Morgunblaðið - 14.05.2008, Síða 36

Morgunblaðið - 14.05.2008, Síða 36
■ Á morgun kl. 19.30 Swingle Singers – frá Bach til Bítlanna Hinn heimsþekkti sönghópur Swingle Singers hefur fyrir löngu sann- að að honum er ekkert ómögulegt og efnisskráin er vægast sagt fjöl- breytileg. Það mun ekki fara framhjá áheyrendum á þessum tónleik- um: Bach, Mozart, Berio, Lennon og McCartney munu hljóma í með förum meistanna. Tónleikar sem söngunnendur vilja ekki missa af. Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson Söngvarar: Swingle Singers ■ Lau. 17. maí kl. 14 Maxi snýr aftur! Vegna fjölda áskorana og mikilla vinsælda bókarinnar um Maxímús Músíkús verður þetta stórkostlega ævintýri endurflutt. Tryggið ykkur miða! ■ Fim. 22. maí kl. 19.30 Tveir básúnuguðir Þegar tveir virtúósar eins og Christian Lindberg og Charlie Vernon leiða saman hesta sína verður útkoman göldrum líkust. Ómissandi fyrir áhugamenn um flugeldasýningar. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is Tvímenningarnir voru heldur þreytulegir, enda nýbúnir að tjalda þessu feiknastóra tjaldi … 40 » reykjavíkreykjavík ÍSLENSKI hópurinn með þau Frið- rik Ómar og Regínu Ósk í broddi fylkingar steig fyrstur á svið í æfing- um gærdagsins í Beogradska- höllinni í Belgrad. Samkvæmt Jón- atani Garðarssyni, fararstjóra hóps- ins, gekk æfingin mjög vel en töluverður tími fór í að fínstilla ákveðna hluti í myndvinnslunni og mun upptökustjórinn hafa komið að máli við hópinn eftir æfinguna sem að sögn Jónatans er mjög sjaldgæft. Að æfingu lokinni var haldinn blaðamannafundur þar sem þau Friðrik Ómar og Regína Ósk léku á als oddi og sungu meðal annars lagið með íslenskum texta. Grétar Örv- arsson var svo spurður að því hvort hann hefði trú á framlagi Íslands í ár í ljósi reynslu hans af keppninni. Svaraði hann því til að hann hefði fulla trú bæði á laginu og atriðinu og að hann væri auk þess mjög stoltur af því að fá að vera hluti af því. Háhælaðir skór Regínu Óskar vöktu töluverða athygli á æfingunni í gær enda skærbleikir og í stíl við neonbleikar línur í búningum söngv- aranna. Friðrik Ómar varð hins- vegar bæði að sætta sig við svarta flatbotna skó og síðar buxur. Næsta æfing Eurobandsins í Beogradska fer fram á föstudaginn og þá kemur í ljós hvort einhverjar breytingar hafi verið gerðar á atriðinu. Regína Ósk í bleikum skóm Á æfingunni í gær Friðrik Ómar og Regína Ósk voru með sporin á hreinu.  Það mun vera spá margra að framlag Rússa muni fara með sigur af hólmi í Evróvisjónkeppn- inni sem hefst í næstu viku í Belgrad í Serbíu. Lag Rússlands kallast „Believe“ og er sungið af Dima Bilan en Bilan þessi varð í öðru sæti í Evróvisjón árið 2006 í Aþenu þegar finnsku skrímslin í Lordi hrepptu hnossið. Rússar æfa í fyrsta sinn í dag í Beogradska-höllinni og mun atriðið vera einkar óhefðbundið þar sem skautadans kemur meðal annars við sögu. En fari svo að Bilan sigri ekki í Evróvisjón í ár þarf hann ekki að örvænta því meðal þeirra sem hann hefur fengið til liðs við sig við gerð næstu plötu er upp- tökustjórinn Timbaland og söng- konan Nelly Furtado sem mun syngja dúett með kappanum. Rússar taldir sigur- stranglegir í Belgrad  Samhliða kvikmyndahátíðinni í Cannes sem hefst á morgun verður kvikmyndamarkaður þar sem kaupendur og seljendur kvikmynda alls staðar að úr heiminum koma saman. Fimm íslenskar kvikmyndir verða sýndar að þessu sinni á mark- aðssýningum í Cannes en það eru Astrópía, Duggholufólkið, Veðra- mót, The Amazing Truth About Queen Raquela og Skrapp út. Tvær síðastnefndu myndirnar hafa enn ekki verið sýndar á Íslandi. Magnús Viðar Sigurðsson verður svo fulltrúi Íslendinga í „Producer on the move“, en það er viðburður þar sem framleiðendur alls staðar að úr Evrópu koma saman og kynna sig og myndir sínar. Íslendingar í Cannes Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞAÐ var á tíunda áratugnum, því mikla dans- tónlistartímabili, sem Simon sveif skýjum ofar með sveit sína Soundsation og naut hún sæmi- legustu vinsælda, náði meira að segja tvívegis að gera skurk á vinsældalistum. Er Simon var hing- að kominn var hann svo gott sem hættur tónlist- arumsýsli en á undanförnum árum hefur hann verið að pota æ oftar og af meiri krafti í þessa djúpstæðu ástríðu sína og fyrir stuttu komu út tvær endurhljóðblandanir af lögum poppdrottn- ingarinnar Birgittu. Um er að ræða lögin „Ör- magna“ og „Ein“ af sólóplötu söngkonunnar frá því í fyrra, Ein. Platan sú er lágstemmd og værðarleg en Latham, ásamt félaga sínum Pete Lunn, skynjaði „taktinn“ í lögunum og gáfu þeir þau út í gegnum nýstofnað útgáfufyrirtæki sitt, Airport Route Recordings. Þá kemur sólóplata Lathams, Left right of centre, út á tonlist.is núna á föstudaginn en mánuði síðar kemur hún út á iTunes, Beatport og á fleiri niðurhalssíðum. Simon á ekki von á því að platan komi út á efn- islegu formi, ekkert frekar a.m.k. Engin reglubók Plötuna mætti flokka sem nokkurs konar framsækið „house“, geiri sem er ekki ókunnur Simon og skrifar hann meira að segja reglulega á heimasíðuna progressivehouse.com, netsam- félag svipað þenkjandi fólks. „Ég reyndi að sveipa plötuna nokkuð persónu- legum blæ,“ lýsir Simon. „Þannig að þetta er ekki „framsækið house“ eftir bókinni. Þess má geta að ég er í grunninn söngvaskáld (singer/ songwriter) og það hefur eðlilega haft áhrif á það hvernig ég nálgast dans/raftónlist. Ég hef verið að fá fínustu viðbrögð við þessu, meira að segja frá fólki sem hlustar ekki á svona tónlist, sem mér þykir vænt um.“ Simon viðurkennir að búseta hans hér hafi kveikt upp í honum á nýjan leik. „Ég veit það ekki … það er eitthvað við Ísland, alla þessa nálægð og alla þessa ótrúlegu sköp- unargleði sem hefur eðlilega áhrif. Og ekki síst það að Íslendingar hafa enga reglubók þegar kemur að tónlist. Í Bretlandi er allt í fremur föstum skorðum, þú þarft að fara eftir ákveðnum línum og brautum en hérna getur þú bara gert nákvæmlega það sem þér sýnist. Og uppskerð venjulega best þannig. Svo er mjög gott að vinna hér á veturna, það verður allt eitt- hvað svo innilokað, það hægist á öllu og því lítið annað að gera en að loka sig inni – og vinna.“ Simon vonast eðlilega til þess að Airport Route-útgáfan vaxi vel og dafni næstu ár, allt sé opið með frekari útgáfur og meðal annars sé lag að sinna íslenska markaðnum. „Netið og aukin tækni hefur líka gert öll sam- skipti betri og opnari hin síðustu ár,“ segir hann. „Þetta var mun stífara og stirðbusalegra í gamla daga. Nú er hægt að skella sér á hin ýmsu spjall- borð og hafa bein samskipti við marga af stærstu postulum danssenunnar. Þannig að framtíðin er björt hvað varðar þróun og þroska stefnunnar.“ Englendingur í Reykjavík Bretinn Simon Latham vakti athygli á dögunum fyrir endurhljóðblöndun á lögum Birgittu Haukdal en snarar brátt fram breiðskífu í eigin nafni Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Simon Latham „Ég veit það ekki … það er eitthvað við Ísland, alla þessa nálægð …“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.