Morgunblaðið - 14.05.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 14.05.2008, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 17 AKUREYRI Sauðárkrókur | Hafin er bygging á nýju pósthúsi Íslandspósts á Sauð- árkróki. Kristján L. Möller sam- gönguráðherra tók fyrstu skóflu- stunguna að viðstöddu starfsfólki Íslandspósts úr Reykjavík og á Sauðárkróki. Pósthúsið mun rísa á Ártorgi 6. Eftir athöfnina var öllum við- stöddum boðið að þiggja veitingar á veitingastaðnum Mælifelli þar sem Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, kynnti nýja pósthúsið sem og áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins um allt land á næstu misserum. Stór hluti af framtíðar- áformum Íslandspósts er uppbygg- ing og endurbætur á pósthúsum á höfuðborgarsvæði og á landsbyggð- inni. Árið 2007 risu þrjú ný pósthús, á Húsavík, Reyðarfirði og í Stykk- ishólmi og nú 16. maí mun opna nýtt pósthús á Akranesi. Á næstu misserum munu fleiri ný pósthús verða byggð á landsbyggð- inni og er þessum framkvæmdum ætlað að auka þjónustu við bæði landsbyggðina og höfuðborgarsvæð- ið í senn. Auk nýrra bygginga mun Íslandspóstur ráðast í gagngerar endurbætur á pósthúsum á fjórum stöðum til viðbótar, á Patreksfirði, Blönduósi, Egilsstöðum og í Reykja- nesbæ. Bygging pósthúsanna og fyrirhug- aðar endurbætur eru liðir í þeirri ákvörðun stjórnar Íslandspósts að byggja upp starfsemi og þjónustu fé- lagsins á landsbyggðinni svo tryggja megi vöxt og þróun fyrirtækisins til framtíðar, segir í fréttatilkynningu frá Íslandspósti. Ný hús munu í senn bæta aðstöðu og aðgengi viðskiptavina Íslands- pósts, auk þess sem aðbúnaður og aðstaða starfsmanna fyrirtækisins mun batna verulega. Núverandi húsakynni Íslandspósts voru flest byggð í samræmi við sameiginlegar þarfir Pósts & Síma en breytt rekstrarskilyrði gera kröfur um ann- ars konar aðstöðu en áður var og miða fyrirhugaðar framkvæmdir við að bæta hana verulega, bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Þjónustan efld Íslandspóstur hefur skilgreint 16 kjarnasvæði á landinu þar sem póst- hús þjónusta viðskiptavini á hverju svæði fyrir sig. Á þessum svæðum munu pósthúsin sjá um útkeyrslu sendinga til einstaklinga og fyrir- tækja, þar mun fara fram flokkun og vinnsla sendinga og aðstaða verður þar fyrir bréfbera og landpósta. Þá verður þar móttaka og afhending sendinga sem og önnur þjónusta. Á þessum svæðum verða ein eða fleiri póstafgreiðslur. Íslandspóstur byggir nýtt pósthús á Sauðárkróki Skóflustunga Kristján L. Möller samgönguráðherra hóf framkvæmdir með því að taka fyrstu skóflustunguna að nýju pósthúsi á Sauðárkróki. Ingi- mundur Sigurpálsson forstjóri fagnar áfanganum. Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Það styttist í að Fuglasafn Sigurgeirs í Neslönd- um verði opnað. Þessar vikurnar er unnið af kappi við frágang inn- anhúss, sömuleiðis er verið að smíða sýningarskápa og vinna við uppsetningu sýningar er hafin. Það er ekki síst fyrir myndar- legan styrk sem safnið fékk frá „Velgerðarsjóðnum Áróru“ að nú sjá menn fram á að safnið verði væntanlega opnað í júlíbyrjun. Þegar fréttaritari brá sér á staðinn um helgina voru starfs- menn Ræktunarsambands Flóa og Skeiða að bora eftir köldu vatni skammt frá safninu. Pétur Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri sagði að til þess að þessi áform næðu fram að ganga í sumar þyrfti öfl- ugt átak bæði í fjáröflun og vinnu. Morgunblaðið/BFH Fuglasafn Unnið við byggingu Fuglasafns Sigurgeirs. Það var alhvít jörð við Mývatn og ísinn er enn á vatninu. Í fjarska sér til Bláfjalls. Opnað í sumar Unnið að frágangi húss Fuglasafns Sigurgeirs í Neslöndum í Mývatnssveit LANDIÐ LANDEIGENDUR við neðanverða Þjórsá hafa sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Landeigendur við neðanverða Þjórsá fagna framkominni yfirlýsingu umhverfisráðherra á Alþingi þess efnis að hún muni ekki beita eignar- námi til þess að tryggja Landsvirkjun nauðsynleg lands- og vatnsréttindi. Í ljósi þess að landeigendur við Þjórsá ætla sér ekki að semja við Landsvirkjun um lands- og vatnsrétt- indi sín, skora þeir á ríkisstjórn Ís- lands að gefa Landsvirkjun þegar í stað fyrirskipun um að hætta vinnu við undirbúning virkjana í Þjórsá enda verða þær ekki byggðar nema að undangengnu eignarnámi.“ Áskorun til Landsvirkjunar Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is HARALDUR Helgason á Akureyri hóf störf í Kjötbúð KEA árið 1933 og hefur verið sölumaður síðan, í 75 ár. Hann er enn að og gefur lítið eft- ir. „Ég var að selja fyrir tíu mín- útum,“ sagði gamla kempan og fékk sér í nefið, þegar Morgunblaðið sótti hann heim í gærdag. Hann fer á fæt- ur klukkan átta að morgni, fær sér te og brauð og hringir svo í við- skiptavinina heiman að frá sér. Þeg- ar allar pantanir eru klárar keyrir hann svo með pantanaeyðublöðin út í Kjarnafæði, en hann hefur selt fyr- ir það fyrirtæki í nokkur ár. Segja má að Halli Helga, eins og hann er alltaf kallaður, sé ekki mik- ið fyrir að breyta til; í dag eru ná- kvæmlega 60 ár síðan hann flutti inn í húsið númer 2 við Goðabyggð, hann var formaður Íþróttafélagsins Þórs í 20 ár og hann hefur verið krati frá unglingsárum. Þá má geta þess að hann hefur átt Volvo frá því árið 1961. „Ég held þetta sé 15. Volvoinn sem ég er á núna,“ sagði hann í gær. Halli var 12 ára þegar hann réð sig til Jóhanns Kröyers í Kjötbúð KEA við Kaupvangsstræti. Byrjaði sem sendill en fór fljótlega að sinna ýmsu fleiru. „Við lærðum til dæmis að slátra svínum,“ segir hann. Lík- lega ekki hefðbundið sendilsstarf! Kjötbúðin var til húsa þar sem nú er verslun Friðriks V neðarlega í Listagilinu en sláturhús KEA var of- ar við sömu götu. „Ég var reyndar einn vetur í skóla eftir að ég byrjaði í kjötbúð- inni, því ég var ekki búinn að taka fullnaðarprófið. En ég fór alla laug- ardaga um veturinn niður í kjötbúð til að hjálpa þeim.“ Halli var í 26 ár í versluninni hjá KEA og var síðan kaupfélagsstjóri í Kaupfélagi verkamanna í 20 ár; tók við 1960 og gegndi embættinu til 1980 þegar KEA yfirtók þann rekstur. Þessi sömu 20 ár var hann formaður í Þór og eiginkona hans heitin, Áslaug Einarsdóttir – alltaf kölluð Ninna, sagðist stundum hafa búið með Þór í öll þessi ár, því fé- lagið hafði lengi aðstöðu í kjallar- anum í Goðabyggðinni og mikið af frítímanum fór í starf fyrir félagið. Haraldur er heiðursformaður í Þór og Ninna var gerð að heiðursfélaga á 90 ára afmæli félagsins árið 2005, en hún lést ári síðar. Kaupfélag verkamanna var í tveimur húsum við Strandgötu; vefnaðarvörudeildin var í númer 7, þar sem nú er Kaffi Akureyri, og matvörudeildin var í húsinu númer 9. Kaupfélagið var stofnað um þar síðustu aldamót af Verkalýðsfélagi Akureyrar, sem þá var kratafélag eins og Halli orðar það. Hann er fæddur í Kræklingahlíðinni en fluttist með fjölskyldunni til Akur- eyrar 10 ára gamall. Pabbi hans gekk þá í Alþýðuflokksfélag bæjar- ins og sjálfur varð hann meðlimur 14 eða 15 ára. Eftir að Haraldur hætti hjá Kaupfélagi verkamanna var hann sölumaður hjá kaupfélaginu á Sval- barðseyri í ein fimm ár. Eftir það hefur hann lengstum selt fyrir Kjarnafæði en einnig fisk fyrir Samherja. Og fyrst eftir að hann hætti á Svalbarðseyri seldi Halli reyndar fyrir sláturhús KEA. „Þórarinn í sláturhúsinu var í vandræðum vegna þess að hann átti svo mikið af óseldu nautakjöti, sem hann bað mig að selja, sem ég og gerði. Ég var svo andsk … heppinn að vera í sambandi við Ísal þar sem var gamall vinur minn, Magnús Snorrason frá Akureyri, og hann verslaði við mig allt þar til ég kláraði þetta fyrir Þórarin. Síð- an seldi ég honum mikið frá Kjarnafæði eftir að ég kom þang- að.“ Halli hefur marga fjöruna sopið í sölumennskunni. En hver skyldi galdurinn við góðan sölumann vera? Hann svarar því: „Það er bara að segja mönnum satt og rétt frá – og gefa þeim góð ráð, til dæmis um meðferð á kjöti. Ég lærði margt af dönskum manni sem vann í Kjötbúð KEA á sínum tíma og hef getað ráðlagt mörgum vegna þess í gegnum tíðina.“ Og hann segist alltaf hafa jafn- gaman af starfinu. „Já, það held ég nú. Ég væri ekki að þessu ef ég hefði ekki gaman af því. Á ég að segja þér eitt? Ég væri ekki orðinn svona gamall ef ég hefði ekkert að gera.“ Á skrifborðinu hjá Halla er sími, blað og penni. En hann sagist aldr- ei hafa átt tölvu. „Ég hef ekki einu sinni samlagningarvél á borðinu því þegar þessi bilar, þá hætti ég,“ segir hann og bendir á höfuð sitt. Og jánkar því þegar spurt er hvort hann hafi alltaf verið góður í reikningi. „Það var mitt besta fag í skóla. Ég fékk alltaf 9,5 eða 10.“ Sölumaður í 75 ár – og er enn að Halli Helga er 87 ára, hefur verið krati frá unglingsaldri, búið í sama húsi í 60 ár og aðeins ekið á Volvo frá því 1961 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sölumaður „Ég var reyndar einn vetur í skóla eftir að ég byrjaði í kjötbúð- inni, því ég var ekki búinn að taka fullnaðarprófið,“ segir Halli Helga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.