Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 11 FRÉTTIR FLESTIR nefndarmenn samgöngu- nefndar Alþingis gistu á hótelinu Kríunesi við Elliðavatn á kostnað Al- þingis í ferð um höfuðborgarsvæðið í síðustu viku. Þetta gerðu þingmenn frá höfuðborgarsvæðinu og þing- menn utan af landi, en þeir síðar- nefndu fá almennt styrk til að halda heimili í Reykjavík ef þeir halda heimili úti á landi. Meginregla Alþingis er sú að þing- ið greiðir ekki fyrir kostnað við gist- ingu þingmanna í eigin kjördæmi né í Reykjavík nema um sé að ræða skipulagða ferð. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður samgöngu- nefndar, segir nefndina hafa farið í ferðina til að skoða samgöngumann- virki. Þau hafi nýtt daginn í skoð- unarferðir og fundað um kvöldið í Kríunesi. Þar hafi flestir nefndar- menn gist og fundað daginn eftir. Aðspurð um tilgang gistingarinn- ar segir hún að það hafi verið sitt mat og annarra að heppilegt hafi verið að gista um kvöldið vegna fundarins daginn eftir. Spurningu hvort ekki hefði mátt spara ríkinu pening með því að láta fólk gista heima svarar hún svo: „Það má kannski til sanns vegar færa í þessu tilfelli, en þarna vorum við með fund um kvöldið og strax morguninn eftir og tókum einfaldlega þá ákvörðun að vera þarna á staðnum líkt og við værum í ferð annars staðar.“ 12.000 krónur á mann Steinunn Valdís vissi ekki hver kostnaður við gistinguna var. Það vissi aftur á móti Karl M. Kristjáns- son, aðstoðarskrifstofustjóri Alþing- is; hótelkostnaðurinn hefði verið 12 þús. kr. á mann. Þá greiddi Alþingi 96 þús. kr. matarreikning fyrir 13 fundarmenn. Árni Johnsen, Árni Þór Sigurðsson, Guðjón A. Kristjánsson, Herdís Þórðardóttir, Karl V. Matth- íasson og Ólöf Nordal nýttu sér gist- inguna. Ármann Kr. Ólafsson fór ekki í ferðina og Steinunn Valdís og Guðni Ágústsson gistu heima. Reikningur til skattgreiðenda Samgöngunefndarmenn gistu á Kríunesi ættismenn Reykjavík- urborgar. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Ávallt hefur þó samstaða ríkt á vettvangi borg- arstjórnar um mikilvægi slíkra reglna, eins og fram kemur í samþykkt borg- arstjórnar frá 5. júní 2007. Þá var stjórnkerfisnefnd falið að hafa umsjón með staðfestingu siða- reglna og taka afstöðu til hugmynda um svonefnda siðanefnd. Hún átti ennfremur að útfæra reglur um gjafir, boðsferðir og birtingu upplýs- inga um þær. Í kjölfarið var sam- þykkt á fundi 24. október 2007 að stofna sérstaka ritstjórn starfs- og siðareglna fyrir borgarstjórn Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is TILLAGA þess efnis að skipa fimm manna starfshóp til að ljúka gerð siða- og starfsreglna fyrir kjörna fulltrúa og embættismenn Reykja- víkurborgar verður tekin fyrir á fundi borgarráðs í dag. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri leggur tillöguna fram. Töluverð undirbúningsvinna hef- ur farið fram innan borgarkerfisins við mótun siðareglna, meðal annars með aðstoð frá Siðfræðistofnun Ís- lands, og lengi hefur staðið til að setja slíkar reglur. Lengi á floti í kerfinu Borgarráð samþykkti fyrst á fundi sínum 2. desember árið 2003 að fela stjórnkerfisnefnd að kanna kosti þess að setja siða- og starfs- reglur fyrir kjörna fulltrúa og emb- Reykjavíkur undir forystu Guð- mundar Steingrímssonar, aðstoð- armanns Dags B. Eggertssonar, þá- verandi borgarstjóra. Sú ritstjórn lauk ekki störfum og leggur því borgarstjóri nú til að skipaður verði fimm manna starfshópur, með fulltrúum meirihluta og minnihluta, til að ljúka því verki. Tímarammi á verkið Hanna Birna Kristjánsdóttir segir að nú verði tímarammi settur á verkið. „Ætlunin er að byggja á þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin í borgarkerfinu; bæði undirbúnings- vinnu af hálfu borgarinnar og þeirri vinnu sem hefur verið unnin á veg- um Sambands íslenskra sveitarfé- laga. Við setjum tímaramma á verk- ið til að ljúka því sem fyrst og gerum ráð fyrir að hópurinn klári vinnu sína fyrir 1. desember.“ Siðareglurnar við sjóndeildarhringinn Fimm manna starfshópur skipaður til að ljúka gerð þeirra Hanna Birna Kristjánsdóttir Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is LAGNING sæstrengsins Danice, sem liggur milli Ís- lands og Danmerkur, er að hefjast. Byrjað verður á næstu dögum Danmerkurmegin; á vesturströnd Jót- lands, og upp úr miðjum september er von á skipi frá Bandaríkjunum til að byrja frá Íslandsströndum, nánar tiltekið frá Landeyjum. Þar var nýlokið við að byggja og ganga frá landtökustöð sem er töluvert mannvirki, tæpir 400 fermetrar að flatarmáli. Munu þessir strengir sam- einast norður af Færeyjum í nóvember og áætlanir gera ráð fyrir að Danice verði tekinn í gagnið snemma á næsta ári. Er strengurinn alls 2.250 km langur. Lagning strengsins er á vegum eignarhaldsfélagsins Farice, sem rekur samnefndan streng, og bandaríska fyrirtækisins Tyco Telecommunications. Leggur síðar- nefnda félagið til skip og ýmsan annað búnað. Samband til Grænlands og áfram vestur Á sama tíma er Tele Greenland að leggja sæstreng frá Íslandi til Nuuk á Grænlandi og þaðan til Nýfundnalands í Kanada. Hann tekur hér land á sama stað og Danice og notast við sömu landtökustöð og endabúnað í Landeyj- um. Hafa samningar tekist milli Farice og Tele Green- land um notkun á strengnum vestur um haf og Græn- lendingar munu svo einnig njóta góðs af Danice-strengnum til Evrópu. Fjarskiptafyrirtæki og fjárfestar sem undirbúa rekst- ur gagnavera hér á landi binda miklar vonir við þessa sæ- strengi. Telja að þeir muni einnig nýtast sem varaleið fyrir fyrirtæki sem nota strengi frá Bandaríkjunum til Bretlands, t.d. ef hryðjuverkaógn er til staðar. Með til- komu Danice mun gagnaflutningsgeta til og frá landinu aukast verulega. Afkastageta Farice-1-sæstrengsins er allt að 720 gígabæti á sekúndu en Danice mun geta flutt allt að 5.100 Gb/sek. Sjálf notkunin er enn sem komið er langtum minni, er nú um 20 Gb/sek með Farice og verður um 100 gígabæti um Danice. Þá er verið að auka flutning- inn um Farice í 100 Gb/sek. Flutningsgeta grænlenska strengsins er allt að 1.900 Gb/sek og telur Guðmundur Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Farice, að sá strengur ætti að gagnast vel næstu árin, m.a. þeim bandarísku aðilum sem áforma rekstur gagnavers hér á landi. Sömu aðilar telja þann streng hins vegar ekki duga og vilja leggja annan sem liggur beint milli Íslands og austurstrandar Bandaríkjanna. Lagning sæstrengsins Danice að bresta á Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Farice, segir aðspurður að fyllsta öryggis sé gætt á nýju landtökustöðinni í Landeyjum, þar sem Danice- strengurinn og sá grænlenski koma í land. Hið sama eigi við um landtökustöðvar á hinum endum strengjanna. Meðal annars hafi verið farið eftir ströngustu kröfum gagnaveranna. Aðgangur að húsunum sé takmarkaður og þau þoli að vera lengi án rafmagns. Vöktun fari fram þó að hún sé ekki mönnuð. Er sú þjónusta leigð af Mílu. Fyllsta öryggis gætt á endastöð                               !  "!  #$% !   &' %( !  "%!        ! "     #$  % &  &  # (   !  ) % * Miele þvottavél verð frá kr.: 109.995 vi lb or ga @ ce nt ru m .is Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 Sportlínan frá Miele Miele þvottavélar eru allar með íslensku stjórnborði, íslenskum leiðbeiningum, stóru hurðaopi og tuttugu ára endingu. Hreinn sparnaður 2.000 Neytenda- stofnanir Aðrir framleiðendur Miele 0 4.000 6.000 8.000 10.000 Klst. 3.800 klst. 4.500 klst. 6.000 klst. 10.000 klst. A B 20 ára líftími = 10.000 klst. Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.