Morgunblaðið - 11.05.2008, Qupperneq 25
Af tómum tunnum
Merzedes Club þurfti eins og
frægt er að lúta í gólf fyrir Euro-
bandinu í Júróvisjón. Egill er
keppnismaður en kveðst eigi að síð-
ur aðeins hafa verið fúll í fimm mín-
útur. „Það þýðir ekkert að væla yfir
þessu og eftir á að hyggja er ég
bara feginn að við unnum ekki. Við
erum líka langtum vinsælli en
hljómsveitin sem vann. Það sér
ekki fyrir endann á þessu ævintýri
og ég ætla að vera í Merzedes Club
meðan ég nýt þess. Hvernig er ekki
hægt að hafa gaman af þessu, við
félagarnir inni á klósetti að bera á
okkur brúnkukrem …“
Kafald kom í kjölfar ummæla
Friðriks Ómars, söngvara Euro-
bandsins, þegar úrslitin voru ljós í
Smáralindinni þess efnis að hæst
„glymdi“ í tómri tunnu. Egill hristir
höfuðið þegar hann rifjar þetta
upp. „Hann gerði aðeins í buxurnar
þarna, blessaður drengurinn. Sýndi
sitt rétta andlit. Hann reyndi að af-
saka sig á eftir en þessum ummæl-
um var að sjálfsögðu beint að okk-
ur. Það vita allir sem eru með
greindarvísitölu yfir sextíu. Við
vorum vissulega hávær í fjölmiðlum
meðan á keppninni stóð en pöss-
uðum okkur hins vegar á því að
segja aldrei neitt slæmt um keppi-
nauta okkar.“
Er Júróvisjón grín?
Egill óskar Eurobandinu góðs
gengis í Serbíu. „Vonar maður ekki
alltaf að Íslandi vegni vel? Ég á
samt ekki von á því Eurobandið
vinni keppnina, til þess er írski kal-
kúninn of stór biti. Írar skilja að
Júróvisjón er skemmtikeppni en
ekki söngvakeppni eins og hún var í
gamla daga. Það eru bara gamlir
bakraddasöngvarar eins og Guðrún
Gunnarsdóttir sem taka þessa
keppni alvarlega. Íslendingar eru
því miður ekki ennþá búnir að fatta
að þetta er grín. Annars hefðu þeir
valið okkur. Þeir fengu tækifæri til
að senda gott grínatriði og lag eftir
einn mesta tónlistarsnilling þjóð-
arinnar til Serbíu en gerðu ræki-
lega í brækurnar. Grátlegt.“
Þegar upp er staðið er Egill, eins
og áður segir, fyrst og síðast lík-
amsræktarþjálfari. Það er og verð-
ur dagvinnan. Hann er með aðsetur
hjá H-10 Sport og Spa í Kórnum í
Kópavogi en er að mestu hættur
dæmigerðri einkaþjálfun. Þess í
stað hefur hann kynnt til sögunnar
svonefnda fjarþjálfun sem hann
segir ganga vonum framar. „Fjar-
þjálfun er valkostur við einkaþjálf-
un. Einkaþjálfun er dýr og fólk á
ekki að þurfa að slíta af sér annan
handlegginn til að fá þjálfun. Fjar-
þjálfunin felst í því að ég hitti fólkið
í upphafi, geri ítarlegar mælingar
og legg svo upp prógramm fyrir
það. Síðan erum við í góðu sam-
bandi á netinu og ég fylgist með ár-
angrinum. Þetta hefur mælst ljóm-
andi vel fyrir,“ segir Egill en
áhugasamir geta kynnt sér málið
betur á fjarþjalfun.is.
Egill hafnar sterum í sinni þjálf-
un. „Sterar eru bara óþarfi í dag.
Fæðubótarefni eru orðin það góð að
það er bara vitleysa að nota stera.
Búðir eins og Fitness Sport eru
alltaf að taka inn ný og ný efni sem
virka hrikalega vel og hafa ekki
slæmu aukaverkanirnar sem ster-
arnir hafa. Þeir sem fara í sterana
eru yfirleitt strákar sem nenna ekki
og hafa ekki agann í að æfa rétt og
borða rétt. Gefum okkur tvo gæja,
annar notar stera en mataræðið og
æfingarnar eru í ruglinu, hinn borð-
ar rétt og æfir eins og maður. Sá
síðarnefndi rúllar steragæjanum
upp. Það er ekkert sem toppar al-
vöru æfingar og gott mataræði. Við
notum þetta steragrín samt oft
strákarnir. Köllum hver annan
sterahaus og samlokuna hérna á
Players kalla ég sterasamlokuna,
en þetta er allt í góðu gríni hjá okk-
ur félögunum.“
Töff að vera í formi
En menn halda sér ekki í formi
við það eitt að þjálfa aðra og Egill
rífur að jafnaði sjálfur í lóðin fjór-
um til fimm sinnum í viku. Þá hefur
hann gaman af því að spila skvass
og fótbolta með félögunum. „Ég
verð að vera í formi, bæði út af
hljómsveitinni og ekki síður vegna
þess að krakkar líta á mig sem fyr-
irmynd. Foreldrar hafa bæði hringt
í mig og sent mér tölvupóst um að
börnin þeirra vilji fá mig til að
þjálfa sig og að þau séu farin að
hreyfa sig vegna mín. Það er mjög
jákvætt á tímum þegar offita hefur
aldrei verið meira vandamál á Ís-
landi. „Það er töff að vera í formi“
hefur boðskapurinn alltaf verið og
því fleiri sem tileinka sér hann þeim
mun betra.“
Með þeim orðum lýkur miðdeg-
isfundi okkar Egils Einarssonar.
Gazmaðurinn er farinn að kaupa í
matinn og Egill á stefnumót við
skjólstæðinga í ræktinni. Sjálfur
skil ég bílinn eftir og hleyp sem leið
liggur út í Hádegismóa. Í huganum.
orri@mbl.is
Óhræddur Egill hefur aldrei verið feiminn við að koma nakinn fram.
Sparkelskur Egill hefur stutt Man.
United frá blautu barnsbeini.
Stúdent Egill passar varla í þessi jakkaföt lengur.
Hann gerði aðeins í bux-
urnar þarna, blessaður
drengurinn. Sýndi sitt
rétta andlit. Hann reyndi
að afsaka sig á eftir en
þessum ummælum var að
sjálfsögðu beint að okkur.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 25
Síðumúla 3 · 108 Reykjavík · 553 7355
Opið 10-18 virka daga, 11-15 laugard.
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur · 555 7355
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugard.
m
bl
1
00
19
06
Tvær verslanir - Frábært úrval
Spennandi sumarföt
Hörfatnaður - Mussur
Mittisslæður - Kjólar - Pils
Bolir - Leggings
Veldu
sundföt sem
hæfa þínum
líkama
Sundföt frá (logo Lepel)
Bikinísett - tankinísett - sundbolir
Skálastærðir A/B, C/D, DD/E, F/ FF