Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Það gat ekki verið að það vefðist fyrir Dabba að bjarga heimskreppunni.
VEÐUR
Hún er stundum skrýtin tík, póli-tíkin. Samkvæmt stjórnsýsluút-
tekt Ríkisendurskoðunar var Þró-
unarfélagi Keflavíkurflugvallar
ehf. fyllilega heimilt að selja eignir
á Miðnesheiði án útboðs. Þess utan
kemur þar fram að hagsmuna rík-
isins hafi verið gætt í þeim við-
skiptum sem fram fóru.
Þar með hefðu flestir talið, aðmálið væri afgreitt, óvissu
hefði verið eytt,
niðurstaða væri
fengin. En ó nei,
ekki!
Ekki BjarniHarðarson,
þingmaður
Framsókn-
arflokksins, sem
ásamt Atla Gísla-
syni, þingmanni
vinstri grænna, gekk harðast fram í
gagnrýni sinni fyrr í vetur á það
með hvað hætti eignunum hafði
verið ráðstafað.
Þeir víluðu ekki fyrir sér að haldaþví fram að um óeðlileg hags-
munatengsl nafngreindra ein-
staklinga hefði verið að ræða, sem
hefðu verið „að skara eld að eigin
köku“ eins og þingmennirnir orð-
uðu það svo smekklega.
Bjarni Harðarson mætti Ragn-heiði Elínu Árnadóttur í Kast-
ljósi Sjónvarpsins í fyrrakvöld, og
hélt uppteknum hætti að mestu,
með dylgjum og óhróðri um nafn-
greinda menn og taldi Ríkisend-
urskoðun einfaldlega ekki hafa
rannsakað þau gagnrýniatriði sín
sem mestu máli skiptu!
Vill þingmaðurinn alls ekki aðtekið sé mark á honum?
Það er hægt að lýsa viðureignþeirra Bjarna og Ragnheiðar
Elínar á einfaldan hátt: Ragnheiður
Elín vann!
STAKSTEINAR
Ragnheiður
Elín Árnadóttir
Ragnheiður Elín vann!
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!"!#$
!"!#$
!"!#$
#%
# "
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
&
&
&
& & &
&
& & & & &
&
*$BC !!!!
!
"
# !
$ !
" # %
& '
$ $ *!
$$B *!
' ( ) !
!( !#
% *%
<2
<! <2
<! <2
' ) !+ $,!-%.
C
( )
* & $) * &
+ , *
*
D B
D"2
-$
!.
,!$
$ + $*
$)
/
0
01
$
" 2!$
1 # %
/0
!!%11%!!2# %
%!+ $
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Hrannar Baldursson | 26. mars 2008
Gætir þú hugsað
þér að búa í gámi?
Þetta er ástand sem
við höfum búið til.
Þetta eru fyrstu merkin
um afleiðingarnar af
óeðlilegum hækkunum
á húsnæðisverði, og
ég spái því að við eig-
um eftir að sjá meira af sambæri-
legum hlutum í framtíðinni, jafnvel
heilt bæjarfélag byggt á gámum …
Kannski er framtíðin ekki í sem-
enti, heldur í gámum?
Meira: don.blog.is
Birgitta Jónsdóttir | 27. mars 2008
Enn ein blóðug rósin í
hnappagat Kína
Við sem upplýst þjóð,
verðum að leggja okkar
á vogarskálar réttlætis
og gera eitthvað til að
þrýsta á kínversk yf-
irvöld og láta þau vita
að okkur er ekki sama
um mannréttindi í heiminum. Þau
kynda undir þessu stríði en hafa því
sem næst komist upp með öll sín
myrkraverk óáreitt vegna þess að, ég
veit það ekki, Kína er svo langt í
burtu!?
Meira: birgitta.blog.is
Bjarni Harðarson | 27. mars 2008
Ríkisstjórnin býr til
óðaverðbólgu
Hin alþjóðlega fjár-
málakreppa var þekkt
þegar núverandi rík-
isstjórn var mynduð og
stjórnin hefur nú haft
mánuði til að bregðast
við en ekkert gert. Við
framsóknarmenn höfum boðið
stjórnvöldum að vinna að þjóðar-
átaki gegn hinni válegu stöðu en
ekki uppskorið annað en hroka og
sjálfumgleði stjórnarliða. Þar fer
saman sinnuleysi og valdþreyta …
Meira: bjarnihardar.blog.is
Ármann Kr. Ólafsson | 26. mars 2008
Hafa bankarnir
óeðlileg áhrif … ?
Fyrir páska og svo aftur í dag hafði ég
samband við aðila sem fjármögnuðu
bíl sem ég keypti á síðari hluta síðasta
árs þegar gengisvísitala krónunnar var
í kringum 118. Ég ákvað
að taka lán í íslenskum
krónum sem var að því
er mér var sagt und-
antekning þar sem vextir
væru svo háir. Ástæðan
frá minni hendi var ein-
föld, ég taldi krónuna of hátt skráða og
var viss um að hún ætti eftir að veikj-
ast. Fyrir páska fór gengi krónunnar
svo í 160 og ætlaði ég þá að breyta yfir
í erlent lán, enda hafði mér verið sagt
þegar ég tók lánið að það væri ekkert
mál. En það var nú aldeilis ekki svo,
mér hefur verið neitað í tvígang um
slíka breytingu. Mér finnst þetta væg-
ast sagt döpur þjónusta af hendi við-
komandi fyrirtækis sem er dótturfélag
eins stærsta banka landsins. Er nema
von að krónan veikist þegar skrúfað er
fyrir eftirspurn eftir henni með þessum
hætti. Í kjölfar stýrivaxtahækkunar
Seðlabankans sagði Davíð Oddsson
seðlabankastjóri að bankinn hefði vís-
bendingar um að einhverjir kynnu að
hafa haft óeðlileg áhrif á gengi krón-
unnar. Athyglisvert ekki síst í ljósi þess
að kvittur hefur verið um að bankarnir
hafi verið að skortselja krónu (selja
krónu sem þeir eiga ekki en afhenda
síðar) í þeim tilgangi að veikja hana
með offramboði. Á sama tíma skrúfa
þeir fyrir lántökur í erlendri mynt sem
einnig verður til þess að takmarka eft-
irspurn eftir krónu og þar með veikja
hana. Engu að síður eiga þeir yfir 500
milljarða í erlendum gjaldeyri. … Ég
vona svo sannarlega að bankarnir hafi
ekki verið að stýra genginu til að laga
afkomuna hjá sér á kostnað við-
skiptavina þeirra og almennings í land-
inu.
Meira: armannkr.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
HEILBRIGÐISEFTIRLIT
Reykjavíkur hefur eftirlit með íbúð-
arhúsnæði en öll híbýli sem ætluð
eru til íbúðar þurfa samþykki bygg-
ingafulltrúa. Flutningsgámur fær
ekki leyfi sem íbúðarhúsnæði. Ef
leyfi á að fást til að búa í gámi er um
að ræða íbúðargám með leyfi bygg-
ingafulltrúa fyrir staðsetningu og
þar sem gengist er undir skilmála
um aðstöðu í og við gám.
„Ef íbúar húsnæðis telja að þeir
búi við heilsuspillandi aðstæður geta
þeir snúið sér til heilbrigðiseftirlits-
ins og óskað eftir skoðun á húsnæð-
inu,“ er haft eftir Rósu Magnúsdótt-
ur, deildarstjóra hollustuhátta hjá
Umhverfis- og samgöngusviði
Reykjavíkurborgar, í fréttatilkynn-
ingu.
Leiðarljósið er sagt vera heilnæmt
umhverfi borgarbúa og meginreglan
er að fólk beri sjálft ábyrgð á eigin
húsnæði og aðstæðum sínum. Fólk
má hafa það eins og það vill heima
hjá sér svo lengi sem það truflar ekki
aðra. Heilbrigðiseftirlitið kemur til
sögunnar ef kvörtun berst. Haft er
eftir Rósu að það sé löngu liðin tíð að
heilbrigðiseftirlitið hafi frumkvæði
að því að hlutast til um húsnæðisað-
stæður hjá fólki.
„Ef í ljós kemur að tiltekið hús-
næði er heilsuspillandi og óíbúðar-
hæft getur heilbrigðiseftirlitið bann-
að útleigu á því,“ er einnig haft eftir
Rósu og að slíku banni sé þá jafnan
þinglýst. Eftir að endurbætur á hús-
næði hafi farið fram sé hægt að fara
fram á úttekt heilbrigðisfulltrúa til
að aflétta leigubanninu. Ef húsnæðið
þarfnist aftur á móti einungis við-
gerðar, en teljist ekki heilsuspillandi,
sé leigjanda eða húseiganda skrifað
bréf og bent á að endurbóta sé þörf.
Rósa segir óheimilt að leigja út
íbúðarhúsnæði sem ekki hefur verið
samþykkt sem slíkt hjá bygginga-
fulltrúa. Heilbrigðisfulltrúar mega
ekki fara inn í híbýli fólks nema að
ósk íbúa eða að undangengnum
dómsúrskurði eða í fylgd og að beiðni
lögreglu. Slökkviliðið getur þó kallað
til heilbrigðiseftirlitið en þá eru
fulltrúar húseigenda einnig á staðn-
um.
Heilbrigðiseftirlitið hefur einnig
eftirlit með umgengni á lóðum og
getur gert kröfur til lóðarhafa að
þeir haldi lóðunum snyrtilegum og
fari eftir settum reglum um um-
gengni og förgun úrgangs. Rósa seg-
ir að heilbrigðiseftirlitið sé kallað til
ef slæm umgengni veldur ónæði, til
dæmis vegna ólyktar. „Ef slíkt er til
dæmis í fjöleignahúsum þarf hús-
félagið að taka á málum en heilbrigð-
iseftirlitið kemur þá til sögunnar
sem óháður aðili sem getur staðfest
ónæðið,“ segir hún.
Flutningsgámur
ekki íbúðarhúsnæði
Kristín M. Jóhannsdóttir | 27. mars
Andsk. íþróttirnar
Síðustu tveir dagar hafa
ekki verið góðir fyrir
íþróttirnar mínar. Ég var
eitthvað ógurlega veiklu-
leg í dag og klifraði ekki
vel. Canucks töpuðu fyrir
Calgary í gær og Colorado í dag og eru
í síðasta úrslitasætinu eins og er þeg-
ar fimm leikir eru eftir.
Meira: stinajohanns.blog.is