Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 33 FIMMTUDAGUR 28.ÁGÚST Tónastöðin kynnir dagskrána í dag og gítar í kaupbæti!!! N O R R Æ N A H Ú S I Ð V O N A R S A L U R IÐ N Ó F R ÍK IR K JA N H Á S K Ó L A B ÍÓ N A S A F R ÍK IR K JA N N O R R Æ N A H Ú S IÐ G L A U M B A R N O R R Æ N A H Ú S IÐ V O N A R S A L U R IN G Ó L F S N A U S T H Á S K Ó L A B ÍÓ REYKJAVÍK w w w .m id i.i s G L A U M B A R • KL 12.15 Ingólfsnaust – Hádegisjazz í Ingólfsnausti Frítt • KL 15 Iðnó -Svingtónleikarestrasjón – Sextett Hauks Gröndal með Ragga Bjarna Kr2200 • KL 19 Háskólabíó - Heimildarmynd um tónleikaferð íslenskrar stórsveitar Kr500 Frumsýning á Heimildarmynd umTónleikaferð Stórsveitar Samúels Jóns um landið. Frítt fyrir handhafa jazzpassa • KL 20 Fríkirkjan - Trúnó. Tómas R. Einarsson og Ragnheiður Gröndal Kr2200 Tómas R Einarsson hefur sent frá sér á annan tug hljómplatna á sínum ferli. Öðru hverju kemur frá honum sungið efni og nú er hann kominn á trúnaðarstigið með Ragnheiði Gröndal. Textar eru eftir orðlistafólk af ýmsum kynslóðum. • KL 21 Háskólabíó - Gítarhátíð Bjössa Thor. Philip Catherine, Kazumi Watanabe, Maggi Eiríks, Þórður Árnason Kr3000/2000 Gítarhátið BjössaThor er fastur liður í Jazzhátíð Reykjavíkur. Gítarleikarinn snjalli ferðast tónlistarmanna mest og kemst þannig í návígi við vopnabræður sína um víða veröld. Með gítarveislunni er ætlunin að koma á föstum grundvelli fyrir vinsælasta hljóðfæri tónlistarsögunnar. Gestir ársins eru Kazumi Watanabe frá Japan og jazzleikari Evrópu árið 2007 Philip Catherine frá Belgíu. Magnús Eiríksson og Þórður Árnason verða fulltrúar lands og þjóðar auk ryþmaparsins Jóhanns Hjörleifssonar trommuleikara og Jóns Rafnssonar bassaleikara. Einn heppinn tónleikagestur vinnur gæðagítar fráTónastöðinni. • KL 22 Iðnó /uppi – Ameríska söngbókin-Stofuhljóðritun. Siggi Flosa, Lennart Ginman, Jón Páll Bjarnason Kr2000 • KL 23 Bítbox á Glaumbar. Samúel Jón Samúelsson Big Band Frítt Stórsveit Samma gerði allt vitlaust á síðustu Jazzhátíð ásamt JimiTenor og Antibalas. Síðan þá hefur sveitin farið í tónleikaferðir um Ísland og Evrópu. Leikin verður frumsamin funktónlist Samma af plötunum Fnykur og Legoland en sú fyrrnefnda var gefin út í Japan í júní. Í kvöld fagna Sammi og strákarnir frumsýningu á heimildarmynd um Íslandsferðina með sannkallaðri klúbbastemningu. PO RT hö nn un Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Benidorm 25. september Verð kr. 59.990 Heimsferðir bjóða frábært sérilboð til Benidorm 26. sept. þar sem gist er á hinu glæsilega Hotel Deloix, sem er mjög gott fjögurra stjörnu hótel, rétt hjá Mediterrano hótelinu. Hótelið er nýlegt og er allur aðbúnaður hinn glæsilegasti. Herbergi eru smekkleg, hönnuð í nýtískulegum og notalegum stíl með sjónvarpi, síma, minibar, internet-aðgengi, loftkælingu og svölum. Veitingastaður og bar er á hótelinu og fallegur garður með stórri sundlaug og sundlaugar- bar. Á hótelinu er einnig líkamsrækt, innisundlaug, sauna og heitir pottar. Fleiri gistivalkostir á Benidorm eru einnig í boði. Aðeins 8 herbergi í boði! Verð kr. 59.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með hálfu fæði í 6 nætur á Hotel Deloix ****. Frábært sértilboð! Hotel Deloix **** Of mikið af menningu á ofstuttum tíma virtist nið-urstaða nafna míns Ingvars- sonar í úttekt hans á menning- arnótt í mánudagsblaðinu. En er ekki alltaf of mikið af menningu, sbr. allar ólesnu bækurnar, óséðu bíómyndirnar og sýningarnar og tónleikana sem maður kemst ekki á þótt maður feginn vildi? Er þetta ekki lúxusvandamál sem óþarfi er að kvarta yfir? Helsti galli menn- ingarnætur er miklu frekar að menningin er að allt of miklu leyti á sömu stöðum og áður, stöðum sem ég get alveg eins heimsótt ein- hverja aðra helgi. Menningarnótt ætti að vera tíminn þegar menn- ingin kemur til mín, á götunum, kaffihúsunum og sjoppunum. Svo mætti líka eitthvað vera að gerast um nóttina sjálfa, svo við höfum nú eitthvað annað við að vera en að drekka frá okkur allt vit og berja hvert annað.    En þetta var með betra móti umsíðustu helgi. Grasi lagðar umferðargötur og þvottavélarvirki gerðu götumyndina skemmtilega framandlega og kalsalegt veðrið þýddi að það var fámennara og góð- mennara en oftast. Svo er alltaf hægt að villast um borgina, til dæmis í útitjald nokkurt við blokk í Þingholtunum þar sem Stebbi og Eyfi sungu Álfheiði Björk og aðra gamla slagara. Þegar kona nokkur spurði hvernig við þekktum Ágústu áttuðum við okkur á því að þetta væri máski ekki hluti af formlegri dagskrá en þó er rétt að nota tæki- færið hér og óska Ágústu til ham- ingju með vel heppnað fimmtugs- afmæli.    En kraftaverk þessarar menn-ingarnætur mátti finna í garði Einars Jónssonar myndhöggvara. Garðurinn og safn Einars eru raun- ar kraftaverk út af fyrir sig en á rölti mínu þar á laugardagskvöldið hitti ég fyrir Snorra Ásmundsson þar sem hann var að reisa pall fyrir framan styttuna Vernd. Snorri benti mér á Belga nokkurn bak við sig sem yrði með gjörning eftir hálftíma. Belgi þessi, Jacques Ambach, er 62 ára gamall samanrekinn kall. Þegar maður sér hann í hversdags- klæðum ber ekki mikið á honum. En þegar hann er kominn í ham, þegar hann er orðinn Jack the Rap- per, þá umturnast hann, setur upp indjánafjaðrir og stígur friðardans og syngur af svo mikilli sannfær- ingu að áhorfendur trúa því að allt sé hægt.    Jack var ekki einn, bak við hannstóðu Snorri Ásmunds og Sig- tryggur Berg Sigmarsson poll- rólegir á meðan náttfataklæddur ungur maður (sem gengur undir listamannsnafninu Mundi) prílaði upp um styttuna og sat í kjöltu móð- urinnar góðu sem verndaði tvö börn þetta kvöldið. Og í myrkum garðinum minntu þeir helst á drý- sildjölfa innan um stórkostlegt safn af steingerðum furðuverum Einars Jónssonar skreytts sólhlífum í myrkrinu, annar nýsloppinn af geð- veikrahælinu og Jack minnti helst á sturlaðan útigangsmann þar sem hann syngur um heimsfrið – en samt af meiri sannfæringu en nokk- ur róni. Alla dreymir þá um frið en þeir eru ekkert lausir við að deila, Snorri og Mundi tóku einn góðan slag og Jack reifst reglulega við báða um hvernig atriðið ætti að vera og hvenær því ætti að ljúka, enda lauk því að minnsta kosti fimm sinnum. En þeir náðu alltaf að sætt- ast, enda var galdur í loftinu. Jack söng ítrekað um súkkulaðikaffi, café au chocolat, og spilaði með áhorfendur, enda hefur hann lýst því yfir að áhorfendurnir séu hans hljómsveit. Svissneskir túristar í vindjökkum og yngismey nokkur voru í aðalhlutverki. Líkt og annar galdur var þessi óútskýranlegur, þetta hljómar máski einfalt en sorti garðsins, stytturnar umhverfis og ólíkindaleg hlutverkin færðu boð- skapnum nýja dýpt.    Jacques býr nú í Ástralíu en ersagður „ferðast um eins trúboði í þorsta sínum til að gleðja fólk með gjörningum sínum.“ Og það gerir hann fjandakornið. Hann og Ólafur Stefánsson eru mennirnir sem halda voninni á lofti í öllu þessu þreytandi bölsýnisþrasi meintrar kreppu. Þeir neita því að láta nei- kvæðið gróa – en samt takast þeir á við hlutina á meðan aðrir grafa hausinn í sandinn. asgeirhi@mbl.is Kaffi, súkkulaði og heimsfriður » Í myrkum garðinumminntu þeir helst á drýsildjölfa innan um stórkostlegt safn af steingerðum furðuver- um Einars Jónssonar. Þvottekta menning Virki 22 þvottavéla mátti sjá efst á Skólavörðustíg. Óskar Ericsson og Þórhallur Sigurðsson áttu heiðurinn af vatnslistaverkinu. AF LISTUM Ásgeir H. Ingólfsson Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.