Morgunblaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is „ÞAÐ eru dæmi þess að menn þurfi að keyra átta kílómetra til að sækja póstinn og svo getur hver sem er farið í þetta,“ segir Einar Hafliða- son, bóndi í Fremri-Gufudal í Reyk- hólasveit. Hann er ósáttur við þá þjónustu sem Íslandspóstur veitir bóndabæjum á landinu. Hann telur jafnvel hugsanlegt að hún standist ekki lágmarkskröfur laga um póst- þjónustu. Nú er pósturinn ýmist keyrður heim á hlað allt að fimm sinnum í viku eða honum komið í póstkassa við afleggjara sem liggja að bæj- unum en kassarnir eru ólæstir. Einar telur fyrir neðan allar hellur að pósturinn sé ekki keyrður heim að dyrum alls staðar. Eins og er berst pósturinn heim að Fremri- Gufudal fimm sinnum í viku en hann segir Póst- og fjarskiptastofnun hafa heimilað að skiptunum verði fækkað í þrjú. Hann býst jafnvel við að brátt verði honum gert að sækja póstinn í póstkassa úti við veg. Ólík aðstaða Ágústa Hrund Steinarsdóttir, for- stöðumaður markaðs- og kynning- ardeildar Íslandspósts, segir mjög erfitt að gera kröfur um sömu póst- þjónustu við sveitabæi og íbúa í þéttbýli. „Við reynum að gera eins vel við alla viðskiptavini og hægt er,“ segir hún en alltaf þurfi að taka tillit til aðstæðna og kostnaðar. Þess vegna sé málum svo háttað sem raun ber vitni hér á landi sem og víða erlendis. Aðspurð hvort þetta standist lög segir Ágústa svo vera. Íslandspóst- ur starfi undir handleiðslu Póst- og fjarskiptastofnunar og ekkert sé að- hafst án leyfis hennar. Í lögum um póstþjónustu frá árinu 2002 segir að íslenska ríkið skuli tryggja öllum landsmönnum póstþjónustu á jafnréttisgrundvelli. Krafa er gerð um að notendur sem búa við sambærilegar aðstæður skuli fá sömu þjónustu og að póstur skuli borinn út alla virka daga „nema kringumstæður og land- fræðilegar aðstæður hindri slíkt“. Ekki sáttur við þjónustu Íslandspósts Morgunblaðið/Júlíus Póstkassar Á leið um landið eru kassar sem þessir algeng sjón. Í HNOTSKURN »Íslandspóstur færir fólkipóstinn heim að dyrum eða setur hann í póstkassa við af- leggjara viðkomandi bæjar. »Pósturinn er borinn út alltað fimm sinnum í viku. »Póstþjónusta við sveitabæier með þessum hætti víða um heim og hefur verið hér- lendis um langt skeið. Ekki stendur til að breyta þessu fyrirkomulagi í heild en sums staðar er ætlunin að taka upp nýjar dreifingaraðferðir. MATSMENN sem Hagar hf. létu dómkveðja í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna ágreinings við verðlagseftirlit ASÍ um verðlækkanir í 10-11- verslununum í kjölfar lækkunar á virðisaukaskatti og vörugjöldum af matvælum 1. mars 2007 hafa nú skilað matsgerð. Þeir segja að verðlækkanir hjá 10-11 hafi verið í fullu samræmi við það sem vænta mátti. Innkaupakarfa matvæla í 10-11 hafi lækkað um 8,99% en vænt lækkun verið 8,98%. Hagar hf. sendu frá sér fréttatilkynningu af þessu tilefni í gær. Þar er minnt á að Hagar hf. hafi gefið út yfirlýsingu fyrir 1. mars 2007 um að öll lækkunin kæmi strax fram í verðlækkunum til neytenda. Verðlagseftirlit ASÍ gerði á þessum tíma verðmælingar til þess að fylgjast með skatta- og gjaldabreytingunni. ASÍ sagði 16. apríl 2007 að verðlækkun í verslunum 10-11 á tímabilinu frá febrúar 2007 til mars 2007 hafi verið 4,4%. Hagar gerðu strax athugasemd við þessa tilkynningu ASÍ því hún væri röng. Daginn eftir sendi ASÍ frá sér nýja og leiðrétta fréttatilkynningu, þar sem verðlag í 10-11 var sagt hafa lækkað um 6,1% á umræddu tímabili. Það var einnig minna en vænta mátti vegna skattabreytinga. „Ljóst er að rangar fréttatilkynningar ASÍ eru gróf atlaga að 10-11,“ segir m.a. í fréttatilkynningu Haga hf. Matsmennirnir fengu óheftan aðgang að öllum upplýsingum og gögnum innan 10-11 og gátu skoðað allt sem gæti gefið rétta mynd af þeim verðbreytingum sem urðu 1. mars 2007. „Niðurstaðan er mikill áfellisdómur yfir verð- lagseftirliti ASÍ. Hagar hafa gagnrýnt verðlags- eftirlit ASÍ. Meginástæðurnar fyrir þeirri gagn- rýni hafa í fyrsta lagi verið óvönduð og ónákvæm vinnubrögð verðlagseftirlits ASÍ, í öðru lagi fréttatilkynningar og yfirlýsingar ASÍ, sem ekki eiga við rök að styðjast og í þriðja lagi að verðlags- eftirlitið er ríkisstyrkt og því rétt að gera kröfu um vönduð vinnubrögð,“ segir í tilkynningu Haga. ASÍ vísar matsgerðinni á bug „Við vísum þessu alfarið á bug,“ sagði Henný Hinz verkefnisstjóri verðlagseftirlits ASÍ um matsgerðina sem Hagar létu vinna. „Þessi mats- gerð hefur í rauninni ekkert með hvorki gögn né vinnubrögð Alþýðusambandsins að gera. Þeir eru að meta gögn frá versluninni sjálfri. Það fer ekk- ert mat þarna fram á starfi verðlagseftirlitsins. Við söfnum ekki gögnum úr tölvukerfum verslana. Við förum og söfnum þeim gögnum sem neytend- ur hafa aðgang að og eru hillumerkingar í versl- unum og verslunum ber að veita neytendum þær réttar. Þetta mat segir nákvæmlega ekkert um vinnubrögð verðlagseftirlitsins.“ gudni@mbl.is Matsmenn staðfesta lækkun hjá 10-11 Í HNOTSKURN »Virðisaukaskattur ogvörugjöld af matvælum voru lækkuð 1. mars 2007. Ætlunin með því var að lækka matvöruverð hér á landi. »Verðlagseftirlit Alþýðu-sambands Íslands fylgdist með því hvernig þessar lækk- anir á sköttum og gjöldum skiluðu sér til neytenda. »Hagar hf. mótmæltu nið-urstöðu varðandi 10-11 í könnun ASÍ í apríl 2007. Morgunblaðið/Golli Þvegið fyrir gestina Öruggur á útskotinu HANN var öruggur á útskotinu, gluggaþvottamaðurinn sem sprautaði vatni á Grand Hótel í gríð og erg nýlega. Enda eins gott að hafa öryggið í fyrirrúmi þegar sleipir gluggar eru annars vegar. Víst er að gestir hótelsins munu geta notið útsýnisins eftir þvottinn. Fljótsdalshérað | Einbreiðum brúm á hringveginum fækkar um eina nú í haust þegar tekin verður í notkun ný brú á Rangá hjá Flúðum, norðan Fellabæjar. Brúin á Rangá við bæinn Flúðir er fjörutíu ára gömul og einbreið. Hún hefur verið rifin og á sama stað er verið að byggja 28 metra langa, tví- breiða brú. Einnig er verið að breikka veginn beggja vegna. Á meðan fer umferðin um framhjá- hlaup skammt ofan við brúna. Samið var við Malarvinnsluna hf. á Egilsstöðum um smíði brúarinnar. Fyrirtækið bauðst til að vinna verkið fyrir tæpar 58 milljónir kr. Nýja brúin á að vera tilbúin til notkunar um mánaðamót. helgi@mbl.is Einbreið- um brúm fækkar STJÓRNIR kjördæmissambands framsóknarmanna í Reykjavík, Framsóknarfélags Reykjavíkur og Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík lýstu í gær einróma stuðningi við ákvörðun Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa fram- sóknarmanna, að ganga til við- ræðna við Sjálfstæðisflokkinn um myndun nýs meirihluta í Reykjavík. Segir í tilkynningu að óviðunandi staða hafi verið komin upp fyrir íbúa Reykjavíkur. Við það hafi ekki verið unað, leita hafi þurft leiða til að mynda starfhæfan meirihluta. Styðja ákvörð- un Óskars SKRISTOFUVÖRUVERSLUNIN Office 1 hefur ákveðið að hafa ákveðnar verslanir sínar opnar all- an sólarhringinn í tilefni þess að skólar eru að byrja. Meðal þeirra er verslun Office 1 í Skeifunni, sem opin verður allan sólarhringinn í heila viku. Kristrún Kristinsdóttir, verslun- arstjóri í Skeifunni, segir að starfs- menn þurfi hvort eð er að vera á staðnum allan sólarhringinn á þess- um árstíma. Það þurfi að panta vörur og fylla í verslanir. Því hafi verið ákveðið að hafa opið allan sól- arhringinn og segir hún þjónustuna fyrst og fremst vera fyrir fram- haldsskólanema og foreldra sem vinna vaktavinnu og vilja geta kom- ið við eftir vinnu. andresth@mbl.is 24 stundir Námsmönnum mun gef- ast góður tími til að versla í Office 1. Skóladót allan sólarhringinn Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur sýknað mann sem gefið var að sök að hafa tvisvar til þrisvar sinnum rassskellt tvo drengi, sex og fjögurra ára. Taldi ákæruvaldið háttsemina falla undir ákvæði hegningarlaga um minni háttar lík- amsárás og kynferðislega áreitni. Atvik voru þau að móðir drengjanna kynntist manninum á spjallrás á netinu. Hófu þau að hittast og sýndi maðurinn mikinn áhuga á að hitta syni hennar, en þeir dvöldu hjá henni þrjár helgar í mánuði. Hann hafi viljað fá að vita um hvert ein- asta skipti sem þeir gerðu eitthvað af sér og varð konan við þessu. Hafi hann þá farið með annan drenginn í einu inn í herbergi og rassskellt hann og að því loknu hafi hann borið olíu á rassinn á hon- um. Í eitt skipti var móðir drengjanna viðstödd. Í niðurstöðum héraðsdóms segir að almennt varði það við hegningarlög að slá mann nauðugan á rassinn svo að undan roðni. Hins vegar verði að sýkna þar sem tíðkast hafi að flengja börn og að ákærði hafi flengt drengina með samþykki móður þeirra í tilefni af því að þeir höfðu sýnt af sér óþekkt, þótt ekki liggi fyrir í hverju hún hafi falist. Ákæruvaldið krafðist þess til vara að háttsemin yrði heimfærð undir refsiákvæði barnaverndar- laga. Um það sagði í dómnum að ekkert mat lægi fyrir á því að flengingarnar hafi verið til þess falln- ar að skaða drengina andlega eða líkamlega. Þá var ekki talið að í þessu fælist kynferðisleg áreitni. Maðurinn var líka ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa ítrekað slegið móðurina á beran rassinn með beltisól. Hann var sýknaður þar sem sýnt þótti að athæfið hefði verið hluti kynlífsat- hafna þeirra, en „ákærði kveðst hafa sérstakan áhuga á flengingum og bindileikjum (BDSM) í kynlífi,“ eins og segir í dómnum. Sýknað í flengingarmáli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.