Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 4
FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is „VONANDI mun hægjast á hækk- uninni en það er svo sem ekkert sem gefur okkur tilefni til bjartsýni,“ seg- ir Henný Hinz, hagfræðingur hjá Al- þýðusambandi Íslands. Verðbólga á Íslandi hefur ekki mælst hærri í rúm 18 ár, eða frá júlí 1990 þegar hún var 15,5%. Tólf mánaða verðbólga mæld- ist 14,5% í ágústmánuði og hækkaði um 0,9% frá fyrra mánuði. Hækkunin kom varla á óvart, en greiningardeildir Kaupþings og Glitnis spáðu 1,1% hækkun vísitölu neysluverðs í ágúst og greining- ardeild Landsbankans spáði 1% hækkun. „Þetta var alveg viðbúið og heldur undir því sem menn höfðu bú- ist við vegna veikingar krónunnar og þeirra matvælaverðshækkana sem átt hafa sér stað í heiminum og síðan í lok útsalna,“ segir Hannes Sigurðs- son, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann vonar jafnframt að hápunktinum sé náð. „Það er vonandi að þetta marki end- ann á þessum háu mánaðarlegu tölum, að þetta fari hjaðnandi með haustinu og við verðum fljótlega komin niður á viðráðanlegra verðbólgustig.“ Frekari hækkanir framundan Hækkun vísitölunnar er að mestu tilkomin vegna 1,8% hækkunar á mat- og drykkjarvörum, auk þess sem verð á fötum og skóm hækkaði um 4,7%. Bensín og olía lækkaði hins vegar um 3,9%. Mjög margir minni liðir hækkuðu töluvert á milli mánaða. Henný bend- ir á að Íslandspóstur hafi hækkað gjaldskrá sína um síðustu mán- aðamót og afnotagjöld Ríkisútvarps- ins hækkuðu í ágúst. Von er á frekari verðhækkunum og þannig hefur Síminn boðað hækkun á verðskrá líkt og Stöð 2. „En svo erum við að vona að ekki komi til verð- breytinga á skólatengdum hlutum, s.s. dagvist og mat,“ segir Henný og bendir á að á haustin verði gjarnan breytingar á gjaldskrám sem upp- færðar eru einu sinni á ári. „Það eru þessi tómstundatengdu gjöld, t.d. hjá tónlistarskólum og íþróttafélögum. Við vonum að menn sýni skynsemi og ábyrgð. Ríki og sveitarfélög ásamt fyrirtækjum á þeirra vegum verða að sýna samstöðu og stöðva hækkanir. Því þó svo að þetta séu kannski litlir liðir þá vega þeir sannarlega þungt þegar þeir koma saman.“ Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, kallar eftir samstarfi við ríkisstjórn- ina og gagnrýnir að opinberir aðilar kyndi undir verðbólgunni með hækk- unum. Gefur ekki tilefni til bjartsýni Morgunblaðið/Golli Fer hún lækkandi? Greiningardeildir bankanna telja stutt í að verðbólgan nái hámarki. Greiningardeild Lands- bankans og Glitnis telja að tólf mánaða verðbólga verði um 12% í árslok. Forseti ASÍ segir ástandið skelfilegt.  Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,9% í ágúst frá fyrra mánuði  Verðbólga ekki meiri í rúm 18 ár  Alþýðusamband Íslands segir opinbera aðila kynda undir verðbólgu og óttast frekari hækkanir                                                 FRÉTTASKÝRING Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu rann- sakar enn vítaverða aksturinn sem liðlega tví- tugur piltur varð uppvís að á skólalóð Austur- bæjarskóla á mánudaginn. Til skoðunar er hvort hann verði ákærður, m.a. fyrir að leggja líf skólabarna í hættu sem voru á skólalóðinni. Ákæruvaldið mun einnig ákveða hvort það krefjist þess að dómstóll geri sportbíl piltsins upptækan. Fari svo að ákært verði, upptökukrafa sett fram og dómstóll samþykki hana, verður það í annað skiptið sem slík úrslit fást fyrir dómstólum á því rúma ári sem liðið er frá því að ákvæði, sem heimilar upptöku ökutækja vegna alvarlegra og ítrekaðra brota, voru sett inn í umferð- arlög. Fyrsta málið af þessum toga var dæmt í Héraðsdómi Suðurlands 7. júlí sl. en þar var mótorhjól gert upptækt með dómi og öku- maður þess að auki dæmdur í 8 mánaða skil- orðsbundið fangelsi. Til upprifjunar skal nefnt að hann ók á 200 km hraða á Suður- landsvegi, hlýddi ekki lögreglu um að stöðva, en það alvarlegasta í málinu hlýtur að vera sú háttsemi hans að aka yfir höfuðið á félaga sínum sem lá í götunni eftir árekstur við bíl augnabliki fyrr. Ævarandi lömun og fötlun Í dómi segir: „Í máli þessu hefur ákærði verið sakfelldur fyrir að hafa ekið á með- alhraðanum 192 km á klukkustund og auk þess að hafa orðið valdur að ævarandi lömun og fötlun manns vegna gáleysislegs og víta- verðs aksturs. Verður að telja að skilyrði séu fyrir hendi að taka þá kröfu ákæruvaldsins til greina að bifhjólið verði gert upptækt til rík- issjóðs.“ Slysið varð 11. júní 2007 og vakti mikla at- hygli vegna afleiðinganna en ekki síður beindist athyglin að baráttu lögreglunnar gegn ofsaakstri og þeim úrræðum sem ákæruvaldið hefur til að slá á þessi brot. Þeg- ar sýslumaðurinn á Selfossi tók málið fyrir lét hann reyna á hin nýtilkomnu upptöku- ákvæði í umferðarlögum og fékk upp- tökukröfu vegna annars bifhjólsins sam- þykkta en dómurinn hafnaði kröfu um upptöku á hjóli þess sem lamaðist. Dóminum hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Nýmælin um upptöku ökutækja voru tví- þætt, annars vegar að gera skuli ökutæki upptækt að uppfylltum tilteknum skilyrðum og hinsvegar að heimilt sé að gera ökutæki upptækt á sömu forsendum. Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæru- valds í landinu og gefur út almenn fyrirmæli um meðferð ákæruvalds og er eftirlitsaðili með framkvæmd þess hjá lögreglustjórum. Þegar fyrrnefnd upptökuákvæði voru sett í umferðarlög í apríl 2007, sendi ríkissaksókn- ari lögreglustjórum leiðbeiningar um hvenær rétt væri að setja fram kröfu um upptöku ökutækis. Í leiðbeiningum sagði m.a. að hafi ökumaður stofnað lífi eða heilsu farþega eða annarra vegfarenda í augljósan háska á ófyr- irleitinn hátt beri að huga að kröfu um upp- töku ökutækis. Samkvæmt því sem lögreglan hefur látið frá sér fara um Austurbæjarskóla- málið, er það þessi klausa ríkissaksóknara sem augljóslega hefur verið litið til.  Mótorhjólamaður sem keyrði yfir höfuð félaga síns og örkumlaði hann var látinn sæta upptöku öku- tækisins með dómi  Upptökuákvæði ná líka til þess er ökumenn ógna lífi fólks með vítaverðum akstri Dómstólar hafa síðasta orðið Ógn Lögreglan lítur Austurbæjarskólamálið alvarlegum augum. Í HNOTSKURN »Vítaverði aksturinn við Austurbæj-arskóla er ekki fyrsta málið þar sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lítur til hinna nýju ákvæða um upptöku öku- tækja við rannsóknir á alvarlegum um- ferðarlagabrotum. » Hjá LRH fást þær upplýsingar aðtvívegis hefur lögreglan tengt ákvæðin við brot í rannsókn, í fyrra skiptið skömmu eftir innleiðingu ákvæð- anna og síðan aftur nú. 4 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hversu mikið hefur höfuðstóllinn hækkað á innlendu 10 milljóna króna jafngreiðsluláni til fjörutíu ára, sem tekið var 1. september 2007, og ber 5,40% fasta vexti? Hjá Landsbankanum fengust þær upplýsingar að einstaklingur með slíkt lán þyrfti 1. september nk. að greiða tæpar 58 þúsund krónur af því, að því gefnu að staðið hefði ver- ið við alla gjalddaga. Eftirstöðvarnar af láninu væru þá komnar upp í 11.275.825 krónur. Og á einu ári hefur því höfuðstóll lánsins hækkað um tæpar 1,3 milljónir króna. Ef sami einstaklingur hefði ekki tekið áhættuna á vaxandi verð- bólgu og ákveðið að taka erlent lán, til jafns í svissneskum frönk- um og japönskum jenum (Libor- vextir + 1,75% álag)? Ef fylgt er sömu forsendum og í fyrra dæminu væri hann ekki að glíma við verðbólguna en hins vegar gríðarlegt verðfall krónunnar, og um næstu mánaðamót þyrfti hann að greiða rétt rúmlega 71 þúsund krónur í af- borgun á láninu. Höfuðstóllinn hefði hækkað gríð- arlega og væri kominn upp í rúmar 13,7 milljónir króna. S&S 2,5% Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands 1,4% Tólf mánaða verðbólga í janúar 2003 1,8% Tólf mánaða verðbólga í mars árið 2004 11,8% Tólf mánaða verðbólga í apríl síðastliðnum 14,5% Ársverðbólga í ágústmánuði samkvæmt mælingum Hagstofunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.