Morgunblaðið - 08.08.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 9
FRÉTTIR
SÍÐASTI ÚTSÖLUDAGUR ER LANGUR LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Verðhrun
60-90% afsláttur
af öllum vörum í versluninni
TETRA
LAUKURINN
GLÖS
MÁLVERK
RÚMFÖT
Mikið af tilboðum til sunnudags.
6stk. frá kr: 3.950.-
www.tk.is
-50%
Tilboðsverð
frá kr: 1.995.-
-40%
ÚTSÖLULOK
Mikið úrval af rúmfötum
20% til 50% afsláttur.
Útsalan hefst
í dag!
30-60%
afsláttur
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
Akureyri | Fangelsið á Akureyri var í
gær formlega opnað eftir miklar
endurbætur. Aðbúnaður og aðstaða
hefur breyst til muna.
„Fangelsið hefur gjörbreyst frá
því sem var,“ sagði Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra við opn-
unina. „Það var í raun og veru ekki
þannig úr garði gert að við gætum
notað það sem langtíma fangelsi.
Með þessum breytingum er búið
að skapa góða aðstöðu fyrir 10
fanga. Aðstaðan var áður þannig að
menn treystu sér varla til að hafa
fleiri en sex.
Þetta er ekki sama húsið og ég sá
þegar ég kom hingað fyrst. Breyt-
ingin er alveg ótrúlega mikil.“
Tvöfalt stærri klefar
Í nýja fangelsinu er stórt rými til
útivistar. Þar er einnig gesta-
herbergi með barnakrók, sérstakt
vinnuherbergi, skólastofa með fjar-
fundabúnaði og líkamsrækt-
araðstaða. Fangaklefarnir eða her-
bergin í nýja fangelsinu eru mun
rýmri en þau gömlu: Rétt um 25
fermetrar í stað 10 fermetra áður.
Þar eru einnig baðherbergi, sem
ekki voru í gömlu klefunum.
„Ég tel breytingarnar vera í
góðu samræmi við þann metnað
sem við höfum lagt í endurreisn og
endurgerð fangelsanna í landinu,“
sagði Björn Bjarnason. „Þetta er
bylting þegar litið er til ytri aðbún-
aðar en innra starfið skiptir líka
miklu máli og þar hafa líka orðið
miklar og góðar breytingar og því
tel ég að það sé hægt að tala um
byltingu í fangelsismálum: ný lög,
nýr aðbúnaður, ný framkvæmd á
stefnunni gagnvart föngum. Það
hefur því orðið mikil breyting til
hins betra.“
Kostnaðurinn 260 milljónir
Kostnaður við byggingu nýja
fangelsisins var um 260 milljónir en
stærð viðbyggingarinnar er 336
fermetrar. Í fangelsinu verða ein-
ungis vistaðir fyrirmyndarfangar
sem stunda vinnu eða nám í fang-
elsinu auk þess að taka þátt í end-
urhæfingaráætlun.
Fangarnir munu að mestu sjá um
sig sjálfir, þ.e. elda, þrífa, þvo þvott
og þjálfast í öðru sem tengist al-
mennri lífsleikni og koma þar með
betur undirbúnir út í samfélagið að
lokinni fangavist. Sá undirbúningur
er talinn draga úr líkum á frekari
afbrotum síðar meir.
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Eftir Herbergi í nýja fangelsinu á Akureyri, þar sem fyrirmyndarfangar fá
pláss. Rúðan er höggþétt og herbergið búið flatskjám og salernisaðstöðu.
Bylting í fangelsis-
málum á Akureyri
Fyrir Gamaldags fangaklefi á Akureyri. Rúmið er úr steinsteypu og her-
bergið um 10 fermetrar að stærð. Aðbúnaður hefur nú breyst til muna.
Með breyting-
unum skapast
góð aðstaða
fyrir tíu fanga
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
MEIRIHLUTI borgarráðs sam-
þykkti í gær á fundi að Magnús
Skúlason tæki sæti Ólafar Guðnýjar
Valdimarsdóttur í skipulagsráði og að
Sigurður Þórðarson yrði varamaður í
stjórn Faxaflóa-
hafna sf. í hennar
stað.
Borgarráðs-
fulltrúar Samfylk-
ingar, Vinstri
grænna og Fram-
sóknarflokks létu
í kjölfarið bóka að
framkoma Ólafs
F. Magnússonar
borgarstjóra í
garð Ólafar Guðnýjar Valdimarsdótt-
ur, fyrrverandi samherja og aðstoð-
armanns hans, væri fordæmalaus.
Væri ómálefnalega framgöngu hans
að rekja til þess eins að hún vildi bíða
með yfirlýsingar í viðkvæmu skipu-
lagsmáli þar til fagleg úrvinnsla þess
hefði farið fram í skipulagsráði. Yrði
Sjálfstæðisflokkurinn að axla ábyrgð
á þessu eins og öðru.
Á móti lét borgarstjóri bóka að full-
komlega málefnaleg rök væru fyrir
því að kjósa nýja fulltrúa í þeim
tveimur nefndum sem um ræðir
(skipulagsráð og stjórn Faxaflóa-
hafna sf.). Afar mikilvægt væri að
þeir sem sætu í umboði meirihlutans
nytu fullkomins pólitísks trúnaðar.
Þar sem Ólöf Guðný hefði ekki starf-
að með F-listanum að undanförnu
væri ekki fyrir hendi nauðsynlegt
samstarf og samráð milli fulltrúans
og framboðsins sem hann sæti í um-
boði fyrir.
Fulltrúa skipt
út fyrir aðra
Ólöf Guðný
Valdimarsdóttir
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni