Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VIÐRÆÐUR velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar og Heilsuvernd-
arstöðvarinnar / Alhjúkrunar um
rekstur búsetuúrræðis með fé-
lagslegum stuðningi hafa verið
blásnar af. Var tillaga þess efnis
samþykkt einróma á fundi velferð-
arráðs í gær. Meirihluti nefndarinn-
ar lagði tillöguna fram í kjölfar yf-
irlýsingar viðsemjendanna. Í henni
kom fram að ekki væri hægt að stað-
festa að húsnæði að Hólavaði 1-11
sem ætlað var undir starfsemina
væri raunverulega fyrir hendi.
Velferðarráð sendi frá sér yfirlýs-
ingu þessa efnis í gær.
„Fyrir [velferðar]sviðið þýðir
þetta það að það þarf að endurskoða
málið og fara yfir það aftur,“ segir
Jórunn Frímannsdóttir, formaður
velferðarráðs. Hún segir einnig að
haft verði samband við þá sem buðu í
verkefnið á sínum tíma og grundvöll-
ur fyrir samstarfi athugaður.
Reynt verður að hraða meðferð
málsins hjá borginni eins og frekast
er unnt. „Við verðum bara að gera
það, fyrst og fremst þurfum við að
huga að því fólki sem hefur þörf fyrir
þetta búsetuúrræði,“ segir Jórunn.
skulias@mbl.is
Viðræðum
um búsetu-
úrræði hætt
Málið tekið fyrir frá
upphafi á nýjan leik
ÍSLENDINGAR búa við þau lífsgæði að þurfa
aldrei að sækja langt í einstakar náttúruperlur.
Steinsnar frá höfuðborginni er til dæmis að
finna Hengilsvæðið sem nýtur vaxandi vinsælda
útivistarfólks. Í vikunni fór þar um frítt föru-
neyti sænskra hestamanna sem naut þess að
kynnast íslenskri náttúru af hestbaki og hvíla
svo lúin bein í heitum læknum í Reykjadal, þrátt
fyrir hryssingslegt veður. Eldhestar fara í reglu-
lega reiðtúra um Hengilsvæðið og sækja útlendir
ferðamenn mikið í þessa upplifun en að sögn
Hróðmars Bjarnasonar hjá Eldhestum var þarna
um óvenjustóran hóp að ræða, eða 60 manns.
„Þetta er mikil upplifun fyrir fólk og greinilegt
að fleiri eru að átta sig á fegurð þessa svæðis.
Þegar við byrjuðum fyrst að fara þarna um sá
maður ekki hræðu en nú mætum við fjöldanum
öllum af fólki þarna á ferðinni.“ unas@mbl.is
Hengilsvæðið heillar hestamenn sem aðra
HANNA Birna Kristjánsdóttir borg-
arstjóri segir ekki koma til greina að
hús Listaháskólans rísi á reit við
höfnina, í grennd við nýja tónlistar-
og ráðstefnuhúsið. Ætlunin var að
byggja á reitnum 16.000 fermetra
viðskiptamiðstöð en nú hefur þeim
framkvæmdum verið slegið á frest.
Lengi voru uppi hugmyndir um að
Listaháskólinn risi á þessum reit en
horfið var frá þeim. haa@mbl.is
Listaháskóli
hreyfist ekki
MAÐUR, menning og náttúra í
Kanada og á Íslandi er yfirskrift
sjöttu samstarfsráðstefnu Háskóla
Íslands og Manitobaháskóla, sem
verður haldin í Háskóla Íslands í
dag og á morgun.
Margir innlendir og erlendir fyr-
irlesarar úr ýmsum greinum fræða
og vísinda tala á ráðstefnunni. Sam-
fara ráðstefnunni verður kvik-
myndin My Winnipeg eftir kan-
adíska kvikmyndagerðarmanninn
Guy Maddin, sem er af íslenskum
ættum, sýnd í Háskólabíói klukkan
14 á laugardag.
George Toles, prófessor við Ma-
nitobaháskóla, flytur aðalerindið.
Hann fjallar um kvikmyndalist
vestanhafs og ræðir sérstaklega um
myndir Guys Maddins í því sam-
bandi.
Auk þess verður fjallað um ís-
lenskar og vesturíslenskar bók-
menntir, listir og náttúrusýn, notk-
un hátækni í eldfjallarannsóknum
og samanburð á lífsskilyrðum í
Kanada og á Íslandi.
Ráðstefnan fer fram í aðalbygg-
ingu HÍ. Hún hefst kl. 10 árdegis í
dag og er öllum opin.
steinthor@mbl.is
Morgunblaðið/Steinþór
Fræðimaður Dr. David Arnason
flytur erindi klukkan 15 í dag.
Samstarfs-
ráðstefna
HJÁLPRÆÐISHERINN er að
festa kaup á húsi 730 við Flugvall-
arbraut á Keflavíkurflugvelli. Húsið
er um 550 m2 og ætlar Hjálpræð-
isherinn að vera þar með fjölbreytt
starf í vetur. Stefnt er að því að vígja
húsið og taka það formlega í notkun
28. september næstkomandi.
Kapteinarnir og hjónin Ester
Daníelsdóttir og Wouter van Goos-
willigen eru í forystu starfs Hjálp-
ræðishersins á Suðurnesjum. Þau
voru foringjar í Hjálpræðishernum í
Noregi um árabil en komu til starfa
á Suðurnesjum fyrir einu ári. Ester
sagði að í Noregi hefðu þau lagt
mikla áherslu á tónlist og fjölskyldu-
miðað starf. Sama áhersla verður í
starfinu á Keflavíkurflugvelli.
„Við verðum með söngnámskeið
fyrir börn á öllum aldri. Foreldrum
ungra barna verður boðið að koma
með þau á söng- og leikjanámskeið
og syngja með börnunum sínum. Við
verðum líka með tvo barnago-
spelkóra fyrir börn á grunn-
skólaaldri með áherslu á tónlist, leik
og dans og gospelkórinn Kick mun
æfa hér.“
Síðar í vetur verður boðið upp á
lessal og barnagæslu fyrir námsfólk.
Prjónaklúbburinn Hekla verður með
fundi vikulega þar sem rætt er um
lífið, trúna og tilveruna með kaffi-
sopa og stuttri hugvekju. Einnig
verða þarna sunnudagaskóli og
kaffihúsakirkja þar sem kirjugestir
sitja við borð, drekka kaffi og ræða
málin. Nýlega kom út diskurinn
Gospelgleði þar sem börn syngja
gospeltónlist. Hann verður seldur til
styrktar þessu starfi Hjálpræð-
ishersins. gudni@mbl.is
Aftur her á Keflavíkurvelli
Hjálpræðisherinn er að kaupa hús á Keflavíkurflugvelli Engar heræfingar á
dagskrá en því fleiri söngæfingar Barnagæsla fyrir námsfólk í vetur
Ljósmynd/Úr einkasafni
Foringjar Ester og Wouter leiða
starf hersins á Suðurnesjum.
Í HNOTSKURN
»Hjálpræðisherinn hefurstarfað á Íslandi frá 1895.
Þá hafði herinn starfað í 30 ár
frá því William Booth hóf starf
í fátækrahverfum Lundúna.
» Ísland er sjálfstæð eininginnan umdæmis hersins á
Íslandi, í Noregi og Færeyjum