Morgunblaðið - 14.05.2008, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Tekst Sollu að klofa út vorþingið með skömmina á bakinu?
VEÐUR
Hinn 2. marz 2007, fyrir tæpum15 mánuðum, flutti Jón Sig-
urðsson, þáverandi formaður
Framsóknarflokksins, setningar-
ræðu á 29. flokksþingi Framsókn-
arflokksins og sagði m.a. um hugs-
anlega aðild Íslands að ESB:
En við eigumsjálf að velja
tímann til stefnu-
ákvarðana um
slík efni. Og slík-
ar ákvarðanir
eigum við að
taka á grundvelli
styrkleika okkar
og eigin metn-
aðar sem frjáls
þjóð. Það er ekki sanngjarnt að
kenna íslenzku krónunni um verð-
bólgu eða háa vexti. Fleira kemur
til skoðunar í því samhengi. Við
teljum ekki tímabært að taka nú-
verandi afstöðu Íslands til endur-
mats fyrr en við höfum tryggt hér
langvarandi jafnvægi og varan-
legan stöðugleika í efnahags-, at-
vinnu- og gjaldeyrismálum. Slíkt
tekur ekki minna en 4-5 ár. Á þeim
sama tíma breytast bæði samfélag
okkar og Evrópusambandið sjálft
og því eru langtímaákvarðanir um
breytta stefnu ekki tímabærar nú.
Við höfnum því, að Íslendingar láti
hrekja sig til aðildar vegna ein-
hverra vandræða eða uppgjafar.
Við eigum sjálf að skapa okkur ör-
lög, sem metnaðarfull og frjáls
þjóð.“
Sá sami Jón Sigurðsson, sem létþessi orð falla fyrir tæpum 15
mánuðum, hefur nú skrifað nokkr-
ar greinar hér í Morgunblaðið, þar
sem hann hvetur til aðildarumsókn-
ar.
Hvað ætli valdi breyttum við-horfum fyrrverandi formanns
Framsóknarflokksins? Var hann
búinn að gleyma fyrri afstöðu
eða …?
… fara skoðanir hans eftir því hvar
hann situr við þjóðarborðið?
STAKSTEINAR
Jón Sigurðsson
Að hrekjast til aðildar
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).? !" ! !"
!
! ! ! "! "!"
"!"
!"
"! !
"!
*$BC ##
!"
#
$
*!
$$B *!
$%&
'#
#&#
()
<2
<! <2
<! <2
$'*+
#,
* -#. + */
D
*
B
%
&
$
<7
'
( *
+
,
!-
-
,
)
<
.
)
+
#
,
!,
#
(
01++ #%# 22 *+ #(%#3 ( #,
*
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 13. maí
Námsmenn
þrauka enn..
Þetta fallega kvæði
fjallaskáldsins kom upp
í huga mér seint í kvöld
og er lýsandi fyrir stemn-
inguna í hópnum sem
var að læra fyrir enn
einn aðferðafræðikúrs-
inn uppi á Háskólatorgi.
Allt fram streymir
(Kristján Jónsson, fjallaskáld)
Allt fram streymir endalaust,
ár og dagar líða.
Nú er komið hrímkalt haust
Meira: bryndisisfold.blog.is
Svanur Sigurbjörnsson | 13. maí
Bréf Einsteins
Nýlega kom fram í
sviðsljósið bréf eftir Al-
bert Einstein þar sem
hann tjáir sig um trú-
mál. Menn hafa lengi
deilt um hvort Einstein
hafi verið trúaður eða
trúlaus. Hann vitnaði stundum í guð
en það hefur ýmist verið túlkað sem
tilvísun í náttúruna eða sem trú á guð.
Bréfið sem nú er komið fram er skrif-
að 1954 og hefur verið í einkaeign frá
1955 en nú á að selja það á uppboði.
Þar skýrist talsvert afstaða …
Meira: svanurmd.blog.is
Jón Valur Jensson | 13. maí
Tæknifrjóvgun fyrir
einhleypa?
Barnleysi einhleypra
kvenna er ekki heilsu-
farsvandamál. Þess
vegna er ekkert sem
kallar á það að okkar
dýra heilbrigðisþjónusta
taki það sem hlutverk
sitt, jafnvel lagaskyldu, að annast
tæknifrjóvgun þeirra kvenna. Fráleitt
er að almennir skattborgarar axli fjár-
hagsbyrðar vegna þessa. Það er held-
ur ekki æskilegt fyrir samfélagið að
stuðla að því með beinum …
Meira: jonvalurjensson.blog.is
Ómar Ragnarsson | 13. maí
Áfram, Lára Hanna!
Lára Hanna Einars-
dóttir hefur sýnt stór-
kostlegt fordæmi að
undanförnu með skel-
eggri baráttu sinni
gegn Bitruvirkjun.
Þetta er nákvæmlega það, sem
okkur hefur vantað, nýtt og öflugt
baráttufólk. Þegar brautryðjendur
eins og Guðmundur Páll Ólafsson
hafa verið nógu lengi að er þeirra
góða barátta afgreidd sem þrá-
hyggja og þeir sjálfir sem kverúl-
antar.
Virkjanafíklarnir hafa nýtt sér yfir-
burði fjármagns, valda og aðstöðu
til að sækja fram á svo mörgum
stöðum og jafnframt svo hratt, að
þeir hafa komið sínu fram. Við þurf-
um fólk í forystu á hverjum stað á
borð við Láru Hönnu, fólk sem þor-
ir, fólk sem tekur af skarið.
Bitruvirkjun er ekki aðeins fráleit
hugmynd hvað snertir fórn á nátt-
úruverðmætum. Hún er líka fráleit
þótt engin slík verðmæti væru í
veði, vegna þess að nýting Hengils-
Hellisheiðarsvæðisins er þegar
komin fram úr allri skynsemi og
svæðið verður allt orðið dautt og
kalt eftir nokkra áratugi, einmitt
þegar okkur á eftir að vanta þetta
afl til að knýja ...
Meira: omarragnarsson.blog.is
BLOG.IS
STJÓRN Faxaflóahafna sf. sam-
þykkti á fundi sínum í gær að efnt
yrði til opinnar hugmyndasam-
keppni um þróun og framtíð skipu-
lagssvæðis gömlu hafnarinnar í
Reykjavík, frá D-reit og Ingólfs-
garði í austri að Eyjargarði í
vestri. Formanni hafnarstjórnar
og hafnarstjóra var falið að vinna
að undirbúningi málsins í sam-
vinnu við skipulagssvið Reykjavík-
urborgar.
Fulltrúar meirihluta hafnar-
stjórnar létu bóka á fundinum að í
ljósi þess hve yfirbragð og nýting
gömlu hafnarinnar væri að taka
stórfelldum breytingum væri mik-
ilvægt að mótuð væri heildarsýn
varðandi skipulag svæðisins. Það
varðaði ekki aðeins ásýnd hafn-
arinnar heldur líka íbúa- og at-
vinnuþróun borgarinnar allrar.
Fulltrúar minnihluta, Óskar
Bergsson og Björk Vilhelmsdóttir,
sátu hjá og bókuðu m.a. að tillög-
una bæri að með engum fyrirvara.
Mikilvægt að
móta heildarsýn
Hugmyndasamkeppni um hafnarsvæðið
Anna Ólafsdóttir Björnsson | 13. maí
Og auðvitað var
Íslendingur þarna …
Það virðist sama hvaða
heimsfréttir verða, núna
þessir skelfilegu skjálft-
ar í Kína, alltaf er viðtal
við Íslending sem stadd-
ur er einmitt þarna.
Skammt síðan skipti-
nemi var í viðtali, rétt hjá eldgosinu í
Chile, reyndar Argentínumegin landa-
mæranna. Eitt sinn héldum við
mamma að við værum fyrstu Íslending-
arnir á afskekktri Kyrrahafsey, Raro-
tonga, ó nei, þangað hafði Íslendingur
komið að leita sér lækninga hjá töfra-
lækni á staðnum, en reyndar hafði það
ekki gengið sem skyldi, því hann var
jarðsettur á Raró. Verst að við vissum
ekki af því þá. Ég held svei mér þá að
kenning Þráins Bertelssonar um Ís-
lendinga sé rétt, að við höfum komið
hér við á leiðinni eitthvert annað!
Meira: annabjo.blog.is
FRÉTTIR