Morgunblaðið - 14.05.2008, Síða 19
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 19
!
"
#
$
%
&%
'
(
%
) '
*
+ $
% & ,& '
-
'
.%
/ *
!
0 - -
$
%* & .1'2345'.6+47 89: ;<== .1
'2>45'.!?@=15/4!4
6
,4551,A2.!
'
@@ 9
B
@=
- kemur þér við
Sérblað um vinnuvélar
fylgir blaðinu í dag
Flestir fyrrverandi
alþingismenn fá góð
störf
Einkarekstur
styttir biðlista
Golfklúbbarnir
bæta þjónustuna
Neytendur sofandi
á vaktinni
Kynslóðaskipti
á Rás tvö
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?I
lmur er ekki bara ilmur, eins
og nemendur á námskeiði
Guðrúnar Eddu Haralds-
dóttur í kvöld læra: „Í ein-
um ilmi geta verið á bilinu 40 til 80
ólíkar tegundir af innihaldsefnum.
Flestir greina aðallega tvö til þrjú
efni, sem þeim þykja sterkust, og
velja sér ilmvatn eftir því,“ segir
Guðrún Edda sem lærði um ilm-
vatnslistina hjá Chanel í París.
Ilmur í stíl við skapið
En af hverju að skipta um ilm-
vatn eftir árstíðum? „Rétt eins og
fólki þykir oft betra að borða létt-
ari mat á sumrin þykir mörgum
betra að hafa léttari og ferskari
ilm þegar sól er hæst á lofti. Það
langar engan í hangikjöt á heitum
sumardegi og margir hafa sömu
skoðanir á þungum og höfugum ilm
á þessum árstíma, vilja t.d. ilm
með ferskum ávaxta- og blómailm.“
Eins og fyrr segir inniheldur
gott ilmvatn fjölda efna sem ljá
ilminum dýpt og fjölbreytileika en
rétt eins og með mergjuð eðalvín
þarf oft smá þjálfun, eða alltént til-
sögn, til að uppgötva öll smáatriðin
í áferð ilmsins. Aðferðin við að
þjálfa nefið er sú sama og til að
þjálfa tunguna: „Með því að nota
ilmflöskur með stökum ilm má
hjálpa nefinu að greina ólík inni-
haldsefni,“ segir Guðrún Edda.
„Það er líka gaman að sjá hvort
þekkja má ilmefnið án þess að vita
fyrirfram hvað er í flöskunni.“
Réttur ilmur á rétta húð
En jafnvel þegar nefið er orðið
þjálfað er ekki sama hvaða ilmur
er valinn með hvaða húðgerð eða
hvernig ilmurinn er settur á líkam-
ann. Hver kannast ekki við að hafa
keypt flösku af góðum ilm sem svo
fer einhvern veginn ekki nógu vel
þegar hann er notaður: „Sýrustig
húðarinnar hefur mikil áhrif á ilm-
inn og þykkt húðarinnar, þ.e. hve
mikið blóðrásin hefur áhrif á hita-
stig húðarinnar,“ segir Guðrún
Edda. „Það skiptir líka máli hvar á
líkamann við setjum ilminn á okk-
ur. Þú færð t.d. allt aðra lykt af
því að skvetta rakspíra í lófann en
ef þú úðar honum á handarbakið.
Lófinn er sveittari og þar geta
leynst allskyns óhreinindi sem hafa
áhrif á ilminn og leyfa honum
kannski ekki að njóta sín jafnvel
og þegar hann er settur á hand-
arbakið.“
Algeng mistök: ilmgrautur
Ekki síður skiptir máli að vanda
samsetningu á ilmi þeirra mörgu
snyrtivara sem fara á líkamann:
„Það þykir klisjulegur brandari í
ilmvatnsgeiranum þegar stúlkur
eru farnar að blanda saman pipar-
mintuglossinu, jarðarberja-
sjampóinu og vanilluilmvatninu,“
segir Guðrún Edda. „Oft spyr fólk
hví sé þörf á að vera með baðlínu í
stíl við ilminn en það er meðal ann-
ars gert til að koma í veg fyrir að
ilmur af ólíkum snyrtivörum fari
illa saman. Ilmurinn í ólíkum
vörum í sama merki er líka mis-
jafnlega samsettur og útkoman sú
að þó að notuð séu t.d. sturtusápa,
húðkrem og ilmur úr sömu línu þá
verður ilmurinn ekki sterkari,
heldur meira „með manni“.“
Guðrún Edda gefur því það holl-
ráð að blanda ekki saman of mörg-
um tegundum ilmi. „Ef maður er
með flott ilmvatn en ekki með aðr-
ar snyrtivörur úr sömu línu þá er
ágætt að reyna að nota aðrar
snyrtivörur með sem vægasta ilmi
til að koma í veg fyrir slæma
blöndun.“
Rangur ilmur á röngum stað
Ilmvötn geta líka verið missterk
og sum jafnvel verkað yfirþyrm-
andi. Guðrún Edda mælir með að
fólk noti ágengan ilm varfærn-
islega: „Kröftugur ilmur getur far-
ið illa í þá sem kunna ekki við lykt-
ina. Þeir sem þurfa að starfa mikið
í kringum annað fólk, s.s. við þjón-
ustu eða í heilbrigðisgeiranum,
þurfa þannig að gæta sín að velja
frekar léttan ilm sem fer betur í
allan þorra fólks og er ekki jafn
áberandi og þungur ilmur,“ segir
hún. „Þú gætir sett rétt ögn af
þungum og sterkum ilm á bak við
eyrun og anganin berst um allt hús
en léttari ilmvötn má oft úða á lík-
amann allan daginn án þess að
lyktin verði yfirþyrmandi fyrir
aðra. En svo þegar störfum er lok-
ið og kannski farið út á lífið er um
að gera að nota kryddaðan og
dramatískan ilm sem getur jafnvel
gert nærveru þína meira eftir-
minnilega,“ segir Guðrún að lokum.
Reuters
Ilmval Það getur verið erfitt að velja rétta ilmvatnið og léttari lykt getur átt betur við yfir sumartímann.
Undraheimur ilmsins
Margt býr á bak við
góðan ilm sem fer vel.
Ásgeir Ingvarsson
ræddi við Guðrúnu
Eddu Haraldsdóttur
um margslungnar
ilmblöndur og algeng
ilmmistök.
Rósailmur Rósablöð eru vinsælt hráefni til ilmvatnsgerðar.
Kaffibaunir hreinsa nefið
Margir kannast við að verða hálfvankaðir eft-
ir að hafa ilmað af mörgum ilmvötnum í röð.
En rétt eins og vínsmakkarar skola munninn
með vatnssopa milli vínglasa, þá lykta ilm-
smakkarar af kaffibaunum. Við kaffiilminn
verður nefið eins og nýtt, og hjá flestum fínni
ilmverslunum (jafnvel á Íslandi!) eru kaffi-
baunir til taks fyrir viðskiptavini.
Alliance Francaise heldur í kvöld
Námskeiðið Lærðu að þekkja sum-
arilmvötnin á Tryggvagötu 8 kl. 19
til 21 og er námskeiðið haldið í
samstarfi við heildverslunina For-
val. Guðrún Edda stýrir námskeið-
inu. Fer skráning fram í síma 552
3870 og er þátttökugjald 3.900
kr.
Sá eini rétti? Sýrustig húð-
arinnar hefur áhrif á hvaða
ilmur hentar hvaða húð.