Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 38
38 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Sunnubraut 6 í Kópavogi.
Garðatorg 7 - 210 Garðabæ - sími 545 0800 - Þórhallur Guðjónsson, lögg. fast.sali
Sérlega fallegt og vandað einbýli við sjávarsíð-
una í Kópavogi á móti suðri og í skjóli fyrir
norðanátt. Mjög gott útsýni til suðurs. Húsið er
samtals 219 m², þar af 25,6 m², bílskúr. Hús-
ið sem er byggt 1963 var endurbyggt 1988 að
utan sem innan. Allar innréttingar eru sérsmíð-
aðar úr fyrsta flokks efnum. Fallegur ljós
marmari á öllum gólfum sem eru upphituð.
Lóðin er mjög falleg. Stórir timburpallar og
skjólveggir. Hellulögð stór verönd og stígar og
hiti í heimkeyrslu. Eignin er B-friðuð.
Óskað er eftir tilboði (lámark 100 miljónir).
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður (sími: 898-3708).
Garðatorg 7 - 210 Garðabæ - sími 545 0800 - Þórhallur Guðjónsson, lögg. fast.sali
Mjög falleg íbúð í glæsilegu húsi á frábærum stað við Laugardalinn,
íbúðin og húsið er talsvert endurnýjað. Íbúðin er snyrtileg og vönd-
uð 98,6 fm. á fyrstu hæð ( sérhæð ) ásamt 24,2 fm bílskúr í þriggja
íbúða húsi. Áhvílandi hagstæð lán. Verð 33,9 millj.
Sölumaður Sigurður s. 8983708
LAUGARÁSVEGUR 53 - REYKJAVÍK
ALMENNUM nið-
urgreiðslum Reykja-
víkurborgar til Fé-
lagsbústaða hf. vegna
félagslegs leiguhús-
næðis verður breytt í
persónubundinn
stuðning, þ.e. sér-
stakar húsa-
leigubætur fyrir leigj-
endur hjá
Félagsbústöðum.
Breytingin mun öðl-
ast gildi um mán-
aðamótin maí-júní
næstkomandi.
Biðlisti eftir fé-
lagslegu leiguhúsnæði
hefur farið vaxandi
mörg undanfarin ár.
Sérstakar húsa-
leigubætur voru tekn-
ar upp árið 2004 og
höfðu þau áhrif að
biðlistinn styttist tölu-
vert, en síðan þá hef-
ur fjöldinn á biðlista
efir félagslegu leiguhúsnæði farið
vaxandi og eru nú rétt um 800
manns á bið í Reykjavík. Starfs-
hópur um sérstakar húsa-
leigubætur lagði til árið 2003 að
gildistaka sérstakra húsaleigubóta
yrði í tveimur áföngum. Fyrri
áfanginn tók gildi þann 1. mars
2004 og náði til þeirra er sækja um
úrbætur í húsnæðismálum hjá Fé-
lagsþjónustunni í Reykjavík og
uppfylla ákveðin skilyrði varðandi
félagslega og fjárhagslega stöðu. Í
þeim áfanga var miðað við að
stuðningur við þá er sækjast eftir
leiguhúsnæði á almennum markaði
yrði sambærilegur við nið-
urgreiðslu Reykjavíkurborgar á
leigu hjá Félagsbústöðum hf.
Seinni áfanginn miðaði við að tekn-
ar yrðu upp sérstakar húsa-
leigubætur hjá leigjendum Fé-
lagsbústaða hf. og vann sérstakur
starfshópur að því frá því síðla árs
2004 fram á árið 2005.
Ekki var tekin ákvörð-
un þá um að ráðast í
breytingarnar. Skip-
aður var nýr starfs-
hópur um málið í apríl
2007 sem starfað hefur
síðan og er vinna hans
að skila þessum nið-
urstöðum nú. Fé-
lagslegt leiguhúsnæði
er takmörkuð gæði og
mikilvægt að þessi tak-
mörkuðu gæði nýtist
þeim sem mest þurfa á
að halda meðan fjár-
hagsleg og félagsleg
staða er erfiðust.
Greiðslubyrði leigj-
enda mun breytast hjá
sumum leigjendum
Félagsbústaða og hafa
mismunandi áhrif eftir
stöðu leigjenda. Hjá
sumum mun greiðslu-
byrði hækka, en hjá
fleirum mun hún
lækka. Hjá þeim leigjendum þar
sem greiðslubyrði mun hækka um
meira en 5000 kr. á mánuði verður
gripið til sérstakra aðgerða. Leitað
verður lausna fyrir þá sem ekki
geta staðið undir aukinni greiðslu-
byrði. Þeir leigjendur fá boð um
viðtal hjá ráðgjafa á þjónustu-
miðstöð þar sem m.a. verður boð-
inn milliflutningur innan íbúða Fé-
lagsbústaða þar sem það á við og
einstaklingum verður boðið að
kaupa íbúðina þar sem það á við.
Gert er ráð fyrir 6-12 mánaða að-
lögunartíma að breytingunum fyrir
þennan hóp.
Eins og áður segir mun greiðslu-
byrði leigjenda taka mið af per-
sónubundnum aðstæðum hverju
sinni. Breytingin mun koma til
framkvæmda um mánaðamótin
maí-júní. Sérstakar húsaleigubætur
eru reiknaðar sem ákveðið hlutfall
af almennum húsaleigubótum, þó
geta húsaleigubætur og sérstakar
húsaleigubætur aldrei numið hærri
upphæð en 70 þúsund krónum á
mánuði og aldrei farið yfir 75 pró-
sent af leigufjárhæð.
Með þessari breytingu verður
stuðningurinn réttlátari, gagnsærri
og skilvirkari en hann hefur verið
og mun taka mið af aðstæðum
hverju sinni. Leigan dreifist með
sanngjarnari hætti og þannig tekst
betur að koma til móts við þá sem
lakar standa að vígi fjárhagslega.
Þá verður með þessari breytingu
betri nýting á leiguhúsnæði Fé-
lagsbústaða, þ.e. fjölskyldustærð og
stærð íbúðar munu haldast betur í
hendur og þessi breyting mun hafa
í för með sér aukinn hvata fyrir
leigjendur að leita annarra hús-
næðislausna um leið og aðstæður
batna sem aftur felur í sér að þau
gæði sem felast í félagslegu leigu-
húsnæði geta nýst fleiri ein-
staklingum/fjölskyldum í erfiðum
aðstæðum.
Breyting á fé-
lagslega leigu-
íbúðakerfinu
Jórunn Frímannsdóttir Jensen
segir frá breytingum á fé-
lagslega leiguíbúðakerfinu
» Greiðslu-
byrði leigj-
enda mun taka
mið af persónu-
bundnum að-
stæðum hverju
sinni
Höfundur er borgarfulltrúi og for-
maður velferðarráðs Reykjavík-
urborgar.
Jórunn Frímannsdóttir
„VITUR maður hefur sagt að
næst því að missa móður sína sé
fátt hollara úngum börnum en
missa föður sinn.“ Þannig hefst
Brekkukotsannáll nóbelsskáldsins.
Þótt einhverjir kunni að taka undir
þessa speki verður það ekki gert
hér, á sjálfum mæðradeginum.
Þeir sem notið hafa umhyggju og
ástúðar móður vita hve mikilvæg
hún er ungum börnum í hörðum
heimi.
Ekki njóta þó öll börn þeirra
gæða að eiga móður á lífi. SOS-
barnaþorpin eru hjálparsamtök,
stofnuð 1949, sem sjá mun-
aðarlausum og yfirgefnum börnum
fyrir móður. Samtökin telja, ólíkt
þeirri hugmynd sem sett er fram í
upphafi Brekkukotsannáls, að al-
mennt sé börnum best að alast upp
hjá líffræðilegum foreldrum sínum.
Í þeim tilvikum sem það reynist
ekki unnt er litið svo á að almennt
sé best fyrir börn að alast upp
meðal náinna ættingja. Ef það er
ekki heldur kostur í stöðunni vilja
SOS-barnaþorpin taka börnin að
sér til að forða þeim frá götunni.
Þá flytjast þau á einnar fjölskyldu
heimili í barnaþorpi, fá móður og
systkini og annað það sem börn
þurfa til að geta átt góða æsku og
undirbúið sig fyrir fullorðinsárin.
Yfir fimm þúsund konur um all-
an heim starfa sem SOS-mæður.
Þær hafa helgað sig mun-
aðarlausum börnum og gengið
þeim í móðurstað að undangeng-
inni góðri þjálfun. Í dag er því há-
tíð í 470 SOS-barnaþorpum um all-
an heim. Ég læt lesendum það
eftir að meta hvort sú gleði sé
sönn sem brýst út þegar sjötíu
þúsund munaðarlaus og yfirgefin
börn fagna því að hafa fengið nýja
móður og ný tækifæri.
Ég óska öllum mæðrum, nær og
fjær, til hamingju með daginn.
Munaðarlaus börn fagna
mæðradeginum
Ragnar Schram segir frá starf-
semi SOS-barnaþorpanna
» Í dag er því hátíð í
470 SOS-barnaþorp-
um um allan heim.
Höfundur er kynningarstjóri SOS-
barnaþorpanna á Íslandi.
Ragnar Schram
mbl.is
smáauglýsingar