Morgunblaðið - 16.03.2008, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 16.03.2008, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 59 Með Ham Frá vinstri: Arnar Geir Ómarsson, Óttarr Proppé, Sigurjón Kjartansson, Björn Blöndal og Jóhann. Jóhann á rætur í rokkinu þótt hann hafi einbeitt sér meira að nútímatónlist í seinni tíð. Morgunblaðið/ÞÖK Orgelkvartettinn Apparat Jóhann ásamt Herði Bragasyni, Arnari Geir Ómarssyni, Sighvati Ómari Kristinssyni og Úlfi Eldjárn. www.johannjohannsson.com hafi fussað og sveiað yfir rokk- aranum sem er að gera nútíma- tónlist. Hver er afstaða þín til þessa? „Ég verð ekkert var við þessa umræðu – nema á Íslandi. Ég veit það ekki, er þetta af því að við erum með þetta gildishlaðna orð, „tón- skáld“, sem má bara nota yfir lært fólk? Í ensku er orðið „composer“ notað yfir alla þá sem semja tónlist. Kannski ætti ég að kalla mig „phonometrographe“ eða „hljóð- mælinga- og skráningarmann“ eins og Erik Satie kallaði sig, en honum var stundum strítt á að hafa litla formlega menntun í tónlist. Ég sótti mér menntun í bókmenntum og tungumálum og ég tel að það sé al- veg eins góður undirbúningur fyrir starf sem listamaður eins og dip- lóma í tónlist. Þekkingu í hljómfræði og orkestrasjón er hægt að viða að sér úr bókum og það hef ég gert og mun halda áfram að gera. Tónlistin virðist annars eina listgreinin þar sem prófgráður skipta einhverju lykilmáli. Það spyr enginn leikstjór- ann hvort hann hafi farið í kvik- myndaskóla eða rithöfundinn hvort hann hafi lokið bókmennta- fræðinámi. Auðvitað er þetta bæði úrelt og heimskuleg afstaða og ekki í neinu samhengi við menningar- umhverfið í dag. Þetta er einhvers konar 19. aldar hugsunarháttur. Hitt ber á að líta að þetta er mjög skiljanlegt, að vera tónskáld á Ís- landi er ríkisstyrkt iðja og litlum peningum til að dreifa. Þannig að það er eðlilegt að menn leitist við að vernda sitt svæði. En þetta hefur voðalega lítil áhrif á mig – ég hef engan áhuga á viðurkenningu aka- demískra tónskálda. Það er virðing- arvert þegar fólk leggur á sig margra ára nám til að ná tökum á ákveðinni tækni, en það eitt tryggir ekki að verk viðkomandi tónskálda hafi eitthvað gildi. Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki að gera lítið úr vægi tónlistarnáms, ég er frekar að benda á að undirbúningur undir starf sem listamaður getur verið margs konar.“ – Eitthvað var ég að heyra um kirkjutúr um Evrópu næsta haust? Hvað er til í því? „Það eina sem ég get sagt á þessu stigi málsins er að það eru uppi áform um að halda fjölda tónleika í dómkirkjum Evrópu í kjölfar plöt- unnar minnar sem kemur út í ágúst. Þetta yrði í október, ef af verður. En þetta er ekki að fullu staðfest.“ – Svona að lokum, er eitthvað fleira framundan? „Ég fer í smá túr um Spán í apríl og í sumar spila ég í Kanada, New York og í Þýskalandi. Ég verð síðan með tónleika í Union Chapel, Lond- on, ásamt Max Richter. Við höfum oft verið spyrtir saman í umfjöll- unum og því gaman að fá að spila með honum. Ég samdi þá tónlist við Ödipus eftir Sófókles en Jon Fosse, leikhúsmaður mikill frá Noregi stað- færði. Þar vann ég mikið með raddir og það var einstaklega gefandi verk- efni. Ég veit að ég á eftir að vinna áfram með þær hugmyndir. Þá er ég að klára að tónsetja nýja mynd eftir breska leikstjórann Marc Craste sem kallast Varmints. Myndin verð- ur sýnd í haust og það verður gefin út plata í framhaldinu af því.“ Morgunblaðið/Jim Smart
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.