Morgunblaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2008 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
5
!"
#
6$%
&'
78(9
! "#$% "#$ & '() * +, -
1:2
;2
#
( ) *
#+,- .,/0 ) *
--1, .,/0 ) *
"2
+ ) *
.+, - ) *
* "
-0 3
4(, .,/0 ) *
5/06 - ) *
- 3
) *
, ) *
!78
!+,//,9/,,:
;:, ** ) *
<
/, ) *
< =: 7 #++( #,=
#++( 7+,/ 7>
"- -
?,= -
@),; ) *
= ) *
,=
+1 ) *
A
/
+1 ) *
1 8> %
B+/,= #// B*
., ) *
0; ) *
" ?#
A
-0+
C -
5/0 ! D*ED'*'''
FG*DD'
EE*HG%*EF%
HEE*IED*FFF
H%'*F&D*HDG
IG&*E%%
F*'&D*DD%
%&'*H%D*I&&
$*''$*&D%*E$%
EF*G%E*DGI
&$H*''&
&I*&GE*GHE
%&*DGG*&%D
'
FF'*EHI
G*&'$*%'I
%&*%IF
9
9
9
9
E'*%&%*'''
9
9
DJE$
%J&&
IFJG'
GJDE
$%J&%
$&J$%
$EJE'
E$GJ''
IHJG'
GEJ''
HJD$
FJHD
GGJG'
I'DJ''
$DG%J''
I&'J''
$&'J''
9
9
9
9
HGH%J''
$'J''
9
DJED
%J&F
H'JI'
GJDG
$%J%%
$&JH%
$EJG'
EIHJ''
IHJF'
GEJH'
HJF%
FJHG
GFJD'
I'FJ''
$E''J''
I&IJ''
$&HJ''
I$JF'
9
9
GJ%'
HGF'J''
$'J%'
%J''
;1
-0+
$
$
$D
%E
H&
I
I
HG
H&
E
H
$'
$$
9
D
$I
$
9
9
9
9
D
9
9
+
-*,
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$&*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$%*G*I''G
$D*E*I''G
$H*G*I''G
D*$I*I''E
H*D*I''G
$%*G*I''G
$&*G*I''G
E*H*I''G
#
#
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
Fjárfestingarfélagið Fons hefur selt
tæplega 30% hlut sinn í bresku
verslunarkeðjunni Iceland. Pálmi
Haraldsson, sem á Fons ásamt Jó-
hannesi Kristinssyni, segir þá hafa
hagnast um 77 milljarða króna á
kaupunum í Iceland. Hann vill ekki
gefa upp hver keypti hlutinn.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins keyptu Stoðir, sem áður
hétu FL Group, hlut í Iceland og
greiddu meðal annars með hluta-
bréfum í Northern Travel Holding.
Stærri hlut keyptu þó erlendir fjár-
festar. Júlíus Þorfinnsson, forstöðu-
maður samskiptasviðs Stoða, vildi
ekki staðfesta þetta enda væri um
orðróm að ræða. Venjan væri að tjá
sig ekki um orðróm.
Stoðir áttu tæplega 35% í NTH
sem nú er að fullu í eigu Fons.
Stoðir er þar með komið út úr öll-
um fjárfestingum í flugrekstri. Auk
greiðslu með bréfum í NTH gekk
skuldabréf sem Stoðir áttu upp í
kaupverðið. Afgangurinn var í
formi yfirtöku á skuldum og reiðufé
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Undir merkjum Northern Travel
Holding eru rekin flugfélögin Ice-
land Express og Sterling og fleiri
fyrirtæki í ferðaiðnaði.
„Það eru auðvitað geggjaðir
menn sem einbeita sér að flug-
rekstri þessa dagana en við sjáum
fullt af tækifærum,“ segir Pálmi
Haraldsson. Salan í Iceland sé hluti
af stefnumótun þeirra Jóhannesar
að einbeita sér að ferðaiðnaðinum.
„Árið hefur vissulega verið erfitt
fyrir Sterling en við höfum nú fulla
burði til að sækja fram.“
Auk sölunnar í Iceland hefur
Fons losað um eignarhald sitt í
Goldsmith, Booker og Landic Pro-
perty. Pálmi segir þetta hafa átt
nokkurn aðdraganda. Undanfarnar
vikur og mánuði hafi Fons selt
eignir fyrir 100 milljarða.
Ekki tókst að fá uppgefið kaup-
verðið á hlut Fons í Iceland. Það er
þó sagt undir þeirri upphæð sem
Fons hagnaðist á fjárfestingunni.
Fons selur eignir fyr-
ir 100 milljarða króna
Í HNOTSKURN
»Fons eignarhaldsfélag ætl-ar að einbeita sér að
rekstri félaga í ferðaþjónustu.
»Hagnaður Baugs og Fonsaf fjárfestingu í Iceland er
ævintýralegur.
»Stoðir, áður FL Group,hafa nú losað um allar
fjárfestingar í flugrekstri.
● VERÐMÆTI
sjávarafla fyrstu
fimm mánuði árs-
ins nam alls 39,2
milljörðum króna,
en var 40,5 millj-
arðar á sama
tíma í fyrra, sem
er 3% samdráttur
milli ára.
Í Vegvísi Lands-
bankans er bent á að verðmæti
þorskafla hafi dregist saman um
tæp 3%, en þorskur sé veigamesti
hluti aflans með 41% hlutdeild.
Heildarafli á fyrstu sex mánuðum
ársins dróst saman um 9,4% frá
sama tíma í fyrra 2007. Vegur þar
þyngst 25% samdráttur í þorskafla.
bjarni@mbl.is
Aflaverðmæti
minnkar milli ára
● NÝ stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu
var kjörin í gær í kjölfar stofnfjár-
aukningar og innkomu Kaupþings og
Straumborgar í eigendahóp sjóðs-
ins. Í nýrri stjórn sitja þeir Óðinn Sig-
þórsson og Þorvaldur Jónsson fyrir
hönd Borgarbyggðar, Róbert Agn-
arsson og Þórbergur Guðjónsson fyr-
ir hönd Kaupþings og Guðmundur
Jónsson fyrir hönd Straumborgar.
Eftir stofnfjáraukninguna á Kaup-
þing nú 70% í SPM, Borgarbyggð
20% og Straumborg, félag í eigu
Jóns Helga Guðmundssonar, eig-
anda Byko, 10%.
bjarni@mbl.is
Ný stjórn SPM
tekin til starfa
● WARREN Buf-
fet, einn þekkt-
asti fjárfestir
heims, hefur op-
inberað umfangs-
mikil kaup í orku-
og samgöngu-
fyrirtækjum í
Bandaríkjunum.
Hjá CNNMoney
kom fram að fé-
lag hans Berkeley Hathaway skilaði
eignayfirliti til bandaríska fjármála-
eftirlitsins SEC í gær. Þar sást að
Buffet átti í lok júní 3,2 milljónir
hluta i orkuheildsalanum NRG
Energy og er það nýtt félag í um-
fangsmiklu eignasafni hans.
Buffet hefur einnig tvöfaldað hlut
sinn í járnbrautarisanum Union Paci-
fic Group. Buffet hefur fengið leyfi til
að halda leyndri stærð hlutar síns í
olíufyrirtækinu ConocoPhilips.
halldorath@mbl.is
Buffet eykur umsvif
sín í orkufyrirtækjum
Warren Buffett
FJÖLDI þinglýstra kaupsamninga á
höfuðborgarsvæðinu í vikunni 8. til
og með 14. ágúst var 49. Þar af voru
36 samningar um eignir í fjölbýli, 8
samningar um sérbýli og 5 samning-
ar um annars konar eignir en íbúðar-
húsnæði. Heildarveltan var 1.653
milljónir króna og meðalupphæð á
samning 33,7 milljónir króna.
Ef síðastliðnar tólf vikur eru skoð-
aðar kemur í ljós að á því tímabili
hefur að meðaltali 63 kaupsamning-
um verið þinglýst og meðalvelta í
hverri viku verið 2.830 milljónir
króna. Þýðir þetta að þrátt fyrir að
velta á markaði hafi verið minni í síð-
ustu viku en að meðaltali síðastliðnar
tólf vikur hefur meðalupphæð á
hvern samning hækkað úr 33,1 millj-
ón króna í 33,7 milljónir.
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu í gær hækkaði vísitala íbúða-
verðs á höfuðborgarsvæðinu um
0,8% í júlí. Í Morgunkorni greining-
ardeildar Glitnis segir að þrátt fyrir
að íbúðaverð hafi sýnt meira viðnám
en búist hafi verið við megi gera ráð
fyrir því að íbúðaverð fari lækkandi
með haustinu og aðstæður verði erf-
iðar fram á næsta ár. bjarni@mbl.is
Fjöldi samninga
undir meðaltali
Velta á húsnæðismarkaði 1,6 milljarðar
KANADÍSKA fyrirtækið Clearwat-
er Seafood Income Fund, sem fer
með ráðandi hlut í matvælafyr-
irtækinu Clearwater Fine Foods,
var skráð úr kauphöllinni í Toronto
á dögunum og var Glitnir til ráð-
gjafar við afskráninguna.
Ingi Rafnar Júlíusson, for-
stöðumaður verðbréfamiðlunar hjá
Glitni, segir að hlutverk Glitnis hafi
m.a. verið að selja skuldabréf
Clearwater til íslenskra fjárfesta,
en bankinn hafi töluverða reynslu í
slíkum viðskiptum. Í þessu tilviki
hafi Glitnir haft milligöngu um sölu
skuldabréfa að upphæð þriggja
milljarða króna.
„Við leiðum saman fjárfesta og
útgefendur skuldabréfa, en íslensk-
ir fjárfestar vilja gjarnan dreifa
fjárfestingum sínum og hafa marg-
ir hverjir þekkingu á þeim rekstri
sem erlend sjávarútvegsfyrirtæki
eru í. Með sölunni þjónum við einn-
ig erlenda samstarfsaðila okkar, en
Glitnir starfar töluvert með sjáv-
arútvegsfyrirtækjum um allan
heim.“ Clearwater Seafoods hagn-
aðist um 11,5 milljónir kanadískra
dala, um 890 milljónir króna á öðr-
um ársfjórðungi 2008. bjarni@mbl.is
Miðlar til íslenskra fjárfesta
Clearwater Sea-
food afskráð
Sjávarútvegsfyrirtæki Glitnir hefur unnið mikið með erlendum sjáv-
arútvegsfyrirtækjum, á Norðurlöndum, Norður-Ameríku og víðar.
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar
hækkaði um 1,71% í gær og endaði í
4.314 stigum. Er þetta hæsta gildi
vísitölunnar í rúman mánuð.
Þrjú félög skáru sig úr í hækk-
unum. Spron stökk upp um 12,54%,
Eik banki um 9,09% og Exista um
7,17%. Íslenskur hlutabréfamark-
aður hefur verið að rétta úr kútnum
upp á síðkastið eftir að hafa farið í
sín lægstu gildi í þrjú ár í lok júlí, að
því er fram kemur í Hálf fimm frétt-
um Kaupþings. halldorath@mbl.is
Hækkun í Kauphöll
VERÐ á mat-
vöru á heims-
markaði hefur
verið að lækka
umtalsvert und-
anfarið og hefur
kornverð ekki
verið lægra frá
áramótum. Í
frétt Financial
Times segir að miklar hækkanir í
sumar hafi m.a. komið til vegna
flóða í Bandaríkjunum, sem óttast
var að myndu draga mjög úr mat-
vælaframleiðslu þar í landi. Nú
hefur hins vegar komið á daginn
að bandarískir bændur munu geta
framleitt mun meira af kornmeti
en óttast var. Verð á korni hefur
því lækkað um 37% frá því í júní,
þegar verðið var sem hæst og verð
á soja og hveiti hefur lækkað um-
talsvert sömuleiðis.
Þessi þróun mun koma fátækari
þjóðum til góða af augljósum
ástæðum, en Vesturlönd munu
sömuleiðis taka henni opnum örm-
um, enda mun lækkandi matvæla-
verð væntanlega hafa áhrif til
lækkunar verðbólgu.
Þá hefur heimsmarkaðsverð á
olíu lækkað umtalsvert undanfarn-
ar vikur og um miðjan dag í gær
hafði verð á Brent Norðursjáv-
arolíu lækkað um 2,3% og var
komið niður í rúma 109 dali á fatið.
Hefur olíuverð því lækkað um 26%
frá 11. júlí síðastliðnum, þegar ol-
íuverð fór yfir 147 dali á fatið.
bjarni@mbl.is
Korn
lækkar
um 37%
Olía lækkar um 25%
frá miðjum júlí
FLEIRI ríki en Ísland eiga í baráttu
við verðbólgudrauginn og er nú svo
komið að verðbólga í Bandaríkj-
unum hefur ekki verið meiri í 17 ár.
Í Morgunkorni Glitnis er bent á
að eftir 0,8% hækkun verðlags í júlí
er verðbólga á ársgrundvelli orðin
5,6% í Bandaríkjunum.
Hækkun hrávöruverðs í júlí
leiddi hækkun neysluverðs, en þá
hefur verð á fatnaði, menntun og
flugfargjöldum einnig sitt að segja.
Segir í Morgunkorninu að ekki sé
ólíklegt að verðbólga í Bandaríkj-
unum hafi náð hámarki, en hrá-
vöruverð hefur lækkað umtalsvert
frá miðjum júlí. bjarni@mbl.is
Metverðbólga í
Bandaríkjunum
SÖLUTEKJUR Marel Food Syst-
ems á öðrum ársfjórðungi námu 145
milljónum króna, en ekki 45 millj-
ónum, eins og sagt var í frétt Morg-
unblaðsins á miðvikudag.
Þá var hagnaður tímabilsins, sem
hlutfall af sölutekjum, 10,2%, en í
fréttinni sagði að þær hefðu verið
1,2%. Er beðist velvirðingar á þess-
um mistökum.
LEIÐRÉTT
Vegna fréttar
um Marel