Morgunblaðið - 08.08.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ mun
skoða nánar samruna Kaupþings og
SPRON áður en hann verður sam-
þykktur. Þetta staðfestir Páll Gunn-
ar Pálsson, forstjóri Samkeppniseft-
irlitsins, í samtali við Morgunblaðið.
Eins og fram hefur komið samþykkti
hluthafafundur SPRON samrunann
í fyrrakvöld sem þó er einnig háður
samþykki eftirlitsins.
Samkvæmt lögum hefur Sam-
keppniseftirlitið 25 virka daga til
þess að ákveða hvort taka þurfi sam-
runa fyrirtækja til nánari athugunar
og nú er sá frestur brátt liðinn. Þeg-
ar ákveðið hefur verið að skoða málið
nánar hefur Samkeppniseftirlitið 70
virka daga til þess að skila niður-
stöðu sinni.
Páll Gunnar segir Samkeppniseft-
irlitið vera að safna gögnum um mál-
ið og það sé því í eðlilegu ferli. Hann
segir að málinu verði hraðað eins og
kostur er.
Samruninn er einnig háður sam-
þykki Fjármálaeftirlitsins og að
sögn Írisar Bjarkar Hreinsdóttur,
upplýsingafulltrúa FME, er málið
þar í vinnslu. „Fjármálaeftirlitinu
hefur borist formlegt erindi um sam-
þykki Fjármálaeftirlitsins vegna fyr-
irhugaðs samruna Kaupþings og
SPRON á grundvelli 106. gr. laga
um fjármálafyrirtæki. Verið er að
fara yfir þau gögn sem borist hafa
vegna málsins. Að því loknu þarf að
meta hvort ástæða sé til að kalla eftir
frekari gögnum,“ segir Íris.
Samruni SPRON og
Kaupþings skoðaður nánar
Allt að 95 dagar geta liðið þar til Samkeppniseftirlit kemst að niðurstöðu í málinu
Í HNOTSKURN
» Hluthafafundur SPRONsamþykkti í gær með mikl-
um meirihluta samrunann.
» Samruninn er háður sam-þykki Samkeppnis- og
Fjármálaeftirlits.
» Þá er ákvæði í samruna-áætlun fyrirtækjanna að
setji eftirlitsaðilar óásættan-
leg skilyrði fyrir samrunanum
geti SPRON eða Kaupþing
hætt við.Morgunblaðið/Kristinn
Samruni Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, mælti fyrir samrunanum
við Kaupþing á hluthafafundi SPRON á miðvikudaginn síðastliðinn.
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um
1% í gær og var 4.180 stig við lokun
markaða. SPRON hækkaði um
14,4%, Exista um 5,5% og Össur um
2,1%. Föroya Banki lækkaði um
0,7%, Landsbankinn um 0,4% og
Glitnir um 0,3%. Gengi krónunnar
veiktist um 1,5% í gær og var gengis-
vísitalan 160,2 stig við lokun mark-
aða. bjarni@mbl.is
Hækkun í Kauphöll
Íslands í gær
● ÓVENJUMIKIL
velta var á hluta-
bréfamarkaði í
gær og nam hún
tæpum 6,9 millj-
örðum króna.
Mestu munar þar
um 5,9 milljarða
viðskipti með
bréf Kaupþings,
en þar af voru ein viðskipti fyrir 4,3
milljarða króna á genginu 710.
Þýðir það að 6, 06 milljónir hluta í
bankanum hafi þar skipt um hendur
og er það 0,82% alls hlutafjár í
Kaupþingi.
Ekki er vitað hver kaupandi eða
seljandi var í þessum viðskiptum,
en engin tilkynning barst til Kaup-
hallar vegna þeirra í gær.
bjarni@mbl.is
Einstök viðskipti upp
á 4,3 milljarða króna
● BANDARÍSK hlutabréf lækkuðu í
gær en lækkanirnar má rekja til
hækkandi olíuverðs og aukins at-
vinnuleysis þar í landi.
Dow Jones-vísitalan lækkaði um
1,9% og var 11.434,93 stig við lok-
un markaða. Nasdaq lækkaði um
0,95% í 2.355,73 stig. Þá lækkaði
Standard & Poor’s 500-vísitalan um
1,75% og endaði í 1.266,62 stigum.
Hlutabréf deCode lækkuðu um
11,27% í gær og var lokaverð
deCode 1,26 dalir á hlut.
bjarni@mbl.is
Lækkanir á mörkuðum
í Bandaríkjunum
● SEÐLABANKI
Evrópu ákvað í
gær að halda
stýrivöxtum sín-
um óbreyttum í
4,25%. Englands-
banki ákvað einn-
ig að halda sínum
vöxtum óbreyttum
5,0%, og það
sama gerði seðlabanki Bandaríkj-
anna fyrr í vikunni, en vextir hans eru
2,0%.
Seðlabankar eru víða að glíma við
sama vandamálið, þ.e. að halda aft-
ur af verðbólgu. Á sama tíma hefur
dregið úr einkaneyslu og því þykja
vaxtaákvarðanir seðlabanka jafnt í
Evrópu og Bandaríkjunum ekki koma
á óvart, samkvæmt fréttum erlendra
vefmiðla. gretar@mbl.is
Óbreyttir stýrivextir
DECODE genetics, móðurfélag Ís-
lenskrar erfðagreiningar, var rekið
með 18,4 milljóna dollara tapi á
öðrum fjórðungi þessa árs, sem
svarar til tæplega 1,5 milljarða ís-
lenskra króna á núverandi gengi.
Þetta er aukning frá sama tímabili í
fyrra en þá var tap félagsins 16,2
milljónir dollara.
Tap af reglulegri starfsemi de-
CODE var töluvert minna á öðrum
fjórðungi þessa árs en á sama árs-
fjórðungi í fyrra þó að heildartapið
hafi aukist milli ára, eða 13,5 millj-
ónir dollara samanborið við 22,9
milljónir dollara á öðrum fjórðungi
síðasta árs. Ástæðan fyrir því að
heildartapið eykst jafn mikið og
raun ber vitni milli ára er sú að í ár
er bókfært tap vegna niðurfærslu á
verðmæti skuldabréfaeignar 1,2
milljónir dollara samanborið við
hagnað af þessum lið upp á 8,9
milljónir dollara á öðrum fjórðungi
síðasta árs.
Samtals hefur deCODE tapað 45
milljónum dollara á fyrri helmingi
þessa árs samanborið við 38,9 millj-
ónir á sama tímabili í fyrra.
Tekjur deCODE námu 15 millj-
ónum dollara á öðrum fjórðungi
þessa árs en 7,6 milljónum á sama
tímabili í fyrra. Handbært fé de-
CODE nam 49,4 milljónum dollara í
lok júní 2008 en 94,1 milljón um síð-
ustu áramót. gretar@mbl.is
DeCODE tapar
Tap á árinu orðið 45 milljónir dollara
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
UNDANFARNAR vikur hafa
stærstu fjármálastofnanir heims
skilað hverju aftakauppgjörinu á
fætur öðru. Apríl, maí og júní marka
fjórða ársfjórðunginn frá því að
ástandið sem kallað hefur verið hús-
næðislánakreppa, markaðsórói, fjár-
mögnunarvandi og lausafjárkreppa
fór virkilega að gera vart við sig.
Söguna má þó rekja aftur til síðari
hluta ársins 2006 þegar hægja tók á
fasteignamarkaði í Bandaríkjunum.
Í kjölfarið fylgdu gjaldþrot lánar-
drottna sem þóttu margir hverjir
hafa litið fram hjá greiðsluhæfi við-
skiptavina sinna og í framhaldi af því
hækkaði álag á skuldabréfavafninga
tengdum slíkum lánum.
Lítið brot af heildarmyndinni
Síðan þá hafa fjármálastofnanir
víða um heim afskrifað milljarða á
milljarða ofan, sér í lagi tengd
skuldabréfavafningum af þessu tagi.
Í sumum tilfellum hafa þær riðið við-
komandi félögum að fullu, svo sem
Bear Stearns og Northern Rock.
Taplistinn er langur og er aðeins lít-
ið brot hans birtur hér. Samanlögð
upphæð afskriftanna hér til hliðar
nemur yfir 23 þúsundum milljarða
króna, samkvæmt mati fréttastofu
Reuters. Til samanburðar má nefna
á sama tímabili, þ.e. frá þriðja fjórð-
ungi ársins 2007, voru um 38 millj-
arðar króna færðir í afskriftasjóði ís-
lensku viðskiptabankanna þriggja.
Athygli vekur að meginþorri
bankanna hér til hliðar á rætur að
rekja til Bandaríkjanna, enda er þar
að finna umsvifamestu bankastofn-
anir heims. Auk þess voru hinir
vafasömu fjármálagjörningar iðu-
lega bendlaðir við þarlend lán. Neð-
ar á listanum má þó einnig finna
fleiri þýska banka, franska og jap-
anska.
Ár afskriftanna
1
2*3
456.
7
%8
971
:7
8;7
7 & * %
6
*2
5
<
6. 7 %
) 6
7 6 5
= 6.*> 78%
1 /
= .2
*
97?
( ' '& 33 .
' ,( - $
@
->- 2 2 /* -'2
( &-@
Stærstur hluti þúsunda milljarða króna
afskrifta síðastliðins árs skrifast á
fjármálafyrirtæki frá Bandaríkjunum
VERÐI samruni
Kaupþings og
SPRON að veru-
leika verður
hluthöfum
SPRON að hluta
til greitt með
hlutum í Exista.
Fari svo að allir
hluthafar
SPRON sam-
þykki að fá
greitt með Exista-bréfum verður
um allt að 10% af hlutafé félags-
ins að ræða,“ segir Jónas Sigur-
geirsson, framkvæmdastjóri sam-
skiptasviðs Kaupþings.
Hann bendir á að samþykki all-
ir hluthafar SPRON að fá Exista-
bréf sem hluta endurgjaldsins
muni hlutur Kaupþings í Exista
verða 2%, óbeint í gegnum kistu.
„Þá er ekki hægt að tala um
krosseignatengsl.“ Eins og fram
kom í Viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í gær mun hlutur Kaup-
þings í Exista verða 12% verði
samruninn við SPRON og kaup
bankans á 70% stofnfjár í Spari-
sjóði Mýrasýslu að veruleika.
sverrirth@mbl.is
Greitt með
Exista-bréfum
Jónas
Sigurgeirsson
? ?
? 7A
<*B C*
D / E
FG
<%A
?A !
?A "
!""#
!"!#$%&%"'
% 6 .-
%
*& *3 .-
7 && >H *3 .-
GI
.-
) & .-
9- G
&3 J 2 K /
86 / *3 .-
; 3,2 7 & .-
4 / ) & K / .-
.-
L:?D
M7( ' F'-)- .-
5
.-
N .-
())'$!*$+!,!-&&
# ! .-
%
6 %B 5
%
6 L
*
LF
G& 7 &
FO*5 7 DP. .-
5222
(
H( .-
Q
H( .-
$!.$!,!/&)0
1
5 %
1*-
97 / .-
9
3( .-
1-23&
%4$-!
Q( &3
/ 2 )*( *& / 2 R
; 3 "-!"
!-"-#$
!-$-##
$"--#
$- -#
-#-
#-"
!--"!!-#
"-#"-$!
""-#$- $!
--$#
#"-!$-"
$-"!#
!$--#$!
M
M
- $-$
M
M
M
!--
-$-!
M
+
!+""
$!+
+!
!+!
"+#
+$
+
$$+
$+
#+!
+$
+#"
+
M
"+
! !+
$ +
#!+
M
M
M
"#!+
+
M
+
!+!
$ +
+$
!+
"+!
+#
+
$#+!
#+"
#+!
+#"
$+#
+!
+
+
!!+
$+
#+
$+
M
+"
"+
+!
!+
FH/
>( &3
#
!
##
$
!
#
!
M
M
M
M
"
M
M
M
"
$
M
< 2
>( &-> (
--$
--$
--$
--$
--$
--$
--$
--$
--$
--$
--$
--$
--$
--$
--$
!--$
!--$
--$
--$
--$
-$-$
#- -$
--$
--$
-#-$
%
%
%
● SVARTSÝNI á bandarískum hús-
næðismarkaði jókst enn í kjölfar
uppgjörs hálfopinbera íbúðalána-
sjóðsins Freddie Mac fyrir annan
ársfjórðung, sem greint var frá í Við-
skiptablaði Morgunblaðsins í gær.
Sjóðurinn var rekinn með 821 millj-
ónar dollara tapi.
Í frétt í New York Times í gær segir
að uppgjörið hafi valdið miklum von-
brigðum hjá þeim sem hafi vonað að
botninum á húsnæðismarkaðinum
væri náð. Hið mikla tap Freddie Mac
auki líkurnar á því að bandarísk
stjórnvöld muni þurfa að koma
sjóðnum til hjálpar, eins og þingið
hefur veitt heimild fyrir. Þá auki upp-
gjörið einnig líkur á því að íbúða-
lánavextir muni hækka á næstunni.
gretar@mbl.is
Botninum ekki náð