Morgunblaðið - 28.08.2008, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.08.2008, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 23 Það er svo margt hægt að skrifa um þennan mæta mann sem fallinn er í valinn. Hann var greiðvikinn, hrein- skilinn og umfram allt ljúfmenni. Þeir sem voru svo lánsamir að kynnast þessum manni urðu ríkari af göfug- mennsku hans og hlýleika. Jón og eiginkona hans Sigþóra eða Þóra eins og hún er alltaf kölluð byrj- uðu með tvær hendur tómar. Með dugnaði stofnuðu þau Úðafoss. Þarna voru kraftarnir ekki sparaðir og unnu þau hörðum höndum við að koma þessu fyrirtæki á laggirnar. Jón og Þóra keyptu sér sumarhús á Spáni og í einni ferðinni þangað varð Jón fyrir því óláni að veikast og náði sér aldrei eftir þau veikindi. Það var mikið áfall fyrir svona duglegan mann að þurfa að vera hjálparvana í mörg ár. Þó svo að líkaminn væri skaddaður þá var hugurinn skýr. Hann fylgdist vel með þjóðmálum og hafði ákveðnar skoðanir á flestu. Í einu spjallinu okk- ar sagði hann að sér þætti miður hve veikindi sín legðust mikið á konuna sína en það hefði hann síst viljað og henni ætti hann mikið að þakka. Í veikindum Jóns stóð kona hans eins og klettur við hlið hans. Aldrei heyrði ég hana kvarta. Tvær dætur eignuðust þau sem þau ólu upp af ástúð og kærleika. „Ekkert er of gott fyrir stelpurnar mínar,“ sagði Jón einu sinni við mig, þegar ég spurði hann hvort hann dekraði ekki of mikið við þær. Jón var líka mikill afi og hann talaði um barnabörn sín af stolti og kærleika. Þegar ég kom á þeirra fallega heimili þá var alltaf tekið á móti mér eins og höfðingja. Vinskapur þeirra hjóna verður mér ætíð ómetanlegur. Öll vitum við að kallið kemur einn daginn og eru fæst okkar viðbúin þeg- ar það kemur. En ég hugsa að Jón hafi verið farinn að þrá hvíldina eftir löng og ströng veikindi og verið viðbú- inn kallinu. Þóra mín og aðrir aðstandendur, Guð blessi ykkur við fráfall þessa mæta manns. Guð blessi minningu Jóns Lárusar Guðnasonar. Erla S. Sig. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Elsku Jón frændi, mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum, í raun að þakka þér. Þakka þér fyrir allar veiðiferðirnar sem við systkinin fengum að fljóta með í. Þessar veiði- ferðir voru okkur mikilvægar og ein- staklega skemmtilegar. Ég beið óþreyjufull allan veturinn eftir næstu veiðiferð. Þá var lagt af stað snemma morguns og stoppað í Hvalfirðinum þar sem pylsa og kók var keypt fyrir allt liðið og svo auðvitað fullt af nammi. Skemmtilegast var að hlusta á þig og pabba bulla í okkur frænk- unum og systkinunum og ljúga okkur full af ótrúlegum sögum eins og til dæmis um drauginn Borgarmóra sem átti að búa í fjallinu við veiðihúsið eða að reykskynjarinn hefði farið í gang af því að þið bræður höfðuð fretað svo mikið af rúgbrauðinu sem var alltaf keypt á leiðinni í veiðihúsið. Alltaf til- búnir með sögurnar og aldrei hikað. Ef maður fór eitthvað að efast þá var það strax afgreitt: spurðu bara Benna bróður eða spurðu bara Jón bróður. Þessar veiðiferðir, samveran og þess- ar frábæru sögur eru svo stór þáttur í dýrmætum æskuminningum. Mér finnst í raun aðdáunarvert hvað þú varst alltaf tilbúinn að hafa okkur krakkaskarann með, aldrei vesen og aldrei leiðindi, bara skemmtun. Við vorum alltaf velkomin og sam- gangur var mikill á milli þessara tveggja fjölskyldna. Bjuggum öll á Grettisgötu og næstum allir fjöl- skyldumeðlimir unnu í Úðafossi til lengri eða skemmri tíma. Elli frændi sagði eitt sinn að þú værir höfðingi og þar lýsti hann þér rétt. Ótrúlega örlátur, hjartahlýr og hjálpsamur. Með ólíkindum barngóð- ur, þú hafðir alltaf svo mikla þolin- mæði. Elsku Jón frændi, þakka þér fyrir allar samverustundirnar og fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur systkinin. Þakka þér fyrir þessar frábæru og dýrmætu minningar. Þín verður ávallt minnst. Elsku Þóra, Gúnný, Pálmi, Íris, Mundi og börn, megi góður guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg og minningin um góðan mann hjálpa ykkur að sjá ljósið að nýju. Þín frænka Ágústa.  Fleiri minningargreinar um Jón Lárus Guðnason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dögum.                          ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGURBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR frá Búðarhóli, Aðalgötu 22, Ólafsfirði, sem lést laugardaginn 16. ágúst, verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju 30. ágúst kl. 14.00. Sigþór Ólason, Valdimar Gunnarsson, Jóhanna Sæmundsdóttir, Þorgeir Gunnarsson, Björgvin Óli Gunnarsson, Margrét Óskarsdóttir, Jóhanna Ósk Gunnarsdóttir, Héðinn Jónasson og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN BJÖRG HAFLIÐADÓTTIR, GÍGJA, Suðurbyggð 15, Akureyri, lést á krabbameinsdeild Landspítala háskólasjúkrahúss við Hringbraut sunnudaginn 24. ágúst. Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigurvin Jónsson, Sigríður Sigurvinsdóttir, Bjarni Kristinsson, Jóna Ólafía Sigurvinsdóttir, Ásdís Sigurvinsdóttir, Einar Birgir Kristjánsson, Björg Sigurvinsdóttir, Stefán Þór Sæmundsson, Trausti Sigurvinsson og barnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓSAFAT VILHJÁLMUR FELIXSON, Húsey, varð bráðkvaddur sunnudaginn 24. ágúst. Útförin fer fram frá Löngumýrarkapellu þriðjudaginn 2. september kl. 15.00. Jarðsett verður að Víðimýri. Inda Indriðadóttir, Felix Jósafatsson, Baldvina G. Valdimarsdóttir, Indriði Jósafatsson, Hrönn Helgadóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, ÓSKAR V. FRIÐRIKSSON, Árakri 5, Garðabæ, sem andaðist 21. ágúst, verður jarðsunginn frá Seljakirkju mánudaginn 1. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Guðlaug Þorleifsdóttir, Stefanía Óskarsdóttir, Jón Atli Benediktsson, Herdís Óskarsdóttir, Sæmundur Valdimarsson, Þorleifur Óskarsson, Kristrún Lilja Daðadóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma okkar, HERBORG ANTONÍUSARDÓTTIR frá Núpshjáleigu Berufjarðarströnd, Skaftahlíð 33, andaðist að kvöldi sunnudagsins 17. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu. Sturlaugur Þórðarson, Hrönn Sturlaugsdóttir, Jason Steinþórsson, Elín Sturlaugsdóttir, Ásbjörn Ásbjörnsson, Sturlaugur Ásbjörnsson, Hulda María Magnúsdóttir, Sara Jasonardóttir, Garðar Guðjónsson, Sindri Egill Ásbjörnsson, Rakel Ásbjörnsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra EIRÍKS GUÐMUNDSSONAR fyrrverandi mjólkurbílstjóra, Grænumörk 3, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kumbaravogs á Stokkseyri fyrir mjög góða umönnun. Margrét Benediktsdóttir, Ingvar D. Eiríksson, Eygló Gunnarsdóttir, Óli Jörundsson, Þorbjörg Henný Eiríksdóttir, Bjarni Einarsson, Sigurður Eiríksson, Guðmundur Eiríksson, Benedikt Eiríksson, Helga Haraldsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Valdimar Valdimarsson, afabörn, langafabörn og langalangafabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR SIGURJÓNSSON bakari, Keflavík, lést fimmtudaginn 14. ágúst. Jarðarförin fór fram í kyrrþey frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 22. ágúst. Innilegar þakkir þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug. Diljá Gunnarsdóttir, Rúnar Mogensen, Magnús Gunnarsson, Guðný Gunnarsdóttir, Þórarinn Ólason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkæri maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir, mágur og tengdasonur, KRISTJÁN STEFÁNSSON, Lindarbraut 22B, Seltjarnarnesi, lést á heimili sínu þriðjudaginn 26. ágúst. Útförin auglýst síðar. Þorbjörg Guðrún Friðbertsdóttir, Friðbert Elí Kristjánsson, Áslaug Ragnarsdóttir, Karólína B. Kristjánsdóttir, Elvar Hákon Jóhannsson, Elías Arnar og Viktoría Friðbertsbörn, Kolbrún Guðmundsdóttir, Stefán Kristjánsson, Arna Stefánsdóttir, Skafti Guðbergsson og Lilja Guðrún Eiríksdóttir.✝ Eiginmaður minn, SÆMUNDUR HELGASON bóndi frá Galtarlæk, sem lést laugardaginn 23. ágúst, verður jarðsunginn frá Innra-Hólmskirkju á morgun, föstudaginn 29. ágúst kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á að styrkja ,,Kærleikssjóð Stefaníu Guðrúnar Pétursdóttur”. Reikn. 0327-13-300571, kt. 570904-2990. Guðbjörg Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.