Morgunblaðið - 14.05.2008, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 14.05.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 11 FRÉTTIR *S a m k v æ m t s k ilm á lu m . FÁÐU ALLAN PAKKANN FRÁ 3.990 KR. Á MÁNUÐI ÉG GET LÆKKAÐ SÍMREIKNINGINN ÞINN! Flestir Íslendingar nota síma og tölvu án þess þó að tapa sér í aukabúnaði og útúrdúrum; þeir vilja bara geta hringt í fólk og farið á Netið án þess að borga fyrir það stórfé. Við bjóðum þá velkomna til Tals, þar sem einföld og gegnsæ gjaldskrá tryggir þeim lægri símreikning. Ef þú kaupir allan pakkann á www.tal.is og greiðir með kreditkorti færðu fyrsta mánuðinn frían. Frítt í alla heimasíma innanlands, 14,90 kr. í alla GSM innanlands og ótakmarkað niðurhal.* HEIMASÍMI NET GSM www.tal.is | Síðumúla 32, 108 Reykjavík | Þjónustuver 1817 | Skrifstofa 445 1600 | tal@tal.isArna, starfsmaður Tals. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Bláa Lóninu í tilefni þess að verðskrá Bláa Lónsins var til umfjöllunar í Morgunblaðinu: „Um leið og ég fagna umfjöllun blaðsins um verðþróun í landinu þá vill Bláa Lónið koma á framfæri at- hugasemd við samanburðinn. Ástæðan er sú að sundlaugarnar eru þjónusta sem er að miklu leyti niðurgreidd af sveitarfélögum, en verðskrá Bláa Lónsins er í sam- ræmi við verðskrá annarra einka- rekinna heilsulinda þar sem gestir hafa aðgang að heitum laugum og gufuböðum. Til samanburðar má geta þess að aðgangur í Baðstofu Lauga er kr. 4.000, Mecca Spa kr. 2.500 og Baðhúsið kr. 2.800. Til að koma til móts við þá sem vilja stunda Bláa Lónið reglulega sér til heilsubótar eins og sundlaug- arnar bjóðum við árskort sem veita ótakmarkaðan aðgang í tólf mánuði og kosta kr. 19.000. Til sam- anburðar kosta árskort sundlauga kr. 24.000. Þá er enginn aðgangs- eyrir fyrir börn 11 ára og yngri. Fjölskyldukort eru nýjung hjá okk- ur en þau veita ótakmarkaðan að- gang í 12 mánuði fyrir 2 fullorðna og 4 börn/unglinga 16 ára og yngri. Fjölskyldukortin kosta kr. 36.000.“ Yfirlýsing vegna verð- samanburðar Baugsmálið fyrir Hæstarétt BAUGSMÁLIÐ svonefnda verður tekið fyrir í Hæstarétti í dag og á morgun. Um er að ræða mál ákæru- valdsins gegn Jóni Ásgeiri Jóhann- essyni, stjórnarformanni Baugs, Tryggva Jónssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Baugs, og Jóni Geraldi Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélaga Baugsmanna. Hæstaréttardómarnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Hjördís Hákonardóttir, Markús Sigurbjörnsson og Páll Hreinsson dæma málið. Methola á Hellisheiði ENN hefur Íslandsmet verið slegið í djúpum borunum fyrir Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði. Hola 42 á Skarðsmýrarfjalli, sem Jarðboranir luku nýverið við að bora, er 3.322 metra djúp. Hún er því 211 metrum dýpri en fyrri methola, sem lokið var við í febrúar. Gufu úr holunni verður veitt í gufuhverfla sem tekn- ir verða í notkun í Hellisheiðar- virkjun í haust. Nú er verið að afla upplýsinga úr holunni djúpu sem geta gefið betri vísbendingar en hingað til hefur verið stuðst við um afkastagetu jarðhitakerfisins á Hengilssvæðinu. Því dýpra sem rannsóknargögn eru sótt, því líklegra er að mat á um- fangi auðlindarinnar vaxi. Það var áhöfnin á jarðbornum Geysi frá Jarðborunum sem boraði á þetta metdýpi og tók borunin rúmar fimm vikur. Fundu sprengju í Helguvík STARFSMENN Hringrásar í Helguvík fundu sprengjuvörpu- sprengju innan um járnaúrgang í gær. Lögreglan á Suðurnesjum lok- aði staðinn af þar til starfsmenn sprengjudeildar Landhelgisgæsl- unnar komu og fjarlægðu sprengj- una til eyðingar. Samkvæmt upplýsingum lög- reglu var sprengjan ekki virk þar sem sjálfa sprengjuhleðsluna vant- aði. VIÐSKIPTADEILD Háskólans í Reykjavík er sam- kvæmt nýrri úttekt hinnar óháðu stofnunar Eduniversal á meðal 50 bestu viðskiptaháskóla V-Evrópu. Á lista stofnunarinnar yfir 100 bestu viðskiptaháskólana lendir HR í 46. sæti en á lista Eduniversal yfir 1.000 bestu við- skiptaháskóla heims lenti HR í 117. sæti. Þess má geta að 150 bandarískir skólar voru á þeim lista. HR var eini íslenski skólinn sem komst á listann yfir 100 bestu við- skiptaháskóla V-Evrópu. Besti viðskiptaháskóli V-Evrópu er Copenhagen Business School en athygli vekur hversu margir norræn- ir skólar eru á listanum. Meðal þeirra má nefna hagfræðideildir háskólanna í Helsinki (5. sæti) og Stokk- hólmi (11. sæti), viðskiptaháskólann í Árósum (23. sæti) og háskólann í Uppsölum (32. sæti). LSE í London, einn þekktasti háskóli heims, varð í 10. sæti yfir bestu við- skiptaháskóla V-Evrópu. HR á meðal 100 bestu viðskiptaháskóla V-Evrópu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.