Morgunblaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 16
Íþróttir hátt skrifaðar í Kópavogi Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is FRÁ 2002 hefur átt sér stað mikil uppbygging íþróttamannvirkja í Kópavogi auk uppbyggingar annarr- ar aðstöðu fyrir menningu og tóm- stundir í bænum. Ennfremur er ým- islegt á döfinni í þessum, en í Kópavogi hafa um10 milljarðar króna verið eyrnamerktir í uppbyggingu íþróttamannvirkja frá 2002 til 2010. Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að bærinn vilji hafa eins góða íþróttaaðstöðu og hægt sé með bætta heilsu og forvarnir í huga. Byrjunin í Versölum Bæjarstjóri segir að þessi mikla uppbygging hafi hafist með byggingu sundlaugar og íþróttahúss í Versöl- um 2002 til 2005, en það hafi verið framkvæmd upp á um tvo milljarða króna á núvirði. Í kjölfarið var ráðist í byggingu íþrótta- og tónleikahallarinnar Kórs- ins og var mannvirkið vígt í haust sem leið. Það kostaði um 1,6 millj- arða. Verið er að byggja tvöfalt íþrótta- hús við hliðina á Kórnum og segir Gunnar að gert sé ráð fyrir að það verði tilbúið um áramót, en kostnaður er áætlaður um 700 milljónir króna. Við Kórinn verða auk þess þrír úti- fótboltavellir og þar af tveir upphit- aðir. Þeir eiga að vera tilbúnir í sum- ar og kosta að minnsta kosti 200 milljónir króna. Fyrstu helgina í maí var ung- mennahúsið Molinn vígt og kostaði það um 200 milljónir króna, að sögn Gunnars. Þá hafa sparkvellir verið settir upp við alla átta grunnskólana fyrir um 250 til 300 milljónir. Annasöm helgi Um helgina voru opnuð við hátíð- lega athöfn ný sundlaugarmannvirki í Sundlaug Kópavogs við Borgarholts- braut. Bætt var við tveimur innilaug- um, 25 metra keppnislaug og 10 m kennslulaug, en sú síðarnefnda verð- ur meðal annars notuð fyrir ung- barnasund. Ennfremur var bætt við heitum pottum, vaðlaugum og leik- svæði fyrir börn auk þess sem byggt var nýtt eimbað. Kostnaðurinn nam um einum milljarði. Ný stúka við Kópavogsvöll var einnig vígð um helgina en auk stúk- unnar voru gerðar ýmsar endurbæt- ur við völlinn eins og bílastæði, stoð- veggir og endurbætur á hlaupa- brautum. Stúkan kostaði um 600 milljónir og annar kostnaður var um 300 milljónir. Upphafleg áætlun hljóðaði upp á um 300 til 400 milljónir en Gunnar segir að breytingar hafi verið samþykktar á framkvæmdatím- anum með tilheyrandi auknum kostn- aði. Fyrsta skóflustunga að íþróttahúsi fyrir HK í Fagralundi í Fossvogsdal var tekin á laugardag en fram- kvæmdum á að ljúka á næsta ári. Auk byggingu nýs íþróttahúss verður fé- lagsaðstaða HK stækkuð og er gert ráð fyrir að heildarkostnaður verði um 600 milljónir. Gunnar segir að auk þess liggi fyrir að byggja íþróttahús við Vatnsenda- skóla. Byrjað verði á því í haust og ráðgert að ljúka framkvæmdum 2009 en kostnaður er áætlaður um 500 til 600 milljónir. Til stendur að hefja framkvæmdir við reiðhöll á Kjóavöllum í ár og er stefnt að því að ljúka verkinu 2010 en áætlaður kostnaður er um 1,5 til 2 milljarðar. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Leikur Í Sundlaug Kópavogs hefur meðal annars verið bætt við vaðlaugum, rennibrautum og leiktækjum og fer ekki á milli mála að unga fólkið kann vel að meta þá möguleika sem þessi nýju tæki bjóða upp á. Vígsla Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, opna formlega nýju stúkuna. Um 10 milljarðar í uppbyggingu íþróttamannvirkja Í HNOTSKURN » Ný sundlaugarmannvirkivoru tekin í notkun í Sund- laug Kópavogs við Borgarholts- braut við hátíðlega athöfn í fyrradag. » Ný áhorfendastúka viðKópavogsvöll var formlega opnuð sl. föstudag. » Nýtt ungmennahús í Kópa-vogi, Molinn, var opnað á setningardegi Kópavogsdaga, menningarhátíðar í Kópavogi, laugardaginn 3. maí. » Kórinn, nýja íþrótta- og tón-leikahöllin við Vallakór í Vatnsendahverfi, var tekin í notkun í september sl. 16 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ HÁTÍÐIN byggist á bæjarstolti og samstöðu og er lögð áhersla á að allar kynslóðir taki þátt í afmælinu en Hafnfirðingar fá send boðskort sem þeim er ætlað að nota til þess að bjóða gestum í veisluna. Afmælismerki og minningabók Hafnarfjörður fékk kaupstað- arréttindi 1. júní 1908 og bjuggu þá 1.469 manns í bænum. Nú eru bæj- arbúar tæplega 25 þúsund. Í árs- byrjun var greint frá því að árið yrði ein afmælishátíð með sérstakri áherslu á umræddri afmælishelgi. Hafnarfjörður er skreyttur fánum og nýjum bæjarmarkaskiltum en í frétt frá bænum segir að á bak við afmæl- ismerkið „liggur hugmyndin um há- tíðir, innsigli, virðuleika, spariföt, klassík, rómantík gamalla tíma og eril nýrra tíma. Skrautið á merkinu á sér rætur í tímanum þegar Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi því það er unnið upp úr rithönd í sendibréfi sem ritað var í upphafi 20. aldar.“ Valgerður G. Halldórsdóttir hjá auglýsingastofunni Fabrikunni hannaði merkið. Í byrjun árs var minningabók dreift á hvert heimili í Hafnarfirði. Í bókinni er dagatal ársins og listi yfir marga atburði á afmælisárinu. Tekið er fram að listinn sé ekki tæmandi og eru bæjarbúar hvattir til að fylgjast vel með og bæta á listann. Í bókinni eru auðar síður sem íbúar eru beðnir um að nota undir minningarbrot frá afmælisárinu. Að því loknu er óskað eftir því að þeir skili bókunum í þar til gerða hirslu sem síðan verður inn- sigluð, en gert er ráð fyrir því að inn- siglið verði rofið á 150 ára afmæli Hafnarfjarðar. Sex nýjar sýningar verða opnaðar í Byggðasafni Hafnarfjarðar á af- mælisárinu og auk þess verða sýn- ingahúsin Gúttó Suðurgötu 7, Beggu- búð Kirkjuvegi 3b og Bungalowið, sýningar- og móttökuhús bæjarins, Vesturgötu 32, tekin í gagnið. Sýn- ingin Fundir og mannfagnaðir verð- ur sett upp í Gúttó. Verslunar- minjasafn verður sett upp í Beggubúð og sögu erlendu útgerð- arinnar í byrjun 20. aldar verður gerð skil í Bungalowinu. Safnið mun auk þess setja upp ljósmyndasýningu á strandstígnum meðfram höfninni og verða sýndar ljósmyndir eftir norska útgerðarmanninn W.H. Friis, sem rak útgerð í Hafnarfirði á fyrstu árum 20. aldar. Byggðasafnið stendur fyrir stórri afmælissýningu í Hafnarborg þar sem saga Hafnarfjarðar í 100 ár verður rakin í máli og myndum. Í for- sal Pakkhússins verður sett upp sýn- ing á munum úr svonefndu Ásbúð- arsafni, sem er í eigu Þjóðminjasafns Íslands. Fastasýningar Byggðasafns Hafnarfjarðar í Pakkhúsinu, Sívert- sen-húsi og Siggubæ verða betrum- bættar í tilefni afmælisins og auk þess stendur Byggðasafnið fyrir tveimur nýjum og stórum verkefnum á afmælisárinu, fornleifarannsókn á Hvaleyri og örnefnaskráningu í landi bæjarins. Ennfremur stendur safnið meðal annars fyrir fyrirlestrum, Hansahátíð og sagnagöngum. Fjölmargir hafnfirskir listamenn sýna verk sín í Hafnarborg á afmæl- isárinu. Hafnarborg á 25 ára afmæli í ár og í tilefni tímamótanna hefur ver- ið haldin samsýning á verkum 52 hafnfirskra listamanna en vegleg sögusýning verður í safninu um af- mælishelgi Hafnarfjarðar. Tríó Reykjavíkur hefur staðið fyr- ir tónleikaröð í Hafnarborg síðan 1990 og verða margir tónleikar haldnir þar á árinu fyrir utan hádeg- istónleika Hafnarborgar sem eru haldnir fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Gefin hefur verið út vegleg sýning- arskrá vegna sýningar hafnfirsku myndlistarmannanna og fyrirhuguð er útgáfa bókar um verk í eigu Hafn- arfjarðar, sem eru í umsjá Hafn- arborgar, og starfsemi Hafnarborgar í aldarfjórðung. Miklar framkvæmdir Í tilefni afmælisársins verður end- urbótum á Bungalowinu lokið og unnið að endurbótum í Hellisgerði og frekari uppbyggingu útivistarsvæð- isins við Hvaleyrarvatn. Loka- framkvæmdir verða við nýja sund- miðstöð á Völlum, unnið við 3. áfanga Hraunvallaskóla í Vallahverfi, fram- kvæmdir við Íþróttamiðstöðina í Kaplakrika, nýr leikskóli reistur við Hamravelli og nýr leik- og grunn- skóli, sem Hjallastefnan við Bjark- arvelli rekur. Umfangsmiklar fram- kvæmdir í gatnagerð fyrir vel á annan milljarð króna verða á ný- byggingarsvæðum á Völlum og nýj- um iðnaðar- og atvinnusvæðum í Hellnahrauni og Kapelluhrauni. Unnið verður að umhverfisverk- efnum á miðbæjarsvæði við Lækinn frá Hverfisgötu að Strandgötu, hald- ið áfram með gerð strandstígs við Norðurbakkann og lokið gerð nýs útisvæðis og torgs við Byggðasafnið við Vesturgötu. Öllum landsmönnum boðið í Hafnarfjörð Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Kynning Rósa Guðbjartsdóttir, Ellý Erlingsdóttir og Lúðvík Geirsson bæjarstjóri kynna afmælisdagskrána. Heimboð í Hafnarfjörð nefnist helgin 29. maí til 1. júní í Hafnarfirði í til- efni af 100 ára afmæli bæjarins. Fjölbreytt dagskrá verður í bæn- um og bjóða Hafnfirð- ingar öllum landsmönn- um í afmælisveisluna.  Hafnarfjörður heldur upp á 100 ára afmæli bæjarins með fjölbreyttri dagskrá  Hafnfirðingar fá send boðskort til þess að bjóða gestum í veisluna  Miklar framkvæmdir í tilefni tímamótanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.