Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 53

Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 53 Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Myndbandssýn- ing og stofuspjall Friðriks Þórs Frið- rikssonar um gerð myndarinnar Bíó- dagar sem byggð er á hans eigin lífi verður 17. mars kl. 13. Miðvikud. 19. mars kl. 14 verður sérsýning á kvik- myndinni Brúðguminn í Háskólabíói. Rútuferð frá Bólstaðarhlíð kl. 13.15. Skráning í s. 535-2760. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Skráning er hafin í 8 daga söguferð til Kaupmannahafnar, Wroc- law (Breslá) og Berlínar 7.-14. maí. Gist 1 nótt á ferju–3 nætur í Wroc- law–2 nætur í Berlín og 1 nótt í Kaup- mannahöfn. Nánari upplýsingar og skráning hjá Söguferðum/Þorleifi Friðrikssyni s. 564-3031 og hjá Þráni í síma 554-0999. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikir falla niður í dag, pálma- sunnudag og 23. mars, páskadag. Næst verður dansað 30. mars í Stangarhyl 4. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá, m.a. opn- ar vinnustofur, spilasalur o.fl. Á má- nud. og miðvikud. kl. 9.50 eru sund- og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug. Þriðjud. 18. mars er leikhúsferð í Þjóðleikhúsið á „Sólarferð“, sýning hefst kl. 14 (breyttur tími), skráning á staðnum og ís. 575-7720. Hæðargarður 31 | Tölvukennsla, Ís- landssöguspjall, myndlist, bók- menntir, framsögn og framkoma, Bör Börson, söngur, páfagaukar, hlát- urhópur, Skapandi skrif, postulín, Þegar amma var ung, hugmynda- banki, Müllers-æfingar, nýstárleg hönnun fermingarkorta, Vorferð á vit skálda o.fl. s. 568-3132. Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthús- inu á mánu- og miðvikud. kl. 9.30- 11.30, hringdansar í Kópavogsskóla á þriðjud. kl. 14.20, ringó í Smáranum á miðvikud. kl. 12. Uppl. í síma 564- 1490. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er ganga frá Egilshöll kl. 10. Vesturgata 7 | Farið verður í Þjóð- leikhúsið 18. mars að sjá leikritið Sól- arferð kl. 14. Lagt af stað frá Vest- urgötu 7 kl. 13.15. Upplýsingar og skráning ísíma 535-2740. Kirkjustarf Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn samkoma kl. 14 sem ung- lingastarf kirkjunnar sér um, barna- starf, lofgjörð og fyrirbænir. Á eftir er kaffi og samfélag og verslun kirkj- unnar verður opin. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bible studies at 12.30 in the main hall. Eve- ryone is welcome. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Heiðar Guðna- son, Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Aldursskipt barnakirkja, börn 1-13 ára velkomin. Bein útsending á Lindinni FM 102,9 og á www.filadelfia.is Óháði söfnuðurinn | Fermingamessa kl. 14. Barnastarf á sama tíma. Morgunblaðið/Jim Smart Árbæjarkirkja dagbók Í dag er sunnudagur 16. mars, 76. dagur ársins 2008 Orð dagsins: „Ef þér hafið þekkt mig, munuð þér þekkja föður minn. Héðan af þekkið þér hann og hafið séð hann.“ (Jóh. 14, 7.) Samvinnufélagið kallast ný-stofnað félag áhugafólksum miðjustefnu við Há-skóla Íslands. Á morgun, mánudag kl 12.15 stendur félagið fyrir hádegisfundi í stofu 207 í Að- albyggingu, en þar ætlar Helga Sigrún Harðardóttir skrif- stofustjóri þingflokks framsókn- armanna að flytja erindið Hvernig birtist miðjustefna í íslenskri póli- tík? „Miðjustefnan getur oft virkað ruglingsleg, sem birtist m.a. í því hvað henni eru gefin mörg ólík nöfn,“ segir Helga Sigrún, og nefnir sem dæmi hugtökin jafn- aðarstefnu, félagshyggjustefnu og samvinnustefnu sem oft rata í um- ræðuna um miðjupólitík. Helga Sigrún segir þrjú hugtök einkum einkenna miðjustefnu á Ís- landi: „Framsóknarmönnum er tamt að hampa hugsjónum sam- vinnu, jafnréttis og lýðræðis: að skapa samfélag þar sem hags- munir einstaklings jafnt sem heildar eru hafðir að leiðarljósi“, útskýrir hún. „Erindið skoðar m.a. þá krísu sem miðjustefnan virðist hafa lent í bæði hér heima og er- lendis, en vandi miðjupólitíkur kann hugsanlega að skýrast af því að reynt er að huga að hags- munum sem flestra, fara bil beggja ef unnt er og stunda vand- aða og skynsamlega ákvarð- anatöku. Slíkt ferli getur verkað óskýrt ásýndum, borið saman við hægri- og vinstri-arma stjórn- málalitrófsins sem byggjast iðu- lega á ákveðnum kenningum en ekki endilega skynsamlegri ákvarðanatöku út frá hagsmunum ólíkra hópa.“ Helga Sigrún mun skoða birt- ingarmyndir miðjustefnunnar í ýmsum málum sem Framsókn- arflokkurinn hefur beitt sér fyrir, og skoðar einnig miðjustefnuna í alþjóðlegu samhengi: „Nú síðast eru menn farnir að lýsa Barack Obama sem miðjumanni, og er stefna hans þannig að hún hefði vel getað orðið til á flokksþingi framsóknarmanna,“ segir Helga Sigrún. „Ég ætla líka að skoða sérstaklega samvinnu og sam- vinnufélög. Það rekstrarfyr- irkomulag hefur verið á fallanda fæti hérlendis, en er allútbreitt í löndunum í kringum okkur, og getur hugsanlega reynst mótvægi við neikvæðum hliðum einka- og markaðsvæðingar.“ Heimasíða Samvinnufélagsins er á www.internet.is/samvinnufelagid. Stjórnmál | Fyrirlestur á vegum Samvinnufélagsins á mánudag kl. 12.15  Helga Sigrún Harðardóttir fæddist í Keflavík 1969. Hún lauk BEd. gráðu frá KHÍ 1993, dip- lóma í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ 1994 og meist- aragráðu í mann- legum samskiptum frá Oklaho- maháskóla á Keflavíkurflugvelli 2002. Helga Sigrún hefur starfað við kennslu, ráðgjöf og í útvarpi, en hún hefur starfað fyrir Framsókn- arflokkinn frá 2005. Eiginmaður hennar er Gunnlaugur Kristjánsson og á Helga Sigrún eina dóttur og barnabarn. Miðjustefna í íslenskri pólitík Tónlist Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund með tónlist verður 18. mars kl. 20. Flutt verður: Stabat Mater eftir Giovanni Battista Pergolesi. Flytjendur eru Rósalind Gísladóttir messo- sópran, Dagný Þórunn Jónsdóttir sópran, Krisztina Kalló Szklenár orgel. Aðgangur ókeypis. Myndlist Kaffi Hljómalind, lífrænt kaffihús | Sýning Þorvaldar Jónssonar er í nýju nem- endagalleríi Listaháskóla Íslands að Lauga- vegi 23, í kjallara. Opið er á afgreiðslutíma kaffihússins virka daga kl. 9-23, laug- ardaga kl. 11-23 og sunnudaga kl. 11-18. Norræna húsið | „Norrænar hugrenningar frá Mexíkó“ er titillinn á sýningu dönsku textíllistakonunnar Trine Ellitsgaard. Lista- konan hefur verið búsett í Mexíkó í 20 ár og ber sýning hennar það með sér í verk- um hennar. Sýningin stendur til 6. apríl. Kvikmyndir MÍR-salurinn | Kvikmyndin Tund- urskeytaflugsveitin verður sýnd í MÍR- salnum á Hverfisgötu 105, kl. 15. Myndin fjallar um sovéskar flugsveitir sem þátt tóku í síðari heimstyrjöldinni á norð- urslóðum og vörðu m.a. skipalestir banda- manna. Enskur texti og aðgangur ókeypis. Frístundir og námskeið Betra nám | Námskeið í hraðlestri og minnistækni fyrir 10-20 ára. Tvöfaldaðu lestrarhraðann og lærðu að nota minnið rétt. Einnig ráðgjafaviðtöl vegna lesblindu. Upplýsingar á www.betranam.is Börn Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn | Rún- ingur verður í Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum og gefst gestum kostur á að fylgjast með frá kl. 13. og fram eftir degi. Guð- mundur Hallgrímsson mun rýja en með honum í för verða handverkskonur frá Ull- arselinu á Hvanneyri. Opið er í garðinum frá kl. 10-17. TÍGRISDÝRIÐ Dína virðir ljósmyndara fyrir sér úr búri sínu í dýragarðinum í Amman í Jórdaníu í vikunni. Gullsmárinn Úrslit 10.3. Spilað var á 13 borðum. Lokastaðan í N/S: Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 337 Hrafnhildur Skúlad. – Þórður Jörundss. 321 Auðunn Guðmss. – Björn Árnason 309 A/V Páll Ólason – Elís Kristjánss. 356 Guðm. Magnúss. – Leifur Jóhanness. 334 Guðrún Gestsd. – Bragi Björnsson 331 Meðalskor 260. Kópvogur reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Reykjavík í spila- mennskunni sl.fimmtudag. Spilað var á 10 borðum (frá hvor- um aðila.) Reykjavík sigraði á 7 borðum Kópavogur á 2 borðum og eitt jafn- tefli. Samtals: Reykjavík 187 stig gegn 110 stigum Kópavogs.Til ham- ingju Reykjavík. Spilað verður að venju í Gullsmára næsta mánudag og hefst spila- mennska kl.l3. Aðalsveitakeppni á Suðurnesjum Mánudaginn 10. mars byrjaði að- alsveitarkeppni hjá Bridsfélaginu Muninn, Sandgerði, og Bridsfélagi Suðurnesja og voru 14 pör sem mættu. Spilaformið er sveitarokk sem þýðir það að allir verða með öll- um í sveit. Spilaðir eru þrír 9 spila leikir á hverju kvöldi og er keppnin mjög jöfn enn sem komið er. Staða 6 efstu eftir fyrsta kvöldið af fimm er sem hér segir: Egill Sigurðsson og Ólafur Ingimarss. 59 Jóhann Benediktss. og Sigurður Albertss. 58 Ingvar Guðjónss. og Guðjón Einarsson 56 Garðar Garðarss. og Karl G Karlsson 56 Jóhannes Sigurðss. og Svavar Jenssen 54 Kristján Pálss. og Reynir Jónsson 53 Næstkomandi mánudag 17. mars verður annað spilakvöldið í þessari keppni og síðan þar á eftir tekur Páska-tvímenningur við og svo held- ur keppnin áfram næstu 3 mánudaga. Og tvö efstu pörin í þessari keppni verða okkar fulltrúar á Kjördæma- mótinu ásamt völdum pörum. Og endilega mæta, allir spilarar sem eru búnir að skrá sig, svo keppnin geti nú byrjað fyrir alvöru. Spilað er alla mánudaga í Félags- heimilinu að Mánagrund og hefst spilamennska á slaginu 19:15. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 11 mars var spilað á 15 borðum. Meðalskor var 312. Úrslit urðu þessi í N/S Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 421 Albert Þorsteinsson – Björn Árnason 372 Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 356 A/V Bragi V. Björnsson – Oddur Jónsson 376 Stefán Ólafsson – Óli Gíslason 370 Lilja Kristjánsd. – Bergljót Gunnarsd. 368 Sveit Gylfa efst í Halldórs- mótinu á Akureyri Halldórsmótið, minningarmót um Halldór Helgason, einn af frumkvöðl- um Bridsfélags Akureyrar, hófst þriðjudaginn 11. mars. Mótið er þriggja kvölda sveitakeppni með bo- ard-a-match-fyrirkomulagi, þ.e. blöndu af tvímennings- og impaút- reikningi. Þetta keppnisform með stuttum leikjum býður upp á miklar sviptingar og ekkert skorti á það fyrsta kvöldið. Sveit Gylfa Pálssonar vann fjóra leiki af fimm og hlaut 85 stig (meðalskor 60). Í 2.-3. sæti með 65 stig eru sveit Stefáns Vilhjálms- sonar, sem tókst að lækka flugið hjá Gylfa og félögum, og sveit Unu Sveinsdóttur. Sunnudagskvöldið 16.3. verður spilaður eins kvölds tvímenningur í Skipagötu 14, 4. hæð. Spilamennska hefst kl. 19:30. Sveit Breka jarðverks efst í Suðurlandsmótinu Suðurlandsmótið í sveitakeppni var haldið í golfskálanum á Svarfhóls- velli, rétt fyrir utan Selfoss, 8. og 9. mars sl. Til leiks mættu átta sveitir, og unnu fjórar efstu sveitirnar sér inn rétt til að spila á Íslandsmótinu í sveitakeppni 2008. Keppnisstjóri var Guðmundur Þór Gunnarsson. Röð sveitanna varð þessi: Breki jarðverk ehf. 143 Tryggingamiðstöðin hf. 138 Mjólkursamsalan ehf. 120 Landsbankinn Hvolsvelli 119 Gunnar Björn Helgason 112 Jafnframt var reiknaður árangur spilara með butler-útreikningi. Röð efstu spilara varð þessi: Vilhj. Þór Pálsson, sv. Tryggingamiðst. 1,58 Ragnar Magnússon, sv. Breka jarðverks 1,27 Páll Valdimarsson, sv. Breka jarðverks 1,00 Símon Símonarson, sv. Breka jarðverks 0,88 Bridsdeild Sjálfsbjargar Sl. mánudag, 10.3., lauk þriggja kvölda tvímenningskeppni deildar- innar. Úrslit á kvöldinu urðu í N/S: Karl Karlsson – Sigurður Steingrss. 198 Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfss. 188 Lilja Kristjánsd. – Haraldur Sverriss. 186 A/V Reynir Haraldss. – Sigmar Sigurðars. 199 Marteinn Marteinss. – Kári Jónss. 189 Jón Úlfljótss. – Þórarinn Beck 186 Sigurvegarar (heildarskor bestu tveggja kvölda) urðu Unnar A. Guð- mundsson og Jóhannes Guðmanns- son. Mánudaginn 17. mars verður svo eins kvölds páskabarómeter, tví- menningur í samstarfi Prentmets og Sjálfsbjargar. Opið öllu brids- áhugafólki. Spilamennska hefst kl. l9 í Hátúni. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, mánud. 10.3. Spilað var á 11 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 255 Bragi Björnsson – Albert Þorsteinss. 236 Sæmundur Björnss. – Gísli Víglundss. 230 Árangur A-V Ægir Ferdinandss. – Ólafur Ingvarss. 269 Þröstur Sveinsson – Bjarni Ásmunds 242 Soffía Theodórsd. – Elín Guðmannsd. 226 Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 10. mars var spiluð önnur umferð af þriggja kvölda tví- menningskeppni félagsins. Úrslit urðu þessi í N/S Hulda Hjálmarsd. – Andrés Þórarinss. 64,9% Loftur Péturss. – Jón St. Ingólfss. 56,3% Halldór Einarss. – Guðni Ingvarsson 48,8% A/V Hrund Einarsd. – Dröfn Guðmundsd. 62,5% Halldór Þorvaldss. – Magnús Sverriss.62,2% Sig. Sigurjónss. – Guðlaugur Bessas. 54,2% Eftir tvö kvöld eru þessi pör efst: Hrund Einarsd. – Dröfn Guðmundsd. 118,5 Loftur Pétursson – Jón St. Ingólfss. 109,8 Erla Sigurjónsd. – Sigfús Þórðarson 106,9 Aldursforsetinn hafði sigur Mánudaginn 3. febrúar var spilað síðasta kvöldið í sveitakeppni Bridsfélags Borgarfjarðar. „Kópakall- inn“ spilaði sveita best í mótinu og varð langefst, vann alla sína leiki og flesta sannfærandi. Í sveitinni spiluðu Eyjólfur Sigurjóns- son (sem er sá eini af stofn- endum félagsins fyrir 51 ári sem enn spilar í keppnis- brids,) Jóhann Oddsson á Steinum, Egill Kristinsson í Örnólfsdal og Bjarni H. Einarsson á Bifröst. Lokastaðan: Kópakallinn (Eyjólfur, Jóhann, Egill og Bjarni) 224 Parasveitin (Rúnar, Dóra, Davíð og Sigríður) 196 Jón Einarsson (Jón E., Unnsteinn, Guð- mundur Kr. og Ásgeir) 178 Ormarnir (Þorsteinn P., Eyjólfur Ö., Karvel og Ingimundur) 178 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Sigursveitin Þeir urðu efstir í sveitakeppn- inni í Borgarfirði. Talið frá vinstri. Eyjólfur Sigurjónsson, sjálfur Kópakallinn með bik- arinn, Jóhann Oddsson, Bjarni H. Einarsson og Egill Kristinsson Reuters Auga tígursins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.