Morgunblaðið - 11.05.2008, Síða 27
Tökum Bitruvirkjun sem dæmi. Þar
ætlar Sveitarfélagið Ölfus að breyta
útivistarsvæði í iðnaðarsvæði; svæði,
sem er að hluta á náttúruminjaskrá
og er grannsvæði vatnsverndar. Ölf-
us er tæplega 2.000 manna sveitarfé-
lag og meirihlutinn sem stendur að
áformunum um Bitruvirkjun hefur
495 atkvæði á bak við sig. Þessi hóp-
ur ætlar að fara sínu fram í máli sem
snertir tæplega 200 þúsund manns á
suðvesturhorninu og ef út í það er
farið alla Íslendinga. Hvernig má
þetta vera?
Ég hef líka reynt að vekja athygli á
samningi Orkuveitunnar og Ölfuss
frá 2006, sem í mínum huga er ekkert
annað en argasta spilling og orð sem
ekki má nefna á Íslandi. Hann er
metinn á 500 milljónir! Ég sem Reyk-
víkingur velti því fyrir mér, hvers
vegna Orkuveitan mín er að, eigum
við að segja liðka fyrir málum í Ölfus-
inu, með ljósleiðurum, hesthúsum og
vegalýsingu. OR er þegar byrjuð að
greiða samkvæmt samningnum, sem
að mínu mati ofan á allt annað gerir
sveitarstjórn Ölfuss vanhæfa með
öllu til að fjalla um framhald málsins,
athugasemdirnar og úrskurða um
eitt eða neitt. Eru menn ekki komnir
fram úr sér í þessum málum? Eða er
allt „lögboðna ferlið“ síðan í apríl
2006 bara sýndarmennska?“
Óþægindi í austurbænum
Þessu næst víkur Lára Hanna að
mengunarmálunum og segir fólk í
austurbæ Reykjavíkur vera farið að
finna fyrir óþægindum vegna brenni-
steinsvetnismengunar frá Hellisheið-
arvirkjun. Enn sem komið er liggi
ekki fyrir nægar rannsóknir á lang-
tímaáhrifum lítillar brennisteinsvetn-
ismengunar, hvað þá mikillar. „Er
nema von að það fari um Hvergerð-
inga að fá þessa virkjun ofan í sig?
Þeir mega bæði eiga von á mengun
og skakkaföllum í vatnsbúskap. Ég
fór á borgarafund í Hveragerði um
daginn og þar kom fram að Hver-
gerðingum lízt ekkert á blikuna.
Reyndar kom fram hjá fulltrúa Orku-
veitunnar, að menn eru að gera til-
raunir með hreinsun á brennisteins-
vetnisútblæstrinum. Þær eru bara
svo skammt á veg komnar að menn
treysta sér ekki til þess að ábyrgjast
eitt eða neitt. En segjum að þeim
verði eitthvað ágengt. Það segði þá
ekki alla söguna því það kom fram á
borgarafundinum, að það verður ekk-
ert hreinsað á framkvæmdatímanum.
Það eru mörg ár og margar borholur.
Og þegar virkjunin verður komin í
rekstur verða alltaf þrjár, fjórar bor-
holur í blæstri og þær verða ekki með
hreinsibúnaði.
Svo er hávaðamengun frá þessum
virkjunum. Það kom fram í máli Mý-
vetnings á borgarafundinum í Hvera-
gerði að til borholnanna við Kröflu
heyrðist fyrir sunnan vatn og er það
töluvert lengri leið en milli Hvera-
gerðis og Bitruvirkjunar.
Við megum heldur ekki gleyma því
að Bitruvirkjun og Hverahlíðavirkj-
un sunnan hringvegarins eru ekki
endapunkturinn. Það eru tvær aðrar
virkjanir á teikniborðinu.“
Ölkelduhálssvæðið má
alls ekki eyðileggja
– Fer Hverahlíðavirkjun ekkert
fyrir brjóstið á ykkur?
„Það er nú grátbroslegt að þú skul-
ir nota þetta orðalag í ljósi meng-
unarmálanna!
En nei, við höfum allan tímann lagt
áherzlu á náttúruna við Ölkelduháls
og ekkert verið að agnúast út í önnur
virkjanaáform. Fyrst og fremst
vegna þess að þar eru engar nátt-
úruperlur undir. Ölkelduhálssvæðið
má hins vegar alls ekki eyðileggja.
Það er forkunnarfalleg útivistarp-
aradís og náttúran algjört dúndur.
Þess vegna má Bitruvirkjun bara
ekki rísa.“
– Ertu vongóð um áhrif baráttu
þinnar?
Nú horfir Lára Hanna stund-
arkorn út um gluggann áður en hún
svarar. „Ég má ekki gera mér það að
missa vonina. Náttúran á sér marga
málsvara, en samt virðast fáir Ölf-
usmenn eiga að komast upp með sína
Bitruvirkjun.
Fyrir hverja vilja þeir reisa hana?
Og hvaða verð fá þeir fyrir orkuna,
því ekki ætla þeir sjálfir að nota raf-
magnið. Mér heyrist það eiga að fara
í álver suður með sjó. Fyrir hverja er
verið að skapa störf á meðan við þurf-
um að flytja inn erlenda far-
andverkamenn í tugþúsundatali? Er
það svona brýnt verkefni að nauðsyn
beri til að ráðast á náttúruna á Bitru-
og Ölkeldishálssvæðinu? Ég bara skil
þetta ekki. En ég hlýt að standa með
náttúrunni. Það blæs kannski ekki
byrlega sem stendur. En stríðinu er
hvergi nærri lokið. Og ég er tilbúin að
fara alla leið.“
– Af hverju að eyða tíma og fjár-
munum í þessa baráttu?
„Ég get ekki annað samvizku
minnar vegna.
Foreldrar mínir voru miklir nátt-
úruunnendur og útivistarfólk. Móðir
mín fæddist á Flateyri og ólst upp á
Ísafirði. Vestfirðirnir voru henni
hjartfólgnir, en hún átti sér líka
uppáhaldsstaði utan þeirra, eins og
til dæmis Herðubreið og Lónið.
Pabbi var borinn og barnfæddur
Reykvíkingur en föðuramma mín var
frá Skötufirði við Djúp.
Í minningunni eru ótal tjald-
ferðalög og ein hálendisferð með
Ferðafélaginu á hverju ári. Mér eru
Ísland og íslenzk náttúra runnin í
merg og blóð. Og ég tel það skyldu
mína að skila landinu af mér að
minnsta kosti eins gjöfulu og ég tók
við því. Ég skil ekki af hverju menn
þurfa að standa í stöðugu stríði við
landið okkar. En ég hlýt að vera í liði
með landinu og berjast gegn Bitru-
virkjun. Ég get þá sagt eftirá að ég
hafi gert mitt bezta, en ekki staðið
aðgerðarlaus hjá meðan ósköpin
dundu yfir.“
freysteinn@mbl.is
Ljósmynd/Kjartan Pétur Sigurðsson
Ölkelduháls Horft frá Ölkelduhálsi yfir Þverárdal til norðurs í átt að Nesja-
völlum og Þingvallavatni.
!"
#$"!"
%&!
'(
!%
)*%
+!
#
,!
"
-#-
./"
).
!#,!
%
!
0"#.
!"
1''.
!"
((
Við megum heldur ekki
gleyma því að Bitruvirkjun
og Hverahlíðavirkjun sunn-
an hringvegarins eru ekki
endapunkturinn. Það eru
tvær aðrar virkjanir á
teikniborðinu
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 27
Lára Hanna Einarsdóttir sendi
Sveitarfélaginu Ölfusi at-
hugasemdir við auglýsingu sveit-
arfélagsins um breytingar á að-
alskipulagi vegna Bitruvirkjunar.
Krefst hún þess að sveitarfélagið
fallizt á að auglýsa aftur til þess að
taka af öll tvímæli um ákveðin efn-
isatriði, að öðrum kosti verði málið
sent til Umboðsmanns Alþingis og
farið fram á að hann úrskurði í því.
Samkvæmt auglýsingunni er
frestur til að skila inn athugasemd-
um til 13. maí og skulu þær vera
skriflegar. Lára Hanna gerir kröfu
til Sveitarfélagsins Ölfuss að leyft
verði að senda athugasemdir með
tölvupósti og bendir á að síðustu
daga fyrir 13. maí séu pósthús lok-
uð vegna hvítasunnunnar.
Skipulags- og byggingafulltrúi
Ölfuss hefur í tölvupósti til Láru
Hönnu sagt að sendi menn at-
hugasemdir í tölvupósti kalli hann
einnig eftir að þær komi með al-
mennum pósti og þá undirritaðar.
Vill að auglýst
verði aftur
Gegnheill Askur
Ármúla 23
108 Reykjavík
sími 568 1888
Njarðarnesi 4
603 Akureyri
sími 464 7878
www.pog.is
Hvíttað, mattlakkað
Þykkt: 17mm
Breidd: 125mm
Einnig til í eik, hvítta
ð
í sömu stærð og þy
kkt.
Tilboð: 8.900 kr m
²
Fáðu sýnishorn hjá
okkur!