Morgunblaðið - 08.08.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 17
MENNING
Fyrir utan lagerdyr gamlakaupfélagsins á Króksfjarð-arnesi blakti appelsínugul
veifa. Á lokuðum dyrunum var miði
sem á stóð BANKIÐ. Þegar dyr-
unum var rennt upp voru þar nokk-
ur börn, sem lokuðu dyrunum aftur
svo gestirnir gætu upplifað dýrð-
ina. Í myrkrinu glóði fornt ker,
flaut þrívítt í miðri geymslunni;
nýtt hólógramískt og heillandi
listaverk eftir Hrein Friðfinnsson.
Hreinn er úr Miðdölum og viðhæfi að hann sé þátttakandi í
einhverri áhugaverðustu myndlist-
aruppákomu sumarsins hér á landi,
Dölum og hólum. Níu listamenn,
ólíkir í listinni og á ólíkum aldri,
sýna verk sín á ýmsum stöðum í
Dölunum norðanverðum og í Reyk-
hólasveit. Á Skarðsströnd, í Sauð-
bæ og á Króksfjarðarnesi.
Dalir og hólar voru opnaðir í
blíðunni á laugardaginn var, hafa
staðið þessa viku en sýningu lýkur
á sunnudag.
Það er ákveðið ferli að skoðaþessa sýningu, þetta er ferða-
lag en það er svo sannarlega gef-
andi og forvitnilegt eins og fjöl-
skyldan komst að raun um á
laugardag.
Ef gestir koma úr Reykjavík má
mæla með hringferð út Fellsströnd
og koma inn á Skarðsströnd úr
vestri. Það er lengri leið en hún er
falleg og á Skarðsströnd má skoða
kirkjuna á hinu forna stórbýli
Skarði. Fyrsta veifan, sem sýnir
hvar listaverkin á sýningunni er að
finna, blaktir vestan við Búðar-
dalsá. Í gamla og hrörlega sam-
komuhúsinu Röðli eru ljósmyndir
og texti Þóru Sigurðardóttur. Þar
má fá sér snúning á því sem eftir er
af dansgólfinu, borða nesti undir
vegg – eða halda áfram austur yfir
á, í hlöðuna á eyðibýlinu Tindum.
Þar sýnir Sólveig Aðalsteinsdóttir,
sýningarstjóri verkefnisins, ljós-
myndaröðina Hvammdalskot.
Formhreinar ljósmyndir úr öðru
eyðibýli á svæðinu. Myndunum er
dreift um fallega byggða hlöðuna,
þar sem arið glitrar í geislaspjótum
og gestir þurfa að sveigja hjá bý-
flugnabúi í reiðingi í einni fjár-
húskrónni.
Þegar komið er að Nýp, þar sem
Þóra og Sumarliði Ísleifsson hafa
verið með menningartengdar uppá-
komur síðustu ár, blasir við verk
Magnúsar Pálssonar. „Það stendur
bara JÓN!“ sagði sjö ára dóttir mín
hissa og horfði upp í fjall. Og það
fór ekki á milli mála, mannsnafnið
hafði verið slegið í hlíðina fyrir of-
an bæinn með 35 metra háum stöf-
um. Einfalt, stílhreint og óvænt
verk, til minningar um langafa
listamannsins sem bjó á bænum um
tíma.
Ryðgaður kofi, Ós, stendur við
Staðarhólsá. Hann er harðlokaður
en þegar gægst er á glugga má sjá
Skyndiákvarðanir Erics Hattans,
sem starfar í Basel og París. Það
eru forvitnilegir „hraðskúlptúrar“.
Þá er ekið yfir Gilsfjarðarbrúna og
að gamla kaupfélaginu á Króks-
fjarðarnesi, þar sem hólógram
Hreins logar á lagernum, verk eftir
Hildigunni Birgisdóttur malar á
stöpli fyrir framan og ef kíkt er á
ferhyrndan ramma á kaupfélags-
dyrunum má sjá myndbandsverk
Sigurðar Guðjónssonar sem hann
tók inni í húsinu.
Frá Króksfjarðarnesi má haldaáfram út á Barðaströnd,
kanna Reykhóla eða snúa við og
skoða hið reisulega búnaðarskóla-
hús Torfa Ólafssonar í Ólafsdal.
Eða kanna aðrar söguslóðir, Lax-
dælu eða Stefáns frá Hvítárdal.
Eitt verkið enn var reyndar úti á
Skarðsströnd og ekki síst athygl-
isvert. Í malarnámu við veginn
blakta plastaðar myndir á snúru,
myndir sem Helga Hansóttir málaði
eftir ljósmyndum úr ferðalagi sem
hún og eiginmaður hennar, Krist-
inn G. Harðarson, fóru um svæðið í
vetur. Við hliðina eru nokkur stór
málverk Kristins á tréplötum, einn-
ig máluð eftir ljósmyndum úr ferð-
inni; heillandi og óvarinn vitnis-
burður um þjóðvegalíf.
Þarna undir hömrunum á
Skarðsströnd bætti það heldur bet-
ur við upplifunina, sem þó var
ánægjuleg fyrir, þegar fjórir ernir
birtust skyndilega og svifu lengi yf-
ir okkur.
„Þetta var skemmtilegasta upp-
lifun sumarsins,“ tilkynnti sú sjö
ára þegar ernirnir voru horfnir yfir
fjallið.
Það er full ástæða til að hvetja
sem flesta til að heimsækja Dalina
um helgina. efi@mbl.is
Vegamálverk, list í hlöðum og ernir
AF LISTUM
Einar Falur Ingólfsson
» Á lokuðum dyrunumvar miði sem á stóð
BANKIÐ. Þegar dyr-
unum var rennt upp
voru þar nokkur börn,
sem lokuðu dyrunum
aftur svo gestirnir gætu
upplifað dýrðina. Í
myrkrinu glóði fornt
ker, flaut þrívítt í miðri
geymslunni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vegamyndir Málverk Kristins G. Harðarsonar blasa við vegfarendum í mal-
arnámu á Skarðsströnd. Verk Helgu Hansdóttur eru á snúrunni.
Á tám Gestir þurfa að gægjast inn
um læstar dyr kaupfélagsins til að
sjá verk Sigurðar Guðjónssonar.
Galdur Ónefnt hólógramverk Hreins Friðfinnssonar logar á lager gamla kaupfélagsins á Króksfjarðarnesi.
HINAR ljúfari hliðar íslenskrar náttúru má nú
sjá á sýningu á verkum Höskuldar Björnssonar
(1907-1963) í Listasafni Árnesinga í Hveragerði.
Höskuldur var einstakur málari hér á landi, en
hann sérhæfði sig einna helst í fuglamyndum.
Gamlir bæir og munir voru einnig myndefni
hans, sem og landslagsmyndir. Á sýningunni í
Listasafninu er mest af fuglamyndum og lands-
lagi, hér gefur að líta brot af verkum hans sem
þó gefur sannfærandi mynd af ævistarfinu.
Höskuldur var sjálflærður listamaður, hann
fékk leiðsögn hjá Jóni Stefánssyni og Ríkharði
Jónssyni og fylgdist með Ásgrími Jónssyni þeg-
ar hann var að mála í nágrenni Hornafjarðar þar sem
Höskuldur ólst upp. Hann ætlaði sér til náms í Kaup-
mannahöfn en ekki varð af því vegna heilsubrests og
fjárskorts. Er það mikill skaði en myndir hans sýna vel
að hann hefði náð enn lengra sem listamaður hefði
hann öðlast það sjálfstraust og sjálfstæði sem undir-
stöðumenntun í listinni hefði ýtt undir.
Myndir Höskuldar eru heillandi í yfirlætisleysi sínu.
Hann vinnur bæði í vatnsliti og olíu en vatnslitamynd-
irnar eru oft persónulegri og innilegri, hinn sanni
strengur listamannsins er ljúfur og ljóðrænn og minnir
um sumt á andblæ mynda Muggs. Hann leitast við að
birta samhengi náttúrunnar, hið smáa gefur til kynna
stærri sannleik um gang lífsins og minnir á þá miklu
fegurð sem birtist í smáatriðum í umhverfinu ef við
höfum augu fyrir því.
Stílbrigði Höskuldar voru með ýmsu móti og má sjá
áhrif bæði frá t.d. Van Gogh og Cézanne, impression-
istunum og japönskum myndverkum auk þeirra skand-
ínavísku málara sem hann var oft kenndur við eins og
Johannes Larsen. Einatt skín þó persónuleg nálgun
listamannsins í gegn og nýtur sín best þegar myndir
hans eru hvað látlausastar, honum láta einkar vel dauf-
ari jarðlitir hausts og vetrar.
Listasafn Árnesinga hefur vaxið og dafnað undir
stjórn Ingu Jónsdóttur safnstjóra sem staðið hefur að
fjölbreyttum sýningum síðan hún tók við. Hún kýs hér
sem oftar að fá sjálfstæðan sýningarstjóra til að setja
upp sýninguna en það er Hrafnhildur Schram sem sér
um sýningu Höskuldar.
Uppsetning sýningarinnar, bæklingur og fram-
kvæmd hennar öll er til fyrirmyndar og mismunandi
litir á veggjum sala skapa andrúmsloft sem dregur
fram bæði tíðaranda og andrúm verka málarans.
Yndisleiki íslenskrar náttúru
MYNDLIST
Listasafn Árnesinga
Til 28. september. Opið alla daga frá kl. 12-18.
Aðgangur ókeypis.
Á ferð með fuglum, Höskuldur Björnsson
bbbbn
Höskuldur Rjúpa í sumarbúningi.
Ragna Sigurðardóttir
ÍTÖLSK tónlist á norðurhjara ver-
aldar hljómar kannski einkennilega
en heit og suðræn músík í köldu
loftslagi er samt alveg málið þegar
betur er að gáð. Tríóið Delizie Ital-
iane (ítalskt góðgæti) sem er skipað
þeim Leone Tinganelli (söngur, gít-
ar), Jóni E. Hafsteinssyni (gítar,
mandólín, slagverk og bakraddir) og
Jóni Rafnssyni (kontrabassi, bak-
raddir), hefur leikið ítalska alþýðu-
tónlist fyrir landann í rúm átta ár og
er samnefnd skífa sem hér er til um-
fjöllunar þeirra önnur en sú fyrri
kom út árið 2006.
Nítján lög, sprottin úr jarðvegi
ítalskrar alþýðumenningar frá ýms-
um tímaskeiðum og stöðum á Ítalíu,
prýða plötuna. Þetta eru fallegir og
sannir söngvar, sá elsti síðan 1776 en
sá yngsti frá 1992. Umgjörðin og út-
setningar laganna falla í þann flokk
tónlistar sem er gjarnan kölluð
kaffihúsatónlist eða jafnvel lyftu-
tónlist því hún hljómar svo vel og
truflar ekki undir borðhaldi og sam-
ræðum fólks. Það er ekki auðvelt
verk að skapa þá umgjörð sem held-
ur athygli hlustenda og end-
urspeglar hið þægilega og trúverð-
uga andrúmsloft þegar lagt er í
ábreiðuverkefni af þessu tagi en um
leið að viðhalda listrænum metnaði
og andagift. Það tekst þó Delizie
Italiane að mestu og er platan, þrátt
fyrir að vera áreynslulaus og renna
ljúft í gegn, laus við augljósar klisjur
og leiðindi. Lagavalið endur-speglar
þekkta stærð, þetta eru lög sem
hlustendur geta auðveldlega tengt
við Ítalíu og mörg þeirra valinkunn
og vinaleg eftir því.
Hér má heyra lög eins og „Santa
Lucia“, „Nel Blu Dipinto Di Blu“
betur þekkt sem „Volare“, „E La
Luna ‘N Mezzu ‘U Mari“, „Parla Piú
Piano“, „Buonasera Signorina“ og
„Funiculí Funiculá“. Allt eru þetta
góð lög og þeim er sómi sýndur í
höndum Delizie Italiane sem gæðir
þau lífi og sál.
Útsetningarnar, fyrir tvo gítara
og kontrabassa, eru látlausar en um-
fram allt heiðarlegar og hæfa stæla-
lausum og ljúfum söng Leone Tinga-
nelli vel. Blæbrigði raddarinnar og
stíll eru áreynslulaus og samspilið til
fyrirmyndar. Hér er vandað til
verks, umslag er látlaust en smekk-
legt, upptakan er góð og tónjöfnun
Gunnars Smára Helgasonar er
glæsileg í alla staði.
Hér er sannarlega komin plata
sem er skyldueign fyrir alla veit-
ingastaði og kaffihús sem vilja bjóða
upp á þægilega tónlist og notalegt
andrúmsloft en hún er einnig tilvalin
fyrir ostaveisluna heima fyrir. Og
það sem meira er, hún er alveg ekta
ítölsk.
Ítalskt? Já takk!
TÓNLIST
Geisladiskur
Delizie Italiane – Delizie Italiane
bbbmn
Jóhann Ágúst Jóhannsson