Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 17 ERLENT FRÉTTASKÝRING Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is FLOKKSÞINGI bandaríska demó- krataflokksins lýkur í kvöld með ræðu forsetaframbjóðanda flokksins, Baracks Obama. Flokkurinn hefur þá fengið fjögurra daga fjölmiðlaat- hygli, sem ætlað var að nýta m.a. til að vekja athygli á stefnu Obama og draga úr trúverðugleika mótfram- bjóðanda repúblikana, Johns McCains. Eiginkona Obama, Michelle, hélt tilfinningaþrungna ræðu fyrsta kvöldið og öldungardeildarþing- maðurinn Edward Kennedy einnig. Þeim voru gerð góð skil af fjölmiðlum en aðrir mælendur sem ræddu mál- efni Obama og settu hann fram sem lausn við vandamálum landsins, fengu fremur litla athygli. Clinton-hjónin áberandi Hillary Clinton flutti ræðu á þriðjudagskvöld og hvatti stuðnings- menn sína til að sameinast að baki Obama, hún sagðist sjálf vera „stolt- ur stuðningsmaður Baracks Obama.“ Clinton-hjónin hafa verið fyrirferða- mikil á þinginu en Bill Clinton hélt ræðu í gær. Áberandi þátttaka Clin- ton-hjónanna þykir jafnt af stuðn- ingsmönnum Obama sem Clinton hafa truflað fókusinn og beint óþarfa athygli að meintum særindum hjónanna í garð Obama vegna naums sigurs hans í frambjóðendaslagnum. Mælendur á þinginu hafa margir farið þá leið að tengja McCain við Bush og halda því fram að nái Mc- Cain kjöri muni stefna Hvíta hússins haldast óbreytt. Þingmaður Illinois í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, Rahm Emanuel, nefndi t.d. McCain þrisvar á nafn, Bush og McCain saman þrisv- ar sinnum og Bush 10 sinnum í ræðu sinni; áhrifamestu skot hans voru ætluð Bush forseta. Fréttaskýrendur hafa haldið því fram að með því að tengja McCain beint við Bush og óvinsæla stefnu hans m.a. í efnahagsmálum, mál- efnum Írak og innanríkismálum, sé ætlunin að hæfa McCain án þess þó að gagnrýna hann beint, því það gæti haft öfug áhrif að gagnrýna 71 árs gamla stríðshetju úr Víetnamsstríð- inu. Til að færa rök fyrir stuðningi McCains við Bush hefur m.a. verið vitnað til rannsóknar Congressional Quarterly. Þar kemur fram að McCain greiddi atkvæði með laga- frumvörpum samkvæmt stefnu Bush í 90% tilvika frá árinu 2001 og árið 2007 í 95% tilvika. McCain hefur þótt reyna að slá á þessa gagnrýni og birtist æ sjaldnar með forsetanum á opinberum vett- vangi. Sex af hverjum 10 fullorðinna í Bandaríkjunum telja þó að McCain muni feta í spor Bush samkvæmt könnun AP-fréttastofunnar og Yahoo frá því í júní. Clinton styður Obama full stolts Flokksþingi demókrata lýkur í Denver í kvöld eftir fjögurra daga fjölmiðlafár Reuters Fögnuður Stuðningsmenn Hillary Clinton fögnuðu henni ákaft þegar hún gekk inn á sviðið í Denver til að halda ræðu sem lengi hafði verið beðið eftir. LA TOMATINA-hátíðin er haldin árlega í bænum Buñol á Spáni, síð- asta miðvikudag í ágústmánuði. Tugþúsundir gesta frá öllum heimshornum flykkjast til hátíðar- innar þar sem slegist er heiftarlega með tómata að vopni. Að morgni fyrsta dags sturtar fjöldi flutningabíla tonnum of- þroskaðra tómata á aðaltorg bæjar- ins og eftir að merki hefur verið gefið með risavöxnum vatnsbyssum má slagurinn hefjast. Þátttakendur eru hvattir til að klæðast sundgler- augum og hönskum, þeim er einnig skylt að merja tómatana í öryggis- skyni áður en þeim er hent í næsta mann. Uppruni hátíðarinnar, sem á sögu sína að rekja til 5. áratugar- ins, er á huldu en um hann eru uppi margvíslegar getgátur. Hún var bönnuð á tímum einræðisherrans Franco en tekin upp að nýju á 8. áratugnum. jmv@mbl.isAP Tómata- slagur með langa hefð Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is RÁÐAMENN í Rússlandi sökuðu í gær aðildarríki Atlantshafsbanda- lagsins um að magna spennuna vegna deilunnar um Georgíu með því að senda herskip á Svartahaf. Rússneskir embættismenn sögð- ust hafa gert sérstakar ráðstafanir til að fylgjast með herskipum NATO á Svartahafi eftir að bandarískt her- skip sigldi til Georgíu í gær. Banda- ríkjastjórn segist hafa ákveðið að senda alls þrjú herskip með hjálpar- gögn til Georgíu en Rússar segja það blekkingu, herskipin séu notuð til að senda Georgíuher vopn. Rússnesk stjórnvöld gagnrýndu einnig hörð viðbrögð ráðamanna á Vesturlöndum við þeirri ákvörðun Rússa að viðurkenna sjálfstæði Suð- ur-Ossetíu og Abkasíu. Talsmaður Vladímírs Pútíns, forsætisráðherra Rússlands, réð vestrænum ríkjum frá því að reyna að einangra Rússa. „Það hefði ekki aðeins neikvæð áhrif á Rússland heldur myndi það einnig örugglega skaða efnahagslega hags- muni ríkjanna,“ sagði talsmaðurinn. Sakaður um hræsni David Miliband, utanríkisráð- herra Bretlands, sagði að ekki væri hægt að einangra Rússland þar sem landið væri orðið mjög mikilvægur þáttur í hagkerfi heimsins. Miliband hvatti hins vegar Evrópusambandið og NATO til að sýna festu í deilunni við Rússa, styrkja bandamenn sína í grennd við Rússland og gera ráð- stafanir til þess að tryggja að Evr- ópuríki yrðu ekki eins háð olíu og jarðgasi frá Rússlandi og nú. Miliband var í heimsókn í Úkra- ínu, sem vill fá aðild að NATO eins og Georgía. Sergej Lavrov, utanrík- isráðherra Rússlands, gagnrýndi ummæli Milibands, sagði þau „óvið- eigandi“ og „hræsnisfull“. „Það er undarlegt að Bretar skuli gagnrýna aðgerðir okkar til að vernda réttindi borgara okkar við landamæri okkar þegar tillit er tekið til aðgerða Breta sjálfra á Falklandseyjum, sem eru hinum megin á hnettinum.“ Rússneska ríkisdagblaðið Rossís- kaja Gazeta varaði við því í gær að viðurkenningin á sjálfstæði Suður- Ossetíu og Abkasíu gæti orðið til þess að Rússar einangruðust ef eng- in önnur lönd færu að dæmi þeirra. Viðurkenningin gæti einnig orðið vatn á myllu aðskilnaðarsinna í Kákasushéruðum Rússlands. Mótmæla herskipum NATO á Svartahafi Stjórnvöld í Moskvu saka Vesturlönd um að magna spennuna Í HNOTSKURN » Um 48% Rússa telja aðspennan milli Vesturlanda og Rússlands hjaðni en 35% óttast að nýtt kalt stríð sé haf- ið, samkvæmt nýrri könnun. » Um 87% Rússa styðja þáákvörðun að beita hernaði til að verja Suður-Ossetíu og 54% sögðu að halda bæri hern- aðinum áfram.                       ! "#$% & '    ()' ! "!#$! #%&%'()##*+$! ), ! "!#$!   !  - .  /.0 1 1 21 " # $ %   '3## 4 !56 " $&  !  ! *+,-.* /0+12*.3 +7 /'45   ,*)', $ !  %     /'45    ! # & '  -! !1 #%&%'( )##*+$!  '()  ! & - .  /.0 88 1 91 Stokkhólmur. AFP. | Öldruð kona mis- skildi leiðbeiningar þegar hún inn- ritaði sig í flug á Arlanda-flugvelli í Stokkhólmi og féll niður farangurs- rennu eftir að hafa lagst á færi- bandið í stað þess að leggja farang- urinn á það. Konan er 78 ára gömul og varð ekki fyrir alvarlegum meiðslum. Starfsmenn flugvallarins komu henni til hjálpar þegar hún birtist á færibandi í farangursafgreiðslu vallarins. Hún átti bókað flug til Þýskalands og komst þangað þrátt fyrir þessa hrakfallasömu byrjun á ferðalaginu. bogi@mbl.is Skellti sér á færibandið ROBERT Mugabe, forseti Sim- babve, kvaðst í gær ætla að mynda nýja ríkisstjórn án stjórnarandstöð- unnar þótt hann hefði samþykkt áð- ur að deila völdunum með henni. „Það er greinilegt að MDC [stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn] vill ekki vera með í þessu,“ höfðu ríkis- fjölmiðlar landsins eftir Mugabe. Gangi þetta eftir er líklegt að ekk- ert verði af viðræðum við MDC um stjórnarsamstarf. bogi@mbl.is Mugabe boðar nýja stjórn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.