Morgunblaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 130. TBL. 96. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is Gosi >> 37 Allir í leikhús Leikhúsin í landinu BLEIKT Í BLAND GAMAN AÐ DANSA MEÐ BLÓMUNUM BLÓMASKREYTINGAR >> 18 ÍSLAND ENDURVAKTI TÓNLISTINA NÝ PLATA SIMON LATHAM >> 36 ENGIN REGLUBÓK Eftir Baldur Arnarson og Kristján Jónsson NÆSTU klukkustundir kunna að ráða miklu um björg- un þeirra tugþúsunda manna sem taldar eru liggja fastar í húsarústum borga og bæja Sichuan-héraðs í Kína, eftir að öflugur jarðskjálfti gekk þar yfir á mánudag. Úrhelli hefur tafið fyrir björgunaraðgerðum og eiga dagar eftir að líða þar til skýr mynd fæst af eyðileggingunni. Um þrjú hundruð manns eru talin af í nágrannahér- uðunum Gansu og Shaanxi, en kínversk stjórnvöld ætla að minnst 12.000 manns hafi beðið bana í óförunum. Talið er nær fullvíst að tala látinna muni hækka, en 60.000 manns er saknað í Wenchuan-sýslu í Sichuan-héraði. Japan, Suður-Kórea, Bandaríkin og Kanada eru í hópi ríkja sem hafa heitið aðstoð, en grunur leikur á um að brot á byggingarreglugerðum hafi átt þátt í því að marg- ar byggingar hrundu eins og spilaborgir í skjálftanum. Meðal bygginganna sem hrundu voru fjölmennir skólar. Næstu klukkutímar taldir skipta sköpum við björgun Í HNOTSKURN »Kínversk stjórnvöld hafahvatt þegnana til að gefa blóð og átt í samvinnu við flugfélög um flutning hjálpargagna. »Stjórnin telur hins vegar ofsnemmt að greiða fyrir að- gangi erlendra hjálparsveita til landsins, með þeim skýringum að aðstæður leyfi það ekki að sinni. »Talsmaður samtakannaLæknar án landamæra (MSF) sagði ástæðuna snúast um þjóð- arstolt, að geta sinnt hinum bág- stöddu upp á eigin spýtur. »Úrhelli hefur torveldaðbjörgunaraðgerðir í fjalllendi Sichuan-héraðs. Reuters Hjálparhönd Maður bjargar ungmenni úr rústum grunnskóla í bænum Mianzhu í Sichuan-héraði í gær. 60.000 saknað í Wenchuan- sýslu eftir skjálftann í Kína  Vonin dvínar | Miðopna Morgunblaðið/Golli Umdeilt Eftirlaunalögin voru sam- þykkt á þinginu fyrir fimm árum. FRÉTTASKÝRING Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is FRUMVARP sem felur í sér end- urskoðun laga um eftirlaun ráðherra og þingmanna þyrfti að koma fram í þinginu í síðasta lagi á morgun, svo unnt verði að ljúka málinu á þeim dögum sem eftir eru af starfstíma þingsins, að sögn Sturlu Böðvars- sonar, forseta Alþingis. Undanfarið hafa Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra lýst vilja til þess að endurskoða lögin á næstunni. Geir H. Haarde sagði í samtali við Ríkisútvarpið í gær að hægt yrði að ljúka málinu fyrir þing- lok ef samstaða væri um það á Al- þingi. Eftirlaunalögin sem nú eru í gildi voru samþykkt árið 2003. Þau fela m.a. í sér að þingmenn, ráðherrar, dómarar og forseti Íslands geta á sama tíma stundað atvinnu og þegið eftirlaun frá ríkinu. Augljósustu álitaefnin nú snúa að því hvort hægt sé að breyta lögunum afturvirkt, en hópur þeirra sem lögin ná til nýtir þennan rétt sinn í dag. Í þessu sam- bandi hefur verið vísað til eignar- réttarákvæðis stjórnarskrárinnar. Ljóst er að skammur tími er til stefnu á yfirstandandi þingi. Í þing- sköpum segir að eftir að frumvarpi er útbýtt þurfi að líða a.m.k tvær nætur þar til taka má það til um- ræðu. Þá þarf þingið að samþykkja afbrigði frá þingsköpum eigi að taka málið fyrir, en slíkt þarf að gera þeg- ar frumvörp koma fram eftir 1. apríl. Að sögn Sturlu hefur það verið gert tvisvar sinnum í vor, varðandi frum- vörp um almanna- og sjúkratrygg- ingar. Niðurnjörvuð starfsáætlun Spurður hvort til greina komi að lengja starfstíma þingsins svo unnt sé að ljúka málinu segir Sturla að starfsáætlun þingsins sé nið- urnjörvuð. Nýlega var gerð breyting á þingsköpum sem felur í sér að þing kemur saman 1. september í haust og starfar þá í um tvær vikur. Sturla segir breytinguna hafa miðast við að ekki verði röskun á þeim þingfrestunardögum sem til- greindir séu og „að þingmenn, ráð- herrar og starfsfólk þingsins geti gert sínar áætlanir“. Nefndir þings- ins séu „stútfullar af málum“ og þar þurfi að nýta hverja stund. „Ég legg áherslu á það að til þess að vönduð vinna geti átt sér stað þarf að hafa nokkurn tíma. Það er engum greiði gerður með flaustri í málum, allra síst viðkvæmum mál- um [eins og eftirlaunamálunum].“ Tíminn afar knappur Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is HRINGVEGURINN er rofinn á um 200 metra kafla og mikið skemmdur á um eins kílómetra kafla, eftir að flóð varð við Biskupsháls á Mývatnsöræf- um rétt austan við Grímsstaði á fjöll- um seint í gærkvöldi, þegar stöðuvatn eitt hljóp skyndilega fram. Þar hafa verið miklir vatnavextir að undan- förnu. Flóðið tók 40 tonna trukk Að sögn viðstaddra varð flaumur- inn að gríðarstóru fljóti sem barst niður hálsinn samsíða þjóðvegi eitt. Gróf hann sig smám saman inn í veg- öxlina og saxaði úr henni. Mildi þykir að engan sakaði, en stór vöruflutn- ingabíll frá Flytjanda, fulllestaður af fiski, á að giska 40 tonn að heildar- þyngd að sögn lögreglu, varð flóðinu að bráð. Ökumaður hans neyddist til að stöðva för sína þegar hann kom að hálfsundurgröfnum veginum austan megin flóðsins á tólfta tímanum. Bíll- inn sökk þá í veginn sem orðinn var gegnsósa af vatni. Komst bíllinn þá hvorki lönd né strönd. Um fimmtán mínútum síðar gátu ökumaðurinn og lögregla sem þá var komin á vettvang lítið aðhafst þegar flaumurinn gróf undan hlið bílsins og hann valt út í. Var það mikið sjónarspil með neista- flugi og brothljóðum í vél bílsins, sem enn var í gangi og gengu úr bílnum ol- íuspýjur þegar hann féll niður í flaum- inn. Eftir þetta braut aftan á bílnum og vatnið gróf sér leið í gegnum veg- inn ofan hans. Svæðið vaktað fram á nótt Vatnið skilaði sér svo út á stórar flatir fyrir neðan hálsinn og taldi lög- regla að flóðið myndi dreifa sér yfir Ofsaflóð rauf hringveginn Flaumurinn hreif fullfermdan flutn- ingabíl með sér þær í átt til Grímsstaða nú í nótt, en ekki væri hætta á ferðum vegna þess. Lögreglumaður á vettvangi sagði straumþunga vatnsins hafa verið gríðarlegan og fljótið kollsteypst í boðaföllum niður hálsinn. Um miðnættið í gærkvöldi var skollin á mikil þoka á svæðinu sem um ræðir og var því lítið hægt að sjá til. Engu að síður voru lokanir á veginum gerðar öruggar og lögregla ákvað að vakta veginn eitthvað fram á nótt. Að sögn lögreglunnar tókst vegagerðar- mönnum að brjótast austur yfir flóðið á gröfu til að loka veginum. Vega- gerðin áætlaði að ef vatnavextirnir rénuðu nógu mikið til að hægt yrði að komast að skemmdinni á veginum gæti ef til vill verið orðið fært um veg- inn seinnipartinn í dag, en tekið var fram að það færi eftir því hversu hratt drægi úr flóðinu. Ljósmynd/Bragi Benediktsson Flóð Ekki var hægt að bakka flutningabílnum frá þar sem hægra framhjól hafði sokkið niður í malbikið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.