Morgunblaðið - 08.08.2008, Page 15
anum, sem gegni nú svipuðu hlut-
verki og Stanford-háskóli gerir í
Kísildalnum í Kaliforníu. Nóg sé af
hæfu vinnuafli, til dæmis útskrifist
allt að 644.000 verkfræðingar á ári
hverju frá háskólum landsins.
Við það bætist að mjög hæf kyn-
slóð sem sótt hefur menntun við
helstu menntastofnanir Vesturlanda
sé að snúa heim í leit að störfum.
Fannin minnir jafnframt á að í
nýjustu fimm ára áætlun Hu Jintao
Kínaforseta sé mikil áhersla lögð á
tækniiðnaðinn, stefna sem nú kemur
fram í þeirri ákvörðun að loka 20.000
verksmiðjum sem framleiða einfald-
ari framleiðsluhluti í suðurhluta
landsins fyrir næstu áramót.
Hún sækir víða fanga og hefur eft-
ir David Chao, þekktum sérfræðingi
á sviði upplýsingatækni, sem starfar
hjá ráðgjafarfyrirtækinu DCM, að á
næstu tveimur áratugum muni fjórð-
ungur nýrra tæknihugmynda í heim-
inum koma frá Kína. Þetta framlag
til tækniþróunar gæti haft mikil
áhrif, meðal annars í orkumálum,
svo sem við þróun vetnisorkukerfa,
sólarorku og rafhlaðna.
Orkusparandi tækni er þar annað
svið og gæti rannsóknarteymi eðlis-
fræðingsins Jiang Fengyi við Nanc-
hang-háskóla lagt þar drjúga hönd á
plóginn, en það hefur sett markið á
að setja á markað byltingarkennda
sparljósaperu innan nokkurra ára.
Kínverskur Edison?
Stefnt er að því að í Kína árið 2015
muni peran spara ígildi orkunnar
sem framleidd er við Þriggja gljúfra
stífluna, stærstu vatnsaflsvirkjun
sögunnar. Fullyrðir Jiang að fyrir-
tæki hans LatticePower Corporation
sé lengra komið en japanskir og
þýskir keppinautar, en ráðgert er að
2012 verði veltan á þessum markaði
komin í þúsund milljarða króna.
Annar frumkvöðull sem Fannin
ræðir við er Robin Li, stofnandi
leitarvélarinnar Baidu, þeirrar
helstu á netmarkaðnum í Kína.
Li stofnaði fyrirtækið um Baidu
undir lok síðasta áratugar, fimm ár-
um áður en markaðsverð þess var
komið upp í 288 milljónir Banda-
ríkjadala, ígildi 23 milljarða króna,
að loknu hlutafjárútboði. Ári síðar,
árið 2006, mat tímaritið Forbes eigur
Li á 645 milljónir dala, auður sem
gæti margfaldast gangi það mark-
mið hans eftir að Baidu verði orðið
stærra en risafyrirtækið Google inn-
an tíu ára. Markaðurinn er geysi-
stór, árið 2010 er reiknað með að
fjöldi netnotenda verði orðinn um
230 milljónir, eða 30 milljónum fleiri
en í Bandaríkjunum.
Hraður vöxtur netviðskipta
Kínverski farsímamarkaðurinn, sá
stærsti í heimi með um 500 milljónir
notenda, ýtir undir vöxt netsins.
Það sama gerir hinn ört vaxandi
neytendamarkaður kínversku stór-
borganna eins og Fannin rekur í
yfirliti yfir feril athafnakonunnar
Peggy Yu Yu, stofnanda Dangdang,
bókaverslunar á netinu sem hefur
um þrettán milljónir notenda.
Eigendur Dangdang höfnuðu fyrir
nokkrum árum yfirtökutilboði vef-
fyrirtækisins Amazon, en bæði fyr-
irtækin hafa hagnast á því að bjóða
upp á fleiri vörur en aðeins bækur.
Af miklu er að taka í Kína, bóka-
markaðurinn er metinn á 620 millj-
arða króna og vex að verðmæti um
hátt í 25 milljarða króna á ári hverju.
Markaðurinn er hins vegar
vanþróaður að mörgu leyti og kom
Yu Yu auga á að með tölvutækninni
mætti auðvelda neytendum aðgang
að ríku úrvali titla, ásamt því að nýta
sér kosti rafrænna viðskipta.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 15
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til
Costa del Sol 14. ágúst í 2 vikur og 21. ágúst í 1 eða 2 vik-
ur. Gríptu tækifærið og
tryggðu þér sumarfrí á
frábærum kjörum á vin-
sælasta sumarleyfisstað
Íslendinga.
Verð kr. 29.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum. Sértilboð 14. ágúst í 2 vikur og 21.
ágúst í 1 eða 2 vikur.
Allra síðustu sætin!
Costa del Sol
14. og 21. ágúst
frá kr. 29.990
VONIR standa til að tilraunir með
byltingarkennda, lofthreinsandi
steypu í hollenska bænum Hengelo
muni reynast öflugt vopn gegn nit-
uroxíðmengun í stórborgum.
Sérfræðingar við háskólann í
Twente hafa gert tilraunir með
steinsteypuna sem bindur nituroxíð,
algenga mengun í útblæstri bifreiða.
Byggist aðferðin á því að tvíoxíðs-
efnum á títangrunni er blandað í
steypuna sem hefur þá þessa virkni,
einkum þegar sólar nýtur. Þegar
rignir skolast svo skaðlaus nitursam-
bönd af yfirborði steypts vegarins
sem getur þá endurtekið ferlið á ný.
Hin óvenjulega aðferð byggist á
japanskri tækni, en til að skera úr
um virkni steypunnar verða gerðar
samanburðarmælingar á loftgæðum
við nýju steypuna og við venjulega
steypu. Tilraunin er ekki einsdæmi
því víða um heim standa yfir tilraun-
ir af svipuðum toga.
Bera þar ef til vill hæst umfangs-
miklar tilraunir í Chicago, þar sem
ætlunin er að gegndræpt yfirborð
gangstétta og vega, ýmist úr steypu
eða malbiki, síi regnvatn áður en það
rennur út í Michican-vatn.
Þá endurvarpar hið gegndræpa
yfirborð meira af sólarljósi sem hef-
ur kælandi áhrif. En kaldara loft
þykir stuðla að minni notkun loft-
kælingarkerfa með tilheyrandi orku-
sparnaði. baldura@mbl.is
Vegir sem drekka í sig mengunina
Framför Tilraunastétt í Chicago.
HÓPUR íslamista, sem kallar sam-
tök sín Íslamsflokk Túrkestans,
hótaði í gær á myndbandi á netinu
að gera árásir í Beijing en ólympíu-
leikarnir verða settir þar í dag.
Uighurar í Xinjiang, sem kalla
héraðið gjarnan Austur-Túrkestan,
eru margir mjög ósáttir við yfirráð
Kínverja þar. „Takið afstöðu,“
sagði grímuklæddur karlmaður á
myndbandinu og mundaði riffil.
Maðurinn talaði tungu Uighura
sem er óskyld kínversku. „Verið
ekki í sama strætisvagni, sömu lest,
sömu flugvél, í sama húsi eða nokk-
urs staðar þar sem Kínverjar eru,“
bætti hann við og talaði þá til ann-
arra múslíma, greinilega til að vara
þá við tilræðum.
Hvatt er á myndbandinu til heil-
ags stríðs gegn Kínverjum, þeir
kúgi múslíma í Xinjiang. Múslímar
séu þvingaðir til guðleysis og konur
þeirra neyddar til að fara í fóstur-
eyðingu. kjon@mbl.is
Hóta til-
ræðum í
Beijing
Íslamistar saka
Kínverja um kúgun
Bandaríkin hafa haft óumdeilt for-
ystuhlutverk í tækniþróun og bendir
blaðakonan Rebecca A. Fannin á að
vöxtur kínverskra tæknifyrirtækja
nú minni á þau straumhvörf sem
urðu þegar japanskir bílaframleið-
endur tóku slaginn við bandaríska
bílaframleiðendur í Detroit á 8. ára-
tugnum. Bók hennar, Silicon Dragon
(2008), er byggð á samtölum við
athafnamenn í Kína.
Straumhvörf í tæknisögunni
Blaðakona Fannin og bók hennar.
HANN hefur viðurnefnið „andfæt-
lingurinn“, gullfiskurinn á barnum
Globe Inn, nærri Exeter á Eng-
landi, sem hefur þann óvenjulega
hátt á að synda afturábak, ef svo
má að orði komast, með bakuggann
upp, í átt að loki búrsins. Hafa gest-
ir barsins haft á orði að gullfiskur-
inn, sem er orðinn nokkuð frægur
fyrir, hljóti að vera drukkinn.
Syndir
afturábak
MÁRITANSKIR piltar hampa mynd af Mohamed
Ould Abdelaziz, sem leiddi valdarán í Nou-
akchott, höfuðborg Máritaníu. Abdelaziz var
meðal fjögurra hershöfðingja sem steyptu for-
setanum Sidi Ould Cheikh Abdallahi af stóli.
Valdaránið hefur verið fordæmt víða um heim.
Valdaræningjanum Abdelaziz fagnað
Reuters