Morgunblaðið - 28.03.2008, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÓTTI og óvissa einkenndi umræður
sem fram fóru á fundi tollvarða á
Keflavíkurflugvelli í gær, að sögn
Guðbjörns Guðbjörnssonar, for-
manns Tollvarðafélags Íslands.
Fundurinn var haldinn til að ræða
breytingar á skipulagi lög- og toll-
gæslu á Suðurnesjum sem dóms-
málaráðherra kynnti á dögunum.
Þær fela m.a. í sér að sameinað lög-
gæsluembætti Suðurnesja verður
leyst upp.
Gæti bitnað á tollgæslu
Guðbjörn segir tollverði samvisku-
sama starfsmenn og muni þeir sinna
störfum sínum eftir bestu getu hér
eftir sem hingað til en mikil óánægja
er með væntanlegar breytingar og
hafa tollverðir lýst áhyggjum af að
breytingarnar geti m.a. komið niður á
lög- og tollgæslu á svæðinu.
Sendu tollverðir á Suðurnesjum
frá sér ályktun að fundi loknum þar
sem einhliða ákvörðun dóms-
málaráðuneytis um upplausn samein-
aðs löggæsluembættis Suðurnesja er
mótmælt.
Segjast tollverðir ekki geta séð
efnislegar eða fjárhagslegar ástæður
fyrir ákvörðuninni og óska þess ein-
dregið að hún verði tekin til endur-
skoðunar.
„Tollverðir óttast þau áhrif, sem
ákvörðunin getur haft á þann góða
starfsanda og frábæra árangur, sem
undanfarin ár hefur einkennt emb-
ætti Jóhanns R. Benediktssonar, lög-
reglu- og tollstjóra,“ segir í yfirlýs-
ingunni. Auk þess er lýst áhyggjum
af að góð og áratugalöng samvinna
löggæsluaðila á Suðurnesjum muni
minnka.
Loks segir í yfirlýsingunni að toll-
verðir óttist að fíkniefnaeftirlit, tolla-
eftirlit, eftirlit með innflutningi á
vopnum og öðrum ólöglegum varn-
ingi auk innheimtu aðflutningsgjalda
verði óskilvirkari og versni í kjölfar
breytinganna.
Spurður um næstu skref sagði
Guðbjörn að tollverðir myndu bíða
viðbragða fjármálaráðuneytis en
samkvæmt breytingunum verður
tollgæsla alfarið á forræði fjár-
málaráðherra.
Óttast versnandi eftirlit
Tollverðir bíða
viðbragða fjár-
málaráðherra
Óvissa Formaður Tollvarðafélags Íslands segir tollverði hafa miklar
áhyggjur af fyrirhuguðum skipulagsbreytingum á Suðurnesjum.
Ljósmynd/Þorgils Jónsson
SÆVAR Birgisson frá Sauðárkróki og Rannveig Jóns-
dóttir frá Ísafirði sigruðu í sprettgöngu sem var fyrsta
keppnisgreinin á Skíðamóti Íslands sem sett var við há-
tíðlega athöfn á Ísafirði í gær. Fjölmenni var við setn-
ingarathöfnina og skemmtu áhorfendur sér hið besta
við að fylgjast með sprettgöngunni.
Í dag, föstudag, verður keppt í stórsvigi og hefð-
bundinni göngu.
Sævar og Rannveig meistarar
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
BÓKANIR gengu á víxl milli borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokks og
minnihluta í borgarstjórn á fundi
borgarráðs í gær.
Í bókun minnihluta Samfylkingar,
VG og Framsóknar segir að for-
manni borgarráðs þyki meira um
vert að snúa málinu upp í pólitískt
hnútukast heldur en að gæta hags-
muna borgarinnar þar sem hann tali
máli KSÍ þrátt fyrir augljós afglöp
formanns byggingarnefndar.
Í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokks segir að í minnisblaði innri
endurskoðunar borgarinnar komi
fram að bygginganefndin hafi brugð-
ist hlutverki sínu. Fulltrúar í nefnd-
inni hafi átt að krefjast fleiri funda
og Dagur B. Eggertsson hafi aldrei á
þeim 10 mánuðum sem hann sat í
nefndinni óskað eftir fundi til að yf-
irfara kostnað.
Bókanir
gengu
á víxl
Deilt um umfram-
kostnað í borgarráði
Í BRÉFI, sem Tryggvi Gunnarsson,
umboðsmaður Alþingis, sendi Árna
M. Mathiesen fjármálaráðherra í
febrúar vegna
skipunar héraðs-
dómara, segir að
spurningarnar til
ráðherrans séu
ítarlegri en að
jafnaði sé þörf á
svo ráðherra fái
sem best tæki-
færi til að senda
skýringar.
Í svari Árna
við spurningum
Tryggva, sem birt var í Morgun-
blaðinu í gær, segir ráðherra m.a:
„Athygli vekur að spurningar yðar
eru mjög ítarlegar í framsetningu
og með því yfirbragði og orðavali að
svo virðist sem afstaða yðar til úr-
lausnarefnisins kunni að vera mótuð
fyrirfram. Af þeim sökum má halda
því fram að svör þau sem undirrit-
aður ber fram hér að neðan komi til
með að hafa takmarkaða þýðingu
þegar þér leysið úr málinu og þar
með hinn sjálfsagði réttur undirrit-
aðs til andmæla.“
Í bréfi umboðsmanns til ráðherra
segir m.a: „Ég tek það fram að með
tilliti til málavaxta í þessu máli hef
ég talið rétt að setja af minni hálfu
fram ítarlegri spurningar en ég tel
að jafnaði þörf á. Þetta geri ég til
þess að yður gefist sem best tæki-
færi til að senda mér skýringar yðar
og þar með verði sem bestur grunn-
ur lagður að frekari athugun minni
og afgreiðslu á þeim kvörtunum sem
mér hafa borist vegna þessa máls.“
Ráðherra biðjist afsökunar
Ungir jafnaðarmenn hafa sent frá
sér ályktun þar sem þeir undrast
viðbrögð fjármálaráðherra við
spurningum umboðsmanns og
hvetja hann til að biðjast afsökunar.
„Hlutverk umboðsmanns er að
hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkis og
sveitarfélaga og tryggja rétt ein-
staklinga gagnvart stjórnvöldum
landsins. Ummæli ráðherra eru með
öllu óviðeigandi tilraun til þess að
draga úr trúverðugleika embættis
umboðsmanns Alþingis. Það er
óeðlilegt að einn æðsti ráðamaður
þjóðarinnar skuli tjá sig á þennan
hátt gagnvart þeim aðila er á að
hafa eftirlit með störfum hans,“ seg-
ir m.a.
Fái sem best
tækifæri til
skýringa
Tryggvi
Gunnarsson
SÉRA Bolli Þórir
Gústavsson vígslubisk-
up er látinn 72 ára að
aldri. Hann fæddist á
Akureyri hinn 17. nóv-
ember árið 1935, sonur
hjónanna Gústavs Elí
Berg Jónassonar raf-
virkjameistara og Hlín-
ar Jónsdóttur hús-
freyju. Sr. Bolli lauk
guðfræðiprófi frá Há-
skóla Íslands árið 1963
og vígðist sama ár
sóknarprestur til Hrís-
eyjarprestakalls. Hann
var skipaður sóknar-
prestur í Laufásprestakalli árið
1966, þar sem hann gegndi embætti
uns hann varð vígslubiskup á Hól-
um í Hjaltadal árið 1991 en lét af
því embætti árið 2002 sökum
heilsubrests.
Sr. Bolli gegndi margvíslegum
félags- og trúnaðarstörfum innan
kirkju sem utan. Þar má af mörgu
nefna formennsku hans í æskulýðs-
sambandi kirkjunnar í Hólastifti,
síðar í prestafélagi
þess sama stiftis og
þá sinnti hann for-
mennsku í Hólanefnd
eftir að hann tók við
embætti vígslubiskups
á Hólum. Um árabil
var sr. Bolli formaður
úthlutunarnefndar
listamannalauna og
lét í því samhengi víða
til sín taka í lista- og
menningarlífi þjóðar-
innar.
Hann var kunnur
fyrir ritstörf, bæði
fyrir blöð og tímarit,
og skrifaði lengi reglulega pistla og
greinar í Morgunblaðið ásamt leik-
listargagnrýni fyrir sama blað um
sýningar Leikfélags Akureyrar.
Um tveggja ára skeið ritstýrði hann
tímaritinu Heima er best og tók
saman ófáar dagskrár um skáld og
skáldskap til útvarpsflutnings.
Sr. Bolli skrifaði sex bækur um
menn og málefni. Flestar þeirra
myndskreytti hann sjálfur og fyrir
bókina Vorganga í vindhæringi
fékk hann viðurkenningu Almenna
bókafélagsins á 25 ára afmæli þess.
Hann hlaut styrk úr Gjöf Jóns Sig-
urðssonar fyrir söfnun og útgáfu á
ljóðmælum séra Björns Halldórs-
sonar í Laufási og ritgerð um
skáldið. Á afmælisdegi sr. Bolla
hinn 17. nóvember síðastliðinn kom
út bókin Lífið sækir fram, sem er
safn prédikana og ljóða eftir hann
og gefin út að frumkvæði fjölskyldu
hans.
Eftir að sr. Bolli tók við embætti
vígslubiskups á Hólum beitti hann
sér fyrir byggingu Auðunarstofu en
það er endurgerð stokkahúss sem
Auðun biskup rauði reisti á 14. öld
og var rifið illu heilli í byrjun 19.
aldar. Hús þetta prýðir nú Hóla-
stað, það vitnar um forna sögu og
nýtist um leið sem fræði- og fund-
araðstaða starfi kirkju og kristni til
blessunar.
Eftirlifandi eiginkona sr. Bolla er
Matthildur Jónsdóttir. Börn þeirra
eru, Hlín, Jóna Hrönn, Gústav Geir,
Gerður, Bolli Pétur og Hildur Eir.
Bolli Þórir Gústavsson
Andlát
Landssamband sjálfstæðiskvenna stendur fyrir laugardagsfundi
á Hótel Ísafirði, 29. mars kl.12.00
Sjálfstæðiskonur
á ferð um landið
– nýir möguleikar í mennta- og atvinnumálum
Allir
velkomnir!
Umræður úr sal að lokinni framsögu
Fundarstjóri:
Drífa Hjartardóttir
formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna
Með framsögu verða:
Guðfinna S. Bjarnadóttir
alþingismaður
Herdís Þórðardóttir
alþingismaður
Birna Lárusdóttir
bæjarfulltrúi á Ísafirði