góða þjónustu. Þetta var svona einkahúmor okkar á milli. Pabbi, það er eitt sem ég sakna núna eftir þinn dag og það er þetta eina símtal sem ég fékk alltaf hvert einasta kvöld. Alltaf hringdir þú í mig og spurðir mig hvernig dagurinn hefði verið. Pabbi, núna ert þú farinn frá okk- ur en skilur eftir allar þær góðu minningar sem ég get talað enda- laust um við börnin mín. Pabbi, ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og gefið mér á minni lífsleið. Jesús sagði „himnaríkið er opið fyrir okkur“ pabbi þar munum við hittast aftur. Friðmar Leifs. Elsku afi, þú ert bestur og ég sakna þín rosa mikið, ömmu leiðist voða mikið núna en við skulum passa hana fyrir þig og förum með hana í keilu því ykkur þótti það svo skemmtilegt. Við fórum öll að gráta mikið í kirkjunni en ég veit að Guð og englarnir passa þig. Fallegi afi, ég elska þig. Afi minn hvar ert þú nú upp’ á himnum segir þú að þér líði miklu betur! Án þín er ekki gaman betra væri að vera saman. Afi minn ég elska þig því þér þykir vænt um mig. Horfðu á mig uppi þarna gættu þinna barnabarna. (M.B.G.) Þín skotta, Anna Sara Friðmarsdóttir. Bogi Leifs Sigurðsson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson ✝ Elskuleg fósturmóðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR ÞÓRODDSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Skjóli, sem lést mánudaginn 10. mars, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 17. mars kl. 13.00. Jóhanna Gunnþórsdóttir, Brynjólfur Lárentsíusson, Sveinmar Gunnþórsson, Kristín Pálsdóttir, Þórey Skúladóttir, Jón V. Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg systir okkar, HALLDÓRA SIGURJÓNSDÓTTIR, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli miðvikudaginn 5. mars. Útförin fer fram mánudaginn 17. mars kl. 15.00 frá Fossvogskapellu. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Hafsteinn Sigurjónsson, Henný Bartels. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR HALLDÓR BJÖRNSSON bifreiðastjóri, Hjallaseli 55, áður Hjarðarhaga 40, sem lést þriðjudaginn 11. mars, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn 17. mars kl. 15.00. Björn Á. Einarsson, Emilía Jónsdóttir, Tómas Á. Einarsson, Elísabet Benediktsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, HULDA JÓNSDÓTTIR sjúkraliði, Lágholti 19, Mosfellsbæ, sem andaðist á heimili sínu sunnudaginn 9. mars, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 18. mars kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent Krabbameinsfélagið. Þráinn Þorsteinsson, Fjalar Þráinsson, Svanlaug Ída Þráinsdóttir, Árni Valur Sólonsson, Berglind Jóna Þráinsdóttir, Jón Emil Magnússon, Dagmar Lind Jónsdóttir, Sigurlaug Einarsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GOTTSKÁLK GUÐJÓNSSON, Álfholti 34b, Hafnarfirði, sem lést á Landspítalanum föstudaginn 7. mars, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 18. mars kl. 13.00. Guðbjörg Valgeirsdóttir, Guðjón Gottskálksson, Merlinda Eyac, Guðbjörn Jóshua Guðjónsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.