Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
VIÐ lærðum það samviskusamlega
í skóla að fyrstu hljóðritunina hefði
Thomas Alva Edison gert, árið
1877, og að það sem var hljóðritað
var lagið Mæja átti lítið lamb.
Nú hafa amerískir hljóðsagn-
fræðingar fundið hljóðritun í
Frakklandi þar sem mannsrödd
syngur annað lag: Glettinn máninn
gægist eða Au clair de la lune eins
og það heitir á móðurmáli syngj-
andans og hljóðritandans. Hljóð-
ritun Frakkans er 17 árum eldri en
hljóðritun Edisons og vísindamenn
segja hana ótvírætt elstu hljóð-
ritun mannsraddarinnar sem nú er
vitað um. Hún varir í um tíu sek-
úndur og var gerð 9. apríl 1860.
Upptakan var gerð á græju sem
kölluð var fónátógraf en hún ritaði
hljóðin sjónrænt og ekki var hægt
að spila þau aftur. Vísindamönn-
unum sem fundu upptökuna tókst
hins vegar að afrita upptökuna og
spila og kom þá lagstúfurinn í ljós.
Yfirfærslan á hljóðrituninni var
unnin í Lawrence Berkeley-
rannsóknarstofunum í Berkeley í
Kaliforníu
„Þetta er sögulegur fundur,“
hefur New York Times eftir Samu-
el Brylawski, fyrrum yfirmanni
hljóðdeildar þingbókasafnsins í
Washington. Höfundur fónátóg-
rafsins hét Édouard-Léon Scott de
Martinville og var prentsmiður og
grúskari í París. Þegar hann lést
var hann sannfærður um að Edis-
on yrði ranglega eignaður heið-
urinn af fyrstu hljóðritun manns-
raddarinnar. Hljóðritunin verður
frumflutt opinberlega á ráðstefnu
hljóðritanasérfræðinga í Stanford-
háskóla í Kaliforníu í dag.
Edison var
ekki fyrstur
Eldri hljóðritun
fundin í Frakklandi
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN í
Saint Louis í Bandaríkjunum, ein
virtasta hljómsveit þar vestra,
hefur stofnað til
útgáfuraðar sem
einungis verður
fáanleg á netinu
og verður ekki
gefin út á plöt-
um. Fyrsta
verkið í útgáfu-
röðinni er hljóð-
ritun af tón-
leikum
hljómsveitarinnar á heimavelli sín-
um, Powell-salnum í Saint Louis,
þar sem hljómsveitin leikur Harm-
onielehre, 40 mínútna stórverk
eftir John Adams. Verkið var sam-
ið 1985 og lýsti tónskáldið því sem
hjónabandi mínimalískrar mús-
íkframvindu og tjáningarríkrar
síðrómantískrar hljómaveraldar
(e. late Romanticism). „Skuggar
Mahlers, Sibeliusar, Debussys og
hins unga Schönbergs eru alls
staðar á vappi í þessu sér-
kennilega verki,“ segir hljómsveit-
arstjórinn David Robertson í sam-
tali við tímaritið Gramophone.
Næsta verk sem kemur út í net-
útgáfu Saint Louis sinfóníuhljóm-
sveitarinnar eru Sinfónía í C eftir
Stravinskíj, og kemur hún út í
september.
Hljómsveitin á í samvinnu um
útgáfuna við IODA, stærsta dreif-
anda stafrænnar tónlistar í veröld-
inni í dag, en verkið fæst á vefn-
um bæði á amazon.com og á
iTunes.
Sinfóníuhljómsveitin í Saint
Louis á sér mikla frægðarsögu í
plötuútgáfu, frá þeim árum er
Leonard Slatkin var við stjórnvöl-
inn þar og gaf út hjá RCA. Nokk-
urt hlé hefur verið á útgáfum
sveitarinnar á síðustu árum, en
með netútgáfunni er tekið til
óspilltra málanna á nýjan leik.
Engar plöt-
ur, bara net
David Robertson
MYNDASÖGUSÝNING verð-
ur opnuð í aðalsafni Borg-
arbókasafnsins, Grófarhúsi á
morgun kl. 14. Tilefnið er út-
gáfa nýs myndasögublaðs
nemenda Myndlistaskólans í
Reykjavík; AAA!!! Önnur sýn-
ing verður í skólanum sjálfum
að Hringbraut 121, JL-húsinu.
Myndasögugerð hefur verið
kennd við skólann frá 1995. Í
vetur var boðið upp á námskeið
í myndasögugerð fyrir tvo aldurshópa; 10-12 ára
og 13-16 ára. Er blaðið og sýningin afrakstur
þeirra námskeiða. Sýningin stendur til 13.apríl.
Kennarar á námskeiðunum voru Bjarni Hinriks-
son og Búi Kristjánsson.
Myndlist
AAA!!! í
Borgarbókasafninu
AAA!!!
ANNA Fjóla Gísladóttir ljós-
myndari, flytur fyrirlestur um
konur í ljósmyndasögunni í
Ketilhúsinu í Listagili á Ak-
ureyri í dag kl 14.50.
Fyrirlesturinn er einn fjög-
urra í röðinni Fyrirlestrar á
vordögum, sem allir spanna
efni sem tengist listum og
menningu. Þeir eru skipulagðir
af kennurum á listnámsbraut
skólans í samvinnu við Lista-
safnið á Akureyri og Menningarmiðstöðina í Gróf-
argili. Anna Fjóla talar um og sýnir myndir eftir
um það bil tíu konur allt frá 1850- 2007. Meðal
þeirra eru Julia Margaret Cameron, Lee Miller
og Mary Ellen Mark. Aðgangur er ókeypis.
Myndlist
Um konur í ljós-
myndasögunni
Anna Fjóla
Gísladóttir
LEIKFÉLAGIÐ Hugleikur
frumsýnir í kvöld leikritið 39½
viku eftir Hrefnu Friðriks-
dóttur. Leikstjórar eru Ásta
Gísladóttir, Júlía Hannam og
Sigurður H. Pálsson. 39½ vika
er farsakenndur gamanleikur
sem snýst að verulegu leyti um
barneignir og sauðfjárrækt.
Sveitapilturinn Valur fær afnot
af skrifstofu frænku sinnar,
sem starfar sem félagsráðgjafi
á kvennadeild sjúkrahúss.
Hugleikur hefur þá sérstöðu meðal íslenskra
leikfélaga að leikverkin eru öll samin af fé-
lagsmönnum og alfarið sprottin úr íslensku þjóð-
lífi. Sýnt er í Möguleikhúsinu við Hlemm.
Leiklist
Hugleikur kominn
í sauðfjárrækt
Hrefna
Friðriksdóttir
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
Á FYRSTU sýningunum mínum, þar
sem ég valdi alveg sjálfur hvað ég
sýndi, voru yfirleitt allir miðlarnir,
málverk, teikningar og skúlptúrar,“
segir Helgi Þorgils Friðjónsson
myndlistarmaður. Í dag klukkan
17.00 opnar hann sýningu í Gallery
Turpentine við Ingólfsstræti með
verkum unnum í þessa þrjá miðla.
Teikningarnar eru úr teiknidagbók
sem tengist fréttum og hvers-
daglegum uppákomum; í einum
skúltúranna birtist sjálfsmynd lista-
mannsins sem Loðvík fjórtándi; þá
eru nokkur málverk, eitt fjallar um
snúning veraldar, önnur eru með
spegluðum ásjónum manns og dýra
og loks röð portretta.
Helgi Þorgils hefur stillt hópum
teikninga upp á nokkrum stöðum í
galleríinu. Sumar eru pennateikn-
ingar, aðrar unnar með vatnslitum;
þær eru gerðar á allrahanda pappír,
jafnvel umslög og boðskort.
„Oftast sýni ég fyrstu teikninguna
af nokkrum sem ég geri af sama
þemanu, sem endar oft í málverki.
Þessar fyrstu myndir eru oft léttar
og tengdar einhverju sem ég upplifi
eða heyri, til dæmis í útvarpinu. Svo
eru aðrar sem ég hef gert fimm eða
tíu útfærslur að, áður en vatns-
litamyndin sem ég sýni verður til.
Stundum fletti ég bók á morgnana
og það verður kveikja að myndum.
Ég byrja oft vinnudaginn á því að
teikna.“
Þetta er allt skylt
– Og þú teiknar á það sem hendi er
næst; umslög, gluggapóst, boðskort.
„Ég reyni að vinna á vandaðan
sýrufrían pappír en gríp svo oft í hitt.
Eitthvað sem stendur á boðskorti
eða umslagi getur kveikt hugmynd.
Oft er þetta efniskennd sem ég lað-
ast að, því þótt pappírinn kunni að
vera lítilfjörlegur í sjálfum sér þá
verður hann eins og malerí.“
– Myndheimarnir hér kallast á þó
úrvinnslan sé ólík.
„Já. Fyrir nokkru sýndi ég í Stat-
ens Museum í Kaupmannahöfn og
þar var meðal annars teikning af
Loðvíki XIV. Hún seldist og mig
langaði að gera Loðvík aftur. Það
endaði í skúlptúr.
Þetta er í annað sinn sem ég fer í
barrok í skúlptúr, en á mínum upp-
vaxtarárum í listinni var það alveg
forboðið. Fyrst gerði ég hund með
miklu flúri sem ég sýndi í Listasafn-
inu á Akureyri. Við gerð hans plægði
ég í gegnum bækur um gamalt
postulín til að finna taktinn, hann var
allur skreyttur með blómum.
Það sama gerðist með þetta verk.“
– … nema þarna er ekki hundur
heldur þú sem Loðvík XIV.
Helgi hlær. „Fallegur púðluhund-
ur, Loðvík og ég; þetta er allt skylt.
Þarna er líka málverk málað eftir
verki Dürers. Yfirleitt þegar Dürer
málar Jesúm Krist þá er það sjálfs-
mynd. Svo ég tók mynd þar sem
hann var búinn að mála sjálfan sig
sem Jesúm og setti portrett af mér
sjálfum inn í það.“
– Þú ferð oft nærri sjálfum þér í
þessum verkum.
„Það er augljóst. Um leið lít ég á
mig sem hverja aðra manneskju og
vona að aðrir sjái sjálfa sig í verk-
unum.
Ákveðnar tilvistarspurningar eru
gegnumgangandi í verkum mínum –
þetta hverfist allt um eitthvað sem er
á því svæði.“
– Einskonar persónulegur exist-
ensíalismi?
„Já. Ég hef hrifist af Kierkegaard,
kannski má sjá eitthvað sem tengist
honum þegar verk mín eru skoðuð
aftur í tímann; hæfilegt kæruleysi og
þungi á sama tíma. Það finnst mér
freistandi.“
Í mörgum verkanna birtist eins
konar jafnræði með mönnum og dýr-
um. Helgi segir þessar hugmyndir
hafa þróast með sér allar götur síðan
á skólaárunum.
„Í þessum hugmyndum um jafn-
ræði einangrast persónurnar nokk-
uð, það er eins og hver hafi sitt sér-
staka rými um leið og hann er hluti
af einhverju stærra.“
Spurt um ætt og uppruna
Röð af máluðum portrettum tekur
á móti gestum. Helgi hefur áður tek-
ist á við portrett og hélt um árið sýn-
ingu á þeim í Galleríi Sævars Karls.
„Ég fer betur með módelin en mig
í verkunum,“ segir hann og brosir.
„Þegar ég byrjaði að mála portrett
var þetta nánast dautt form innan
myndlistar og þótti afskaplega borg-
aralegt. Ég vildi reyna að gera eitt-
hvað áhugavert með formið, án þess
að bjaga myndina eða gera hana að
einhverju öðru. Ég vildi vera heið-
arlegur gagnvart hefðinni. Fólk virð-
ist oft hrífast af þessum verkum og
þá sérstaklega erlendis. Hér spyrja
allir um ætt og uppruna módelsins
meðan fólki erlendis þykir viðfangs-
efnið einfaldlega athyglisvert.“
Kæruleysi og þungi
Helgi Þorgils Friðjónsson sýnir málverk, skúlptúra og teikningar í Gallery
Turpentine Ákveðnar tilvistarspurningar gegnumgangandi, segir listamaðurinn
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjölbreytilegur „Fallegur púðluhundur, Loðvík XIV og ég; þetta er allt
skylt,“ segir Helgi Þorgils og vonast til að aðrir sjái sjálfa sig í verkunum.
ÚTGÁFUFÉLAGIÐ Omdúrman
stendur fyrir málþingi um Elías Mar
á morgun. Í frétt frá Omdúrman
segir að á þinginu verði rætt um rit-
höfundinn Elías Mar, skáldsögur
hans og útgefanda; um æskulýðs-
menningu í Reykjavík og íslenskt
samfélag eins og það birtist í sögum
Elíasar. Einnig verði rætt um hina
leyndardómsfullu frásögn Þórðar
Sigtryggssonar sem Elías skráði á
árunum 1960 til 1965. Í fréttinni seg-
ir ennfremur:
„Elías Mar (f. 1924) lést í maí fyrir
tæpu ári. Bækur hans hafa verið ófá-
anlegar um langt árabil og sjálfur
leit hann svo á að hann væri gleymd-
ur rithöfundur. En áhugi á verkum
Elíasar hefur farið vaxandi und-
anfarin ár, enda eru þau skrifuð í
deiglu hins nýja lýðveldis þegar nýtt
samfélag verður til með nýtt tungu-
tak, nýja stéttskiptingu, nýja tónlist,
alþjóðlega æskulýðsmenningu,
marglaga borgarsamfélag og her-
setu.“
Þingið hefst með stuttri göngu-
ferð um sögusvið skáldsagnanna
Eftir örstuttan leik og Vögguvísa.
Leiðsögumaður í göngutúrnum
verður Hjálmar Sveinsson útvarps-
maður.
Þingið verður haldið í Tjarnarbíói
og stendur frá klukkan 13.30 til 16.
Elíasarþing á morgun
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Skáldið Elías Mar.
Taldi sjálfan sig gleymdan rithöfund
♦♦♦
» Dagný Kristjánsdóttir bókmennta-fræðingur ræðir um skáldsöguna Eft-
ir örstuttan leik, fyrstu skáldsögu Elíasar.
» Eggert Þór Bernharðsson sagnfræð-ingur fjallar um æskulýðsmenningu í
Reykjavík á árunum 1945 til 1955
» Jón Karl Helgason bókmenntafræð-ingur ræðir um rithöfundinn Elías
Mar og útgefanda hans Ragnar í Smára.
Jón Karl les meðal annars brot úr sögu
Ragnars sem hann er að skrifa
» Guðmundur Andri Thorsson rithöf-undur fjallar um prófarkalesarann
Elías og um einnig um skáldsöguna Sól-
eyjarsögu
» Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður ogútgefandi fjallar um hina leyndar-
dómsfullu sögu Þórðar Sigtryggssonar,
síðasta stórverk Elíasar Marar.
DAGSKRÁ: