Morgunblaðið - 11.05.2008, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 11.05.2008, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 37 Þegar á allt þetta er litið er ekki óeðlilegt að stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins hafi spurt hvað forystumenn Sjálfstæðisflokksins ætli að gera til þess að ráða bót á því, sem þeir upplifa sem upp- lausnarástand innan borgarstjórnarflokks sjálf- stæðismanna. Tvær leiðir N ú er það svo, að borgarfulltrúar sækja umboð sitt til reykvískra kjósenda. Þeir sækja það ekki t.d. til flokksfélaga Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík, þótt þau séu þeirra bakhjarl. Þess vegna má færa rök að því, að hvorki flokksfélög sjálfstæð- ismanna í Reykjavík né forysta Sjálfstæðisflokks- ins á landsvísu, sem kjörinn er á landsfundi hafi nokkuð um málefni borgarstjórnarflokksins að segja. Og sé þessari röksemdafærslu haldið áfram má segja, að eðlilegt sé að lýðræðið hafi sinn gang. Þarna sé hópur borgarfulltrúa, sem kjörnir eru af reykvískum kjósendum og sæki umboð sitt til þeirra, sem sjálfir verði að ráða fram úr sínum mál- um og standa eða falla með þeim í næstu borg- arstjórnarkosningum, sem fram fara vorið 2010. Þótt hinir kjörnu fulltrúar séu að klúðra því, sem þeir voru kjörnir til, hver höndin sé upp á móti ann- arri, engin samstaða um nýjan forystumann o.s.frv. verði að virða leikreglur lýðræðisins og sjá til hvers þær leiða. Þeir sjálfstæðismenn sem svona hugsa telja að inngrip flokksforystunnar í málefni borgarstjórn- arflokksins væri úrelt fyrirbæri, vinnubrögð gam- alla tíma, sem séu horfnir og komi ekki aftur. Það má líta á Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og fyrrum oddvita borgarstjórnarflokks sjálfstæðis- manna, sem talsmann þessara sjónarmiða. Hann hefur gert athugasemdir við skrif Morgunblaðsins um þessi mál, sem benda til þess að hann hallist að þessari leið. Hin aðferðin er sú, að forystumenn Sjálfstæð- isflokksins blandi sér í málefni borgarstjórnar- flokksins með afgerandi hætti og þá með þeim rök- um, að klúðrið þar sé farið að hafa neikvæð áhrif á stöðu flokksins á landsvísu og jafnvel á stöðu kjör- inna forystumanna flokksins sjálfra og þess vegna sé óhjákvæmilegt að þeir beiti sér til þess að skýra línur innan borgarstjórnarflokksins bæði að því er varðar persónur og málefni. Talsmönnum hinnar fyrri leiðar, sem hér hefur verið nefnd finnst þetta hins vegar úrelt forræð- ishyggja, sem ekki eigi við nú á tímum og vel má vera að þeir hafi rétt fyrir sér. Sú hætta er augljóslega fyrir hendi verði borg- arstjórnarflokkurinn látinn um að greiða úr eigin klúðri að staða Sjálfstæðisflokksins í næstu borg- arstjórnarkosningum verði mjög erfið og raunar svo erfið, að borgarstjórnarflokkurinn verði ekki svipur hjá sjón, þegar upp verði staðið að loknum næstu borgarstjórnarkosningum. Viðbrögð þeirra, sem telja fyrri leiðina sem hér hefur verið nefnd eina raunverulega kostinn, við slíkum athugasemd- um er þessi: Þá verður það svo að vera. Lýðræðislegar umræður E inn hópur manna innan Sjálfstæð- isflokksins á þó lýðræðislega kröfu á að við hann verði talað um þessi mál, þótt hann hafi engan formlegan rétt til afskipta, en það eru félagsmenn í flokksfélögum sjálfstæðismanna í Reykjavík. Þetta er fólkið, sem eru bakhjarlar borgarfulltrúanna. Þetta er fólkið, sem hefur lagt mikið á sig til þess að fá þá kjörna. Þessi hópur á skýlausa lýðræðislega kröfu á því, að viðhorfin innan borgarstjórnarflokksins og viðhorf- in til einstakra mála eins og REI-málsins verði rædd á vettvangi flokksfélaganna í höfuðborginni. Það hefur ekki verið gert að nokkru marki og raunar mikil spurning hvort vandamál borgar- stjórnarflokksins hafi verið rædd að nokkru ráði á fundum borgarstjórnarflokksins sjálfs. Hafi það ekki verið gert er það mikið veikleikamerki. Fyrr á árum voru öll meginmál rædd á vikulegum fundum borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Í því m.a. fólst styrkleiki flokksins í borgarstjórn. Allir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar vissu hvað var að gerast og hvað var framundan. Þess vegna komu fréttir í fjölmiðlum þeim aldrei á óvart. Ekk- ert er verra en að halda upplýsingum frá þeim, sem eiga rétt á að hafa þær undir höndum. Það hleypir illu blóði í fólki að vita ekki það, sem það á að vita og á rétt á að vita. Eðlilegt samráð er einn mikilvæg- asti þáttur í lýðræðislegum vinnubrögðum. Sennilega er árangursríkasta leiðin út úr þeirri sjálfheldu, sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík er komin í að borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar leiti til grasrótarinnar í flokknum. Haldi fundi í hverfafélögunum og í full- trúaráðinu og leggi spilin á borðið. Geri grein fyrir stöðu mála bæði að því er varðar persónur og mál- efni og hlusti á viðbrögð grasrótarinnar. Taki svo ákvarðanir í framhaldi af slíku samráði við fólkið í flokknum. Enda má gera ráð fyrir að heilbrigð skynsemi móti mjög þær raddir, sem borgarfull- trúarnir mundu heyra á slíkum fundum. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins geta ekki haldið áfram að láta eins og ekkert hafi í skorizt. Þeir verða að taka frumkvæði, sem sýnir að þeir eigi eitthvert erindi í pólitík. » Frá því að ofangreind ummæli Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonarféllu í lok febrúar sl. í samtali við Morgunblaðið hefur hann engin orð látið falla á opinberum vettvangi svo vitað sé, sem gefi tilefni til að ætla, að hann hafi skipt um skoðun og þess vegna verður að líta svo á, að valið um nýjan forystumann sjálfstæð- ismanna í borgarstjórn Reykjavíkur standi á milli þessara þriggja yfirlýstu frambjóðenda í stöðuna. Auðvitað geta fleiri bætzt við áður en að kosningu kemur. Og jafnframt er engin ástæða til þess fyrir borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins að halda að Vilhjálmur standi ekki við yfirlýs- ingu sína frá því í febrúar. Auðvitað gerir hann það eftir allt, sem á undan er gengið. rbréf Morgunblaðið/G.Rúnaragnússon, og tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á hljóðskrafi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.