Morgunblaðið - 11.05.2008, Page 65

Morgunblaðið - 11.05.2008, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 65 M Ó T E T T U K Ó R H A L L G R Í M S K I R K J U VESPER eftir S E R G E I R AC H MA N I N O V Í HALLGRÍMSKIRK JU ANNAN Í HVÍTASUNNU 12. MAÍ 2008 KL. 17.00 L I S T V I N A F É L A G H A L LG R Í M S K I R K J U 2 6 . S TA R F S Á R l i s t v i n a f e l a g . i s m i ð a v e r ð 3000 / 2500 kr. s t j ó r n a n d i HÖRÐUR ÁSKELSSON e i n s ö n g v a r a r : Vladimir Mil ler B A S S O P R O F O N D O Nebojsa Colic TENÓR Auður Guðjohnsen A LT TÓNLISTARSJÓÐUR MENNTAMÁLARÁÐUNEYTISINS Styrkt af Reykjavíkurborg SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson LAUGARDAGUR 17. MAÍ KL. 14.00 Maxímús snýr aftur! aukatónleikar í háskólabíói Fyrsti konsert er frír Skráning og upplýsingar á www.sinfonia.is Maxímús Músíkús heillaði unga tónleikagesti upp úr skónum í vetur og nú gefst tækifæri til að upplifa ævintýri hans á ný. Maxímús slæðist inn á æfingu hjá hljómsveitinni þar sem margt skrítið og skemmtilegt ber fyrir augu og eyru. Sögumaður er Valur Freyr Einarsson og kynnir er hin hugmyndaríka trúðastelpa Barbara. Auðvitað mætir svo Maxímús í eigin persónu! Bókin um Maxímús fæst í næstu bókaverslun. H eiti hljómsveit- arinnar er óneit- anleg sérkennilegt, svo ekki sé meira sagt, en það á sér rætur í lagi með grínsveitinni frá- bæru Bonzo Dog Band sem hét einmitt „Death Cab for Cutie“ og gerði grín að Elvis Presley (fáan- legt á plötum sveitarinnar og eins bregður því fyrir í Bítlamyndinni Magical Mystery Tour). Höfuðpaur Death Cab for Cutie, Ben Gibbard, var gítarleikar í rokksveitum í Washington-ríki á vesturströnd Bandaríkjanna um miðjan tíunda áratuginn. Hann tók líka upp sólótónlist undir öðru nafni en fékk síðan þá flugu í höf- uðið að gera sex laga snældu með annarskonar tónlist og þá undir nýju nafni. Samið við risa Þessi fyrsta útgáfa Death Cab for Cutie fékk heitið You Can Play These Songs with Chords og gekk svo vel að hjáverkið varð að aðalatriði – Gibbard stofnaði full- mannaða hljómsveit.Fyrsti viðbót- armaður í Death Cab for Cutie hlaut að verða gítarleikarinn Chris Walla, sem lagði Gibbard lið við smíði snældunnar, og þar næst komu bassaleikarinn Nick Harmer og trommuleikarinn Nathan Good. Sveitinni hefur reyndar haldist illa á trommuleikurum, en eftir nokkr- ar skiptingar spilar Jason McGerr á trommur. Þessi mannskapur sendi frá sér breiðskífuna Something About Airplanes 1998 og tveimur árum síðar kom fín plata, We Have the Facts and We’re Voting Yes, og svo The Photo Album 2001 og Transatlanticism 2003. Fram að því hafði sveitin verið á mála hjá smáfyrirtæki, Barsuk Records, en gerði nú samning við Atlantic- útgáfurisann. Fyrsta skífan á þeim samningi var Plans sem kom út 2005; þokkaleg skífa en stendur fyrri verkum nokkuð að baki, ekki síst We Have the Facts and We’re Voting Yes. Milljónasala Sú ákvörðun Death Cab for Cu- tie að semja við stórfyrirtæki var umdeild meðal aðdáenda sveit- arinnar, en þrátt fyrir það var Plans vel tekið og náði á endanum að seljast í vel á aðra milljón ein- taka, ekki síst fyrir það hve þeir félagar voru iðnir við tónleikahald og ýmislegt kynningarstarf. Það hefur þó verið bið á næstu breið- skífu, sem skýra má með önnum liðsmanna, enda kom til að mynda út diskur með ellefu stuttmyndum við ellefu lög Death Cab for Cutie, þannig að sveitin sat ekki auðum höndum. Innblásnir Þegar þeir félagar settust svo niður til að taka upp nýja plötu tóku þeir snemma þá ákvörðun að vinna skífuna öðruvísi en Plans, þ.e. að setja hana ekki saman að miklu leyti með aðstoð tölvu og hljóðsmala. Þeir höfðu tekið upp lög fyrir safnplötur og þá gert það nánast beint inn á disk í hljóðveri, þ.e. lögin voru spiluð eins og á æfingu eða tónleikum og tekin upp jafnharðan. Þetta þótti þeim takast svo vel að þegar Narrow Stairs var í smíðum mætti Gibbard í æfingaplássið með kassagítar og síðan lagði hver sitt af mörkum. Í viðtali vegna Coachella- rokkhátíðarinnar segir Gibbard að þessi háttur á upptökum hafi gert að verkum að vinnan hafi verið venju fremur skemmtileg og innblásturinn ekki meiri í aðra tíð. Má svo sem til sanns vegar færa því víst er Narrow Stairs óvenjulega lífleg Death Cab for Cutie-plata, stílbrigði fleiri og víða slegið í rokkklárinn. Fyrsta smáskífan er til að mynda allsér- stæð, hálf níunda mínúta að lengd – eftir tæpar fimm mínútur af klifunarkenndri stígandi byrjar það sem kalla má eiginlegt lag. Það er títt að hljómsveitir í til- vistarkreppu kúvendi til að reyna að koma ferlinum afstur af stað. Af orðum Death Cab for Cutie- manna að dæma eru þeir þó ekki að gera annað en skemmta sér á Narrow Stairs og fróðlegt verður að sjá hvernig aðdáendur sveit- arinnar eiga eftir að taka plöt- unni í vikunni. Innblásið indírokk TÓNLIST Á SUNNUDEGI Eftir Árna Matthíasson Ein ágætasta hljómsveit í þeirri greinaflækju sem menn kalla „indí“ vestan hafs er hljóm- sveitin Death Cab for Cutie sem sendir á þriðju- daginn frá sér sína sjöundu breiðskífu eftir nokkurt hlé. Þeir sem heyrt hafa skífuna geta borið vitni um það að þó hún sé dæmigerð „Death Cab for Cutie-plata“ þá er sveitin að taka talsverða áhættu á skífunni og breytir með- al annars útaf í stíl og stefnu. Innblásnir Bandaríska rokksveitin Death Cab for Cutie sendir frá sér plötuna Narrow Stairs á þriðjudaginn. arnim@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.