Morgunblaðið - 07.04.2008, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdadóttir, systir
og mágkona,
BÁRA TRAUSTADÓTTIR
frá Fáskrúðsfirði,
Kjarrhólma 20,
Kópavogi,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 2. apríl.
Útförin fer fram frá Hjallakirkju miðvikudaginn
9. apríl kl. 15.00.
Guðbjartur Guðbjartsson,
Ívar Örn Róbertsson,
Sigurvin Guðbjartsson, María Jóhannesdóttir,
Ottó Valur Kristjánsson, Margrét Samsonardóttir,
Sjöfn Traustadóttir, Eysteinn Stefánsson,
Óðinn Traustason, Guðrún Erlendsdóttir,
Þórir Traustason, Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir,
Björg Traustadóttir.
✝
Ástkær móðir mín, dóttir okkar, systir, dótturdóttir
og mágkona,
ÞÓRANNA GUÐBJÖRG RÖGNVALDSDÓTTIR,
Hringbraut 34,
Hafnarfirði,
andaðist laugardaginn 29. mars.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 8. apríl kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á námssjóð til styrktar
sonar hennar. 1145-05-444161 Kt. 280363-3249.
Rögnvaldur Þór Gunnarsson,
Rögnvaldur Þórhallsson, Unnur Björnsdóttir,
Björn M. Rögnvaldsson, Fanney Baldursdóttir,
Hólmfríður Rögnvaldsdóttir, Örn Friðriksson,
Svava Rögnvaldsdóttir, Gunnar B. Gestsson,
Katrín Rögnvaldsdóttir, Ágúst Kristófersson,
Ásdís Rögnvaldsdóttir, Þórhallur Bergþórsson,
Matthías Rögnvaldsson, Erla Jóhannesdóttir,
Guðrún Rögnvaldsdóttir,
Hólmfríður Steinþórsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Maðurinn minn,
GRÍMUR KRISTINN JÓHANNESSON
fyrrverandi bóndi á Þórisstöðum
á Svalbarðsströnd,
Aðalstræti 76,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 9.apríl kl 13.30.
Þeir sem vilja minnast hans láti líknarstofnanir njóta þess.
Guðbjörg Júlía Kortsdóttir.
✝ Kristín BjörkAðalsteinsdóttir
fæddist á Akureyri
27. júní 1950. Hún
andaðist á Land-
spítalanum við
Hringbraut deild
11. G hinn 28. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
Aðalsteinn Björns-
son, fyrrverandi
bifreiðastjóri, f.
21.6. 1930 og Jó-
hanna Sigríður
Árnadóttir hús-
móðir, f. 9.5. 1932. Systkini Krist-
ínar eru: 1) Árný Rósa, f. 1.11.
1955, maki Jóhannes Sigurhólm
Stefánsson, f. 2.12. 1945, og 2)
Björn Árni, f. 3.10. 1966.
Kristín giftist 12.4. 1969 Jó-
hanni Ágústi Oddgeirssyni, f.
3.10. 1999, Valdís Anja, f. 11.6.
2003 og Bjarndís Júlía, f. 10.10.
2007. 4) Aðalsteinn, f. 3.1.1985.
Kristín fluttist til Reykjavíkur
með foreldrum sínum tveggja ára
að aldri. Hún stundaði grunn-
skólanám í Miðbæjarskólanum og
fór svo seinna meir í Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur. Árið 1982
fluttist hún í Mosfellssveit og var
hún virkur félagsmaður í kven-
félaginu þar. Hún stundaði lengst
af verslunarstörf þar til hún fór í
meirapróf og gerðist leigubíl-
stjóri árið 1983, fyrst á Litlu bíla-
stöðinni í Mosfellssveit, þar til
Litla bílastöðin sameinaðist
Hreyfli. Starfaði hún hjá Hreyfli
til ársins 2001 og var hún einnig
virkur meðlimur í kvenfélagi
Hreyfils. Árið 2001 fluttist hún til
Hvammstanga og gerðist fé-
lagsmaður þar í kvenfélaginu og
hóf vinnu hjá Kaupfélagi Vestur-
Húnvetninga og vann hún þar
fram að andláti.
Kristín verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
30.5. 1945. Þau slitu
samvistum 1995.
Börn þeirra eru: 1)
Hafþór, f. 9.4. 1971,
kvæntur Þórunni
Grétarsdóttur, f.
26.10. 1968, dætur
þeirra eru Alex-
andra Sif, f. 1.6. 1994
og Telma Rut, f.
26.3. 1996. 2) Rósa, f.
28.9. 1972, sambýlis-
maður Guðjón Hildi-
brandsson, f. 6.6.
1980, börn hennar
eru Jóhann Gunnar,
f. 13.5. 1991, Hrannar Már, f. 29.8.
1994, Hjördís, f. 25.1. 1997, og
Kristín Björk, f. 12.3. 1999. 3)
Ágústa Björk, f. 26.5. 1974, gift
Einari Júlíusi Gunnþórssyni, f.
8.12. 1970, dætur þeirra eru Eydís
Birna, f. 11.1. 1998, Þórdís Lilja, f.
Ástkær móðir mín er búin að
kveðja þennan heim eftir stutta en
erfiða baráttu við hræðilegan sjúk-
dóm sem tók hana allt of snemma
frá okkur. Elsku mamma mín, við
kveðjum þig með mikinn söknuð í
hjarta okkar. Þú varst alltaf mjög
sterk og ekki vantaði þrjóskuna í þig.
Þú hlífðir þér aldrei og tókst lítinn
tíma fyrir sjálfa þig. Ég man þegar
ég var lítill og þú með þrjú ung börn
og heimili varst einnig í vinnu
og oft mjög slæm í baki en hvergi
var bilbug á þér að finna.
Ég minnist einnig ferðalaga bæði
innanlands og utan því þú elskaðir
að ferðast og vera innan um fólk,
því mikil félagsvera varst þú og
skipti engu máli hvernig veður var,
alltaf leið þér vel í tjaldinu þínu sem
enginn munaður var í, allir aðrir í nú-
tímagræjum og þú sátt við þitt tjald.
Ferðaðist þú einnig nokkuð til út-
landa og alltaf leið þér best í heitu
löndunum því þá varst þú best í bak-
inu. Þú varst virk í margskonar fé-
lögum t.d. kvennfélögum, ferða-
klúbbum og svo framvegis. Mér er
minnisstætt þegar ég hitti þig í
Herjólfi á leið til Eyja og spurði þig
með hverjum þú værir og þú svar-
aðir glottandi: ég er með hjóna-
klúbbnum á Hvammstanga. Við
hlógum mikið því þú varst einhleyp,
en það skipti þig engu þegar ferðalög
voru annars vegar.
Þegar ég og fjölskyldan ásamt
vinahópum áttum leið hjá vildir þú
ávallt að komið væri við hjá þér og
skipti engu máli hversu stór hópur-
inn var, alltaf varst þú búin að
smyrja brauð ofan í allan hópinn sem
stundum var ansi stór og var fólk
glatt yfir að fá heimasmurt brauð
en ekki endalaust sjoppufæði.
Elsku mamma mín, við þökkum
fyrir allar þær yndislegu stundir
sem við fengum að njóta með þér,
þín verður sárt saknað en minning
þín mun lifa áfram í hjörtum okkar
um ókomna tíð og vitum við að þér
líður betur á nýjum stað án sjúk-
dóma.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá ?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði’ er frá.
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur tefja
í dauðans dimmum val.
Úr inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(Valdimar Briem.)
Þinn sonur og tengdadóttir,
Hafþór og Þórunn.
Elsku mamma mín, það er sárt að
hugsa til þess að þessi hörmulegi
sjúkdómur sé búin að taka þig frá
okkur, þú sem varst búin að berjast
eins og hetja við hann í 6 mánuði,
sem engan árangur bar, en ég get
huggað mig við allar þær góðu
stundir sem við áttum með þér. Þú
varst orðin mikið veik þegar við fór-
um til Ítalíu í september en þú vildir
ekki láta mikið á því bera og var tví-
sýnt um hvort þú kæmist með okkur
í dagsferðina til Feneyja en þú varst
svo þrjósk að auðvitað fórst þú með
og var það frábær ferð. Á sumrin fór
Hrannar Már til þín og á kvöldin sát-
uð þið tvö fyrir framan sjónvarpið og
gædduð ykkur á stórum stykkjum af
osti og alltaf var líka nammiskálin
ekki langt undan, hann talaði alltaf
mikið um þessar stundir ykkar sam-
an og veit ég að þessar minningar
mun hann alltaf eiga um þig. Mér
dettur líka í hug þegar þú varst ekki
alveg sammála mér og Ágústu um
hvernig ætti að bera fram orðið
skinka, þú varst alveg á því að það
væri skeinka og munum við alltaf
getað glott yfir þessum litla ágrein-
ingi.
Þegar ég var lítil var farið á hverju
sumri til Akureyrar til að hitta ætt-
ingjana þína og var mikið samband
þar á milli.
Einnig hafðir þú gaman af að
ferðast erlendis og fórum við tvær
saman með börnin mín til Mallorca
árið 1998 og vorum í fjórar vikur þar
og tókum bílaleigubíl og keyrt var
um alla eyjuna til að skoða hana, og
eitt skiptið vorum við komnar í lítið
sjávarþorp sem við fundum ekki á
korti og vorum hálfvilltar en kom-
umst svo loks á leiðarenda.
Barnabörnin voru svo stór þáttur í
lífi þínu, þú elskaðir þau heitt og
naust að vera með þeim.
Þrátt fyrir veikindin þín var samt
stutt í grínið hjá þér. Þú varst ynd-
isleg manneskja og alltaf tilbúin að
gera öðrum greiða því aldrei leið þér
betur en í margra manna hópi, enda
varst þú mikil félagsvera og man ég
ekki annað en að þú hafir gengið til
liðs við kvenfélögin þegar ég var
mjög ung, fyrst í Breiðholti, svo var
það í Mosó og á sama tíma hjá
Hreyfli og loks kvenfélagið á
Hvammstanga.
Sofðu vært hinn síðsta blund,
uns hinn dýri dagur ljómar,
Drottins lúður þegar hljómar
hina miklu morgunstund.
Heim frá gröf vér göngum enn.
Guð veit, hvort vér framar fáum
farið héðan, að oss gáum,
máske kallið komi senn.
Verði, Drottinn, vilji þinn,
vér oss fyrir honum hneigjum,
hvort vér lifum eða deyjum,
veri hann oss velkominn.
(Valdimar Briem.)
Elsku besta mamma mín, við
kveðjum þig með miklum söknuði og
þökkum fyrir allar þær yndislegu
stundir sem við fengum að njóta með
þér og við vitum að nú ert þú komin á
þann stað sem engir sjúkdómar og
erfiði eru á. Ég veit að Allý litla
frænka tekur á móti þér með opnum
örmum. Elsku amma og afi, megi
góður Guð styrkja ykkur í þessari
miklu sorg okkar.
Þín elskandi dóttir og tengdason-
ur,
Rósa og Guðjón.
Elsku mamma mín. Ekki grunaði
mig að ég þyrfti að kveðja þig svona
snemma á lífsleiðinni. Það er svo
stutt síðan þú veiktist en þú varst
svo ákveðin í að sigra þennan sjúk-
dóm en hann hafði betur. Þú lést
aldrei í ljós að þér liði illa og brostir
bara og vildir ekki að neinn myndi
hafa fyrir þér.
Man ég að þú dansaðir svo mikið
með okkur systkinin í fanginu þegar
við vorum lítil og svo við okkur er við
eltumst því þú elskaðir að dansa.
Þú fluttist til Hvammstanga því að
ég og Rósa bjuggum þar en svo flutt-
um við í bæinn aftur en þér líkaði svo
vel þar að þú áhvaðst að vera áfram,
gekkst svo í kvenfélagið þar og
stundaðir vinnu í Kaupfélaginu og
einnig varst þú í afleysingum í skól-
anum þar og bjóst þú þar fram að
andláti.
Þú elskaðir að ferðast. Við fórum
til Edinborgar, Newcastle, New
York, Flórída og Spánar og svo allt
sem við ferðumst hér á Íslandi. Það
var svo gaman hjá okkur og þú
skemmtir þér svo vel.
Jól og áramót verða aldrei eins án
þín, það verður alltaf tómarúm við
matarborðið þar sem þú sast og eins
verður tóm hjá stelpunum að geta
ekki látið ömmu Stínu hjálpa sér við
að opna pakkana.
Fyrir brúðkaupið mitt og Einars
keypti ég handa þér kjól og var hann
svo fallegur að þú hringdir í fólk til
að segja frá honum (þú varst í skýj-
unum) enda var umtalað í brúðkaup-
inu hvað þú varst flott og fín í kjóln-
um, búið að greiða hárið og mála þig,
varst eins og Valdís myndi segja:
prinsessa.
Þú hlakkaðir svo til að við færum
öll saman til Flórída þegar þú yrðir
60 ára og þú varst byrjuð að safna
fyrir ferðinni, því að við ætluðum að
leigja flott hús og vera minnst 3 vik-
ur og skoða sem mest þar og njóta
lífsins. Við systurnar stefnum á að
fara þessa ferð og halda upp á af-
mælið þitt þar úti.
Guð þig leiði lífs um skeið,
líka eyði þrautum.
Alla þína ævi leið
á hans gakktu brautum.
(Hildur Bjarnadóttir.)
Minning um yndislega mömmu
mun lifa í hjarta okkar alla ævi.
Þín dóttir
Ágústa Björk og þinn
tengdasonur Einar Júlíus.
Elsku mamma, takk fyrir allt.
Takk fyrir allt það sem þú hefur
kennt mér um það góða um lífið, þú
gast alltaf hjálpað mér þegar mér
leið illa.
Það var svo gott að koma til þín
norður í afslöppun þó að það væri of
rólegt fyrir minn smekk, svo tókstu
öllum mínum vinum með opnum
örmum og lést þeim líða svo vel-
komnum í kotinu þínu.
Þú varst mamma mín og í senn
besti vinur minn því ég gat sagt þér
allt án þess að líða illa og mun ég
sakna þess mikið að geta talað við
þig.
Ég mun geyma allar minningarn-
ar um þig í hjarta mér.
Þinn sonur,
Aðalsteinn.
Elsku amma.
Amma passaði okkur þegar
mamma var að vinna í sláturhúsinu
og við vorum þar fram að kvöldi. Um
kaffitímann gaf hún okkur alltaf kök-
ur og mjólk. Fyrir rúmu ári fóru
mamma og stjúppabbi minn til út-
landa og þá kom amma og passaði
okkur systkinin og það var gaman.
Þessa sex mánuði hefur maður
hugsað til hennar á hverjum degi og
hugsað hvernig henni liði og farið að
heimsækja hana. Núna sakna allir
hennar sárt, við vildum að maður
gæti vakið hana upp frá dauðum en
það gerist ekki. Okkur á eftir að
dreyma um hana í draumum okkar.
Við munum aldrei gleyma henni og
munum halda upp á afmælið hennar
árlega.
Elsku amma Stína, við kveðjum
þig með söknuði.
Hjördís, Hrannar Már og Krist-
ín Björk.
Kristín systir mín lést á Landspít-
alanum við Hringbraut hinn 28.
mars síðastliðinn eftir stutta en erf-
iða baráttu við illvígan sjúkdóm.
Margar spurningar koma upp í hug-
ann þessa dagana en minna er um
svör. Elsku Haffi og fjölskylda, Rósa
og fjölskylda, Ágústa og fjölskylda
og Alli, guð geymi ykkur og styrki á
þessum erfiðu tímamótum í lífi ykk-
ar.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð
(Vald. Briem)
Hvíl í friði.
Þín systir,
Árný Rósa og fjölskylda.
Kristín Björk Aðal-
steinsdóttir
Fleiri minningargreinar um Krist-
ínu Björk Aðalsteinsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.