Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 24
matur
24 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Tófústeikur, graskerspott-réttir, steiktar hrísgrjón-anúðlur með grænmeti,baunasúpa, svartur hrís-
grjónagrautur og gulrótarsúpa með
tófúblöðum er meðal þeirra rétta
sem kínverski kórstjórnandinn Na-
talía Chow Hewlett er að kenna Ís-
lendingum að búa til á vinsælum
námskeiðum í kínverskri grænmet-
ismatargerð.
Natalía hefur verið búsett á Ís-
landi undanfarin sextán ár og starf-
ar sem organisti, óperusöngkona og
kórstjórnandi. Hún fæddist í Kanton
í Kína, en ólst upp í Hong Kong.
Sjálf hefur Natalía verið græn-
metisæta í sjö ár og á þeim tíma hef-
ur hún þróað fjölbreytta grænmet-
isrétti, sem kitlað geta bragð-
laukana. Réttirnir, sem eru bæði
hollir og næringaríkir, eru að hluta
til unnir úr hráefni, sem Íslendingar
þekkja kannski ekki við fyrstu sýn
en til er í íslenskum verslunum og þá
er upplagt að skella sér á námskeið
til Natalíu til að kynnast framandi
matarhefðum.
„Mataræðið mitt byggist fyrst og
fremst upp á grænmeti og ávöxtum.
Ég nota ekki sykur, hvítt kolvetni
eða kraft í mína matreiðslu. Við
kaupum hvorki kúamólk né aðrar
mjólkurvörur að frátöldum osti. Egg
kaupum við eingöngu brún eða svo-
kölluð hamingjuegg úr hænum, sem
fá að ganga um frjálsar,“ segir Nat-
alía og bætir við að eiginmaðurinn
Julian Hewlett hafi eingöngu verið á
grænmetisfæði undanfarin 22 ár.
„Áður en ég gerðist algjör grænmet-
isæta hafði ég margoft kosið græn-
metisrétti fram yfir kjöt- og fisk-
rétti. Mér finnst erfitt að tyggja kjöt
og get barasta ekki lagt mér feitt
kjöt til munns. Og mér er það al-
gjörlega hulin ráðgáta hvernig í
ósköpunum þið Íslendingar getið
borðað hinn margrómaða íslenska
þorramat. Mér líður hins vegar af-
skaplega vel á grænmetisfæðinu.“
Allt að tíu manns komast á hvert
námskeið, sem Natalía heldur í rúm-
góðu eldhúsinu heima hjá sér. Nám-
skeiðið stendur yfir eina kvöldstund
og þá eru gjarnan eldaðir allt að tíu
réttir, sem allir fá að smakka á. Dag-
legt líf fékk tvær tófú-uppskriftir hjá
Natalíu og nú er bara um að gera að
prófa sig áfram með hollustuna.
Tófú er unnið úr sojabaunum.
Tófústeik með hnetusósu
2 pakkar tófú
2-3 msk fimm krydd (kínverskt
krydd, fæst í Asian á Suðurlands-
braut)
1 haus saxaður hvítlaukur
2-3 msk ljós sojasósa
1-2 msk jurtaolía
nokkrir dropar af sesamolíu
Skerið tófú í eins cm þykkar
sneiðar. Látið marinerast í fimm
krydda blöndunni, hvítlauk og soja-
sósu, helst yfir nótt.
Penslið tófú með olíu og bakið í
ofni í 30 mín. við 180°C eða uns það
er orðið brúnað á báðum hliðum.
Færið tófústeikina upp á disk,
skreytið með gúrkusneiðum og látið
nokkra dropa af sesamolíu yfir steik-
ina.
Sósa
2 msk hnetusmjör
1/4 bolli sojamjólk
1 tsk ljós sojasósa
nokkrir dropar af sesamolíu
Hrærið hnetusmjör í mjólkina og
hitið blönduna í potti. Lækkið hitann
og látið malla uns sósan er orðin
þykk. Bragðbætið með sojasósu og
sesamolíu. Berið fram með tófú-
steikinni.
Ma Po tófú
1 pakki mjúkt tófú
20 g þurrkað sojahakk, lagt í sjóð-
andi vatn
1 rauður chilli
1 msk saxaður engifer
1 msk saxaður hvítlaukur
ferskur kóríander
1-2 tsk soyasósa
nokkrir dropar af sesamolíu
Sósa
1 msk ljós sojasósa
1 tsk chillisósa
1 tsk hunang
2 tsk maísmjöl
2 dl vatn
Skerið tófú í litla teninga. Skerið
niður chilli. Sigtið vatnið af soja-
hakkinu og marínerið sojahakkið í
sojasósunni og sesamolíunni.
Hitið pönnu með olíu. Steikið
engifer, hvítlauk og chilli. Bætið
tófúinu við og steikið vel. Bætið soja-
hakkinu svo út í.
Blandið því sem fara á í sósuna vel
saman og bætið sósunni út í.
Látið malla í smástund uns sósan
er orðin þykk. Setjið nokkra dropa
af sesamolíu út í. Skreytið með
ferskum kóríander. Berið réttinn
fram með hrísgrjónum.
join@mbl.is
Tófústeik Hnetusósan er sérlega ljúffeng með heilsusteikinni. Ma Po tófú Mjúkt tófú og sojahakk er uppistaðan í þessum rétti ásamt kryddi og sósu.
Líður vel á grænmetisfæðinu
Kínverski kórstjórnand-
inn, organistinn og óp-
erusöngkonan Natalia
Chow Hewlett kennir
Íslendingum að elda
gómsæta grænmet-
isrétti með kínversku
ívafi. Jóhanna Ingv-
arsdóttir sótti Natalíu
heim á Álftanesið.
Morgunblaðið/Ómar
Grænmetisætan Natalía Chow Hewlett notar mikið af tófú í sína matargerð sem unnið er úr sojabaunum.
englakor.googlepages.com
RANNSÓKN Rannsóknastofu í næring-
arfræði, sem gerð var árið 2006, leiddi í
ljós að járnbúskapur ungbarna hefur batn-
að talsvert síðan fyrir tíu árum.
Helstu breytingar, sem orðið hafa í mat-
aræði íslenskra ungbarna, er að neysla á
venjulegri kúamjólk hefur dregist veru-
lega saman og stoðmjólkin hefur komið
inn sem aðal-drykkjarmjólkin hjá sex til
tólf mánaða börnum. Aðrar breytingar,
sem geta skýrt það að járnbúskapur barna
hefur batnað, er aukin neysla á ung-
barnagrautum, ávöxtum og grænmeti.
Ungbarnagrautarnir gefa bæði járn og C-
vítamín og ávextir og grænmeti eru C-
vítamínrík sem eflir upptöku járns í melt-
ingarveginum, samkvæmt upplýsingum
Rannsóknastofu í næringarfræði.
Batnandi járn-
búskapur ungbarna
Morgunblaðið/Ásdís
Hraustur Aukin neysla á stoðmjólk í stað kúamjólkur hefur bætt járnbúskap ungbarna.