Morgunblaðið - 09.07.2008, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 191. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Misjafnar undirtektir
Undirtektir undir nýja tillögu um
byggð á Kársnesi í Kópavogi eru
með ýmsu móti, margir mjög
óánægðir með þá miklu fjölgun sem
hún boðar en aðrir líta hana bjartari
augum. Kom það fram á kynning-
arfundi í gær en flestir hafa áhyggj-
ur af stóraukinni umferð verði tillög-
unni hrint í framkvæmd. » 2
Færri og stærri verkefni
Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöf-
undur og aðstoðarforstjóri Time
Warner-fjölmiðlasamsteypunnar, er
nýr hluthafi í Geysir Green Energy
og var kjörinn stjórnarformaður í
gær. Sagði hann að félagið myndi
einbeita sér að færri en stærri verk-
efnum í framtíðinni og hann kvaðst
ekki hafa áhyggjur af fjármögnun
þeirra. Verða þau á næstunni eink-
um á fjórum markaðssvæðum, þeim
íslenska, bandaríska, þýska og kín-
verska. » 11
Hvítvín og snafsar í sókn
Sala á áfengi jókst um rúmlega
3% á fyrri hluta þessa árs og virðist
hvítvínið vera í sókn samkvæmt töl-
um frá ÁTVR. Sala á snöfsum jókst
einnig verulega og meira er drukkið
af bjór, rúmlega sjö millj. lítra á
fyrra misseri ársins. Áfengissala í
júní var hins vegar 8,7% minni nú en
í fyrra. » 2
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Stórkostlegur grínisti
Staksteinar: Samkeppni í heilsu-
gæzlu
Forystugreinar: Eiga dómarar að
svara? | Eyja reis úr hafi
UMRÆÐAN»
Óásættanleg niðurstaða
Að fara fram úr
Allt er vænt sem vel er grænt
Staðreyndum snúið á haus
3
3
3% 3
3
%3%
%3 4
$5!' .#
!+ #$
6#"
#
#"!!
&! !%%
3%
3 3% 3
%3 3%
3% -
71 '
3 3 3
%3 3
89::;<=
'>?<:=@6'AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@'7!7<D@;
@9<'7!7<D@;
'E@'7!7<D@;
'2=''@&!F<;@7=
G;A;@'7>!G?@
'8<
?2<;
6?@6='2+'=>;:;
Heitast 22° C | Kaldast 12° C
Norðvestlæg eða
breytileg átt, 3-8 m/s.
Léttskýjað um mestallt
land en þokubakkar
með N- og A-strönd. » 10
„Af hverju í ósköp-
unum getum við
ekki búið til fyndna
risapöndu?“ spyrja
Kínverjar örvænt-
ingarfullir. » 29
KVIKMYNDIR»
Naflaskoðun
Kínverja
BÓKMENNTIR»
Var Franz Kafka haldinn
strípihneigð? » 29
Brjótið sparibauk-
ana, kaupið lífrænt
ræktaða ætiþistla,
tjaldið heima og
finnið gamla Don
Cano-gallann. » 35
TOPP TÍU»
Kreppulífs-
leikni
KVIKMYNDIR»
Kenndi Bogart eða Uma
þér að reykja? » 34
TÓNLIST»
Jack White semur ljóð
um æskustöðvarnar. »30
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Með augastað á syni Bjarkar
2. Hætti vegna lágra launa
3. Þyrlur sóttu tugi manna
4. Steve-O á geðheilbrigðisstofnun
Íslenska krónan veiktist um 0,7%
ÓÞARFLEGRAR hörku hefur gætt
í tímafrestum sem Útlendinga-
stofnun hefur veitt kenísku hjón-
unum Paul Ramses og Rosemary
Atieno Athiembo. Þetta segir Katrín
Theodórsdóttir, lögmaður hjónanna.
Dæmi hafi verið um að bréf hafi ver-
ið póstlagt eftir að gefnum tíma-
fresti lauk eins og varðandi tíma-
frest sem Rosemary fékk til að gæta
andmælaréttar vegna yfirvofandi
brottvísunar.
Allsherjarnefnd Alþingis fundaði
um mál Pauls Ramses og hælisleit-
enda í gær. Ágúst Ólafur Ágústsson,
varaformaður nefndarinnar, sem
stýrði fundinum sagði að engin
ákveðin niðurstaða hefði fengist.
Boltinn væri hjá Ramses og lög-
manni hans um að kæra. Berist
kæra færi hún á borð dómsmála-
ráðuneytisins „og ég treysti því að
þeir fari faglega yfir málið“.
Rætt hefði verið á fundinum hvort
nefndin ætti að senda frá sér sam-
eiginlega yfirlýsingu vegna málsins.
Ágúst Ólafur segist ekki hafa séð
ástæðu til þess. „Einstakir nefnd-
armenn geta gert það og hafa gert
það,“ segir hann. Málið væri í með-
förum kerfisins og því væri ekki lok-
ið. Nefndin væri ekki úrskurðaraðili
í málinu. | 9
Óþarfleg
harka
Eftir Andrés Skúlason
Djúpivogur | Þessi umkomulausi yrðlingur hafði orðið
viðskila við fjölskyldu sína í Geithellnadal í Djúpavogs-
hreppi um síðustu helgi og var hann sársoltinn. Þáði
hann því hangikjöt með þökkum og renndi hverjum bit-
anum á fætur öðrum niður í tóman magann.
Yrðlingar vaxa hlutfallslega hraðar en ungviði
flestra annarra rándýra en þeir ná 90% af endanlegri
stærð á tæpum 4 mánuðum. Þá verða þeir sjálfbjarga
við fæðuöflun strax þriggja mánaða gamlir og verða
óháðir foreldrum fjögurra mánaða gamlir.
Ekkert dýr hefur þéttari feld en heimskautarefurinn
en talið er að hann þoli allt að 70 gráða frost í logni.
Heimskautarefurinn hefur aðlagast staðháttum á Ís-
landi og er stofnstærð talin u.þ.b. 3-4.000 dýr.
Villur vegar í Geithellnadal
Sársoltinn yrðlingur þáði hangikjöt með þökkum
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
NÍELS Hafstein, safnstjóri Safna-
safnsins á Svalbarðsströnd, hefur
afþakkað að safnið verði tilnefnt til
Íslensku safnaverðlaunanna. Í til-
kynningu sem Morgunblaðinu
barst í gær sagði m.a. að vegna sér-
stöðu Safnasafnsins, sem safni
markvisst alþýðulist úr öllum
landsfjórðungum um leið og það
vinni með frumlegan sköpunar-
kraft, sé vafasamt að tilnefna það
til verðlauna ásamt byggðasöfnum
sem sinni eingöngu þröngum stað-
bundnum verkefnum.
Með því að afþakka tilnefninguna
sé þó hvorki verið að gera lítið úr
byggðasöfnum né úr verðlaunun-
um.
„Ég er búinn að fá tvær tilnefn-
ingar til Eyrarrósarinnar og það
var talsvert áfall í seinna skiptið að
bjórhátíð á Ísafirði skyldi fá verð-
launin en ekki öflugar menningar-
stofnanir eins og Karlakórinn
Heimir eða Safnasafnið. Ég missti
alla tiltrú á verðlaunum yfirleitt.
Mér finnst líka að þegar safn er
komið á þetta stig þá eigi ekki að
tilnefna það til eins né neins. Menn
eiga að verðlauna það ef þeir hafa
áhuga fyrir því.“
Níels segir að Safnasafnið miði
sig við það besta sem gerist á al-
þjóðlegum vettvangi og að fulltrúar
erlendra listhúsa og -tímarita sem
sóttu það á Listahátíð í vor hafi
gengið dolfallnir um sali og fullyrt
að í Safnasafninu færi fram hljóðlát
bylting í alþjóðlegum safnrekstri.
Afþakkar tilnefningu
Safnasafnið ekki sambærilegt við
byggðasöfn að mati safnstjórans
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nei takk Níels Hafstein undirbýr
sýningu í Safnasafninu í fyrra.
Margar sýningar eru jafnan í gangi
í einu í safninu en um helgina opnar
Gjörningaklúbburinn sýningu þar.
Æ FLEIRI eru sakfelldir á Íslandi
fyrir vörslu kláms og er þar fyrst og
fremst um að ræða efni sem tengist
börnum. Árið 2007 voru 10 sakfelldir
og 13 árið 2006 og er fjölgunin því
mikil frá fyrri árum en sem dæmi má
nefna að árið 1993 var enginn sak-
felldur fyrir vörslu kláms.
Aukið aðgengi að klámefni kann að
skýra aukninguna, að mati Helga
Gunnlaugssonar afbrotafræðings. Nú
geti nánast allir orðið sér úti um efnið
á netinu og þá hljóti lögreglumálum
að fjölga. Hann telur þó að svokölluð
netsíun, þar sem lokað er á aðgang að
síðum sem innihalda ofbeldi gegn
börnum, veiti falskt öryggi. | 4
Fleiri dæmdir
vegna kláms
0
0
!
E
2
,B7 K :
' ;
5
/,5
0LL1 1