Morgunblaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Júlíus
Hreinsun Olíugirðingar voru settar upp en þær draga olíuna í sig.
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis-
ins þarf betri aðstöðu til að þrífa bún-
að sinn eftir olíuhreinsunarstarf.
Þetta er samdóma álit Höskuldar
Einarssonar, deildarstjóra mengun-
arvarna Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins, og Jóns Viðars Matthías-
sonar slökkviliðsstjóra.
Slökkviliðið stóð í fyrradag í miklu
hreinsunarstarfi í Sundahöfn í kjölfar
svartolíuleka en að starfinu loknu var
hreinsibúnaðurinn fluttur á plan hjá
Gelgjutanga þar sem hann var þrif-
inn. Þar er til staðar þró sem var not-
uð til að taka á móti olíunni sem þakti
búnaðinn sem og efnunum sem voru
notuð við hreinsunina. Að sögn Hösk-
uldar fylltist þróin því sem næst en í
kjölfar rigningar um nóttina yfirfyllt-
ist hún og olían og hreinsiefnin
dreifðu sér um Snarfarahöfn. Þá
komust efnin neðst í Elliðaárnar og
að Bryggjuhverfinu.
Þurfa sína eigin aðstöðu
Þar sem olían var þynnri en sú sem
lak úr skipinu deginum áður dreifðist
hún meira en ella en var þó skað-
minni. „Það er alveg ljóst að við þurf-
um að fá bætta aðstöðu til hreinsun-
ar,“ segir Höskuldur og bætir við að
þróin sem notuð var hafi ekki verið
ætluð til þessara nota. „Það þyrfti að
fá plan þar sem við gætum skolað af
búnaðinum með safnþróm til að taka
á móti því sem af búnaðinum kemur.
Við höfum núna bara slökkvistöðv-
arnar og niðurföllin þar eru tengd
holræsakerfinu og við viljum ekki
setja þetta í holræsakerfið.“
Jón Viðar tekur undir að koma
þurfi upp betri hreinsunaraðstöðu
fyrir slökkviliðið. „Það er það mikil
mengun og óþrifnaður af þessu að
það er ekkert fyrirtæki með olíuþró
sem hefur áhuga á að fá okkur í heim-
sókn eftir svona aðgerðir. Við þurfum
eiginlega að vera með okkar eigin að-
stöðu.“
Annað
olíu-
útkall
Útþynnt svartolía
lak í Sundahöfn
Mengun Ekki er talið að mengunin hafi náð að skaða sjávarlífríkið.
2 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FYLGI Sjálfstæðisflokks í Reykja-
vík mældist 30,1% í skoðanakönnun
Capacent Gallup, sem gerð var 1.
mars til 16. apríl, fyrir borgarstjórn-
arflokk VG að því er Ríkisútvarpið
greindi frá í gær. Skv. þessu myndi
flokkurinn missa tvo borgarfulltrúa,
en hann hefur tapað tæpra 8% fylgi
síðan í febrúar. Samfylkingin fengi
47,1%, fengi sjö fulltrúa og væri ná-
lægt því að ná áttunda fulltrúanum.
VG fengi þrjá fulltrúa og 18,9% at-
kvæða en hvorki Framsókn né
F-listi næðu manni inn.
„Alls ekki viðunandi“
„Þetta er alls ekki viðunandi nið-
urstaða fyrir okkar ágæta flokk.
Umræðan hefur verið okkur sjálf-
stæðismönnum afar erfið undan-
farna mánuði, eins og flestir þekkja.
Við fengum 42% í síðustu kosning-
um. Því tökum við þessar tölur mjög
alvarlega. Það eitt vakir hins vegar
fyrir okkur að vinna vel að brýnum
hagsmunamálum borgarbúa. Það
höfum við verið að gera og erum að
gera. Þessi meirihluti er búinn að
koma miklu fleiri málum í höfn en
síðasti 100 daga meirihluti. Við höf-
um staðið við málefnasamning okk-
ar. Sjálfstæðisflokkurinn verður
Umræðan Sjálfstæðis-
flokknum afar erfið
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Júlíus Vífill
Ingvarsson
vonandi dæmdur af verkum sínum
þegar þar að kemur,“ segir Vil-
hjálmur.
Þrætustjórnmál minnihlutans
Júlíus Vífill Ingvarsson borgar-
fulltrúi segir meirihluta F-lista og
Sjálfstæðisflokks bersýnilega eiga
eftir að sanna sig fyrir borgarbúum.
Það muni hann gera út kjörtímabilið
og tölur skoðanakannana endur-
spegli það væntanlega. „Þrætu-
stjórnmál fara Samfylkingu og
Vinstri grænum vel. Þeim virðist
farnast vel við að rífa niður og gera
tortryggilegt það sem vel er gert.
Eftir þá liggur hins vegar lítið sem
ekkert eftir 100 daga setu í meiri-
hluta í borgarstjórn og varð það öll-
um sem til þekktu æ ljósara með
hverjum degi sem leið,“ segir hann.
Gísli Marteinn Baldursson og
Hanna Birna Kristjánsdóttir kváð-
ust ekki hafa náð að kynna sér könn-
unina í gærkvöldi.
Sjálfstæðisflokkur
með 30% og tveim-
ur fulltrúum minna
GEIR H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins og forsætisráðherra,
sagði á almennum stjórnmálafundi á
Akureyri í gærkvöldi að hann væri
mjög ánægður með samstarfið við
Samfylkinguna í ríkisstjórn og
kvaðst viss um að mörg mál, sem þar
hefur verið unnið að, hefðu ekki
náðst í gegn ef haldið hefði verið
áfram með Framsóknarflokknum í
stjórn eftir síðustu kosningar.
„Ég býð ekki í það ef við hefðum
ætlað að taka þennan síðasta vetur
með Framsóknarflokknum á einu at-
kvæði í meirihluta. Það hefði ekki
þurft nema einn ólátabelg – og mér
finnst nú líklegt að hann hefði þá
verið hjá Framsókn! – til þess að
spilla samstarfinu og gera okkur
ómögulegt að taka erfiðar ákvarðan-
ir. Það er fullt af málum sem við höf-
um gengið í gegnum sem við hefðum
ekki getað klárað með þeim. Ég tala
nú ekki um hvernig samstarfið við
Vinstri græna hefði verið ef við hefð-
um farið með þeim, miðað við það
hvernig þeir hafa látið í ýmsum mál-
um.“
Nokkrir fundarmanna gagnrýndu
að stefnt væri að því að taka upp
matvælalöggjöf Evrópusambands-
ins nú á vorþinginu. Meðal annars
skoraði bæjarstjórinn á Akureyri,
Sigrún Björk Jakobsdóttir, á ráð-
herra og þingmenn að fresta málinu
og ná um það betri sátt. Bæði Geir
og Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður
sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd-
ar, sögðu hins vegar að ekki yrði hjá
því komist að taka upp löggjöfina.
Arnbjörg lofaði því að nefndin myndi
skoða málið mjög gaumgæfilega með
sjónarmið allra í huga.
Mjög ánægður
með stjórnina
Matvælalöggjöf ESB er óhjákvæmileg
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fundur Geir H. Haarde og Kristján
Þór Júlíusson á Akureyri í gær.
ÖLL SJÚKRAHÚS landsins munu
sameinast um útboð á lyfjum í fram-
tíðinni. Þetta segir Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra en
hann mun í dag kynna ýmsar nýj-
ungar tengdar lyfjamálum.
Einnig verður leitað samstarfs við
öldrunarstofnanir í lyfjaútboðum.
Stefnt er að því að bjóða út lyf í sam-
starfi við Dani og Norðmenn og þá
hafa Færeyingar lýst yfir vilja sínum
til að taka þátt í lyfjaútboðum með
Íslendingum. Guðlaugur segir útboð
sem farið hafa fram eftir að núver-
andi ríkisstjórn tók við völdum þegar
hafa skilað mikl-
um árangri.
Annað sem hef-
ur skilað árangri
er stytting bið-
lista eftir hjúkr-
unarrýmum.
Mest fór fjöldinn
upp í 140 manns
og voru 70-80
manns á honum í
febrúar. Guðlaug-
ur segir að eftir breytingar á vinnu-
reglum um vistunarmat sé listinn
vart til.
Sjúkrahús samein-
ast um lyfjaútboð
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Útboð í samstarfi við Norðmenn og Dani