Morgunblaðið - 11.05.2008, Page 8
8 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
N‡r sjúkrafljálfari
Steffan Christensen sjúkrafljálfari B.Sc.
kemur aftur til starfa.
Fylgja foringjanum, einn, tveir og Kobbi.
VEÐUR
Árni Finnsson, formaður Nátt-úruverndarsamtaka Íslands er
að verða dálítil ógn við íslenzka
stjórnmálamenn.
Hann virðist halda bókhald yfirummæli þeirra um umhverf-
ismál og heldur þeim svo við efnið,
ef þeir fara yfir strikið.
Í grein hér íMorgun-
blaðinu í fyrra-
dag sagði Árni:
„Þann 6. febr-
úar 2006 sagði
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir í
ræðu á Alþingi:
„Innan kvótans
(íslenzka ákvæð-
isins) rúmast annað hvort stækkun
(í Straumsvík) eða eitt álver fram
til ársins 2012 og er ekki rétt að
segja það þá skýrt og vera ekki að
láta menn gæla við þá hugsun að
hér geti komið einhverjar fram-
kvæmdir, sem hvorki standast þær
alþjóðlegu skuldbindingar, sem
við höfum gert né heldur þau
markmið, sem við höfum í hag-
stjórn?““
Síðan segir Árni Finnsson:„Á morgunvaktinni 23. apríl
2008 sagði Ingibjörg Sólrún hins
vegar, að hún vissi ekki hversu
mörg álver rúmist innan skuld-
bindinga Íslands.“
Í Bandaríkjunum eru stofnanir ogsamtök sem halda svona bók-
hald yfir afstöðu einstakra þing-
manna til tiltekinna mála og yfir
ummæli þeirra um þau mál.
Það er kannski kominn tími tilað útfæra þetta tómstunda-
gaman Árna Finnssonar?
Koma upp reglubundnu aðhaldimeð stjórnmálamönnum á
vefnum? Og þó. Kannski er það of
illa gert gagnvart þeim.
STAKSTEINAR
Árni Finnsson
Ógnvekjandi bókhald
SIGMUND
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
!""
#
"" $"
$
%
%
&& &
:
3'45;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@).?
'$
$
$'
$ '$ $'
$'
$'
'$ '$ $
$'
$
$
*$BCD """
! "# !"
$ % &' *!
$$
B *!
() * "! ") "! #&!+&
<2
<! <2
<! <2
(#!* ", -". &/
CC
<7
$ ()
*!
# $ + &'
E8
$ ()
*!
# $ + &' ",
# B
E"
2
$ ()
*!
# $ + &' 01""&22 &!""3 & &", "4 $" "
$"$ Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Óttarr Guðlaugsson | 10. maí
ASÍ til leigu
Þessi skrípaleikur bif-
reiðaumboðsins og ASÍ
er til skammar, vissu-
lega er rétt að einstaka
bifreiðar hafi lækkað í
verði en að kynna 17%
lækkun á bifreiðum
sem á svo ekki við nein rök að styðj-
ast er hrein móðgun við viðskiptavini
og landsmenn alla.
Ég hef ekki tekið eftir forystu ASÍ
hlaupandi á milli verslana í gegnum
tíðina til þess að vera viðstadda
lækkanir á vörum og þjónustu.
Meira: otti.blog.is
Marinó G. Njálsson | 9. maí
Lægsta gengið
Krónan náði nýrri lægð í
dag. Gengisvísitalan
endaði í 158,90 stigum
[...] Þetta er auk þess
lægsta gengi krónunnar
að minnsta kosti frá því
að núllin tvö voru klippt
af krónunni fyrir tæpum þremur ára-
tugum [...] Munum við sjá geng-
isvísitöluna rjúfa 160 stiga múrinn á
þriðjudag (markaðir lokaðir á mánu-
dag annan í hvítasunnu) og jafnvel
170 stiga múrinn síðar í mánuðinum?
Meira: marinogn.blog.is
Björgvin Guðmundsson | 10 maí
Varasöm einkavæðing
Ríkisendurskoðun telur,
að hjúkrunarheimilið
Sóltún hafi fengið of
háa greiðslu frá ríkinu
með því að gefa rangar
upplýsingar um með-
ferðir,sem veittar voru.
Hefur ríkisendurskoðun farið ítarlega
yfir gögn heimilisins og komist að
þessari niðurstöðu [...] Fulltrúar
stjórnarandstöðunnar segja, að þetta
dæmi sýni, að einkavæðing í heil-
brigðiskerfinu geti verið varasöm.
Meira: gudmundsson.blog.is
Jón Bjarnason | 10. maí
Græðgi og siðleysi
Hæstiréttur hefur dæmt
ólögmæta sölu á hlut
ríkisins í Íslenskum að-
alverktökum. Sigurbjörn
Þorbjörnsson lögmaður
segir þetta áfellisdóm yf-
ir framkvæmd einka-
væðinganefndar á sölu á hlut ríkisins í
ÍAV: „Þetta snerist í sjálfu sér ekki um
peninga af hálfu minna umbjóðenda,
heldur um að menn vildu að leikreglur
yrðu virtar og að menn yrðu ekki hafðir
að fíflum“ ( 24 st. 10. maí).
Það voru æðstu menn Framsókn-
arflokksins sem handstýrðu sölunni.
Halldór Ásgrímsson sem sat í ráð-
herranefnd um einkavæðingu og sölu
ríkiseigna og átti persónulega aðkomu
að „gjöfinni“ sem og Jón Sveinsson
formaður einkavæðingarnefndar rík-
isstjórnarinnar og fulltrúi Framsókn-
arflokksins.
Söluverð fyrirtækisins var „vísvit-
andi vanmetið“ en kaupandinn var
Eignarhaldsfélag sem átti hinn hluta
ÍAV og hafði komist yfir hann með yf-
irgangi og klíkuskap. Kaupandinn,
Eignarhaldsfélag aðalverktaka, kaupir
hlut ríksins á 2 milljarða en ári síðar
greiðir það sér 2,3 milljarða í arð! Slík
dæmi eru nánast algild fyrir einkaa-
væðingu og græðgina á markaðnum
síðustu ár. Sala ÍAV er ekki einsdæmi.
Nánast öll einkavæðing og sala rík-
iseigna á undanförnum árum er
brennd sömu lögleysunni. Vinnubrögð
sem þessi hafa gagnsýrt íslenskt þjóð-
félag á undanförnum árum og þeir sem
þar hafa vélað um eiga meginsök á því
mikla misrétti og kjaramun sem nú rík-
ir í íslensku samfélagi.
Það er þessi græðgi og botnlaust
siðleysi í viðskiptum sem handstýrt var
af æðstu stjórnendum landsins sem
eiga alla sök á þeim efnahagsvanda
sem við nú stöndum frammi fyrir. Það
kemur að skuldadögunum en því mið-
ur verða sökudólgarnir þá komnir í
skjól með sitt og reikningurinn lendir
sem fyrr á almenningi í landinu. Hve-
nær kemur að því að æðstu ráðamenn
þjóðarinnar beri perónulega ábyrgð
gagnvart brotum sem þeir eru dæmdir
fyrir í hæstarétti?
Þingmenn Vg tóku þetta mál ítrekað
upp á Alþingi og gagnrýndu „gjafastefn-
una“ harðlega. Við óskuðum eftir út-
tekt Ríkisendurskoðunar á sölu ÍAV
sem og á bönkunum. Því miður reynd-
ist Ríkisendurskoðun ekki valda því
verkefni með fullnægjandi hætti.
Meira: jonbjarnason.blog.is
BLOG.IS
FLUGFÉLAG Íslands og lettneska
flugfélagið Air Baltic hafa skrifað
undir viljayfirlýsingu um leigu á
einni Fokker 50 flugvél Flugfélags
Íslands til Air Baltic. Afhending vél-
arinnar mun fara fram í byrjun sept-
ember nk. og mun Air Baltic hafa
hana fram í miðjan maí á næsta ári
eða í um níu mánuði.
Vélin verður því tilbúin til notk-
unar fyrir háannatímabil í rekstri
Flugfélags Íslands sem er frá
miðjum maí fram í september.
Stefnt er að því að vinna að frek-
ara samstarfi félaganna þar sem
mismunandi árstíðasveiflur í rekstri
þeirra geta gefið af sér ákveðin sam-
legðaráhrif.
Air Baltic er í eigu lettneska rík-
isins og flugfélagsins SAS. Félagið
flutti yfir 2 milljónir farþega á síðast-
liðnu ári. Flugvélafloti Air Baltic
samanstendur af 23 flugvélum,
tveimur Boeing 757-200, tíu Boeing
737-500s, þremur Boeing 737-300 og
átta Fokker 50.
Leigir Fokker 50
vél til Air Baltic