Morgunblaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 39 ERLENDAR BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. Sunday at Tiffany’s - James Patterson & Gabrielle Charbonnet 2. The Whole Truth - David Baldacci 3. Twenty Wishes - Debbie Macomber 4. Hold Tight - Harlan Coben 5. Unaccustomed Earth, - Jhumpa Lahiri. 6. Where Are You Now? - Mary Higgins Clark. 7. Dead Heat - Joel C. Rosenberg 8. The Miracle at Speedy Motors - Alexander McCall Smith 9. Child 44 - Tom Rob Smith 10. Certain Girls - Jennifer Weiner New York Times 1. A Thousand Splendid Suns - Khaled Hosseini 2. This Charming Man - Marian Keyes 3. The World According to Bertie - Alexander McCall Smith 4. On Chesil Beach - Ian McEwan 5. A Game of Hide and Seek - Elizabeth Taylor, et al. 6. The Lollipop Shoes - Joanne Harris 7. Of Mice and Men - John Steinbeck 8. Valley of the Dolls - Jacqueline Susann, et al. 9. Mister Pip - Lloyd Jones 10. The Book Thief - Markus Zusak Waterstone’s 1. Ghost - Robert Harris 2. Good Guy - Dean Koontz 3. After Dark - Haruki Murakami 4. Witch of Portobello - Paulo Coelho 5. Deep Storm - Lincoln Child 6. Sanctuary - Raymond Khoury 7. Judas Strain - James Rollins 8. Bad Luck and Trouble - Lee Child 9. Beyond Reach - Karin Slaughter 10. Children of Hurin - J. R. R. Tolkien Eymundsson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is ÞAÐ þarf sterk bein til að þola velgengni og fróðlegt verður að sjá hvernig Joanna Rowling á eftir að vinna úr sínum vinsældum nú þegar Harry Potter er allur. Annar höfundur sem átt hefur góða daga er Philip Pullman, því ekki er bara að hans ágæta sagnaröð, Northern Lights, The Subtle Knife og The Amber Spyglass (Gyllti átta- vitinn, Lúmski hnífurinn og Skuggasjónaukinn í íslenskri útgáfu) hafi slegið rækilega í gegn heldur er nú verið að kvikmynda röðina. Bækurnar þrjár, sem sam- an heita His Dark Materials (vitnað í Paradísarmissi Milt- ons) komu út á árunum 1995 til 2000. Frá þeim tíma hefur Pullman haft í ýmsu að snú- ast, meðal annars skrifað tvö stutt ævintýri, og eins unnið sitthvað tengt bókunum en sem segir frá ævintýri sem Lyra lendir í tveimur árum eftir lyktir þríleiksins, og fyrir stuttu kom svo út önnur hlið- arbók, Once Upon a Time in the North, en í henni segir Pullman frá því hvernig þeir kynntust flugkappinn og æv- intýramaðurinn Lee Scoresby og ísbjörninn Iorek Byrnison. Þeirri bók fylgir einnig ým- islegt aukaefni, þar er helst leikur sem hægt er að spila sér til skemmtunar en það er loft- sigling frá Reykjavík til norð- urpólsins, en markmiðið er að fara sem næst pólnum án þess að lenda í honum (þar sogast maður niður og ferst, knús- aður af ísjökum). Í raun er heimurinn sem Pullman hefur skapað svo um- fangsmikill að hann getur sem best eytt ævinni í að skrifa bækur sem tengjast honum beint og óbeint. Hann er líka með í smíðum eina bók til sem fjallar um Lyru og heim henn- ar, The Book of Dust, en sú er öllu veigameiri en kverin sem hér hafa verið nefnd, því þó að hann sé ekki búinn með hana hefur það verið haft eftir hon- um að hún verði býsna mikil að vöxtum. hann er líka enn að skrifa bækur tengdar þeim þó að að- al sögunni hafi lokið með The Amber Spyglass. Fyrir nokkrum árum kom þannig út bókin Lyra’s Oxford Forvitnilegar bækur: Philip Pullman og heimurinn hans Sívaxandi sagnabálkur Kúreki Sam Elliott sem Lee Scoresby í Gyllta áttavitanum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.