Morgunblaðið - 14.05.2008, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ ELSKA
MIG ALLIR
ÞAÐ HEFUR EINHVER GLEYMT
AÐ LÁTA HANN VITA
ÉG ER
ÞREYTTUR
Á LÍFINU
ALLIR DAGAR
ERU EINS
ÉG ÞARF AÐ
BREYTA TIL
KAL-
VIN!
BÍDDU AÐEINS
RÓSA... SÍMINN
ER AÐ HRINGJA
ÉG VONA AÐ ÞETTA SÉU
FORELDRAR ÞÍNIR! ÉG VONA
AÐ ÞAU BIÐJI UM AÐ FÁ AÐ
TALA VIÐ MIG! ÞÁ FÆRÐU
SKO AÐ HEYRA ÞAÐ!
ÞETTA ER KÆRASTINN
ÞINN, HANN KALLI! Á ÉG
AÐ SEGJA HONUM AÐ ÞÚ
SÉRT VANT VIÐ LÁTIN?
NEI!
LEYFÐU
MÉR AÐ
TALA VIÐ
HANN!
HEYRÐU,
FÉLAGI... ÉG ER
VISS UM AÐ ÞÚ
GETUR GERT
BETUR Í
KÆRUSTU-
MÁLUNUM
OKKUR VANTAR
BORÐ FYRIR
ÞRETTÁN MANNS
ÞVÍ MIÐUR HERRA MINN.
VIÐ HÖFUM ENGIN BORÐ FYRIR
ÞRETTÁN. ÞAÐ ER ÓHAPPATALA
ALLT Í LAGI!
ÉG ÆTLA AÐ FÁ BORÐ
FYRIR FJÓRTÁN...
OG ÞESSI ÆTLAR AÐ
SITJA MEÐ OKKUR
KÖTTURINN ER
UPPTEKINN EINS OG ER...
HANN ER AÐ HORFA Á
SÁPURNAR SÍNAR
ADDA, ÉG VEIT HVERNIG VIÐ
GETUM EINFALDAÐ JÓLAGJAFA-
INNKAUPIN Í ÁR
NÚ?
HVERNIG?
Í STAÐINN FYRIR AÐ
KAUPA GJAFIR ÞÁ BÚUM
VIÐ TIL EITTHVAÐ
SEM ALLIR HAFA
ÁNÆGJU AF
EINS OG
POKA MEÐ
ILMJURTUM?
NEI, HEIMA-
TILBÚINN BJÓR
EF KÓNGULÓARMAÐURINN ÆTLAR
AÐ BERJAST VIÐ DR. OCTOPUS ÞÁ ER
ÞAÐ FRÉTT ALDARINNAR...
EN VIÐ ERUM OF
LANGT Í BURTU TIL
AÐ SJÁ ÞAÐ!
ÞÁ ÞURFUM
VIÐ BARA AÐ
KOMAST NÆR
EF KÓNGULÓIN
KEMUR EKKI
BRÁÐLEGA...
ÞÁ ERUÐ ÞIÐ
HJÓNIN ÚR
SÖGUNNI!
dagbók|velvakandi
Áreiti auglýsinga
ÉG er fastur áskrifandi að Morg-
unblaðinu og hef verið það svo lengi
sem ég man eftir mér. Nú hafa verið
teknir upp nýir siðir hjá blaðinu sem
ég er ekki ánægð með. Þegar ég fæ
blaðið í hendurnar þá detta úr því
auglýsingabæklingar frá fyr-
irtækjum, þrýstihópum og fleirum
sem þurfa að auglýsa sig. Auglýs-
ingaflóðið gengur fram af fólki. Svo
þarf fólk að fara með allan pappírinn
út og setja það í sérstaka gáma nán-
ast á hverjum degi þar sem pósthólf
í fjölbýlishúsum taka ekki við þessu
flóði. Hvaða rétt hefur blað sem ég
er áskrifandi að til að senda mér
óumbeðið auglýsingabæklinga?
Er verið að neyða mig til að segja
upp fastri áskrift að blaðinu.
G.J.
Slæða fannst
MILLENIUM 2000 silkislæða
fannst á Grensásveginum þriðjudag-
inn 13. maí. Eigandinn getur vitjað
hennar í síma 694-7899.
Hvar eru mörkin?
Í LJÓSI þess að verið er að kæra
karlmenn, jafnvel unga drengi, fyrir
„kynferðislegt áreiti“ langar mig að
segja lesendum frá ömurlegri sögu
sem ég heyrði nýlega. Þannig var að
nokkrar menntaskólastúlkur tóku
sig til og kærðu kennarann sinn því
þeim fannst hann leiðinlegur. Þær
ákváðu að losa sig við hann með því
að bera á hann sakir um kynferð-
islega áreitni. Ekki veit ég hvort
þær höfðu erindi sem erfiði en ég bið
lesendur að hugsa um þetta og at-
huga að það sem hét í mínu ung-
dæmi (ég er á fertugsaldri) að strák-
ur væri að „ reyna við“ stelpu heitir
núna kynferðislegt áreiti. Viljum við
hafa þetta svona?
Móðir
Stytta Jóns Sigurðssonar
MIG langar að taka undir með grein
sem birtist 11. maí sl. í Velvakanda
og varðaði styttu Jóns Sigurðssonar
og Austurvöll. Ég var eitt sinn á
gangi þarna og þá rakst ég á ferða-
mann sem spurði mig hver þetta
væri. Ég sagði bara eins og var að
þetta væri þjóðhöfðinginn því það
var engin merking á styttunni. Það
er skömm að því hvað styttan hefur
drabbast niður og garðurinn er illa
ræktaður.
Einnig langar mig að taka undir
það sem kom fram í greininni varð-
andi ljósmyndasýningarnar sem
hafa fengið að standa þarna á Aust-
urvelli. Mér finnst þær bara hreint
ekki eiga heima þarna og ættu þær
að standa í Hljómskálagarðinum.
Þar myndi fara mun betur um þær
því Austurvöllur ber ekki svona
stórar sýningar. En mér finnst þetta
þjóðarskömm að ekki sé betur hirt
um minnisvarðann af Jóni Sigurðs-
syni sem á 200 ára afmæli árið 2011
og þetta verður að laga.
Eldri borgari
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
HVÍTASUNNUHELGIN er nú liðin og eftir sitja vonandi góðar minningar
hjá flestum. Þeir Svavar Már og hundurinn Hektor eiga minningar um
gleðistundir í leik og samveru með nánustu vinum og ættingjum.
Morgunblaðið/hag
Góðar stundir
Frú Helga Tómas-
dóttir er 70 ára í dag.
Fyrir 40 árum nutum
við tuttugu og fimm 10
ára mismikil kríli
þeirrar gæfu að hafa
hana sem okkar kenn-
ara. Mörg okkar nutu
leiðsagnar hennar alla
barnaskólagönguna.
Helga var mikils met-
inn kennari við Lækj-
arskóla í Hafnarfirði í
40 ár.
Það er mikil gæfa að
fá góða og trausta leið-
sögn í upphafi skóla-
göngu.
Við upprifjun minninganna frá
þessum tíma er þess helst að minn-
ast hversu Helga hafði gott vald á
bekknum. Það var nánast fullkom-
inn vinnufriður í kennslustofunni,
alltaf verið að og námsefnið krufið til
mergjar. Það þurfti engin lyf til að
aga okkur. Helga hélt okkur við efn-
ið með sínum brennandi áhuga á
fræðslunni og lagði línur fyrir
ábyrgð á eigin velferð til framtíðar.
Á þeim tíma var ekki mikið um að-
stoðarkennslu. Ég man t.d. ekki eft-
ir því að hugtakið lesblinda hafi ver-
ið nefnt. Í dag hefðu sum okkar
eflaust fengið frekari
aðstoð við lesturinn. En
þá var nánast öll
ábyrgðin á einum kenn-
ara sem hélt utan um
blandaðan 25 barna
hóp. Helga var alltaf
hinn góði fræðari og
uppalandi. Það höfðu
allir nóg að gera í
kennslutímunum. Frí-
mínútur voru síðan vel
nýttar til leikja.
Helga var því í sínum
kennslustörfum bæði
kennari og uppalandi í
besta skilningi. Ábyrgð
á uppeldi er foreldra, en góður kenn-
ari bætir þar miklu við. Kennarar
eru grunnstoð hvers barns til þroska
á leið til farsællar framtíðar. Því
miður er þeim oft ekki sýnd nægj-
anleg virðing og þeirra störf ekki
fullþökkuð.
Frú Helga Tómasdóttir var svo
sannarlega góður kennari og fyrir-
mynd sem fylgt hefur okkur alla tíð.
Við þessi tímamót þökkum við æsku-
árin og biðjum þess að Helga eigi
enn eftir að njóta góðrar heilsu og
gleði um mörg ókomin ár.
F.h. 3. H í Lækjarskóla 1967-1968
Þorvaldur Ingi Jónsson.
Helga Tómasdóttir
AFMÆLI