Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 15
MENNING
LOKAHNYKKURINN á tónleika-
ferðalagi þeirra Melkorku Ólafs-
dóttur flautuleikara og Elfu Rúnar
Kristinsdóttur fiðluleikara verður í
kvöld þegar þær halda tvöfalda tón-
leika í Langholtskirkju í Reykjavík.
Þær hafa undanfarinn hálfan mánuð
ferðast um landið og spilað í kirkjum
til þess að minna á hlutverk þeirra í
tónlistarlífi landsins. „Það er búið að
vera yndislegt að ferðast um og spila
í öllum þessum fallegu kirkjum.
Hugmyndin með þessu ferðalagi var
að heiðra þeirra hlutverk nú þegar
tónlistarhúsið er að rísa,“ segir Mel-
korka. Þær kirkjur sem fyrir valinu
urðu eiga það sameiginlegt að vera
með öfluga tónlistardagskrá, t.d.
Bláa kirkjan á Seyðisfirði og Skál-
holtskirkja.
Allar einleiks-
fantasíurnar
Á tónleikunum í kvöld munu þær
Melkorka og Elfa flytja allar ein-
leiksfantasíur Telemanns bæði fyrir
fiðlu og flautu. „Hann skrifaði tólf
einleiksfantasíur fyrir flautu sem
eru mikið spilaðar og þykja krefj-
andi stykki, sérstaklega ef maður
spilar þær allar eins og ég ætla að
gera á morgunn. Svo skrifaði hann
líka tólf stykki fyrir fiðlu og sembal
sem eru minna spiluð, en eru mjög
falleg og ekkert síður krefjandi.“
Hluti af efnisskrá tónleikanna verð-
ur tekinn upp fyrir Ríkisútvarpið og
leikinn á aðfangadag.
Aðgangur er ókeypis á báða tón-
leikana og hefjast þeir fyrri klukkan
18 og þeir seinni klukkan 20:30. Gert
er ráð fyrir rúmlega hálftíma matar-
hléi á milli þeirra fyrir þá sem vilja
sækja þá báða. gunnhildur@mbl.is
Síðasta kirkjan heiðruð
Einleikarar Elfa Rún og Melkorka segja yndislegt að spila í kirkjunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Frikki
Alexander Hampar silfrinu stoltur.
Faðmlag Sigfús Sigurðsson og
Bjarni Frostason flugstjóri.
Ljósmynd/Halldór Kolbeins