Morgunblaðið - 08.08.2008, Page 25
✝ Hjördís fæddistí Reykjavík 12.
ágúst 1959. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Akureyrar 25. júlí
sl. Foreldrar henn-
ar voru Kristján
Hjörtur Odd-
geirsson, f. 20.10.
1940, og Hólm-
fríður Há-
konardóttir, f. 5.9.
1942, d. 5.7. 1980.
Systkini sam-
mæðra eru 1) Odd-
geir, f. 6.8. 1961,
maki Ingibjörg G. Haraldsdóttir,
f. 21.3. 1962. Börn þeirra eru: a)
Kristján Hjörtur, f. 20.12. 1879.
b) Hólmar Freyr, f. 21.11. 1982.
Maki hans er Helena Dögg Val-
geirsdóttir, f. 20.12. 1984, þeirra
börn eru; Lilja Dís, f. 10.8. 2003,
og Andri Snær, f. 12.8. 2005. c)
Heiðar Ingi, f. 23.4. 1988. d)
Bryndís Ósk, f. 30.5. 1991. 2)
Baldvin, f. 22.10. 1962. 3) Guð-
finna Jóna, f. 30.1. 1964, maki
Gunnþór Ó. Oddgeirsson, f. 22.6.
1960. Börn þeirra eru a) Daníel
Viðar, f. 1.6. 1983, maki Helga
Sigríður Yngvinsdóttir, f. 25.4.
1983. b) Baldvin Þór, f. 2.7. 1985,
maki Sólrún Tinna Grétarsdóttir,
f. 19.2. 1988, barn
þeirra er Gunnþór
Örn, f. 9.2. 2008. c)
Andri Már, f. 20.3.
1993, og d) Hólm-
fríður Sara, f. 19.9.
2000. 4) Halldóra, f.
22.4. 1965, maki
Hannes C. Pét-
ursson, f. 30.12.
1959. 5) Helga, f.
16.10. 1968, maki
Anton Rafn Gunn-
arsson, f. 11.6.
1976, börn a) Hjört-
ur Mar, f. 29.11.
1993, b) Aðalheiður Diljá, f.
21.12. 1996, c) Birgitta Jóna, f.
16.1. 2003. Systir samfeðra er
Ósk Dís, f. 6.7. 2000. Eiginmaður
Hjördísar er Héðinn Ósmann
Skjaldarson, f. 20.10. 1963. Þau
giftu sig hinn 26. október 2007 í
Lögmannshlíðarkirkju.
Hjördís æfði með íþróttafélag-
inu Eik ásamt manni sínum og
kynntist hópi af fólki þar, sem og
á Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi.
Margvísleg veikindi þjökuðu
Hjördísi en hún tók því af æðru-
leysi.
Útför hennar fer fram í Gler-
árkirkju á Akureyri í dag, 8.
ágúst, kl. 14.
Í dag kveðjum við okkar elsku-
legu systur, Hjördísi eða Hjöddu
eins og hún var alltaf kölluð. Hún
bjó síðustu árin á Akureyri ásamt
eiginmanni sínum, Héðni.
Nú hringir hún ekki lengur í okk-
ur eins og hún var vön að gera og
eigum við eftir að sakna þess. Það
er svo skrítið að hún eigi ekki eftir
að hringja aftur til að spjalla. Alltaf
hafði hún áhyggjur af öllum og
hvernig fólkinu hennar leið. Um-
heimurinn hennar var bara fjöl-
skyldan. Hún var yndisleg mann-
eskja sem mátti ekkert aumt sjá,
hún hafði stórt og gott hjartalag.
Henni fannst mjög spennandi að
fylgjast með nýjustu frændsystk-
inum sínum og vildi alltaf fá nýj-
ustu fréttir. Hún var alltaf fyrst til
að hringja þegar einhver átti af-
mæli og alltaf fyrst að hringja á jól-
um og nýársdag. Viku fyrir andlátið
kom hún til Reykjavíkur og gaf
minnstu börnunum bangsa, svona
hugsaði hún. Hún var elst af okkur
og við munum bara eftir hve góð
hún var okkur og vildi allt fyrir
okkur gera. Hún hafði ekki mikil
fjárráð en vildi að öll börnin fengju
sínar jólagjafir og var tilbúin með
þær löngu fyrir jólin. Hún hlakkaði
alltaf til jólanna og nú er afmæl-
isdagurinn hennar að nálgast og
hún beið spennt eftir honum. Svo
spurði hún okkur alltaf: Hvað ætlar
þú að gefa mér í afmælisgjöf? Hún
fékk stóra afmælisgjöf fyrir þremur
árum því þá fékk hún lítinn frænda,
Andra Snæ. Hvað hún var glöð!
Hún á svo fallega mynd af þeim
tveimur saman.
Hún var byrjuð að undirbúa
fimmtugsafmælið sitt, sem er á
næsta ári, en nær því víst ekki en
við ætlum að koma saman og halda
upp á það með stæl og vitum að hún
verður með okkur þar í anda með
hláturinn sinn sem er svo eftir-
minnilegur.
Hjödda hefur alltaf verið mikill
sjúklingur og var orðin mjög veik
undir það síðasta og máttfarin. Síð-
an var eins og hún ætlaði sér að
rísa upp en þá versnaði henni og þá
var ekki langt eftir. Héðinn var
henni stoð og stytta alla leið og
reyndist henni ótrúlega vel og er
missir hans mikill. Hjödda var ham-
ingjusöm með honum og var ótrú-
lega heppin að hafa hann sér við
hlið.
Elsku Hjödda, við eigum eftir að
sakna þín sárt en vitum að þér líður
vel núna og erum viss um að
mamma hafi tekið vel á móti þér.
Elsku Héðinn, takk fyrir að vera
svona góður við Hjöddu og megi
guð gefa þér styrk til að lina sárs-
auka þinn.
Þín mynd við mér brosir
þó burtu sért þú.
Ó, svo björt er þín minning,
hún lýsir mér nú.
En líkt og gæfan gjöful er
svo getur lánið brugðist þér
og umbreyst allt.
Að sumri okkar samleið þraut
og sólin skein er hvarfst’ á braut
en samt var kalt.
(Iðunn Steinsdóttir)
F.h. systkina og maka,
Oddgeir Kristjánsson.
Elsku Hjödda, núna ertu farin frá
okkur, eftir erfið veikindi. Þú varst
algjör hetja og verður það áfram
þar sem þú ert komin. Ég eignaðist
hann Andra Snæ 12. ágúst á afmæl-
isdeginum þínum, við héldum að þú
myndir fara yfir um af gleði að fá
svona æðislega afmælisgjöf. Þú
hringdir í Ingu margoft þegar hann
var að fara að koma í heiminn til að
athuga hvort hann væri nokkuð
kominn því þú vildir sko að hann
kæmi eftir miðnætti og hann kom
20 mínútur yfir 12 á miðnætti.
Þegar ég kom til Akureyrar, í
þau fáu skipti sem ég fer þangað, þá
kíkti ég alltaf á þig, og alltaf var
jafngaman að koma til þín því mað-
ur gat alltaf hlegið endalaust að vit-
leysunni í þér. Alltaf þegar þú
hringdir í Ingu spurðirðu um Lilju
Dís og Andra Snæ, þú hélst svo upp
á þau, enda mun ég láta þau vita
þegar þau eldast hversu frábær
kona þú ert og verður alltaf, miss-
irinn er mikill.
Sagt er að þeir deyi ungir sem
guðirnir elska. Guð geymi þig,
Hjödda mín, og munum við geyma í
hjarta okkar um ókomna tíð.
Hvíldu í friði.
Helena, Lilja Dís
og Andri Snær.
Hjördís
Kristjánsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 25
Elsku Hjödda frænka,
við viljum kveðja þig með
þessari bæn frá okkur. Við
vitum að nú ert þú orðin eng-
ill sem vakir yfir okkur.
Takk fyrir að vera svona góð
við okkur. Við eigum eftir að
sakna þín.
Vertu, guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Fyrir hönd systkinabarna,
Helga Hólmfríðardóttir.
HINSTA KVEÐJA
úr bollanum. Ólafía hafði óskipta at-
hygli meðan hún las úr hverjum boll-
anum á fætur öðrum. Með fylgdu
gjarnan góð ráð og uppörvun. Það
skapaðist alltaf alveg sérstök stemn-
ing í kringum bollaspána. Karlmenn-
irnir í fjölskyldunni gerðu gjarnan
grín að þessu en laumuðu svo bolla
til hennar þegar lítið bar á. Það trufl-
aði hana ekkert þó gert væri grín
enda hafði hún gaman af stríðni.
Hún hafði gott innsæi, það fór ekki á
milli mála því oftar en ekki rættist
spáin. Ólafía var nærgætin í tali og
dæmdi ekki aðra. Hún átti auðvelt
með að hlusta og það var gott að leita
til hennar um þýðingu drauma. Hún
hafði mjög gaman af börnum og var
gaman að fylgjast með henni um-
gangast ömmu- og langömmubörnin.
Við kveðjum Ólafíu með virðingu
og þakklæti fyrir samfylgdina. Það
hafa vafalaust verið góðir endur-
fundir hjá þeim Kristni sem nú vaka
saman yfir hópnum sínum.
Blessuð sé minning hennar.
Jóhanna og Fjóla Viggósdætur.
Elsku besta móðursystir mín, hún
Ólafía er dáin.
Mikið er erfitt að sætta sig við
það, því þú varst svo góður vinur
minn. Ég bað þess að þú næðir þeim
bata og þeirri orku til að komast
heim í nýju fallegu íbúðina þína aft-
ur, en það fór á annan veg. Þó að þú
værir orðin áttræð, þá segir aldur
ekki allt.
Þú varst svo hress og heilsa þín
ágæt þar til á þessu ári, þú varst svo
minnug á alla hluti, bæði nöfn og at-
burði frá gamalli tíð og það var svo
gaman að rifja þetta allt upp með
þér. Minningarnar streyma fram frá
fyrri tíð, t.d. þegar þið Kristinn kom-
uð ríðandi á gæðingunum ykkar inn í
Blesugróf og fenguð ykkur kaffi og
pönnukökur á meðan hestarnir bitu
út í garði, einnig tíminn sem við Þór
bjuggum í Langagerðinu, þá var
dýrmætt að hafa ykkur hinum megin
við götuna þegar leita þurfti ráða,
hitta skemmtilegt fólk og ég tala nú
ekki um að fá að fara í sturtu í kjall-
aranum. Já, það er gott að eiga allar
yndislegu minningarnar um þig, því
þú varst mér svo miklu meira en
bara frænka.
En nú er fastur liður í tilverunni
horfinn, sá að geta kíkt til þín í kaffi-
sopa, spjall og hlýleg orð.
Ég sakna heimsókna þinna til okk-
ar, ég sakna skemmtilegu tilsvara
þinna og hláturskastanna okkar með
mömmu heitinni, Hrönn og Eddu, þá
var nú gaman. Ég sakna þín og elsku
ykkar Kristins til mín og fjölskyldu
minnar alla tíð. En mestur er sökn-
uðurinn hjá elsku Hrönn, Pálma og
fjölskyldum þeirra. Við Þór sendum
ykkur öllum samúðarkveðjur og
biðjum Guð að vera með okkur öll-
um.
Ég kveð elsku frænku mína með
miklum söknuði.
Bára.
Við vorum svo lánsöm að fá að búa
í næstu íbúð við ömmu í Langó í tæp
fjögur ár. Ólafía gaf frá sér mikla
hlýju, kærleik og bauð mann alltaf
velkomin yfir í heimsókn, stundum
alveg nokkrum sinnum á dag. Það
var alltaf mikill gestagangur hjá
Ólafíu þar sem nánasta fjölskylda og
vinir voru samankomin. Á slíkum
stundum ríkti mikil gleði og glens að
viðbættum pönnsum og kók í dós. Ef
við vorum ekki þegar í heimsókn
þegar lyktin af nýbökuðum pönnsum
fannst yfir þá leið ekki á löngu þar til
bankað var á millihurðina og okkur
boðið í heimsókn. Þá kom oft sú
spurning: „Eruð þið að fara að
djamma? alltaf að djamma
djamma … ,“ þetta sagði hún með
stríðnistón og glotti svo við tönn.
Hún var alveg með einstakan húmor
og ef hugsað er um það sem hún lét
stundum frá sér þá er ekki annað
hægt en að fá smá hláturskast. Mikið
er erfitt að kveðja hana úr þessum
heimi, en nú er hún komin á góðan
stað þar sem Kristinn „hennar“ bíð-
ur. Minningar um yndislega góða
ömmu og vinkonu munu verma
hjartarætur okkar um ókomna tíð.
Elsku amma Ólafía, við söknum þín
mjög, guð geymi þig.
Unnur Eir og Kristinn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns,
föður, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa,
HILMARS B. GUÐMUNDSSONAR,
Gnoðarvogi 28,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar
Landakots, heimahjúkrunar og hjúkrunarþjónustu
Karítas.
Blessuð sé minning hans.
Gíslína J. Jónsdóttir,
Fjóla Hilmarsdóttir,
Ásta Hilmarsdóttir, Jóhann Sigurjónsson,
Jón K. Leósson,
Regína Magnúsdóttir, Bjarni Júlíusson,
María Magnúsdóttir,
Sigríður Magnúsdóttir,
Eva Ström, Egill Þorgeirsson,
Hrafnhildur Hilmarsdóttir, Gunnar Þorvarðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar,
GUÐGEIR ÓLAFSSON,
hjúkrunarhemilinu Skógarbæ,
Reykjavík,
lést laugardaginn 26. júlí.
Útförin hefur farið fram.
Börn hins látna,
Edda, Ólafur og Pétur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON,
Kópavogsbraut 1A,
Kópavogi,
lést þriðjudaginn 5. ágúst.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn
15. ágúst kl. 11.00.
Ása Gissurardóttir,
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Ólafur Lárusson,
Kolbrún Guðmundsdóttir,
Gissur Guðmundsson, Svanhildur Pétursdóttir,
Jón Guðmundsson, Oddný B. Hólmbergsdóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
ÁRNI FRIÐJÓN VIKARSSON,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans miðvikudaginn
6. ágúst.
Jarðarförinn verður auglýst síðar.
Hrefna Sigurðardóttir,
Oddlaug Sjöfn Árnadóttir, Alberto Capanna,
Svanhvít Thea Árnadóttir,
Karen Þóra Sigurkarlsdóttir,
Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, Elvar Már Kjartansson,
Ólafur Elvar Stefánsson,
Oddlaug Marín Svanhvítardóttir.
✝
Elskuleg vinkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
PÁLÍNA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Kaldárhöfða,
síðast til heimils í
Ási, Hveragerði,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
föstudaginn 1. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Hveragerðiskirkju
miðvikudaginn 13. ágúst kl. 14.00.
Þórhallur Friðbjörnsson,
Guðlaug Birgisdóttir, Sigurjón Guðbjörnsson,
Lilja Kristín Kristinsdóttir, Magnús Stefánsson,
Anna Soffía Óskarsdóttir,
Elísabet Óskarsdóttir,
Ragnheiður Óskarsdóttir,
Þórunn Sigurðardóttir,
Snjólaug Óskarsdóttir, Elfar Harðarson,
Gunnlaugur Jónsson
og ömmubörn.