Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Indverjar vilja virkjun  Indversk stjórnvöld vilja fá Íslendinga til að reisa jarðvarmavirkjun á miklu há- hitasvæði  Indverjar sýna einnig mögulegum gas- og olíulindum við Ísland áhuga Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is SENDINEFND indverskra stjórn- valda hefur verið hér á landi í vikunni til viðræðna við stjórnvöld og íslensk orkufyrirtæki. Mikill áhugi er fyrir því á Indlandi að fá Íslendinga til að aðstoða við byggingu jarðvarmavirkj- unar, þeirrar fyrstu þar í landi. Hafa Indverjar einnig sýnt áhuga þeim hafsvæðum við Ísland sem talin eru búa yfir gas- eða olíulindum. Heim- sóknin nú er m.a. afrakstur Indlands- ferðar Ólafs Ragnars Gríms- sonar, forseta Ís- lands, og sendi- nefndar fyrr á árinu. Össur Skarp- héðinsson iðnað- arráðherra sagði í samtali við Morg- unblaðið að jarð- varmavirkjunin væri á einu af sjö háhitasvæðum sem hafa verið rannsökuð á miðju Ind- landi. Um litla virkjun verður að ræða sem hugsuð er sem tilraunavirkjun á sviði jarðvarmans. Hafa Indverjar að sögn Össurar óskað eftir að samning- ur verði gerður milli íslenskra og ind- verskra stjórnvalda sem gefi heimild til að kaupa þjónustu af ÍSOR, Ís- lenskum orkurannsóknum. „Þeir vilja síðan fá íslenskt orkufyrirtæki í sam- starf við að reisa fyrstu jarðvarma- virkjunina á Indlandi,“ segir Össur, sem ákveðið hefur að þekkjast boð Indverja um að koma og ganga frá samstarfssamningi landanna. Össur Skarphéðinsson Í HNOTSKURN »Fyrirhugaður samstarfs-samningur gengur m.a. út á að Indverjar fái aðgang að íslenskum sérfræðingum í nýt- ingu jarðvarma. »Einnig stendur til að Ind-verjar sendi framúrskar- andi nemendur í Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÍSLENSK stjórnvöld greiddu alls um 270 þúsund dollara (22 millj. ísl kr.) til tveggja bandarískra hagsmunavarða, lobbýista, sem á árunum 2001 til 2003 voru fengnir til að- stoðar í deilunni við bandarísk stjórnvöld um orrustuþot- urnar á Keflavíkurflugvelli. Um var að ræða James F. Kuhn og Sig Rogich, en um ráðningu þeirra var fjallað í nýlegri grein Vals Ingimundarsonar sagnfræðings í bók um íslenska utanríkisstefnu. Þar kom m.a. fram að lítið hefði verið gert með ráðleggingar þessara manna. Í kjölfar þeirra frétta óskaði Morgunblaðið eftir upp- lýsingum frá utanríkisráðuneytinu um kostnað við ráðn- ingu mannanna. James F. Kuhn fékk 8.000 dollara á mán- uði á tímabilinu júlí 2001 til júní 2003, alls 192 þúsund dollara, jafnvirði um 16 milljóna króna á núvirði. Til við- bótar fékk Kuhn greiddan útlagðan kostnað, alls 4.600 dollara, jafnvirði um 400 þúsund kr. Heildargreiðslur til Kuhns voru því um 196 þúsund dollarar á þessu tímabili. Greiðslur til Sigs Rogich fóru í gegnum fyrirtækið Berman Enterprises og námu 25 þúsund dollurum á mánuði fyrir tímabilið mars til maí árið 2003, alls 75 þús- und dollarar, eða rúmar sex milljónir króna á núvirði. 22 millj. til Rogich og Kuhns Lítið var gert með ráðgjöf bandarískra hagsmunavarða EDEN EHF., sem rekið hefur sam- nefndan veitinga- og ferðamanna- stað í Hveragerði, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Eignir Eden voru slegnar Spari- sjóði Suðurlands á nauðungarupp- boði 2. júlí sl. fyrir 175 milljónir króna. Ólafur Elísson sparisjóðs- stjóri segir að leigusamningur við núverandi rekstraraðila hafi verið framlengdur og Eden sé áfram í full- um rekstri. Viðræður um kaup Ólafur segir að sparisjóðurinn hafi verið í viðræðum við ákveðinn aðila um að kaupa Eden og ef það gangi ekki upp verði staðurinn auglýstur til sölu. Eden stendur á tæplega 1,2 hektara lóð í hjarta Hveragerðis og segir Ólafur að í lóðinni séu falin mikil verðmæti auk húsanna sem á henni standa. Eden í Hveragerði er einn þekkt- asti ferðamannastaður landsins. Þangað koma milli 300 og 400 þús- und gestir árlega. Bragi Einarsson stofnaði fyrirtækið sumardaginn fyrsta 1958 og var haldið upp á 50 ára afmælið í vor. Bragi rak Eden til ársins 2006, eða í 48 ár, er hann seldi reksturinn. Bjarki Már Baxter hdl. hefur ver- ið skipaður skiptastjóri í þrotabúi Eden ehf. og verður skiptafundur haldinn 29. október nk. sisi@mbl.is Eden í Hveragerði gjaldþrota Á KÖFLUM rigndi í gær eins og himnarnir hefðu bók- staflega opnast og hellt úr sér öllu vatni sem þar hefði safnast í sumar. Alltaf er þó skin milli skúra og þá er gott að skjóta sér eldsnöggt milli húsa. Þessi kona hafði allan varann á og var með regnhlífina spennta. Á morgun er spáð talsverðri rigningu um allt land en á laugardag verður rigning um sunnanvert land- ið, skýjað með köflum norðantil og stöku skúrir. Þegar rignir þá verður maður votur Allur er varinn góður Morgunblaðið/Valdís Thor FRAM kemur í grein Vals Ingimundarsonar í bók- inni Uppbrot hug- myndakerfis: End- urmótun íslenskrar utanríkisstefnu 1991- 2007 að annar hags- munavörðurinn, Sig Rogich, sé af íslenskum ættum og hafi upp- haflega borið nafnið Sigfús. Hann þykir litrík- ur almannatengill og varð þekktur þegar hnefaleikakappinn Mike Tyson réð hann árið 1997 til að bæta ímynd sína, í kjölfar þess að hann beit hluta af eyra andstæðings síns. Eins og fram kemur í svari utanríkisráðuneytisins til Morgunblaðsins starfaði Rogich stutt fyrir íslensk stjórnvöld en hann var fyrst og fremst ráðinn vegna tengsla sinna við Bush- fjölskylduna, að því er fram kemur í grein Vals. Þá var Rogich sendi- herra Bandaríkjanna á Íslandi í skamman tíma árið 1992. Í grein Vals segir um ráðgjöf James Kuhns að hann hafi mælt með því að íslensk stjórnvöld stofnuðu til tengsla við bandaríska þingmenn. Segir Valur ennfremur að lítið hafi komið út úr starfi Kuhns og íslensk stjórnvöld ekki tekið mikið tillit til ráðlegg- inga hans þessi tvö ár. Annar aðstoðaði Mike Tyson Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson hsb@mbl.is SALURINN var þéttsetinn á opnum fundi Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins, á Húsavík í gærkvöldi. Eins og við var að búast vék Guðni í máli sínu mjög að fyr- irhuguðum álversframkvæmdum við Bakka og þeirri stöðu sem upp er komin eftir úrskurð umhverfisráð- herra. Í ræðu sinni benti Guðni á að með úrskurðinum væri verið að búa til kreppu í Norðurþingi af mannavöld- um. Úrskurð ráðherra kallaði Guðni „skemmdarverk“ og sagði hana hafa slegið á bjartsýnina sem ríkti áður í sveitarfélaginu. „Þetta er grafalvarleg staða sem upp er komin,“ sagði Guðni og bætti litlu síðar við: „Niðurstaða Þórunnar er ómarkviss og ekki faglega tekin.“ „Þarf að berjast fyrir lífinu“ Guðni virtist í ræðunni kalla eftir að breiðfylking Norðlendinga, allt frá Skagafirði og til Skjálfandaflóa, tæki höndum saman til að berjast fyrir álveri á Bakka. Í máli Guðna kom jafnframt fram að næstu skref hjá Þingeyingum ættu að vera þau að berjast fyrir því að fá að gera til- raunaborholur. Hann hvatti undir lokin Þingeyinga til dáða með orð- unum: „Verið ekki andvaralaus, ver- ið baráttuglöð. Það þarf að berjast fyrir lífinu.“ Líkt og á fyrri fundum hans um landið kom það skýrt fram að skoðun Guðna væri sú að flugvöll- urinn ætti að vera áfram í Vatnsmýr- inni, auk þess sem hann kallaði eftir aðgerðum frá ríkisstjórninni. „Það er glórulaust að sitja aðgerðalaus.“ Fór mikinn Guðni í ræðustól. Kreppa af völdum ráðherra Morgunblaðið/Hafþór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.