Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 10
10 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
NÝ MATVÆLALÖGGJÖF
Tollvernd tímabundin
Þetta breytti þó engu varðandi
tollvernd gagnvart innflutningi á
landbúnaðarafurðum til Íslands.
Um hana gilda sérstök ákvæði, en
þau sjónarmið heyrast meðal
bænda að á þau sé ekki treystandi.
Í framtíðinni muni tollar lækka og
ekki sé hægt að stóla á vernd til
langs tíma, þó að ekki sé á teikni-
borðinu í sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytinu að slaka á tollum
á þessum tímapunkti.
Þá er á það bent að gat sé í
tollavernd gagnvart ferskum kjúk-
lingabringum, en á þeim séu tölu-
vert lægri tollar en frosnum. Innan
stjórnkerfisins er talað um það sem
„gamalt slys“ við setningu toll-
skrár. Þegar samið hafi verið um
40% lækkun á tollum í tvíhliða við-
ræðum við ESB hafi verið hægt að
leiðrétta „slysið“ með því að und-
antaka fersku bringurnar, en það
hafi ekki verið gert. Fyrir vikið sé
tollaverndin „í lægri kantinum“ og
segja hagsmunaaðilar í landbúnaði
að verndin sé mun sterkari og
betri í Noregi.
Ekki lifandi dýr
Það lá fyrir strax í upphafi
samningaviðræðnanna að rík-
isstjórnin myndi ekki fella niður
undanþáguna varðandi frjáls við-
skipti með lifandi dýr á innri mark-
aðnum.
Þó kom upp viss þrýstingur um
það frá samninganefnd ESB, en
ekki lágu ríkir hagsmunir þar að
baki. Ríkar ástæður eru hins vegar
fyrir því að Íslendingar leyfi ekki
frjálsan innflutning lifandi dýra,
því íslenskir dýrastofnar hafa búið
við mikla einangrun í 1100 ár og
greiðslu. Þá felur undanþágan í sér
bann við innflutningi á hráu kjöti,
sem er enn í gildi. Sérstakt leyfi
yfirdýralæknis þarf til slíks inn-
flutnings og hefur slíkt leyfi verið
skilyrt því að kjötið hafi verið fros-
ið í að minnsta kosti 30 daga.
Endurskoðun í kjölfar kúariðu
Áskilið var við inngönguna í
EES árið 1992 að undanþágan gæti
komið til endurskoðunar frá og
með árinu 2000 og hefur þrýst-
ingur á það farið vaxandi af hálfu
ESB.
Eftir kúariðufárið í Evrópu í lok
síðasta áratugar var matvælalög-
gjöf ESB tekin til gagngerrar end-
urskoðunar og allt er lýtur að heil-
brigði dýra og sjúkdómum. Komið
var á heildstæðri löggjöf um mat-
væli, þar sem sömu grunnviðmið
gilda um öll matvæli, sama hvort
þau eru af dýrum í landi eða úr
sjó. Um leið var sett undir einn
hatt Matvælaöryggisstofnun Evr-
ópu.
Með endurnýjun á löggjöfinni,
þar sem allt var sett í eina sam-
fellu, er ekki lengur gerður grein-
armunur á búfjár- og fiskafurðum,
heldur er öll fæðukeðjan undir.
Á þeim forsendum fór ESB fram
á endurskoðun á undanþágu Ís-
lands, þar sem hún gilti ekki leng-
ur um fiskafurðir. Röksemdirnar
fólust í því að Íslendingar gætu
ekki verið með fiskafurðir á innri
markaði, en haldið undanþágu fyrir
búfjárafurðir, þar sem slík aðgrein-
ing heyrði sögunni til innan ESB.
Heilbrigðisástandi ekki ógnað
Þegar þetta skýrðist á árinu
2005 setti ríkisstjórnin í gang
starfshóp til að fara yfir stöðuna og
Í
nýrri matvælalöggjöf, sem
til stendur að samþykkja á
Alþingi í maí, breytast skil-
yrði íslensks landbúnaðar
umtalsvert, en þá verður Ís-
land hluti af innri markaði EES
með búfjárafurðir, kjötvörur,
mjólkurvörur og egg.
Áhrif mest í kjúklingi
Það blasir við að innflutningur
eykst í kjölfarið og er mál manna
að áhrifa muni gæta hvað mest í
innflutningi á kjúklingi. En ófyr-
irséð er hversu víðtæk áhrifin
verða. Nú opnast til dæmis fyrir
innflutning á lambakjöti, en
minnstar líkur eru á verulegum
innflutningi á því, þar sem toll-
verndin er sterk og kannski ekki
síður hefðin.
Að því gefnu að lögin verði sam-
þykkt í maí, ganga þau í gildi 1.
júlí 2008, en þó líða átján mánuðir
til viðbótar þar til frjálst flæði með
búfjárafurðir verður leyft, en það
verður ekki fyrr en um áramót
2009–2010. Löggjöfin tekur þó
strax gildi varðandi fisk, fóður og
unnin matvæli, enda eru ekki sömu
grundvallarbreytingar á lagaum-
hverfinu gagnvart þeim afurðum. Í
þessari grein verður fyrst og
fremst horft til þeirra breytinga
sem eru fram undan í landbúnaði.
Og þær eru raunar ekki einungis
bundnar sveitum landsins, því
framleiðslan fer að miklu leyti fram
í þéttbýli og ratar síðan í körfur
neytenda í matvöruverslunum.
Undanþága Íslendinga
Sagan hófst árið 1992. Þá gerðist
Íslandi aðili að EES-samningi ESB
og EFTA-ríkja, sem felur í sér
frjálst flæði vöru á sameiginlegum
markaði. Af heilbrigðisástæðum,
einkum vegna sjúkdómavarna, var
samið um að Ísland yrði und-
anþegið frjálsu flæði landbúnaðar-
afurða, kjötvara, mjólkurvara og
eggja. Í undanþágunni felst að inn-
flutningur á búfjárafurðum er háð-
ur landamæraeftirliti og heilbrigð-
isskoðun, innflytjendur þurfa að
sýna vottorð, leggja fram sýni og
uppfylla kröfur sem geta falið í sér
óþægindi, tafir og kostnað við af-
meta áhættuna hvað varðar búfjár-
sjúkdóma vegna innflutnings á
hráu kjöti. Niðurstaðan varð sú að
hægt væri að innleiða löggjöfina og
yfirtaka reglurnar án þess að heil-
brigðisástandi manna eða dýra
væri ógnað, en til þess yrði þó að
grípa til mótvægisaðgerða.
Ríkisstjórnin ákvað því 18. októ-
ber 2005: „Lagt er til að hafnar
verði samningaviðræður við fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
um endurskoðun undanþágunnar
sem Ísland hefur haft frá kafla 1 í
viðauka I við EES-samninginn í
því skyni að taka upp samræmdar
reglur um annað en lifandi dýr.
Jafnframt er lagt til að heimilað
verði að semja um upptöku gerða
er varða dýravernd, svo lengi sem
ljóst er að ekki verði vikið frá
banni við innflutningi lifandi dýra.“
Rökstuðningurinn fólst meðal
annars í því að breytt og öflugri
löggjöf innan ESB tryggði betur
en áður að þaðan verði ekki fluttar
inn óheilnæmar og hættulegar af-
urðir, öflugra vaktkerfi væri með
uppákomum, svo sem gin- og
klaufaveiki, fyrr væri gripið í taum-
ana og lokað fyrir verslun frá af-
mörkuðum svæðum þar sem slíkt
kæmi upp. Matvælalöggjöf ESB í
heild sinni tryggði öruggara ástand
og því væri minni ástæða en áður
fyrir Íslendinga til að vera með
sérákvæði.
Undir forystu utanríkisráðuneyt-
isins voru haldnir nokkrir samn-
ingafundir með fulltrúum fram-
kvæmdastjórnar ESB síðla árs
2005 og fyrri hluta árs 2006. Í lok
júní 2006 lágu fyrir drög að sam-
komulagi sem voru samþykkt í
sameiginlegu nefndinni 27. október
2007.
eru því viðkvæmir fyrir sjúkdóm-
um sem dýr á meginlandinu eru
jafnvel ónæm fyrir. Eitt kunnasta
dæmið um það er frá upphafi
fjórða áratugarins þegar sauðfé var
flutt til landsins sem bar með sér
hvorki meira né minna en fjóra
sjúkdóma, þrátt fyrir ýtarlega
heilbrigðisskoðun. Afleiðingin varð
sú að gróflega helmingur af sauðfé
landsmanna var skorinn niður með
skipulegum hætti til að sporna við
útbreiðslu sjúkdómanna.
Ekki er talið að frjáls innflutn-
ingur á hráu kjöti hafi slíka hættu í
för með sér, þó að hættan verði
aldrei útilokuð. Ekki frekar en
smithætta vegna mannaferða, en
hringskyrfi hefur meðal annars
borist í nautgripi með mönnum.
Og þar sem ekki er leyfilegt að
nota hráa kjötvöru í fóður handa
dýrum hér á landi, þá er talið ólík-
legt að sjúkdómar berist þá leiðina.
Kjötmjölsframleiðsla er bönnuð og
þó að talið sé að sjúkdómar hafi
borist í svínabú með illa soðnum
matarleifum frá Keflavíkurflugvelli,
þá tíðkast slík vinnubrögð ekki
lengur.
Áhyggjur af hráu kjöti
Engu að síður hafa hagsmuna-
aðilar í landbúnaði lýst yfir áhyggj-
um af auknum innflutningi á hráu
kjöti frá EES-ríkjum og heilnæmi
þeirrar vöru sem flutt verður til
landsins.
Það gildir þó einungis gagnvart
EES, en settar verða upp landa-
mærastöðvar gagnvart „þriðju ríkj-
um“. Engin vara verður flutt inn
frá Kanada eða Bandaríkjunum,
svo dæmi séu tekin, án þess að
fara í gegnum slíka skoðun. Landa-
mærastöðvum hefur þegar ver-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ótti Á Íslandi hefur ekki greinst salmonella í kjúklingi í 3 til 4 ár, en kjúklingaframleiðendur óttast að sýktir innfluttir kjúklingar komi óorði á greinina.
ÍSLENSKUR LANDBÚN-
AÐUR TIL EVRÓPU?
Umdeilt er hversu mik-
il áhrif ný matvælalög-
gjöf á eftir að hafa á ís-
lenskan landbúnað og
framleiðslu á búfjár-
afurðum. Þá eru skipt-
ar skoðanir á því hvort
neytendur muni njóta
góðs af breytingunni til
langs tíma litið og hvort
stigið sé skynsamlegt
skref fyrir sjálfstæða
þjóð.
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is