Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 30
Þó er rétt að nota tækifærið hér og ó́ska Ágústu til hamingju … 33 » reykjavíkreykjavík  Það vakti mikla athygli gesta á tónleikum Bjarkar Guðmunds- dóttur í Langholtskirkju í fyrra- kvöld að rússneski milljarðamær- ingurinn Roman Abramovich var meðal viðstaddra. Abramovich fékk sér sæti á svölum kirkjunnar, en með honum í för voru meðal ann- arra dóttir hans og lífvörður. Samkvæmt lista Forbes er Abramovich í fimmtánda sæti yfir ríkustu menn veraldar en þrátt fyr- ir það féll hann mjög vel inn í hóp- inn á tónleikunum og skar sig á engan hátt úr. Kappinn mun hafa skemmt sér mjög vel á tónleikunum en hann fór af landi brott um leið og þeim lauk. Það var Kári Sturlu- son, umboðsmaður Lay Low, sem fylgdi Abramovich á tónleikana. Abramovich ánægður með tónleika Bjarkar  Á meðal annarra gesta á tón- leikum Bjarkar var faðir hennar, Guðmundur Gunnarsson, sem skrif- ar um tónleikana á bloggsíðu sinni, gudmundur.eyjan.is. Þar rifjar hann meðal annars upp fyrstu kynni Bjarkar af tónlistinni: „Það varð snemma ljóst að Björk hafði mikla tónlistarhæfileika. Hún var ekki há í loftinu þegar hún klifraði upp á píanóbekkinn hjá ömmu sinni og sló þar laglínuna í vinsælu lagi sem hún hafði heyrt nokkru áður í útvarpinu. Áreynslulaust söng hún öll lög sem hún heyrði í útvarpinu. Oft fengu þeir sem sátu í sætinu fyrir aftan okkur sértónleika þegar við vorum á leið í bæinn á leið 14 Vogar-Torg, þar sem hún stóð í sætinu við hlið mér og renndi yfir vinsælustu lögin. Live flutningur slær iPodum við og leysir þá ein- angrun sem hver og einn býr sér í dag,“ skrifar Guðmundur m.a. Björk söng í strætó  Sena hefur sent frá sér safn- plötuna Ég fíla 90’s sem eins og nafnið bendir til inniheldur safn laga frá tíunda áratugnum. Á plötunni má finna eftirminnileg lög frá flytjendum á borð við Haddaway, 2 Unlimited og Ace of Base. Umslag plötunnar vek- ur hins vegar athygli, en þar stend- ur að á plötunni séu „38 fokking góð lög“. Deila má um hvort sú full- yrðing sé sönn, en óumdeilt er að hún stenst hvorki reglur um góða íslensku né almenna kurteisi. Fokking góð lög? Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is „MÉR finnst vera of mikil áhersla lögð á leik- stjóra. Leikstjórinn er með 30-80 manna lið og ef þetta lið vinnur ekki með þér og þú ert ekki með góðan anda í liðinu þá færðu ekki það út úr fólk- inu sem hægt er að fá. Þú gætir gert heila bíó- mynd með þessu tökuliði og öllum þessum leik- urum, þú þyrftir ekkert þennan leikstjóra. En þú þarft tökumann, þú þarft leikarana, þú þarft hljóðmanninn, búningahönnuð, sminkuna …“ segir Valdís Óskarsdóttir sem er að hefja leik- stjóraferilinn með Sveitabrúðkaupi eftir langan og farsælan feril sem klippari. Mislynt franskt séní og viðkvæmur Dani Þar hefur hún unnið með ófáum leikstjórunum en henni er hvað tíðræddast um þá Michel Gondry (Eternal Sunshine of the Spotless Mind) og Thom- as Vinterberg (Festen). „Maður er alltaf að taka leikstjórana og ala þá upp. Og ég hef gert það með Thomas,“ segir Valdís og segir mér söguna af því hvernig ekki einu sinni framleiðendurnir höfðu trú á Festen, hvernig Vinterberg missti fót- anna eftir velgengni myndarinnar („hann var eins og þjóðhetja, eins og handboltalandsliðið“) og hvernig þeim sinnaðist við gerð It’s All About Love, fyrstu myndarinnar í röð „floppa“ leikstjór- ans eftir Festen. En þau hafa sæst og næsta verk- efni Valdísar er að klippa hans næstu mynd, Submarino. „Ég held það sé búið að berja Thomas svo vel niður á jörðina að ég held hann sé kominn undir grassvörðinn. Hann getur ekki farið neitt annað en upp á við,“ segir Valdís um leikstjórann sem hún hefur farið með á toppinn sem og botn- inn – en handritið sé þrælgott og eftir allt þetta þekkist þau vel og vinni vel saman. En tíðræddast verður okkur þó um sólskinið ei- lífa, sem hún segir hafa verið afar erfiða mynd. „Michel var erfiður og ég ábyggilega líka. Við gátum rifist og skellt hurðum. En ég var með ofsalega gott lið með mér, algjöra gullmola.“ En Michel kom stundum inn með allt á hornum sér – „En svo kom hann inn daginn eftir, brosandi út að eyrum, ógeðslega fyndinn með alveg frábæran húmor fyrir sjálfum sér og öllu í kringum sig.“ Og svo segir hún mér stutta sögu af aðalleikurunum. „Þau eru þarna í þessum risavaski og búin að sitja í honum dálítið lengi. Svo er Jim Carrey búinn að fá nóg af þessu baði, fer upp úr vaskinum og veð- ur út. Michel kemur á eftir honum og gargar: „Get your fucking ass up in the sink!“ Kate Wins- let er í vaskinum og bíður, en svo var hún orðin svo leið á þessu rifrildi þeirra og stælunum í Jim Carrey að hún pissaði í vaskinn. Svo kom Jim og settist og vissi ekki neitt. Það var hennar hefnd.“ Að æfa fortíðina og taka sénsinn á núinu En núna er það Sveitabrúðkaupið, saga um tvær rútur með örfáum brúðkaupsgestum og verðandi brúðhjónum sem villast af leið. „Það eru allir í aðalhlutverkum og allir í aukahlutverkum. Mig langaði til þess að allir hefðu sitt rými, en ekki vera með einhverja eina persónu sem væri gegnumgangandi í gegnum myndina, þú kynnist öllum,“ segir Valdís um myndina sem var ferða- lag sem farið var í án eiginlegs handrits. „Við út- hlutuðum hverjum leikara sínu hlutverki. Þeir fóru heim, skrifuðu sína ævisögu og komu með hana. Við æfðum fortíðina hjá þeim en ekkert af því sem átti að gerast á leiðinni. Svo hittust þau og töluðu saman um karakterana sína, fóru saman á kaffihús og tveir fóru á samkomu í Krossinum.“ En eftir að það var búið að æfa fortíðina var núið í óvissu. „Svo er bara komið að því að halda brúð- kaup og eins og er í lífinu þá veistu ekkert hvað gerist,“ segir Valdís en hún og leikararnir eiga handritið í sameiningu. Hugmyndin kviknaði þó undir tónlist Goran Bregovic. „Svolítið brjáluð músík, hamagangur og svo getur hún verið mjög róleg, þannig að ef þú lokar augunum og hlustar geturðu séð fyrir þér atburðarásina; lokar augunum, setur músík- ina á og þá færðu sögur, klikkar ekki,“ segir Val- dís sem fékk bresku hljómsveitina Tiger Lillies til þess að semja tónlistina fyrir Sveitabrúðkaup. Að ala upp leikstjóra Valdís Óskarsdóttir frumsýnir Sveitabrúðkaup á morgun og segir frá kyndugum leikstjórum, prakkarastrikum Kate Winslet og tónlist sem kveikir hugmyndir Morgunblaðið/Kristinn Leikstjórinn og klipparinn „Myndin var tekin á sjö dögum en við vorum átta mánuði að klippa …“ segir Valdís um Sveitabrúðkaup. Í reiðileysi Gestir í leit að brúðkaupi. Herdís Þorvaldsdóttir, Nína Dögg Filippus- dóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Björn Hlynur Haraldsson, Kristbjörg Kjeld, Theódór Júlíus- son, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Sig- urður Sigurjónsson, Rúnar Freyr Gíslason, Ólafur Darri Ólafsson, Árni Pétur Guðjónsson, Víkingur Kristjánsson, Erlendur Eiríksson, Ingvar E. Sigurðsson, Karl J. Guðmundsson, Gísli Örn Garðarsson og Tinna Hrafnsdóttir. Leikarar í Sveitabrúðkaupi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.