Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 18
ÞAÐ SEM FAGMAÐURINN NOTAR! H L E Ð S L U BORVÉL • Ákaflega létt og einstakt jafnvægi • Án kola, níðsterkur EC-TEC mótor • FastFix smellupatrónur • 42 gírar með nákvæmari átaksstillingu og rafeindastýrðu „cut-out“ sem eykur endingu |fimmtudagur|28. 8. 2008| mbl.is Eftir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur gudrunhulda@mbl.is Í bíóferð á dögunum var miðaverð á stórmyndina um Leðurblökumanninn, The Dark Knight í SAMbíó- unum í Kringlunni, 1.050 kr, þótt almennt miðaverð í verðskrá væri þúsund krónur. Þeg- ar leitað var eftir ástæðu fyrir hækkun miðaverðs fengust þau svör að 50 kr. væru lagðar á verðið vegna þess að myndin væri lengri en 150 mínútur. „Almennt miðaverð er þús- und krónur. Öryrkjar og ellilíf- eyrisþegar 750 krónur. Börn 8- 12 ára 750 krónur. Börn 7 ára og yngri 550 krónur. Fimmtíu króna álag leggst á alla verðflokka á myndir í digital. Tvöhundruð króna álag leggst á alla verðflokka mynda sem sýndar eru í digital þrí- vídd. Sparbíó mun hækka úr 450 krónum í 550 krónur.“ Svohljóðandi er símsvari SAMbíóanna, sem rekur kvikmyndahús í Álfabakka, í Kringl- unni, á Akureyri, í Keflavík og á Selfossi. Á upptalningunni er ljóst að miðaverð í kvikmyndahús í dag er ekki einfalt. Sérstaklega ef haft er í huga að upptalning þessi er ekki tæmandi. Miðaverð á íslenskar myndir er undanskilið í verðlist- anum, miðaverð á netinu er lægra og miðaverð í VIP-salinn er ekki nefnt. Svo er það lengd kvikmyndanna. Þarf að sleppa sýningu „Þegar myndir eru lengri en 150 mínútur þurfum við að sleppa sýn- ingu. Við hækkum miðaverð til að jafna möguleika hennar gagnvart styttri myndum, það hefur gerst að þegar myndir eru mjög langar þá hjálpar aukaálagið til við að halda myndinni í sýningu,“ segir Ingi Úlf- ar Helgason, upplýsingafulltrúi SAMfélagsins. „Þetta er álag sem leggst á allar myndir, sama hvað þær heita,“ segir Ingi Úlfar. Samkvæmt þessu er verið að láta neytandann borga sem samsvarar einni sýningu sem fyr- irtækið verður af vegna lengdar myndarinnar. Fyrir fimm árum var síðasta kvikmynd í Hringadróttinssögu þríleiknum, The Return of the King, sýnd í kvikmyndahúsum. Þótt lengd myndarinnar sé skráð 201 mínúta á kvikmyndavefnum Internet Movie Database (imdb.com) voru við- skiptavinir ekki látnir greiða hærra verð. Við frekari eftirgrennslan á imdb.com sést að The Dark Knight er 152 mínútur. Spurður hvort ekki hefði verið nær að stytta hléið um tvær auka- mínútur svarar Ingi Úlfar. „Með því að stytta hléið styttum við af- greiðslutíma í sjoppunni og ég held að ekki yrðu allir viðskiptavinir sátt- ir við það.“ Þegar kannað var miðaverð í Laugarásbíói og kvikmyndahúsum Senu, sem rekur Smárabíó, Há- skólabíó, Regnbogann og Borgarbíó á Akureyri kom í ljós að í kvik- myndahúsum Senu leggst 100 krónu álag á miðaverð á myndir í stafræn- um gæðum. Jón Eiríkur Jóhannsson, rekstr- arstjóri kvikmyndahúsa Senu, segir að þrátt fyrir það geti neytandinn valið hvort hann vilji horfa á kvik- myndina í stafrænum gæðum eða ekki. „Við sýnum myndirnar í báð- um gæðum en þó ekki alltaf í sama húsinu.“ Þess konar reglur eru einnig við- hafðar í SAMbíóunum. Erfitt að meta hvar tap byrjar Ekki tíðkaðist hins vegar að hækka verðið vegna lengdar mynd- ar í kvikmyndahúsum Senu. „Til að reyna að hafa verðlagningu sem ein- faldasta höfum við ekki farið út í þess konar verðlagningar. Auk þess teljum við það ekki rétt, enda er erf- itt að meta þau viðmið hvar fyrir- tækið er byrjað að tapa á sýningu lengri myndar.“ Hjá Laugarásbíói fer miðaverð hins vegar aldrei yfir þúsund krón- ur að sögn Magnúsar Geirs Gunnarssonar framkvæmdastjóra Laugarásbíós. „Okkur hefur ekki fundist réttlætanlegt að hækka verð á mynd vegna lengdar hennar eða af því að hún sé í stafrænum gæðum.“ Hjá öllum þremur aðilum er miðaverð á íslenskar myndir hærra og ástæða þess er að sögn Jóns Ei- ríks sú að framleiðendur myndanna geri ákveðna kröfur á bíóhúsin um tekjur af sýningum og þess vegna verði kvikmyndahúsin að hafa miða- verð hærra. Morgunblaðið/Þorkell Í bíó Það kostar ekki alltaf það sama í bíó og miðinn er til dæmis ódýrari ef hann er keyptur á netinu. Sýningin tveimur mínútum of löng Hjá Neytendastofu fengust þau svör að verðlagning væri frjáls en gerðar væru kröfur um að vörur væru rétt verðmerktar og að verð- merkingarnar væru skýrar. Samkvæmt reglum Neytendastofu nr. 725/2008 um verð- merkingar og aðrar verðupplýsingar stendur: „Kvik- myndahúsunum ber að taka sérstaklega fram þegar kvikmynd er auglýst ef verð á aðgöngumiða þeirrar kvikmyndar er hærra en almennt verð aðgöngumiða kvikmyndshússins.“ Samkvæmt því ættu auglýsingar kvikmyndahúsanna að upplýsa neytandann um aukaálögur á miðaverð í auglýsingum sínum ef svo ber við. Krafa um réttar verðmerkingar Verðskrá kvikmyndahúsa yfir bíómiða ekki alltaf einföld Fáðu úrslitin send í símann þinn daglegtlíf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.