Morgunblaðið - 09.07.2008, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 564 0000Sími 462 3500
Það er kominn
nýr hrotti
í fangelsið...
af minni
gerðinni!
Rob Schneider fer í steininn og
leggur fangelslið undir sig í þessari
brjáluðu gamanmynd.
Kung Fu Panda ísl.tal kl. 3:45 - 5:50 LEYFÐ
The Incredible Hulk kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
eeee
24 stundir
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL - Viggó,
24stundir
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
Mamma Mia kl. 5:30 D - 8 D - 10:30 D LEYFÐ
Mamma Mia kl. 5:30 D - 8 D - 10:30 D LÚXUS LEYFÐ
Meet Dave kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
Hancock kl. 3:45 D-5:50 D-8 D-10:10 D B.i. 12 ára
Mamma Mia kl. 6 - 8:30 - 11 LEYFÐ
Hancock kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Kung Fu panda enskt tal kl. 6 - 8 LEYFÐ
Big Stan kl. 10 B.i. 12 ára
Sex and the City kl. 6 - 9 B.i. 14 ára
Mamma Mia kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Hancock kl. 8 -10 B.i.12ára
Big Stan kl. 6 B.i.12ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND SMÁRABÍÓISÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI M. ÍSL. TALI, HÁSKÓLABÍÓI M. ENS. TALI
Þau komu langt utan úr geimnum...
í dulargervi sem hæfði veröld okkar fullkomnlega...
Það er heill heimur inni í honum sem heldur honum gangandi
Eddie Murphy er inn í Eddie Murphy
í frábærri gamanmynd fyrir alla fjölskylduna!
BYGGT Á EINUM VINSÆLASTA
SÖNGLEIK ALLRATÍMA
GESTIR kvikmyndahúsanna fá að njóta tveggja
nýrra mynda þessa helgina og eru báðar í léttari
kantinum. Báðar kvikmyndirnar verða frum-
sýndar í dag.
Mamma Mia!
Myndin byggist á samnefndum söngleik sem
slegið hefur í gegn og segir frá ungri stúlku, leik-
inni af Amöndu Seyfried, sem er að ganga í hjóna-
band, en langar að komast að því hver faðir henn-
ar er áður en hún gengur í það heilaga.
Vandinn er sá að móðir hennar, sem leikin er af
Meryl Streep, átti vingott við þrjá unga menn á
sínum tíma og allir gætu þeir verið faðirinn.
Það eru Pierce Brosnan, Stellan Skarsgård og
Colin Firth sem fara með hlutverk karlanna sem
stúlkan býður til eyjarinnar í þeirri von að með
því að verja með þeim einhverjum tíma geti hún
komist að hver faðir hennar er.
Eins og í söngleiknum skipar tónlist sænsku
hljómsveitarinnar ABBA stóran sess í framvind-
unni og tengja hinir ýmsu smellir saman viðburði
sögunnar.
Auk fyrrnefndra leikara skartar myndin Julie
Walters, Dominic Cooper, Amöndu Seyfried og
Christine Baranski í minni hlutverkum en leik-
stjórn er í höndum Phyllidu Lloyd.
Meet Dave
Háðfuglinn Eddie Murphy snýr aftur á hvíta
tjaldið í kvikmyndinni Meet Dave.
Örsmáar geimverur eru komnar til jarðar og
ferðast um New York-borg innan í vélmenni í
mannslíki.
Eins og við er að búast eru litlu geimverurnar
ekki með öllu kunnugar siðum jarðarbúa og lendir
vélmennið Dave í alls kyns óheppilegum og
spaugilegum atvikum þess vegna.
Málin flækjast svo enn meira þegar vélmennið
fellur fyrir jarðneskri mannveru og hættir að láta
að stjórn.
Á móti Eddie leikur Elizabeth Banks, sem m.a.
hefur látið að sér kveða í þáttunum Scrubs, Ed
Helms, sem margir þekkja úr þáttunum The Of-
fice, og Gabrielle Union sem leikið hefur í þátt-
unum Ugly Betty. Brian Robbins leikstýrir en
hann hefur m.a. leikstýrt Murphy í Norbit.
Grín, geimverur og ABBA-smellir
Syngjandi sætur ABBA-tónlist ber uppi heilu atriðin í kvikmyndinni Mamma Mia! – sem byggist á
samnefndum söngleik. Hér lætur Pierce Brosnan til sín taka fyrir framan skara af meðleikurum.
FRUMSÝNINGAR»
JACK White, liðsmaður dúettsins
White Stripes, flutti til Nashville frá
heimaborg sinni Detroit fyrir tveim-
ur árum og hefur ekki aukið mikið á
vinsældir sínar í gömlu heimaborg-
inni með orðum sínum um bílaborg-
ina í ófáum viðtölum síðan þá. Hann
hefur sagt tónlistarsenuna í Detroit
einstaklega neikvæða, niðurbrjót-
andi og heftandi, en nú er komið
annað hljóð í skrokkinn. Nýlega birti
hann ljóð á vefsíðu Detroit Free
Press um heimabæ sinn og lofaði um
leið mjög borgina og íbúa hennar.
Ljóðið segir hann vera um „þá
Detroit sem er í huga mér og hjarta
mér.“ Ljóðið heitir „Courageous
Dream’s Concern“ og það má lesa
með því að fara inná freep.com og
slá inn Jack White í leitargluggann.
Að heiman Jack White.
Bílaborg
huga míns