Morgunblaðið - 14.05.2008, Side 40

Morgunblaðið - 14.05.2008, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Kvikmyndahátíðin í Cannesverður sett í dag í 61.skipti. Hér eru heima- menn því greinilega orðnir öllu vanir í móttöku og umönnun þús- unda blaðamanna, ljósmyndara og kvikmyndastjarna. Strax á flugvellinum í Nice blöstu við kunnugleg fés kollega víðsvegar að úr heiminum og þegar til Cannes var komið var allt við það sama og fyrir ári.    Þegar komið var á strandlengj-una í gær var greinilega ver- ið að leggja lokahönd á undirbún- ing fyrir daginn í dag. Verið var að hefta rauða dregilinn á sinn stað, koma fyrir auglýsinga- spjöldum og einnig sá ég unga konu bera helst til mörg kokteil- glös, með rörum og öllu tilheyr- andi, inn á einn barinn við ströndina. Það er greinilega allt að smella saman. Nokkrir þaul- sætnir aðdáendur voru búnir að koma sér fyrir við dregilinn með nesti og nýja skó … eða allavega nesti.    Í sólskininu við ströndina brámanni svo heldur betur í brún við að líta sama fullklædda í ein- kennisklæðnaði sitjandi á hrein- dýrafeldum inni í tjaldi við eitt hótelanna. Þarna voru þá á ferð- inni sérlegir fulltrúar norskrar kvikmyndagerðar og tjaldið stað- setning fyrir frekari kynningar á því sem fram fer í þeim geira í Noregi. Tvímenningarnir voru heldur þreytulegir, enda nýbúnir að tjalda þessu feiknarstóra tjaldi sem þeir eyddu 72 klukkutímum í að keyra frá Norður-Noregi hing- að suður eftir.    Í dag hefst svo hátíðin meðfrumsýningu myndarinnar Blindness eftir leikstjórann Fern- ando Meirelles (The Constant Gardener). Þá fá blaðamenn að hitta dómnefndina í fyrsta sinn en henni stýrir að þessu sinni Sean Penn. Að vanda verður fjöldi spennandi mynda frum- sýndur á hátíðinni og leikstjórar á borð við Woody Allen og Clint Eastwood sýna nýjustu afurðir sínar. Einnig er að finna á dag- skránni myndir um æviferil eins ólíkra manna og Che Guevara og Mike Tyson auk teiknimyndar um Kung Fu-iðkandi pöndu.    Fjórða myndin um þekktastafornleifafræðing heims, Indiana Jones, verður svo frum- sýnd hér um helgina. Það er spurning hvort Harrison Ford mæti með hattinn og svipuna meðferðis á rauða dregilinn. Samar í sólskininu » Í sólskininu viðströndina brá manni svo heldur betur í brún við að líta sama full- klædda í einkennis- klæðnaði sitjandi á hreindýrafeldum inni í tjaldi við eitt hótel- anna. Ljósmynd/Halldór Kolbeins Langferð Samarnir voru 72 tíma að keyra frá Noregi til Cannes. birta@mbl.is FRÁ CANNES Birta Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.