Morgunblaðið - 11.05.2008, Page 64

Morgunblaðið - 11.05.2008, Page 64
64 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞAÐ gekk mjög vel í London, við kláruðum upptökur þar og mix- uðum svo plötuna, og fórum síðan til New York þar sem við mast- eruðum hana,“ segir Orri Páll Dýrason, trommuleikari Sigur Rósar, en nýjasta plata sveit- arinnar er tilbúin. Platan kemur út um allan heim í lok júní, en þó verður hægt að sækja hana á Net- inu eitthvað fyrr. Aðspurður segir Orri þá félaga ekki enn búna að ákveða nafn á plötuna, en nokkrar hugmyndir séu hins vegar uppi. Í fyrsta sinn í Moskvu Sigur Rós mun fylgja útgáfu plötunnar eftir með tónleikaferð sem hefst í Mexíkó hinn 5. júní, og stendur fyrri hluti ferðalagsins yf- ir til 31. ágúst. Á þessum 88 dög- um spila þeir félagar á hvorki fleiri né færri en 33 tónleikum í 19 löndum í Ameríku, Evrópu og Ástralíu. „Ég var nú ekki búinn að telja þetta,“ segir Orri um þennan mikla fjölda. „Þetta er kannski svolítið mikið, en við vildum samt hafa þetta svolítið stíft svo við þyrftum ekki að fara aftur. Síðasti túr tók okkur nefnilega eitt og hálft ár, en þessi verður miklu styttri,“ útskýrir Orri. Sérstaka athygli vekur að Sigur Rós verður með tónleika í Moskvu hinn 27. ágúst, en þar hefur sveit- in aldrei spilað áður. „Við höfum aldrei farið austar en Pólland,“ tjáir Orri blaða- manni, og bætir því við að hann viti ekki til þess að sveitin eigi marga rússneska aðdáendur. „En það er vonandi að einhver mæti,“ segir hann og hlær. Aðspurður segir Orri vissulega geta verið þreytandi að vera á svo löngum tónleikaferðalögum. „Það er náttúrulega leiðinlegt að vera lengi frá fjölskyldunni og svona...“ Ólýsanlegur hrollur Í fyrri hluta túrsins sem stendur yfir til 31. ágúst verður hljóm- sveitin Amiina með Sigur Rós í för, auk brass-sveitar. Í síðari hlutanum, sem hefst í september og lýkur líklega í desember, verða þeir félagar einir í för, sem er nokkuð sem þeir hafa ekki gert nokkuð lengi. Þá munu þeir heim- sækja Bandaríkin, Suður-Ameríku, Evrópu, Asíu og Ástralíu. Líklegt er að síðustu tónleikar ferðalags- ins verði svo á Íslandi um mán- aðamótin nóvember–desember. Margir muna eflaust eftir tón- leikum Sigur Rósar í Laugardals- höll í nóvember árið 2005, en það voru einmitt síðustu tónleikarnir á „Takk-túr“ sveitarinnar. Í dómi um þá tónleika sem Atli Bollason skrifaði fyrir Morgunblaðið sagði meðal annars: „Í einu vetfangi helltust yfir mig allar minningar lífs míns einsog talað er um að gerist þegar við deyjum. Ég sá hvítt ljós sem var ekki af þessum heimi, allir vöðvar líkamans herptust saman eina örskotsstund og þegar þeir slöknuðu fór um mig ólýsanlegur hrollur. Niður hægri kinnina rann tár og ég herti takið um hönd betri helm- ingsins.“ Nú er bara að bíða og sjá hvort lokatónleikar þessa ferðalags kalli fram eins sterkar tilfinningar og tónleikarnir fyrir tæpum þremur árum gerðu.  Ný plata Sigur Rósar kemur út í lok júní  Hljómsveitin spilar á 33 tónleikum í 19 löndum í sumar  Líklegt er að ferðalaginu ljúki með tónleikum á Íslandi um mánaðamótin nóvember/desember Morgunblaðið/Golli Keyrsla „Þetta er kannski svolítið mikið, en við vildum samt hafa þetta svolítið stíft svo við þyrftum ekki að fara aftur,“ segir Orri Páll um ferðalag sumarsins sem sjá má á korti hér að neðan.      2  3 456 &-'7 8396 &-7  2  4 :6 8;36 (-.            3;6 (-. 456 &-'7 <6 &-7 =6 &-7 96 &-7   336 &-7  346 &-7 !  3;6 &-7 "#  3>6 &-7  3:6 &-7 396 &-7  $$%& '  :6 (-. (  )%  =6 (-. * +  ,$ 96 (-. *,  ) 346 (-.. ! %3<6 (-. /  - 3=6 (-. 0 396 (-. 456 (-. !% & 4:6 (-.  % 1%. 496 (-. 2 3 ;36 (-. 446 &-'7 3;6 (6 ?        ;6 (-.  3%  )@+ <68=6 &-'7 =6 &-'7 4 <6 &-'7 ( -   :6 &-'7 !5% 13  +1 33683A6 &-'7 336 &-'7 '  13 346 &-'7 *  13 3>6 &-'7 !   6 4 3A6 &-'7 7 8% &   % 9 &  - Sigur Rós spilar í eftirtöldum löndum í sumar: Mexíkó Bandaríkin Þýskaland Belgía Frakkland Austurríki Sviss Ítalía Spánn England Ástralía Noregur Svíþjóð Danmörk Tékkland Pólland Rússland Írland Skotland Leggja heiminn að fótum sér

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.