Morgunblaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 18
Ég vildi hafa þetta svona lítið ogkrúttlegt rými því það er hægt aðgera svo margt skemmtilegt ánþess að vera í mörg hundruð fer- metrum. Ég er miklu hrifnari af því að hafa þetta notalegt. Eiginmennirnir fá sér oft kaffisopa hérna hjá mér á meðan konurnar eru að velja blómin,“ segir Ragnhildur Fjeld- sted eigandi blómabúðarinnar Dans á rósum, sem hún opnaði í nóvember á síðasta ári. „Hér var gamalgróin sængurverabúð og ég þurfti að gera heilmiklar breytingar til að þetta hæfði mínum rekstri,“ segir Ragnhildur sem hefur sérhæft sig í hverskonar blóma- skreytingum. „Ég starfaði lengi úti í löndum, fyrst var ég í Kaupmannahöfn, næst í Amsterdam en lengst af í London, þar sem ég var í fimm ár. Þar vann ég hjá mjög virtu blómaskreytinga- fyrirtæki sem heitir Woodhams og lærði mik- ið á því að sjá um skreytingar, bæði fyrir fyr- irtæki og risastórar veislur eins og fólk sér í Hello-blöðunum,“ segir Ragnhildur og hlær. „Eftir að ég kom heim ákvað ég að fara út í eigin rekstur og það er búið að vera mjög gaman. Ég hef mikið gert af því að sjá um brúðkaupsskreytingar en ég hef líka skreytt anddyri á hótelum, veitingastöðum og öðrum fyrirtækjum.“ Spjalla við brúðhjónin og spyr um óskir Ragnhildur hefur unnið við blómaskreyt- ingar frá því að hún var 13 ára. „Enda hef ég alltaf haft óbilandi áhuga á þessu. Ég byrjaði að vinna í Alaska, fór næst í Blóm og ávexti sem Binni var með og síðan vann ég líka hjá Blómastofu Friðfinns. Ég var svo heppin að ég vann hjá mörgum af gömlu meisturunum.“ Ragnhildur segir að margt hafi breyst hér heima á Íslandi á þeim níu árum sem hún bjó erlendis. „Núna hefur fólk það betra, það eru meiri peningar í umferð, bæði hjá ein- staklingum og fyrirtækjum. Fyrir vikið er meira um að stór fyrirtæki séu með aðkeypt- ar skreytingar í stórum veislum eins og árshátíðum. Ég vinn líka með viðburðarfyr- irtækjum sem taka að sér að sjá um viðburði hjá öðrum. Ég kem þá kannski með nokkrar hugmyndir sem kosta misjafnlega mikið og yfirleitt er unnið út frá ákveðnu þema. Ef ég sé um skreytingar fyrir brúðkaup þá spjalla ég alltaf fyrst við brúðhjónin og spyr um þeirra væntingar og óskir, svo allir verði sátt- ir. Ég hef líka tekið að mér að gera skreyt- ingar í japönskum stíl fyrir fólk sem bauð nokkrum vinum heim í sushi-kvöldverð.“ Ragnhildur lærði blómaskreytingarnar í Bretlandi og hún hefur gaman af því að prófa sig áfram. „Ég er að skapa mér minn eigin stíl en þó vil ég að þetta haldist allt í hendur við tísku- strauma hverju sinni, arkitektúr og annað sem er að gerast hér heima. Ég keppist við að fylgjast vel með tísku og hönnun, ég vil til dæmis innleiða kúlublómvendi sem hafa margt fram yfir hina hefðbundnu blómvendi, þeir standa til dæmis lengur. Ég nota líka stóran bambus heilmikið, hann er einfaldur og fallegur, gefur framandi tilfinningu og er hlýlegur. Mér finnst flott að hafa bambusinn í risastórum kerum, eins og ég gerði til dæmis fyrir móttökuna í nýja veitingastaðnum Turn- inum í Kópavogi,“ segir Ragnhildur sem er mjög atorkusöm og vildi helst vera í sveit þegar hún var yngri. Það fékk hún hins vegar ekki og sneri sér því að blómunum. Henni finnst líka gaman að vinna með það sem er aðeins öðruvísi en venja er í skreytingum, til dæmis er hún með kúlumosa frá Frakklandi, appelsínutré, nautshorn, steinegg og fram- andi blóm eins og stórar orkídeur. Gaman að dansa með blómunum Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Jurtaríki Ragnhildur kann vel við sig innan um blómin sín og finnst gaman að prófa eitthvað nýtt. Hún er stútfull af orku og hef- ur unnið við blómaskreyt- ingar frá því að hún var ung- lingur. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti brosmilda konu sem nýtur þess að skreyta fyrir aðra. Bleikt Ljúfur litur fyrir sumarið. Bland Rauðar rósir fara vel með grænu.Framandi Appelsínutré eru skrautleg. Ég er að skapa mér minn eigin stíl en þó vil ég að þetta haldist allt í hendur við tísku- strauma hverju sinni. |miðvikudagur|14. 5. 2008| mbl.is daglegtlíf veittur sé 10% af- sláttur, lítur hann svo á að kaupi hann tiltekna vöru borgi hann minna en ella. En hvað ef það er ekkert ella? Þá spar- ar Víkverji vitaskuld ekki krónu. Því fór Víkverji að velta því fyrir sér hvort til væru reglur um það hversu lengi vara þyrfti að vera seld fullu verði til þess að hægt væri að selja hana með afslætti og í framhaldi af því hvernig í ósköp- unum væri hægt að hafa eftirlit með því að farið væri eftir slíkum reglum í verslunum landsins. x x x Nýlega var lagður körfuboltavöll-ur á Klambratúni og settar þar upp átta körfur. Þetta var ein besta aðstaðan í höfuðborginni til að fara í körfubolta fyrir þá, sem vilja spila á körfur í fullri hæð. Um helgina fór Víkverji í körfubolta á Klambratúninu og viti menn, netin eru orðin trosnuð og léleg, nokkrir hringirnir skakkir. Á miðjum vellinum voru glerbrot á víð og dreif og hafði greinilega einhver sómamaður fundið hjá sér þörf til að mölva þar bjór- flösku. Þetta er reyndar ekki eini körfuboltavöll- urinn í borginni þar sem svona er komið og má ugglaust vinna marga sparkvelli þar sem net- in eru gauðrifin og leikvelli með ónýtum tækjum. Það þarf að halda þessum völlum við og bregðast strax við skemmdarverkum. Ástæðan er sú að séu tækin ekki löguð strax færast skemmdarvargarnir allir í aukana og skemma meira og meira. Víkverji dagsins á frekar erfittmeð að koma sér upp verðskyni á Íslandi fyrir þær sakir að verðlag er svo breytilegt að hann nær ekki að stimpla inn hvað hinar algeng- ustu neysluvörur kosta nema með höppum og glöppum. Þessa dagana hefur hann þó á tilfinningunni að hafin sé hækkunarskriða. Víkverji hefur ávallt skoðað tilboð í matvöruverslunum. Dag einn fyrir skömmu varð hann hins vegar fyrir hálfgerðri vitrun þar sem hann stóð og skoðaði tilboðsvöru og fór að velta fyrir sér hvort umrædd vara hefði nokkurn tímann verið seld án afsláttarins. Til að gefa afslátt hlý- tur varan einhvern tímann að þurfa að vera seld fullu verði, en Víkverji hefur sterklega á tilfinningunni að sumar vörur séu alltaf á afslætti og því vaknaði spurningin hvort afslátt- urinn væri sölubragð. Fólk er ginn- keypt fyrir tilboðum og Víkverji er þar engin undantekning. Ef hann sér vöru, sem er merkt þannig að        víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Kristján Gaukur Kristjánssonsendir kveðju frá Tasmaníu með sléttuböndum sem ort voru í tilefni af 1. maí. Fyrst er það „Auð- maðurinn“: Duga tekjur, aldrei einn arkar lífsins brautir. Huga gleður, sjaldan sveinn svæsnar hefur þrautir. En afturábak breytist vísan, eins og jafnan er um sléttubönd, og þá nefnist hún „Öreiginn“: Þrautir hefur svæsnar sveinn sjaldan gleður huga. Brautir lífsins arkar einn aldrei tekjur duga. Pétur Stefánsson yrkir mishenda ferskeytlu: Einn vill tóna og yrkja um frið, annar þjóna stúlkum djörfum. –Ýmsir róa á andans mið, aðrir fróa líkamsþörfum. Svo breytir hann mishendunni í hringhendu: Einn vill þróa ást og frið, annar sóa fé á kránni. – Ýmsir róa á andans mið, aðrir fróa líkamsþránni. Ósk Þorkelsdóttir fór austur á Breiðdal og kom fram á hagyrð- ingaþætti þar. Í rútunni á leiðinni gerði hún „skelfilega uppgötvun“: Verst er það í vetrarferð veigunum að gleyma. Að játa synd ég vísast verð vasapelinn er heima. En Hólmfríður Bjartmarsdóttir eða Fía var sem betur fer með í för, enda veðurútlitið ekki björgulegt: Ef við hreppum ís og snjó má andann Guði fela. Til öryggis ég átti þó ögn í vasapela. VÍSNAHORNIÐ Af þörfum og vasapela pebl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.